Morgunblaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1978
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI — EFNAHAGSMÁL — ATHAFNALÍF.
Umsjóni Sighvatur Blöndal.
Fólk á að forðast
hringiðuna
IIÉR á landi var nýverið staddur
John P. Ilajdu framkvæmdastjóri
hóteldeildar hins stóra hljóm-
plötufyrirtækis EMI í Bretlandi í
hoói Flugleiða. Ilann kom Ka«n-
Kert hinKað til lands til að kynna
hin ýmsu hótel sem fyrirtækið
rekur í London ok almennt þá
þjónustu sem fyrirtækið getur
látið ferðamönnum f té.
í London
Hajdu sagði í samtali við Mbl.
að það gætti furðu mikillar
íhaldssemi hjá íslenzkum ferða-
mðnnum sem koma til London.
Þeir færu yfirhöfuð ekki á hótel
sem ekki væru alveg í hjarta
borgarinnar, en það væri regin-
misskilningur hjá því. Mikið væri
Framhald á hls. 26.
< ilx
itntm
r' 'c mt rml
Eggert Kristjánsson hf. heimsótt:
Brautrydjandi í tækni á sviði
vörugeymslu og vörudreifíngu ’ ’
John P. Hajdu
EINS og flestum er eflaust
kunnugt átti Félag ís-
lenzkra stórkaupmanna 50
ára afmæli fyrir skömmu. I
tilefni afmælisins var blaða-
mönnum boðið í kynnisferð
um nokkur fyrirtæki félags-
manna til að kynnast starf-
semi þeirra. Eitt þeirra var
Eggert Kristjánsson hf. í
Sundagörðum. Þar tóku á
móti okkur Gísli V. Einars-
son og Aðalsteinn Eggerts-
son framkvæmdastjórar fyr-
irtækisins og sagði Gísli
m.a. í upphafi að í dag væri
höfuðáherzla fyrirtækisins
lögð á innflutning og sölu
nýrra, niðursoðinna og
þurrkaðra ávaxta, að við-
bættum dagblaðapappírs-
innflutningi.
Þá kom fram hjá Gísla að
fyrirtækið var stofnað árið 1922.
Bella Center?
Fyrirtækið rak smásöluverzlun að
Aðalstræti 9 fyrsta árið, en árið
1923 flutti það yfir í Hafnarstræti
15 og var þá fyrirtækinu breytt í
innflutnings- og heildsölufyrir-
tæki. Stofnandi og stjórnandi
fyrirtækisins, Eggert Kristjáns-
son, byrjaði smátt og fór gætilega,
en brátt fóru viðskipti hans
vaxandi og náði hann ýmsum
ágætum samböndum við þekkt
erlend verzlunarfyrirtæki. Helztu
vörutegundir, sem fyrirtækið
verzlaði með í byrjun voru mat-
vara, prentpappír, gler og skip.
Árið 1930 keypti fyrirtækið hlut
í húseigninni Hafnarstræti 5 og
þar var fyrirtækið til húsa sam-
fellt í nær 40 ár. Árið 1968 byggði
fyrirtækið vörugeymslu og skrif-
stofur að Sundagörðum 4 og var
farið eftir nýjustu erlendum fyrir-
myndum. Byggingin var sérstak-
lega hönnuð fyrir notkun á vöru-
rekkum og lyfturum. B.vggð var
fulikomin ávaxtageymsla með sér-
stökum kælibúnaði og rakabúnaði
fyrir nýja ávexti ásamt þroskun-
arklefum fyrir banana. Hagnýtt
var nýjasta tækni í sambandi við
vörudreifingu meðal annars tekn-
ar i notkun vörugrindur og lyftur
á sérhannaðar bifreiðar. Þá hefur
tölvutækni verið nýtt á annan
áratug. Fyrirtækið var þar með á
þeim tíma brautryðjandi hér á
landi í notkun nýjustu tækni á
sviði vörugeymslu og vörudreif-
ingar.
Þá kom að síðustu fram hjá
Gísla V. Einarssyni, að vörusala á
s.l. ári hefði verið um 750 milljónir
auk umboðssölu sem nam 300
milljónum króna og var veltuhraði
birgða um 12 1977.
Ilvað er Belto Center og
hvað gætu Islendingar
hugsanlega nýtt sér í starf-
semi þess? — Til að svara
þessum spurningum komu
forráðamenn fyrirtækisins
gagngert til íslands fyrir
skömmu og huðu til sín
ýmsum forsvarsmönnum ís-
lenzks útflutnings og inn-
flutnings, að viðbættum
blaðamönnum.
Að sögn Christian R.
Hunderups aðalfram-
Frá einum ráðstefnusala Bella Center.
kvæmdastjóra fyrirtækisins
er það fyrst og fremst sýning-|
arfyrirtæki og á síðasta ári
hélt fyrirtækið t.d. 25 stórar
vörusýningar. Auk þess býður
fyrirtækið m.a. upp á fjöl-
breytta aðstöðu til ráðstefnu-
halda. Bella Center er lang-
stærsta sýningarfyrirtækið á
Norðurlöndum og er þegar
farið að keppa við sams konar
fyrirtæki bæði í Þýzkalandi
og Bretlandi sem til þessa
hafa nær einokað slíka starf-
semi í Evrópu, sagði
Hunderup ennfremur.
Það vekur strax athygli
varðandi Bella Center að
aðeins eru 14 ár frá stofnun
fyrirtækisins og í dag er
nýverið búið að byggja fjölda
nýrra sýningarhalla um
85.000 fermetra, ásamt ráð-
stefnusölum, veitingasölum
og ýmisss konar annarri
aðstöðu. Frá byggingu þess-
ara nýju sýningarhalla fyrir
tveimur árum hafa yfir 2
milljónir manna heimsótt
þær og þess má einnig geta að
stöðugt er unnið að áfram-
Christian R. Ilunderup aðal-
framkvæmdastjóri Bella
Center.
haldandi byggingum sýning-
arsala á svæði því sem fyrir-
tækið hefur til umráða, mitt
á milli Kastrup-flugvallar og
miðbæjar Kaupmannahafnar.
Að lokum sagði Hunderup
að Islendingar væru þegar í
nokkrum mæli farnir að taka
þátt í sýningum Bella Center
og vonaðist hann til að
áframhald og aukning yrði á
því, einnig að íslenzkir inn-
flytjendur kæmu í ríkari
mæli og heimsæktu sýningar
fyrirtækisins.
Frá hinu nýja sýningarsvæði Belia Center.
Aldraðir
fá vinnu
I JAPAN hefur það verið venja
að þegar menn hafa náð 57 ára
aldri hafa þeir látið af störfum
og farið á eftirlaun. Þetta hefur
skapað mikið vandamál vegna
þess gífurlega fjölda starfs-
manna sem hefur gengið um
atvinnulaus. — Japanskt vefn-
aðarvöruframleiðslufyrirtæki
hefur fundið ágæta lausn á
þessu með því að stofna sér-
staka verksmiðju.þar sem ein-
göngu eru ráðnir eftirlauna-
starfsmenn. Þar eru unnin
ýmisleg létt störf sem áður voru
unnin af utanaðkomandi verk-
tökum.