Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978 Hýðingarmeistarinn hýðir einn nauðgaranna fjögurra á krikk- etvellinum í Faisalabad. Jafnskjótt og stjórnvöld höfðu ákveðið að mennirnir fjórir skyldu hýddir opinberlega, hófst mikil leit í fangelsum landsins að manni, sem fullnægði öllum þeim skilyrðum sem stjórnvöldu gerðu til böðuls. Eftir að hafa rætt við: lífstíðarfangann Rahmat Ali voru yfirvöld samt sannfærð um að hann væri sá rétti í starfið, og frekari leit var hætt. Ali hafði allt til að bera, vöðvar hans voru stæltir sem vöðvar á hnefaleika- manni og rennilegur líkami hans minnti á vel þjálfaðan líkama frjálsíþróttamanns. Þar að auki var úthald Alis gott og hann fullfær um að hýða mann duglega, auk þess sem hann hafði á sér yfirbragð sadista. Ofan á allt annað hafði Rahmat Ali verið sekur fundinn um morð og verið dæmdur til dauða. Af ástæðum, sem fáum eru kunnar, var dauða- dóminum breytt í ævilangt fang- elsi og Ali átti því frekar ömurlega ævi framundan. Böðulsstarfið yrði Ali kærkomin tilbreyting og ekki þurfti hann að óttast hefnd fórnarlamba sinna því að í fang- elsi mun hann dvelja allt til hinzta dags. Hann stóðst allar þær kröfur sem gerðar voru til hans og til að þjálfa hann fyrir hina opinberu hýðingu leyfðu fangelsisyfirvöldin honum að æfa sig á nokkrum Lifstíðarfangi hýddi fjóra afbrotamenn og múgurhm fagnaði innilega Fyrir skömmu voru fjórir menn dæmdir til opinberrar hýöingar í borginni Faisalabad í Pakistan, en langt var pá um liöiö síðan Þaö hafði síðast gerzt. Blaöamaöur brezka blaðsins Daily Mail, John Edwards, var viðstaddur hýðinguna og fer frásögn hans hér á eftir. samföngum sínum við góðan árangur. Jafnskjótt og tilkynnt var að Rahmat Ali myndi hýða fjóra glæpamenn á krikkett-vellinum í Faisalabad, hófst straumur fólks á hinn risastóra völl. Elnginn vildi missa af skemmtun sem þessari. Vallarhliðunum var lokað klukku- stund áður en hýðingin átti- að hefjast, nokkuð sem aðeins kemur fyrir þegar um stórleiki í krikkett er að ræða. Um 150.000 manns fyltu öll stæði á vellinum, og allir voru jafnspenntir og biðu óþreyju- fullir eftir þvi að hýðingin hæfist. Rahmat Ali hafði verið færður á krikket-völlinn í járnbúri, en er stemmningin á áhorfendapöllun- um tók að aukast var AIi sleppt úr búrinu og hóf hann þá þegar að undirbúa sig fyrir dagsverk sitt. Klæddur rauðri mittisskýlu einni klæða, bar Ali^ sig olíuvökva og sólin sindraði á olíubornum lík- ama hans. Hann tók spanskreyr- inn upp sem lá við fætur hans, og barði með honum út í loftið. Það hvein í spanskreyrnum og ánægju- svipur færðist yfir andlit hýðing- armeistarans. Hann tók annan spanskreyr sér í hönd og reyndi hann, en lyfti honum síðan hátt upj) og leyfði áhorfendum að sjá vopnið. Fagnaðarlæti áhorfenda voru mikil og þau bárust eins og öldur í gegnum mannfjöldann. Köll og öskur áhorfenda skullu eins og flóðbylgja á stálbúri Mohammed Sarwar, 25 ára, sem Ali átti að hýða eftir stutta stund. Sarwar horfði skelfdum augum í gegnum rimlana, en hann virtist vera of hræddur til að geta hugsað' rökrétt. Fætur hans voru hlekkj- aðir við gólf búrsins og það skrölti í hlekkjunum við minnstu hreyf- ingu Sarwars. Fangelsislæknirinn athugar hjartslátt eins fjórmenninganna, til að ganga úr skugga um að hann þoli hýöinguna. Sjónauki auðveldaði mörgum að fylgjast meö hýöingunni. Við hliöina á Sarwar, en eigi að síður utan seilingar voru þrír félagar hans, en fjórmenningarnir höfðu allir nauðgað 14 ára sveita- stúlku, fyrir framan föður hennar, sem þeir bundu við staur. Fyrir nauðgunina hlutu þeir ársfangelsi og 12 vandarhögg og seinni hluta dómsins átti að fullnægja í dag. Dómur þeirra er í fullu samræmi við þá ógnaröld sem ríkt hefur í Pakistan síðan Zia hershöfðingi tók þar við völdum fyrir níu mánuðum. Á því tímabili hafa opinberar hýðingar og heng- ingar færst mjög í vöxt og er nú beitt í fullu samræmi við landslög. Áður en fangarnir voru fluttir til krikket-vallarins átti fangelsis- stjóri þeirra Qasim Khan, stutfc samtal við þá og eftir á var hann spurður hvað farið hefði þeirra á milli. „Ég sagði við þá: „Jæja kunningjar, þetta vérður til þess að þið hættið glæpum ykkar og hafið það hugfast, og — standið ykkur vel,“ sagði fangelsisstjórinn. En athöfnin var að hefjast og nú teymdi fangelsisvörður Sarwar á eftir sér, eins og hann væri með hund í bandi, út á miðjan krikket-völlinn. Sarwar kipptist við þegar hann sá áhorfendaskarann, en á áhorf- endapöllunum ríkti nú dauðaþögn. Hann var nakinn fyrir ofan mitt og víðar buxur hans slógust til við hvert fótmál hans. Beint framundan var hýðingar- staðurinn, stál-þríhyrningur, sem glæpamennirnir skyldu bundnir við er að þeim kæmi. Er þangað kom voru buxur Sarwars dregnar niður og þunnur klútur var lagður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.