Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAQUR 3. JÚNÍ 1978 3 Fá athiifninni á þaki Hótel Borgar í gær. Knútur Hallsson tilkynnir nöfn þeirra sem starfslaun hlutu að viðstöddum Thor Vilhjálmssyni og Ólafi B. Thors ásamt sex af listamönnunum. Starfslaunum listamanna úthlutað í gær: Kristján Davíðsson hlaut 12 mánaða laun — Bragi Ásgeirsson 9 mánaða SJÖ listamenn hljóta starfs- laun listamanna að þessu sinni. Þetta var kunngert við hátíð- lega athöfn á þaki Hótel Borgar í gær. Kristján Davíðs- son hlýtur 12 mánaða starfs- laun og Bragi Asgeirsson 9 mánaða starfslaun. Starfslaunum listamanna eru ætlaðar 6.530.000 í fjárlögum 1978 og fer úthlutun þeirra eftir reglum, sem menntamálaráðu- neytið setti árið 1969, en sam- kvæmt þeim skulu launin miðuð við byrjunarlaun menntaskóla- kennara og veitt eftir umsókn- um til þriggja mánaða hið skemmsta, en eins árs hið lengsta. Úthlutunina annast þriggja manna nefnd, er menntamálaráðherra skipar til eins árs í senn. Nefndin hefur nú lokið störfum en hana skipuðu: Ólafur B. Thors, for- maður úthlutunarnefndar lista- mannalauna, Thor Vilhjálms- son, forseti Bandalags íslenskra listamanna, og Knútur Halls- son, skrifstofustjóri mennta- málaráðuneytisins, en hann var jafnframt formaður nefndar- innar. Umsóknir um starfslaun voru 54 talsins að þessu sinni. Starfs- laun til þriggja mánaða hlutu myndlistarmennirnir Níels Haf- stein Steinþórsson, Ólafur Lárusson og Þórður Hall. Einnig Manuela Wiesler Hermóðsdóttir tónlistarmaður og Pétur Gunnarsson rithöfundur. I ávarpi sem Knútur Hallsson flutti við athöfnina kom meðal annars fram að hér væri ekki verið að úthluta fé heldur skipta fjárveitingu. Einnig sagði Knút- ur að ekki bæri að líta á þetta sem styrki heldur laun, því listamenn þyrftu að taka laun fyrir sína vinnu eins og aðrar ététtir þjóðfélagsins. Thor Vilhjálmsson tók einnig til máls og sagði meðal annars, að hér væri um að ræða allt of lítið fé handa of mörgum. Það þyrfti að koma því þannig fyrir, að listamenn gætu gengið að launum sínum vísum. Einnig þyrfti að ganga úr skugga um, að þeir sem fengju laun væru i raun og veru að vinna. Bruni í Keflavík SLÖKKVILIÐIÐ í Keflavík var í gærmorgun kvatt að fiskverkunar- og frystihúsi Baldurs h.f. í Kefla- vík, en þar var þá eldur laus og lagði mikinn reyk frá húsinu. Talið er aö kviknað hafi í út frá ráfmagnstöflu, en slökkvistarf gekk fljótt og vel fyrir sig. Eldsins varð vart um klukkan 07,02. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík munu skemmdir hafa orðið talsverðar á húsinu, en þó ekki svo að ekki unnt sé að starfrækja það áfram. Fasteignagjöld af garðinum bak við Fjalaköttinn um 150.000 kr. „Eg hef ekki nákvæma mælingu á því svæði, sem þarna á að fara undir garð, sen mér sýnist að fasteignagjöld af svæðinu séu einhvers staðar á stærðargráðunni 150.000 krónur," sagði Jón G. Tómasson skrifstofustjóri borgar- stjóra er Mbl. spurði hann, hvert væri fasteignagjald lóðarinnar bak við Fjalaköttinn, sem til tals hefur komið að Reykjavíkurborg greiði fasteignagjald af fyrir lóðareig- anda. Jón G. Tómasson sagði að mál- efni Fjalakattarins og lóðarinnar á bak við hann hefði borið á góma á fundi borgarráðs í gær, en ekkert verið bókað um málið. Sjómannadagurinn í Hafnarfirði; Ræður, skemmti- atriði, koddaslagur Sjómannadagsráð, f.v.: Tómas Guðjónsson, Guðmundur H. Oddsson, Pétur Sigurðsson, formaður, Garðar Þorsteinsson, Hilmar Jónsson og Anton Nikulásson. Sjómannadagurinn á sunnudag: Hrafnista í Hafnar- firði sýnd almenningi Fjölbreytt hátíðahöld í NauthóLsvik SJÓMANNADAGURINN í Reykjavík verður haldinn nk. sunnudag, 4. júní. Utan fáeinna nýmæla verða hátíðahöldin með mjög hefðbundnu sniði. Á fundi með fréttamönnum ræddi formaður Sjómannadagsráðs, Pétur Sigurðsson, lítillega tildrög þess að sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur< í fyrstu til þess að tryggja samstöðu sjómannastéttarinnar og síðar meir einnig til þess að minnast starfa sjómanna lífs og liðinna. HÁTÍÐAHÖLD sjómannadagsins í Hafnarfirði tengjast að vonum hinu nýja Hrafnistuheimili í hænum, en að öðru leyti verða þau með svipuðu sniði og undan- farin ár. Samkomulag á Flateyri SAMKOMULAG hcfur orðið milli fulltrúa í sveitarstjórn á Flateyri. Þar verður ekki myndaður meiri- hluti, heldur mun hvert mál, sem fyrir kemur látið ráðast með atkvæðagreiðslu. Þá skipta list- arnir með sér oddvitaembættinu þannig, að hver listi hefur það í 16 mánuði samfleytt. Úrslitin urðu þannig, að Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 2 menn kjörna, en H-listi, sem að stóðu Samtökin, Alþýðubandalag og óháðir, fékk tvo menn kjörna. Framsóknarflokkurinn fékk einn mann kjörinn. Sami sveitarstjóri verður áfram og var síðasta kjörtímabil. Snorri Jónsson farinn utan SNORRI Jónsson, varaforseti Alþýðusambands íslands, er far- inn utan á atvinnumálaráðstefnu, sem haldin er í Genf. Síðar mun Jón H. Bergs fara til þessarar ráðstefnu fyrir Vinnuveitcnda- samband ísiands. Innan stjórnar Alþýðusam- bandsins hefur þessari utanför Snorra, sem nú gegnir forseta- störfum í veikindaforföllum Björns Jónssonar, verið mótmælt, þar sem hún ber nú upp á svo viðkvæmum tíma. Snorri mun ætla að sitja hálfa ráðstefnuna, en koma síðan heim, en í hans stað fer þá Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur ASÍ. Kosnaður við utanför á þessa ráðstefnu er greiddur úr ríkissjóði. Dagurinn hefst með því að fánar verða dregnir að hún kl. 9 f.h., en klukkan 9.30 verður svo farið í skemmtisiglingu með börn. Guð- þjónusta í Hrafnistu hefst kl. 10, og þar verður vígt nýtt hljóðfæri, og kl. 11 verður svo heimsókn í Hrafnistu, þar sem Karlakórinn Þrestir syngur fyrir vistmenn. Eftir hádegi verður sjómanna- messa í Þjóðkirkjunni sem hefst kl. 13.30. Að henni lokinni, eða kl. 14.15, verður skrúðganga frá Þjóðkirkjunni að útihátíðarsvæði við Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, þar sem útihátíðin verður sett. Auk ræðuhalda og heiðrunar aldraðra sjómanna verða skemmtiatriði. Gummi og Goggi skemmta og efnt verður til kodda- slags. Björgunarsveitin Fiskaklettur sýnir björgun manna úr sjávar- háska og björgunarstörf á gúmmí- bát kl. 15.30, og kl. 16.00 heyja kvenna- og karlasveit kappróður. Um kvöldið verður sjómannahóf í Skiphóli. Hefst það kl. 19.30. Merki dagsins og Sjómanna- dagsblaðið verða afhent sölubörn- um í Bæjarbíói frá kl. 9 f.h. sjómannadaginn. INNLENT Borgarráð: Formanns- kjöri frestað FYRSTI fundur nýkjörins borgar- ráðs var í gær. Kjöri formanns og varaformanns var frestað en þeim sem fer með starf borgarstjóra falið að stýra fundum borgarráðs þar til öðru vísi verður ákveðið. Sjómannadagurinn nú hefst á því, að skip í Reykjavíkurhöfn draga skrautfána að hún. Lúðra- sveit Reykjavíkur leikur síðan fyrir aldraða dvalargesti á Hrafn- istu kl. 10.00. Sjómannamessa verður í Dómkirkjunni kl. 11.00, þar sem sr. Þórir Stephensen minnist drukknaðra sjómanna og lagður verður blómsveigur á leiði drukknaðra sjómanna í Fossvogs- kirkjugarði. í kirkjunni mun einsöngvarakórinn syngja og Garðar Cortes syngur einsöng. Organisti er Jón Finnsson. Eftir hádegi verða hátíðahöld í Nauthólsvík. Þau hefjast á því að mynduð verður fánaborg með fánum stéttarfélaga sjómanna og íslenskum fánum. Að lokinni setningu samkomunnar halda ræður fulltrúar ríkisstjórnar, út- gerðarmanna og sjómanna og aldraðir sjómenn verða heiðraðir. Ýmislegt verður og til skemmtun- ar, svo sem kappróður á seglbátum og róðrarbátum, koddaslagur og björgunar- og stakkasund. Meðal nýrra atriða má nefna sýningu á bátum og snekkjum, auk þess sem Kr. Ó. Skagfjörð h.f. heldur báti á floti og fær sá bátinn til eignar sem tekst að hvolfa honum. Einnig sýnir Slysavarnadeildin Ingólfur ýmis björgunaratriði, en Slysa- varnafélag Islands er 50 ára í þessum mánuði. Um kvöldið verður haldið sjó- mannahóf að Hótel Sögu. Hefst það með borðhaldi kl. 19.30 og þar verða einnig skemmtiatriði. Hið nýja Hrafnistuheimili við Skjólvang í Hafnarfirði verður sýnt almenningi milli kl. 15.00 og 17.00. Þar verður kaffisala og rennur allur ágóði hennar í skemmti- og ferðasjóð vistmanna heimilisins. Á sunnudag verður til sölu merki sjómannadagsins og Sjó- mannablaðið. Strætisvagnaferðir á dagskrána í Nauthólsvík verða frá Lækjartorgi og Hlemmi frá kl. 13.00 á 15 mín. fresti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.