Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978 —ÁUIAMÍX „Sjálfstæðisflokkurinn verður að stefna að varnarsigri í nk. þingkosningum, en siðan að endurskipuleggja starfið í flokknum og endurskoða stefnu hans.“ eftir HANNES HÓLMSTEIN GISSURARSON Traustasta vígi sjálfstæðismanna féll Borgarstjórnarkosningarnar 28. maí sl. voru sögulegar, því aö Sjálfstæðisflokkur- inn missti meiri hluta sinn í borgarstjorn Reykjavíkur. Borgin, traustasta vígi sjálfstæðismanna í íslenzkum stjórnmál- um, féll: Sjálfstæðisflokkurinn fékk 47,4% atkvæða og 7 fulltrúa kosna af 15,. Alþýðubandalagið 29,8% og 5 fulltrúa, Alþýðuflokkurinn 13,4% og 2 fulltrúa og Framsóknarflokkurinn 9,4%. og 1 full- trúa. Fallið kom flestum á óvart, en í grein, sem ég reit í Mbl. 13. maí að lokinni lauslegri könnun nokkurra fyrri borgar- stjórnarkosninga setti ég fram þessa reglu: „Stórhætta er á falli borgarstjórn- armeirihlutans i Reykjavík, ef Sjálf- stæðisflokkurinn á aðild að ríkisstjórn og hefur unnið góðan sigur í næstu borgar- stjórnarkosningum á undan. Það, sem fellir borgarstjórnarmeirihlutann í Reykjavík, ef og þegar hann feliur, er andvaraleysið, værðin, sigurvissan." Ég reit enn í tilefni þess, að Sigurjón Pétursson, 1. borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, sagði í blaðaviðtali fyrir kosningarnar, að borgarstjórnarmeiri- Um það eru allir sammála, að fylgismissirinn í Reykjavík var þrátt fyrir störf hins vinsæla og dugandi borgarstjóra síðustu fimm ára, Birgis ísleifs Gunnarssonar. en ekki vegna þeirra. vík? Hann missti það fylgi, sem hann fékk á hinum langa stjórnartíma Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðuflokksins, við- reisnartímanum 1959—1971. Á þeim tíma reyndi flokkurinn að breytast úr bænda- flokk í miðflokk, því að hann' gat ekki haldið fylgi sínu eða aukið það sem bændaflokkur eins og þróunin var og er í þjóðlífinu. Og honum tókst það að vissu marki. í borgarstjórnarkosningunum 1970 fékk hann til dæmis fleiri atkvæði en Alþýðubandalagið, var stærsti minni- hlutaflokkurinn í borgarstjórn 1970—1974. En á árunum 1971-1978 missti hann þetta fylgi, því að það er umfram allt stjórnarandstöðufylgi. Framsóknarflokkurinn á um tvo kosti að velja á næstu árum. Hann verður að vera í stjórn til þess að gæta hagsmuna Sambands íslenzkra samvinnufélaga og þeirra bænda, sem styðja hann, „gera mönnum greiða“, eins og Framsóknar- menn orða það, ella tekur Sjálfstæðis- flokkurinn bændafylgi af honum. Hann verður að vera í stjórnarandstöðu til þess að geta breytzt úr bændaflokk í miðflokk, ella taka hinir flokkarnir fylgi óánægðra borgarbúa af honum. Báðir kostirnir eru vondir. Flokkurinn getur ekki til langs tíma aukið fylgi sitt, hvorn kostinn sem hann tekur. Hann hefur ekkert að vinna, en öllu að tapa. Ég spái áframhaldandi tapi hans, því að hann á kjósa Sjálfstæðisflokkinn.) Getur verið, að Alþýðubandalagið sigri í þessari baráttu, fái fjöldafylgi eins og ítalski kommúnistaflokkurinn, sem foringjar þess bera það stundum saman við? Það er komið undir hinum flokkunum tveim- ur. En þessir ólíku hagsmunir flokkanna þriggja — og þeir eru lífshagsmunir þeirra — gefa svo sannarlega ekki vísbendingu um góða samvinnu þeirra í borgarstjórn. Þeir deila þegar. Björgvin GuðmundSson, 1. borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins, segir í viðtali við Mbl. 30. maí, að í vinstri stjórn borgarinnar „eigi að ríkja sem mest jafnræði milli allra þriggja flokkanna þannig að þar verði enginn einn flokkur ráðandi afl“. En Sigurjón Pétursson segir í viðtali við Mbl. sama daginn: „Við munum þó óhjákvæmilega hafa ákveðna forystu með höndum, þar sem við erum langstærsti flokkurinn." Þeir eru ósammála um alræmda tillögu Alþýðubandalagsins um opna meirihlutafundi, Björgvin kallar hana „fráleita" og Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, kveður „málið úr sögunni11 í viðtölum við Mbl. 31. maí. Þá greinir einnig á um það, hvort borgin eigi að greiða starfsmönnum sínum fullar verðbætur launa eða ekki. Glundroðagrýlan er eins bráðlifandi í borgarmálum og rússagrýlan í utanríkis- málum. SÖGULEGAR KOSNINGAR hluti Sjálfstæðismanna gæti ekki fallið í þeim: „Borgarstjórnarkosningarnar 28. maí nk, eru tvísýnar, Sjálfstæðisflokkur- inn á aðild að ríkisstjórn, og D-listinn vann góðan sigur í síðustu borgarstjórn- arkosningum. Þetta veit Sigurjón Péturs- son, sem er þaulæfður „pólitíkus“. Hvað er maðurinn að gera? Hvers vegna mælir hann gegn betri vitund? Hann er að beita gömlu herbragði — að svæfa andstæðing- inn, leggja gildru fyrir hann, koma honum að óvörum. Andstæðingur Sigur- jóns er sá meiri hluti Reykvíkinga, sem kýs samhentan borgarstjórnarmeiri- hluta. Alþýðubandalagið ætlar að læðast um bakdyrnar inn í borgarstjórnina í kosningunum 28. maí nk.“ Það komst inn um bakdyrnar. Vinstri stjórn, samsteypu- stjórn þriggja flokka, er tekin við í Reykjavík. Hvers vegna féll Reykjavíkurborg? Engin ástæða var til að ætla, að þetta vígi Sjálfstæðismanna væri óvinnandi fyrir róttæklingana. En hvers vegna féll það í þessum kosningum? Var fall Imrgarinnar einungis slys eða til marks um einhverja þróun, sem haldi áfram í þingkosningunum 25. júní nk.? Þjóðvilj- inn telur það „tímamót" í íslenzkum stjórnmálum. Hefur hann rétt fyrir sér? Svarið við þessum spurningum er það, að fallið var slys, en fylgismissir Sjálf- stæðisflokksins er til marks um þróun. Fallið var slys, því að D-listinn þurfti einungis að bæta við sig 81 atkvæði til að halda rneiri hluta sínum, kjörsókn var miklu lakari en í kosningunum 1974, værðin var almenn með sjálfstæðismönn- um og mistök voru framin í kosningabar- áttunni. Um það eru allir sammála, að fylgismissirinn í Reykjavík var þrátt fyrir störf hins vinsæla og dugandi borgarstjóra síðustu fimm ára, Birgis ísleifs Gunnarssonar, en ekki vegna þeirra. Fylgismissirinn var frá skamm- tímásjónarmiði vegna óvinsælda núver- andi ríkisstjórnar, sem er undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Kjósendur gerðu þau mistök að kjósa til Alþingis í borgarstjórnarkosningonum og foringjar ríkisstjórnarflokkanna þau mistök að sjá þessi mistök kjósenda ekki fyrir. Fylgis- missirinn er frá langtímasjónarmiði vegna sífelldrar óánægju borgaranna. Þessi sífellda óánægja veldur því, að engin ríkisstjórn getur vænzt þess að halda lengi sæmilegum vinsældum og völtfum, og hún á djúpar rætur í stjórnarfyrirkomulagi og stjórnarfari á íslandi sem í öðrum vestrænum ríkjum. Um þessa óánægju ætla ég að fara örfáum orðum. Vanmáttur lýðræðisríkisins Óánægjan er vegna ver.ðbólgunnar, en verðbólgan er vegna vanmáttar lýðræðis- ríkisins. Verðbólgan er í vissum skilningi dulbúin skattheimta ríkisins. Hún er sífelld verðrýrnun peninga vegna aukn- ingar peningamagns umfram aukningu þjóðarframleiðslu. Orðin „yfirdráttur ríkisins hjá Seðlabanka“ og „hallarekstur ríkisins" og „aðstoð við atvinnuvegina" eru einungis tilkomumikil orð um það, að ríkið eykur peningamagnið óhóflega, tekur lán, prentar seðla og slær mynt. Því gerir ríkið það, að kröfur hagsmunahóp- anna fara fram úr því, sem það treystir sér til að sinna með ódulbúinni skatt- heimtu. En til hvers sinnir það þessum kröfum? Til þess að stjórnmálamennirnir nái kosningu. Verðbólga er með öðrum orðum vegna þess, að stjórnmálamenn- irnir kaupa sér frið með peningum — innistæðulausum ávísunum. En hún veldur óánægju vegna þess, að þeir, sem peningana fá, komast að því, að þeir rýrna í sífellu í verði. Þeir sjá bilið breikka á milli þess, sem þeir fá, og hins, sem þeir vænta. Og auðvitað líta þeir þá fáu menn hornauga, sem hagnast á verðbólgu eða geta varið sig gegn henni. Þeir gera því meiri kröfur, kröfunum er sinnt, og enn rýrria peningarnir í verði, enn eykst verðbólgan. Þessi er vítahring- ur verðbólgunnar. Og skýringin á ósigri ríkisstjórnarflokkanna blasir við: íslend- ingar gerðu (óafvitandi) sömu uppreisn- ina gegn verðbólgunni, hinni dulbúnu skattheimtu ríkisins, og Danir gerðu gegn hinni ódulbúnu skattheinitu vöggustofu- ríkisins, þegar þeir kusu fiokk Mogens Glistrups á sínum tíma. Ólafur Grímsson, Vilmundur Gylfason og aðrir fjölmiðl- ungar eru glistrupar Islendinga. Þessir lýðskrumarar eru holdtekjur óánægjunn- ar. Uppreisnin er gerð með öðrum hætti á íslandi en í Danmörku, en rætur óánægjunnar eru hinar sömu. Sennilega verður lausung í íslenzkum stjórnmálum næstu árin eins og var í dönskum síðustu árin. Framtíðin svarar því ein, hvert hlutskipti stjórnmálaflokkanna verður, en leiða má að því nokkrar líkur. Tveir kostir Framsóknarflokksins Ósigur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er mikill, en ósigur Framsóknarflokksins miklu meiri. Menn hafa einkum gefið tvær skýringar á honum, sem báðar eru að mínu viti yfirborðslegar. Önnur skýringin er sú, að flokkurinn hafi misst traust vegna þeirra sakamála, sem mjög var um rætt fyrir rúmu ári. Ég held, að þessi skýring nái of skammt, „upp- Ijóstranir" lögreglumanna og biaða- manna voru flestar (en ekki allar) rangar, þeir féllu á bragði sínu og orðbragði. Hin skýringin er sú, að óvinsældir ríkis- stjórnarinnar komi eins niður á honum og Sjálfstæðisflokknum. Þessi skýring er rétt, en þó ófullnægjandi. Hvaða fylgi missti Framsóknarflokkurinn í Reykja- engan umtalsverðan foringja að Ólafi Jóhannessyni ftágengnum. Og ungu mennirnir í flokknum... Alþýðuflokkurinn tapaði barátt- unni við Alþýðubandalagið Vígi Sjálfstæðismanna féll. Og það féll í hendur þeirra, sem kalla sig þessi árin „Alþýðubandalagsmenn", kölluðu sig „sósíalista" 1938—1969 og „kommúnista“ 1930—1938. Fylgismenn hinnar útlendu helstefnu eru 5 af 8 borgarfulltrúum borgarstjórnarmeirihlutans. Síðustu árin hefur Alþýðubandalagið reynt að má af sér þrælsmark kommúnismans. En þrælsmarkið er enn á því, þó að allt of margir Reykvíkingar haldi, að svo sé ekki. 5. borgarfulltrúi kommúnista, Guðmundur Þ. Jónsson, sagði í viðtali við Þjóðviljann 20. maí: „Ég átti góða æsku, en það var ekki um mikið skólanám að ræða, aðeins barnaskólanám. Seinna þegar ég var orðinn fullorðinn gafst mér svo kostur á að stunda tveggja ára nám í verkalýðsmálaskóla í Sovétríkjunum. Það var ákafleg gagnlegur og þroskandi tími.“ Hvers vegna gafst Guðmundi kostur á þessu námi? Og hvað lærði hann í þessu ríki gúlageyjanna, sem bannar öll verkföll? Hann kennir líklega Alþýðu- flokks- og Framsóknarmönnum í borgar- stjórn það. Vinstri stjórn borgarinnar er undir forystu kommúnista, en þær vinstri stjórnir landsins, sem völdin höfðu á árunum 1956—1958 og 1971—1974, voru báðar undir forystu Framsóknarmanna. Sá er munurinn, og hann er mikill. Við fyrstu sýn vann Alþýðuflokkurinn sigur, jók fylgi sitt úr 6,5% atkvæða í 13,4% og bætti við sig 1 borgarfulltrúa. En svo er ekki, þegar að er gáð, því að hann heimti einungis aftur það fylgi, sem hann hafði fyrir 1970 í Reykjavík, það var til dæmis 14,6% atkvæða 1966. Hann hefur með öðrum orðum ekki helming af fylgi Alþýðubandalagsins í Revkjavík, hann tapaði baráttunni við Alþýðubandalagið um Reykjavík algerlega í þessum kosn- ingum. Ég er alls ekki viss um það, að Alþýðuflokkurinn haldi lifí, ef og þegar lausungin eykst enn í stjórnmálunum. Til þess þarf sterkari innviþi en hann hefur, vandaðri menn og málgögn. Ólíkir hagsmunir meirihlutaflokkanna Hagsmunir meirihlutaflokkanna þriggja í borgarstjórn eru mjög ólíkir. I strjálbýlinu berjast kommúnistar og Framsóknarmenn um atkvæði stjórn- lyndra bænda, Lúðvík Jósepsson hefur í rauninni skorað Framsóknarmenn á hólm í sveitum landsins. í þéttbýlinu berjast kommúnistar og Alþýðuflokks- menn um atkvæði stjórnlyndra launþega. (En frjálslyndir bændur og launþegar Það stefnir í vinstri stjórn Framundan er tími lausungar og sundrungar í íslenzkum stjórnmálum. Það stefnir í vinstri stjórn í landinu eftir þingkosningarnar 25. júní nk., því að mikinn fylgismissi Sjálfstæðisflokksins á að skilja sem kröfu kjósenda um hana. Því ber að taka með jafnaðargeði, borgarar í lýðræðisríki fá þá stjórn, sem- þeir eiga skilið, og íslendingar eiga þess kost, ef ísland verður áfram á áhrifa- svæði Vesturveldanna, að skipta um ríkisstjórn í næstu kosningum, ef þeir telja slíka vinstri stjórn óþolandi. Mesta verkefni Sjálfstæðisflokksins á næstu árum er að leggja til þá kjölfestu, sem nauðsynlegt er í ólgusjónum, svo að þjóðarskútan sökkvi ekki, þjóðarbúið verði gjaldþrota og landið varnarlaust. Sjálfstæðisflokkurinn verður að heimta aftur það fylgi, sem hann fékk í kosningunum 1974 og auka það enn. Hann verður að vinna borgina aftur (og það getur hann, þótt meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn fjölgi borgarfulltrúum, því að hann hefði haldið meiri hluta sínum í öltum borgarstjórnarkosningum nema 1970 þrátt f.vrir fjöigun þeirra). Og hann verður að vinna aðra kaupstaði aftur. Hann nær ekki meiri hluta á landinu, fyrr en hann hefur náð meiri hluta í langflestum byggðum landsins. Sjálf- stæðisflokkurinn verður að stefna að varnarsigri í nk. þingkosningum, en síðan að endurskipuleggja starfið í flokknum og endurskoða stefnu hans, gagnrýna það, sem mistekizt hefur síðustu fjögur árin af fullum skilningi, læra af þessum mistökum og styrkja innviði flokksins (en veikasta stoð hans er þingflokkurinn) hann verður — ef vinstri stjórn tekur við í landinu — að búa sig vel undir næsta sigur sinn, þegar hann snýr þróuninni við. En jafnvægi kemst ekki á íslenzkum stjórnmálum, fyrr en rætur óánægjunnar eru grafnar upp, ríkið hættir að sinna öllum kröfum hagsmunahópanna, verð- bólgan hjaðnar, hagkerfinu er breytt í markaðskerfi. Sjálfstæðisflokkurinn heldur ekki því fylgi, sem hann vinnur, nema hann framkvæmi kenningu sína, reisi hús sitt á bjargi. En ekki ber einungis að líta til langs tíma, heldur einnig til skamms. Nk. þingkosningar verða örlagaríkar. í þeim verður kosið um Sjálfstæðisflokkinn eða Alþýðubandalag- ið sem forystuafiið í íslenzkum stjórn- málum næstu fjögur árin, um markaðs- búskap eða haftabúskap, um varnir eða varnarleysi, um stjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins eða vinstri stjórn. Öllu máli skiptir, að allir frjálslyndir lýðræðissinnar taki upp merki flokksins, fylki sér um hann og foringja hans, láti áfallið efla sig til átaka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.