Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 17
I
yfir rass Sarwars, til að koma í veg
fyrir að spanskreyrinn hitti hann
beran. Handleggir Sarwars voru
handjárnaðir fyrir ofan höfuð
hans og fætur hans festir í
nokkurs konar gapastokk. Líkami
hans var festur tryggilega við
þríhyrninginn og stóð afturendi
Sarwars nokkuð út í loftið. Púði
var bundinn við neðrihluta baks
Sarwars til að verja mænuna fyrir
höggum og á rass Sarwars var
málaður svartur ferhyrningur, svo
að hýðingarmeistarinn vissi hvar
hann ætti að slá.
Qasim Khan gekk til Rahmats
Alis og tveggja annarra morð-
ingja, sem voru varamenn Alis, ef
svo færi að hann þreyttist á
barsmíðinni. „Allt í lagi strákar,"
sagði hann við þá, „þið verðið að
gera eins og þið getið bezt,
áhorfendur krefjast þess að þið
leggið ykkur alla fram.“
Þótt Sarwar væri rammlega
bundinn gat hann séð Ali koma
vaggandi í áttina til sín, sveiflandi
spanskreyrnum yfir höfði sér.
Fyrst var sem Ali væri að dansa
ballett, en er hann nálgaðist
Sarwar, breytti hann um göngulag
og hálf skokkaði til nauðgarans
með spanskreyrinn á lofti. Hann
lagðist niður á annað hnéð, hönd
hans var útrétt beint út í loftið, ,
áður en hann sneri sér í hring og
Hlekkjaður afbrotamaður er
teymdur að hýðingarstaðnum
skjálfandi á beinunum af
hræðslu.
Rahmat Ali lífstíöarfangi og hýð-
ingarmeistari í einn dag, stillir sér
upp fyrir Ijósmyndara.
barði með spanksreyrnum í aftur-
enda Sarwars af öllum mætti.
Sarwar kastaði höfðinu aftur á
bak og öskraði. Augasteinar hans
hringsnerust og mannfjöldinn,
sem verið hafði þegjandi, rak upp
siguróp. Sársaukinn nísti líkama
Sarwars og hver einasta taug
virtist bera sársaukaboð til heil-
ans. Hann skalf og nötraði líkt og
hann hefði fengið straum.
Rahmat Ali hóf prikið á loft á
' nýjan leik og hóf aftur forleikinn
að högginu. Með klemmd augu
muldraði Sarwar og bað: „Fyrir-
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
17
gefðu mér, fyrirgefðu," kallaði
hann og áhorfendaskarinn kallaði
á móti: „Guð er máttugur — Allah
Hoakhbar."
I annað sinn lét Ali spanskreyr-
inn dynja á bakhluta Sarwars, sem
gaf frá sér skerandi öskur. Þegar
fimm högg höfðu dunið á Sarwar,
leið yfir hann. Fangelsislæknirinn
Ahmed Ali Khalid, gekk til hans
og eftir stutta athugun lýsti hann
því yfir að í lagi væri að halda
hýðingunni áfram. Rhamat Ali
lyfti spanskreyrnum upp í sjötta
sinn og lét höggið ríða á Sarwar.
Það heyrðist ekki bofs í Sarwar, er
hann hneig niður og hékk mátt-
laus utan á stálþríhyrninginum.
Hann virtist ekki draga andann,
og læknirinn hraðaði sér til hans,
áhyggjufullur á svip. Hann tók um
púls Sarwars, en slagæðin virtist
ekki slá. Hjartað virtist heldur
ekki slá. Sarwar hafði fengið lost
og í skyndi var hann leystur og
lagður á jörðina. Ahmed Ali
Khalid tók að hnoða hjarta
glæpamannsins og eftir stutta
stund fann að hjartað var tekið að
slá á nýjan leik, en afar veikt. Nær
dauða en lífi var Sarwar borinn á
börum í sjúkraherbergi undir
stúku leikvallarins.
Uppi yfir áhorfendapöllunum,
við hliðina á stóru markatöflunni
sátu embættismenn í þægilegum
hægindastólum og fylgdust með
hýðingarathöfninni í gegnum
kraftmikla sjónauka. Þjónn þjón-
aði embættismönnunum og bauð
þeim kalda drykki, sem þeir þágu
með þökkum enda hitinn mikill.
Við hýðingarstaðinn stóðu dóm-
ararnir er kveðið höfðu upp
dóminn yfir nauðgurunum fjórum
og fylgdust svipbrigðalausir með
hýðingunni. Fyrir framan þá sat
háttsettur dómari frá herdóm-
stólunum, Afzal Hyder majór, og
merkti við nafn hvers afbrota-
manns og fjölda högganna sem
hann þoldi.
Áhorfendum var farið að leið-
ast. Hýðing Sarwars hafði aðeins
staðið yfir í 10 mínútur og að mati
þeirra var það alltof stuttur tími.
Þegar næsti afbrotamaðurinn var
leiddur að hýðingarstað'num fór
fagnaðarbylgja um áhorfendapall-
ana. Rahmat Ali undirbjó sig fyrir
næstu hýðingu og gerði léttar
æfingar á jörðinni. Það glampaði
á spengilegan líkama hans, sem nú
var óhreinn og rykugur.
Mohammed Atzal var bundinn
við hýðingarstaurinn og fanga-
verðir undirbjuggu hann fyrir
hýðinguna.
Rahmat Ali stóð á fætur og hóf
að dansa trylltan stríðsdans í
kringum Atzal. Spanskreyrnum
hélt hann hátt á lofti. Atzal vissi
hverju hann átti von á, hann
klemmdi aftur augun og beið þess
að hýðingin hæfist.
Er höggin voru orðin átta leið
Atzal út af. Hann var fluttur í
herbergið undir stúkunni, þar sem
enn var verið að hjúkra Sarwar.
Síðustu tveir afbrotamennirnir
voru hvor um sig hýddir 12
höggum, og hvorugur þeirra féll í
yfirlið. Þegar síðasti afbrota-
maðurinn var leystur frá hýðing-
arstaurnum, þustu vopnaðir lög-
reglumenn upp í áhorfendastæðin
og ráku áhorfendur með valdi burt
og út á göturnar utan við krikk-
et-völlinn.
Rahmat Ali og aðstoðarmenn
hans voru settir í búr sín og fluttir
aftur í fangelsið.
Qasim fangelsisstjóri hofði á
hýðingarstaðinn í síðasta sinn og
sagði svo brosandi: „Jæja, hafði ég
ekki rétt fyrir mér, þegar ég sagði
að athöfnin yrði skemmtileg?"
Zia hershöfðingja var ekki send
nein skýrsla um hýðinguna, ein-
faldlega vegna þess að hann hafði
hugann við önnur mikilvægari
mál, og hafði ekki tíma til að sinna
öllum þeim fjölda hýðinga, sem
fram fóru í Pakistan á hverjum
degi.
„Látið afbrotamennina finna
fyrir hræðslunni við Guð,“ hafði
hann sagt. „Það er eina færa leiðin
til að stemma stigu við afbrotum
í landinu." Að svo mæltu gekk Zia
á vit Múhammeds spámanns, til að
finna lausn á þeim vandamálum er
að landi hans steðjuðu.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri Seltjarnarnesi:
Hægri-■vinstri
Vinstri - hægri
Er tveggja
flokka kerfi
að myndast
á íslandi?
Hvernig myndi
það gerast?
Er það æskilegt?
Úrslitin í sveitarstjórnakosn-
ingunum sl. sunnudag sýna
augljóslega að þess er ekki langt
að bíða að hér fari sem svo víða
að tveir stórir flokkar myndist,
breiður hægri- flokkur og breið-
ur vinstri flokkur.
Litlir smáflokkar munu eins
og alltaf snúast kringum þessa
flokka, aðallega þó í jöðrum
þeirra til hægri og vinstri.
Hvernig
gerist slíkt?
Dæmigert um slíkt gætu verið
byggðakosningarnar sl. sunnu-
dag þar sem saman fór lítil
þátttaka, sem sýnir óánægju
hluta kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins með núverandi ríkisstjórn og
jafnframt því sem hluti kjós-
enda sjáifstæðis og framsóknar
kaus til vinstri þar sem þeir að
þessu sinni töldu sig finna
samherja.
En er þetta rétt?
Sjálfsta'ðisflokkurinn telur
sig fulltrúa ailra stétta með
nokkuð miklum rökum. Þetta
breiða stefnubil gerir flokknum
erfitt um vik í allri stefnumótun
þar sem allt, sem frá þeim
kemur hlýtur að sæta gagnrýni
annars hvors armsins og þess
vegna hefur flokkurinn reynt að
brúa beggja bil um alllangt
skeið meö misjöfnum árangri að
dómi flokksmanna.
Við samruna á hægri væng tel
ég hlutverki F'ramsóknarflokks-
Sigurgeir Sigurðsson
ins lokið og skal það stutt
frekari rökum.
Framsóknarflokkur er í eðli
sínu hægri flokkur, sem byggist
fyrst og fremst á sjálfstæðum
smáatvinnurekendum, m.a.
bændum, sem eru sjálfstæðustu
einstaklingar hvers þjóðfélags.
Félagshyggjan margrómaða
er þeim alls ekki hugstæð,
heldur má líkja kaupfélögum og
sölufélögum þeirra í dag við
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
S.I.F. eða hverja aðra viðskipta-
stofnun, sem gerir allt til þess
að halda sínum vörum í
hámarksverði eigendum sínum í
hag. Þannig að í dag biðlar
Framsóknarflokkurinn til
vinstri, flokksmönnum til skap-
raunar.
Smáatvinnurekendur hafa
margir hverjir haldið tryggð við
Alþýöuflokkinn af mjög skiljan
legum ástæðum til þessa. Þessir
aðilar eru margir iðnaðarmenn
vaxnir upp innan fyrirtækja og
hafa síðan með dugnaði og
áræði stofnað sín eigin fyrir-
tæki en halda ennþá í sína
barnatrú þrátt f.vrir ýmsa hags-
munaárekstra því samfara.
Þessir aðilar eiga fátt sammerkt
með forystu Alþýðuflokksins og
hafa raunar fengið þaðan kaldar
kveðjur í seinni tíð.
Alþýðubandalagið sem við
þekkjum í dag er einkennilegt
fyrirbæri.
Stefnuskrá þess er á margan
hátt sambærileg stefnuskrá
okkar sjálfstæðismanna, þeir
þurfa að spanna vítt svið og um
leið varast öfga til vinstri sbr.
öll 1 i11 u flokksbrcrtin sem þar
hafa sprottið upp. Innan
Alþýðubandalagsins eru í dag
ólíklegustu aðilar og af ólíkleg-
ustu ástæðum. Þar er t.d. stór
hópur ungs menntafólks, sem
telur flokkinn „fínan“, þar eru
margir listamenn, sem telja
flokkinn „skapandi". Vandi
flokksins liggur þó aðallega í
forystunni, sem talar alþýðumál
en skilur það ekki.
Niðurstaða
Tveggja flokka kerfi er það
sem viö þurfum til þess að skapa
hér traust þjóðfélag, sem getur
gefið þegnum tækifæri til raun-
hæfs vals milli þjóðfélagsupp-
byggingar í anda eihstaklings-
hyggju og frjálsræðis. Eða
þjóðfélags ríkisforsjár t.d. í
anda bresku jafnaðarmaniianna
eða ennþá róttækari þar sem
einstaklingurinn væri hluti
stórrar heildar, sem léti stjórn-
laust að vilja ráðamanna.
Báðar þessar stefnur rúmast
innan anda lýðræðisins og gætu
þrifist á íslandi.
Báðar þessar stefnur vilja
vafalaust Island frjálst og í
samstarfi við vestrænar þjóðir
og þar með áframhaldandi aðild
að N.A.T.O.
Þessi uppstokkun er einföld.
Sterkur hægri og miðflokkur
Sjálfsta'ðisflokkur án kreddu-
kenninga, sem fæla frá
Framhald á bls. 26.
Cll 221:
REIKNAR HVAD GEFA A
TIL BAKA
GEFUR VIDSKIFTAMANNI
KVITTUN
SKRIFAR STRIMIL FYRIR
BDKHALD
GEFUR HEILDARSÖLU
DAGSINS
KOSIAB 11 198.600
enel jlir nægir CIR22R
er engii ðslæda til ad V
aupa djrara tæki i
Vid~seljum lika dýrari
Reyndar seljnn tii llka óorRARI BBDARKASSA f
Sími 20560
nrrr-'Á
>m>7x> ocn