Morgunblaðið - 01.06.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
25
Starfsmenn Orkustofnunar:
Túlkun íslenzkra sérfræðinga á
Kröfiusvæðinu fékk góðar undir-
tektir erlendra vísindamanna
— benda á f jölmörg atriði til athugimar við Kröflu
„Við samanhurð á því hvernig
staðið er að jarðhitamálum á
íslandi og annars staðar. kemur
í ljós að hlutur íslands er
allgóður. Þó virðist svo scm utan
Islands sé lögð meiri áherzla á
stjórnun horverka og nauðsyn
þess að sanna vinnslugctu jarð-
hitasvæða með borunum en hing-
að til hefur tíðkast hér.“ segir í
skýrslu þriggja sérfræðinga
Orkustofnunart Valgarðs Stef-
ánssonar. Sigurðar Benediktsson-
ar og Sverris Þórhallssonar. um
ferðir þcirra til Nýja Sjálands,
Filippseyja. Hawai. Mexico og
Bandaríkjanna til að kynna sér
aðstæður og aðferðir við virkun
jarðhita og bera undir sérfræð-
inga vandamál. sem fram hafa
komið við Kröflu. „í heild má
segja að þó þau vandamál sem
fram hafa komið í Kröflu séu að
sumu leyti einstæð, svo sem
útfelling í borholum og gerð
jarðhitakerfisins. eru vandamál-
in sem slík ekki meiri en menn
hafa rekist á annars staðar.
Skemmdir á fóðurrörum eru víða
mjög alvarlcgt vandamál og sú
reynsla að leita þurfi innan eins
jarðhitasvæðis að heppilegum
vinnsluciginleikum er alþekkt,“
segja þremenningarnir í skýrslu
sinni. scm nú er til athugunar hjá
iðnaðarráðuneytinu. „Það gefur
auga leið að ekki er fyrir hendi
nein einföld lausn á svo marg-
slungnum vandamálum sem fram
hafa komið við Kröflu og þessi
skýrsla gefur auðvitað enga
fullnaðarlausn þeirra vandamála.
Ilins vegar eru fyrir hendi mörg
atriði sem bæta má.“ Niðurstöður
sínar og tillögur leggja þeir
þremenningar fram í 42 liðum,
þar á meðal um ýmis tæki og
tækni sem reynd verði hér á landi
og að Richard Bolton yfirjarð-
hitaverkfra'ðingur á Nýja Sjá-
landi verði fenginn til íslands.
Niðurstöður og tiilögurnar
fara hér á eftin
1. Túlkun Islenskra eérfraeðinga
á jarðhitasvæðinu við Kröflu fékk
góðar undirtektir hjá jarðhitasér-
fræðingum á Nýja Sjálandi og í
Bandaríkjunum. Voru niðurstöð-
urnar í samræmi við reynslu
þeirra á öðrum jarðhitasvæðum.
2. Við rannsókn jarðhitasvæða
hefur komið í ljós að afl einstakra
hola innan svæðisins er mjög
breytilegt. Eina leiðin til að kanna
hvar séu bestu vinnslueiginleikar
innan svæðis, er með borun. Ef
hins vegar er borað utan við
lágviðnámssvæðið eru holur yfir-
leitt kaldar.
3. Á Nýja Sjálandi og í Banda-
ríkjunum telja menn efnafræði-
legar rannsóknir mjög áhrifamik-
ið verkfæri bæði við frumrann-
sókn og eftirlit jarðhitasvæða.
Helstu nýmæli á því sviði eru
notkun ýmissa ísótópa og gasteg-
unda við ákvörðun á jafnvægis-
hitastigi.
4. Gerður var munnlegur samn-
ingur við Hulston og Lyon hjá
Institute of Nuclear Sciences á
Nýja Sjálandi um að greina
ísótópa í sýnum frá Kröflu. Þetta
er samvinnuverkefni og niðurstöð-
ur verða sameiginleg eign Orku-
stofnunar og I.N.S.
5. Reynsla Nýsjálendinga í
nýtingu jarðvarma nær upp að
300°C. Neðri hluti Kröflusvæðis er
mun heitari (nálægt 350°C). Járn
og kísilútfellingar í borholum er
óþekkt fyrirbæri á Nýja Sjálandi.
6. Reynsla á Nýja Sjálandi;
Filipseyjum og Mexico af kalkút-
fellingum er svipuð og fram hefur
komið á íslandi. Talið er í öllum
löndum að hægt sé að búa við
þannig útfellingar. Holur eru
hreinsaðar reglulega.
Kalkútfellingar eru algengastar
í grunnum köldum holum. Stund-
um virðist hægt að sniðganga
kalkútfellingar með dýpri borun.
7. Hvergi hefur orðið vart við
útfellingar af kísil í borholum
nema í Kröflu. í Imperial Valley
í Bandaríkjunum hafa fundist
útfellingar bæði af kísil og járn-
samböndum en þær útfellingar
hafa einungis orðið í tækjum og
lögnum á yfirborði.
8. Vinnslutæknirannsóknir á
Nýja Sjálandi hafa sýnt að útfell-
ingar kísils séu ekki vandamál við
niðurdælingu affallsvatns ef þess
er gætt að jarðhitavatnið komist
ekki í snertingu við súrefni
andrúmsloftsins.
9. Tilraunir hafa verið gerðar á
Nýja-Sjálandi um áhrif járns og
annarra málma á útfellingarhraða
kísils. Talið er víst að bæði járn og
aðrar málmjónir hafi hvetjandi
áhrif á útfellingu kísils.
10. Bæði á Nýja-Sjálandi og í
Bandaríkjunum hafa verið gerðar
tilraunir með efni sem koma í veg
fyrir útfellingu kísils. Upplýsingar
um þessar tilraunir fengust í
ferðinni.
11. Aflmælingar borhola á
Nýja-Sjálandi eru framkvæmdar á
likan hátt og nú er gert í Kröflu,
þannig að mælt er vatnsmagn og
krítiskur þrýstingur. Aflmælinga-
útbúnaður á NZ er þó færanlegur
og þess vegna er kostnaður eflaust
minni. Lagt er til að hannaður
verði færanlegur aflmælingaút-
búnaður, sem nota megi almennt
á ísienskum háhitasvæðum.
12. Þegar holum er hleypt í
blástur í fyrsta sinn er lagt til að
holan fái að hitna hægt upp. Ef
holan kemur ekki upp sjálf er lagt
til -að rör verði sett niður fyrir
vatnsborð og lofti dælt þar til
renna fer úr holunni.
13. Reynsla Mexicana er sú að
ekki sé hægt að nýta saman
misheitar vatnsæðar í sömu hol-
unni. Afleiðing af þessu er að
æskilegt er talið að hafa aðeins um
150 m kafla raufaðan í hverri holu.
14. Á Nýja Sjálandi er í notkun
raufunarvél, sem fræsir raufar í
fóðurrör. Lagt er til að athuguð
verði hagkvæmni á að smíða slíka
vél hér á Islandi. Jafnframt er lagt
til að athuguð verði lögun raufa,
þar sem sýnt er að lögunin hefur
áhrif á sprungumyndun í rörum.
15. Þurrgufuholur eru yfirleitt
án raufaðra fóðringa. I Bandaríkj-
unum er einnig farið að nýta holur
án raufaðra fóðringa á blautum
svæðum (Rosvelt Uth.)
16. Við vinnslu á Wairakei
svæðinu á Nýja-Sjálandi hefur
komið fram mikið landsig auk
láréttra hreyfinga lands. Lagt er
til að komið verði upp nákvæmu
mælineti á öllum háhitasvæðum á
íslandi sem eru í nýtingu.
17. Við rekstur jarðhitasvæða er
nauðsynlegt að fylgjast með
rennsli frá hverri holu fyrir sig.
Auðveldlega má gera þetta með
því að mæla þrýstifall yfir blendu
aftan við hverja háþrýstiskilju.
Lagt er til að þessi aðferð verði
notuð í Kröflu.
18. Magn óþéttanlegra gasteg-
unda virðist yfirleitt minnka við
langvarandi nýtingu. Núorðið eru
jektorar oft hannaðir í þrepum til
að mæta þessari breytingu. Ef gas
fer upp í 3—4% af gufu er
gufuþörf jektora talin of mikil
(10—15% af gufunotkun) og ráð-
legra talið að nota sogdælur.
19. Vegna þrýstifalls jarðhita-
svæða við nýtingu er nú yfirleitt
reynt að velja inntaksþrýsting á
trúbínur sem lægstan. Russel
James, efnaverkfræðingur á
Nýja-Sjálandi telur að 50 psi (3,5
bar) sé hagkvæmasti inntaks-
þrýstingur, óháð vinnslueiginleik-
um svæðisins.
20. Lagt er til að nota aðkeyptan
holutopp með áföstum kæfinga-
stút og þennslustykki fyrir innri
fóðringu. Holuloki er þá festur á
ytri fóðringu.
21. Til að forðast tæringu á
holutoppi er lagt til að alltaf verði
látið blæða af holum sem eru í
geymslu.
22. Lagt er til að settar verði
öndunarpípur milli allra steyptra
fóðurröra sem eru í snertingu við
andrúmsloft.
23. Reynsla Nýsjálendinga bend-
ir til að kvörðun framleiðenda á
hita og þrýstimælum sé ekki nógu
áreiðanleg. Lagt er til að komið
verði upp aðstöðu til kvörðunar á
Islandi og mælar kvarðaðir reglu-
lega, vegna breytinga sem verða
við notkun.
24. Gufuveitum er yfirleitt
haldið heitum og túrbínur látnar
snúast í tómagangi þegar þær eru
ekki í notkun, til þess að forðast
tæringu.
25. Kröfur um mengunarvarnir
við jarðhitavirkjanir hafa þegar
verið settar í Bandaríkjunum og
fyrirsjáanlegt er að það verði gert
annars staðar. (Nýja Sjálandi).
26. Við borframkvæmdir á
Nýja-Sjálandi er tæknileg yfir-
stjórn borverka mun meiri en á
íslandi. Þannig eru 8 verkfræðing-
ar auk 32 bormanna við rekstur á
tveim T12 borum og einum Failing
bor.
27. Allar líkur eru á, að minnka
megi erfiðleika og kostnað við
steypingar með því að nota leðju
við boranir fyrir steyptum fóður-
rörum. Lagt er til að þessi háttur
verði hafður við boranir á háhita-
svæðum þar sem leki er vandamál.
Nauðsynleg efni og tæki verði
fengin til þessa.
28. Þegar steypa kemur ekki upp
á yfirborð, en nær upp milli
fóðringa nota Nýsjálendingar,
Filipseyingar, og Mexicanar þá
aðferð að skjóta göt á fóðurrör og
steypa síðan það sem eftir er með
því að láta tappa- í holuna og
steypa í gegnum götin. Lagt er til
að tæki verði fengin til að skjóta
göt á fóöurrör.
29. Re.vnsla hérlendis og erlend-
is er sú að ekki sé hægt að steypa
í einu þrepi nema 600 m kafla.
Lagt er til að útbúnaður til
þrepasteypinga verði fenginn til
landsins og slík tækni notuð ef
steypa þarf dýpra en 600 m.
30. Þó hvergi sé notuð sú aðferð
að steypa niður með fóðurröri og
holuvegg leggjum við til að athug-
að sé hvort þessi aðferð geri það
kleift að steypa holur á án
notkunar þrepasteyputækja. Þörf
á þéttingu verður þá minni.
31. Lagt er til að kannaðar verði
leiðir til að minnka borkostnað.
Má þar benda á upphækkun bors
og notkun grunnra borkjallara,
borun með leðju fyrir steyptum
fóðringum, notkun þéttiefna, gerð
verklýsinga borana og rannsókna
meðan á borun stendur.
32. Við borun eftir jarðhita
annars staðar en á Islandi er
yfirleitt fylgst með halla holunnar
í borun. Ef holan byrjar að hallast
er dregið úr álagi til þess að reyna
að rétta holuna. Lagt er til að
fengin verði hallamælingatæki og
að bormenn hallamæli holur
reglulega i borun, vegna hættu á
fóðurröraskemmdum og festu.
33. Allgóðar upplýsingar fengust
á Nýja Sjálandi, Filipseyjum og
Mexico um könnun á fóðurrör-
skemmdum. Lagt er til að fengin
verði 32 arma þreifari (Otis) til að
kanna fóðurrörskemmdir. Einnig
sérstakir pakkarar með mjúku
gúmmíi til að taka þrykkimyndir
af fóðurrörskemmdum. Ennfrem-
ur að reyna að ná þrykkimyndum
með blýhnalli. Körfur til víddar-
mælinga verði isvalningar en ekki
vírgrindur.
34. Til þess að hægt sé að draga
vinnslufórðingu upp úr borholum,
mæla Nýsjálendingar með notkun
hydril linera (slétt rör). Einnig er
talið að þessi gerð fóðurröra
skemmist síður í holum vegna
tæringar og efnaáhrifa. Lagt er til
að þessi gerð vinnslufóðringa verði
tekin upp á Islandi.
35. Á þeim svæðum sem heim-
sótt voru hefur meginvandamál
við nýtingu jarðvarma verið
skemmdir á fóðurrörum. Til lausn-
ar á þessum vanda háfa helstu ráð
verið: val á fóðurröramúffum,
efnisval fóðurröra, þykkt fóður-
röra, bætt steypugæði, borun
lóðréttra hola, aðferðir við að
koma holum í blástur og aðgerðir
við að geyma holur.
36. Lagt er til að álagsstengur
séu ekki sverari en svo að ætíð sé
mögulegt að bora utan með
álagsstöngunum í festum. Eða að
króna sé minnst 2 tommum
breiðari en álagsstengur. Þessar
aðstæður skapa einnig minni
hraða á skolvökva milli álags-
stanga og holuveggjar.
37. Lagt er til að fengin verði
„bridge plug“ sem nota mætti til
að loka holu með þegar viðgerða er
þörf á holutoppi.
38. I ferðinni kom fram að
Magobar fyrirtækið í Kaliforníu
hefur nýlega hafið framleiðslu á
sérstakri borleðju til háhitabor-
ana. Lagt er til að slík leðja verði
reynd við íslenskar aðstæður.
39. í Mexico hefur verið reynt
nýtt þéttiefni frá Halliburton til
þess að þétta leka í borholum. Lagt
er til að þetta efni verði reynt á
íslandi.
40. Eftir viðræður við Richard
Bolton var talið mjög æskilegt að
steypa af efra jarðhitakerfið í
Kröflu. Lagt er til að það verði
athugað i holum KG-10 og KJ-11.
41. Richard Bolton yfirjaröhita
verkfræðingur hjá Ministry of
Works and Development á Nýja
Sjálandi verði fenginn til Islands.
Verksvið hans verði ráðgjöf um
bortæknileg atriði og nýtingar-
möguleika Kröf'.usvæðis. Einnig er
æskilegt að fá umsögn hans um
stjórnun jarðhitaframkvæmda við
Kröflu, vegna reynslu hans við slík
störf á Nýja Sjálandi.
42. Þrátt fyrir ýmsar ábending-
ar í þessum kafla eru megindrætt-
ir jarðhitastarfsemi á íslandi
mjög sambæriiegir við það sém
gerist annars staðar í heiniinum.
Nýsjálendingar hafa um 25 ára
reynslu af háhitaborunum og hafa
borað hátt í 200 borholur en
flestar þeirra eru um 1200 m. Á
Filipseyjum hófust boranir fyrir 6
árum og hafa um 60 holur verið
boraðar. Holur þar eru um 2000 m
djúpar. í Mexico hófust boranir
1964 og hafa þar verið boraðar 90
holur. Fyrri holur þar eru um 1500
m en nú eru holur um 2000 m. Hér
á landi hafa verið boraðar yfir 40
háhitaholur þar af meira en 10
holur 1800 - 2200 m.