Morgunblaðið - 03.06.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
Listahátíð
sett í dag
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík 1978
verður sett við Kjarvalsstaði
klukkan 14 í dag. Hrafn
Gunnlaussson framkvæmda-
stjóri Listahátíðar sagði í
samtali við Mbl. í gær, að
Lúðrasveit Reykjavikur myndi
leika við setninguna. en Sigur-
jón Pétursson. forseti borgar-
stjórnar setur Listahátíð. Síðan
verður leikin ragtime-tónlist og
yfirlitssýning á verkum Errós
opnuð.
Klukkan 16 verður opnuð
málverkasýning Kristjáns
Davíðssonar í FÍM-salnum,
Laugarnesvegi 112, og klukkan
17 sýning á vatnslitamyndum
eftir Vigdísi Kristjánsdóttur í
bókasafni Norræna hússins og í
kjallara þess sýning á málverk-
um og grafíkmyndum eftir
hjónin Seppo Mattinen og Helle-
Vibeke Erichsen.
Klukkan 18 verður frönsk
sýning í Bogasal í húsi Þjóð-
minjasafnsins og í kvöld leika
svo 'Oscar Peterson og
Niels-Henning Örsted í Laugar-
dalshöll.
410 höfðu
kosið í gær
410 kjósendur höfðu í gær neytt
atkvæðisréttar síns í utankjör-
staðarkosningunni, sem fram fer í
Miðbæjarbarnaskólanum. Munu
það vera um helmingi fleiri
kjósendur en kosið höfðu við
borgarstjórnarkosningarnar, er
jafnlangur tími var til stefnu. Það
mun vera reynslan að um helmingi
fleiri kjósi utankjörstaðar í al-
þingiskosningum en í sveitar-
stjórnakosningum.
Viðræður
að hefjast
í Keflavík
Alþýðuflokksfélögin í
Keflavík hafa ritað bréf
bæði Sjálfstæðisflokknum í
Keflavík og Framsóknar-
flokknum og óskað eftir
viðræðum um myndun
meirihlutastjórnar í bæjar-
stjórn Keflavíkur. Vilja
Alþýðuflokksmenn sam-
starf við þessa flokka til
þess að endurreisa megi
atvinnulífið í kaupstaðnum
eins og þeir orða það.
Alþýðuflokksmenn segja
jafnframt í bréfinu — að
sögn Karls Steinars Guðna-
sonar — að til þess að
endurreisn atvinnulífsins
megi takast þurfi að tryggja
fyllsta stuðning stjórn-
valda. Þó séu ýmis óljós
teikn á lofti um framvindu
landsmálanna, þar sem
alþingiskosningar séu fyrir
dyrum. Um málefna-
samning vísa alþýðuflokks-
menn til stefnuskrár
sinnar.
Tveggja manna nefndir til
viðræðna um málefnasamning
meirihluta borgarstjórnar
„Allir þrír ílokkarnir í núver-
andi meirihluta munu kjósa
tveggja manna viðræðuncfndir til
að fjalla um málefnasamning
horgarstjórnarsamstarfsins og
önnur atriði, sem við eiga í því
sambandi.“ sagði Björgvin
Guðmundsson borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins í samtali við
Mbl. í gær. „það verður fundur á
morgun í fulltrúaráði Alþýðu-
flokksfélaganna í Reykjavík. þar
scm okkar viðræðuncfnd verður
kosin og rætt verður um það
samstarf sem hófst með kosningu
forseta borgarstjórnar og full-
trúa í borgarráð.“
Björgvin sagði, að í þeim við-
ræðum sem fram hefðu farið
hingað til hefði „ekkert mál verið
sett fram sem úrslitaatriði" og
varðandi óskertar vísitölubætur á
laun, kvaðst Björgvin ekkert vilja
úttala sig um það mál. „Ég vísa
bara til þess sem ég hef áður sagt
í samtali við Morgunbalðið um það
mál. En ég bendi á að við eigum
alveg eftir að athuga hvernig
fjárhagsstöðu borgarinnar er
háttað eftir viðskilnaðinn." Þegar
Mbl. spurði hvaða áherzlu Alþýðu-
flokkurinn myndi leggja á þetta
mál í málefnasamningnum og hver
yrðu veigamestu málin í því
sambandi, sagði Björgvin: „Það
eru ýms mál sem Alþýðuflokkur-
inn vill beita sér fyrir og ég reikna
með að óskertar vísitölubætur á
laun muni koma til athugunar í
því sambandi sem og önnur mál.
Ég býst hins vegar ekki við því
að við viljum á þessu stigi vera að
úttala okkur nokkuð um einstök
mál. Það var eiginlega samþykkt
að við skyldum ekki vera með
neinar yfirlýsingar um þetta mál
Engin breyt-
ing í Garðabæ
TALSVERT var um breytingar í
bæjarstjórnarkosningunum í
Garðabæ á lista Sjálfstæðisflokks-
ins, er atkvæði voru talin. Tals-
verður hópur kjósenda D-listans
sýndi þar óánægju með úrslit
prófkjörs flokksins og hækkaði
einn frambjóðandann upp í efsta
sæti listans. Þessar breytingar
hafa síðan verið í úrvinnslu og í
gær kom í ljós, að fjöldi atkvæð-
anna var ekki slíkur að hann ylli
breytingum á röðun manna.
né önnur viðkvæm mál á meðan á
viðræðunum stendur."
Þegar Mbl. spurði hver væri
ástæða þess að ekki var kosið um
formann og varaformann borgar-
Framhald á bls. 26.
Vinstri
stjórn á
Akureyri
Akureyri, 2. júní — ALLAR
horfur eru taldar á. að samið
verði um vinstra samstarf í
bæjarstjórn Akureyrar á
næstunni. Sigurður Óli Brynjólfs-
son, efsti maður á lista fram-
sóknarmanna við bæjarstjórnar-
kosningarnar, ritaði fyrir hönd
bæjarfulitrúa Framsóknarfiokks-
ins bréí tii bæjarfulltrúa Alþýðu-
handalagsins. Alþýðuflokksins
og Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna hinn 30. maí, þar
sem hann óskaði viðræðna við þá
um samstarf í bæjarstjórninni á
þessu kjörtímabili. Fyrrgreindir
flokkar hafa nú 8 bæjarfulltrúa
af 11.
í samtali við Sigurð Óla
Brynjólfsson í dag sagði hann, að
fyrsti viðræðufundurinn hefði
verið á miðvikudag, annar í gær og
sá þriðji í dag. Hann kvað engan
verulegan ágreining hafa komið
upp á fundunum og ekki færi milli
mála, að þessir flokkar myndu
semja um stjórn bæjarmála á
þessu kjörtímabili, enda hefði
verið með þeim góð samvinna um
sameiginlega stefnu í bæjarmálum
á síðasta kjörtímabili. Samninga-
viðræðunum væri að vísu ekki
lokið, en ekki ætti að taka langan
tíma að ljúka þeim. Síðan yrði
samkomulagið borið undir stjórnir
framsóknarfélaganna eða fulltrúa-
ráð.
Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu
bæjarstjórnar verður haldinn
þriðjudaginn 6. júní. Þá verða
kosnir forsetar, gengið frá
ráðningu bæjarstjóra og kosið í
nefndir a.m.k. fastanefndir. —
Sv.P.
Fáeinar teikninganna á sýningunni American Drawing 1927-
Andy Warhol af Maó formanni er í miðið.
-77. Teikning
Listahátíð:
American Drawing
er opnuð á morgun
Ólafur Jóhannesson:
Nú fær „stóra aflið” í
borgarstjórn tækifæri til
að standa við stóru orðin
„Nú fær „Stóra aflið“ í borg-
arstjórnarmeirihlutanum í
Reykjavík gullið tækifæri til að
standa við hin stóru orðin og
greiða strax fullar verðbætur á
öll Iaun samkvæmt samningun-
um sem gerðir voru á öndverð-
um vetri við opinbera starfs-
menn, en það má minna á að
Neskaupstaður og Reykjavíkur-
borg voru þá einmitt fyrst til að
gera samninga og áttu þar með
sinn þátt í því að marka
stefnuna," segir Ólafur
Jóhannesson formaður Fram-
sóknarflokksins í viðtali, sem
birtist í Tímanum í gær. Og
Ólafur heldur áfram:
„Það er nánast hlægilegt
þegar þessir aðilar fara nú að
láta athuga hvað það muni
kosta Reykjavíkurborg að láta
greiða fullar verðbætur. í kosn-
ingabaráttunni töluðu þeir bara
um „kjararán" og að „ráns-
fengnum“ þyrfti að skila, en þeir
minntust aldrei á greiðslugetu
fyrirtækja eða opinberra stofn-
ana.
Það verður fylgzt með því af
hvaða hörku þeir fylgja nú fram
kröfu sinni um óskertar verð-
bætur á öll laun, jafnt hátekju-
manna sem annarra."
A MORGUN, sunnudag. verður
opnuð í Listasafni íslands við
Suðurgötu sýning á teikningum
eftir bandaríska listamenn. Þetta
er farandsýning frá listasafninu
í Minnesota. og er ísland fyrsti
viðkomustaður sýningarinnar.
Á sýningunni eru 75 teikningar
eftir jafnmarga listamenn, og ná
þær yfir 50 ára tímabil, frá 1927
til 1977. Meðal þeirra þekktustu
má nefna Andy Warhol, Roy
Lichtenstein og Robert Beau-
champ. I sýningarskrá segir for-
stöðumaður listasafns Minnesota,
Malcolm E. Lein, m.a. að er ákveða
átti efnivið til þessarar sýningar,
hafi menn orðið samdóma um, að
engin listgrein gæti á sama hátt og
dráttlistin gefið mynd af banda-
rískri list síðustu 50 árin, í
sýningu, sem hlaut að verða
takmörkuð að stærð og verka-
fjölda.
Sýningin er hingað komin fyrir
tilstuðlan Menningarstofnunar
Bandaríkjanna, og héðan fer hún
til fjölda landa. Hún verður opin
frá 14.00 til 22.00 á morgun, en frá
13.30 til 22.00 hina sýningardag-
ana til 1. júlí.