Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
Minning:
Kjartan Árnason
héraðslœknir á Höfn
Fæddur 8. desember 1922
Dáinn 21. maí 1978
..Dýpsta sa*la ojf sorjfin þuniía.
svífa hljóAlaust yfir stord.
Inirra mál ci talar tunjfa.
tárin eru hojofja orA."
Það var logn en úrhellisrigning
sunnudaginn 21. maí og mánu-
dagsnóttina næstu á eftir — og
enn rigndi látlaust þegar síminn
hringdi eldsnemma morguns hinn
22. og sorgbitin rödd fiutti mér
harmafregnina: „Hann Kjartan
okkar er dáinn. Hann varð bráð-
kvaddur úti í Skotlandi í gær-
kvöldi, dó í bíl á leið af golfvellin-
um.“
Ég leit út í sortann. Regnið
streymdi hljóðiaust en óaflátan-
lega úr loftinu — og allt í einu
varð það í mínum augum ekki
lengur venjulegt regn — nei, það
var himininn yfir Hornafirði, sem
grét sáran til samlætis öllum þeim
tárfellandi augum og votu brám,
sem ég vissi að yrðu í héraðinu,
þegar fregnin um sviplegt andlát
Kjartans læknis bærist um bæ og
byggð.
Kjartan Árnason fæddist í
Vestmannaeyjum hinn 8. desem-
ber árið 1922 og var næstelsta
barn hinna góðkunnu heiðurs-
hjóna Aagotar og Árna Vilhjálms-
sonar læknis. Tveggja ára að aldri
fluttist hann með foreldrum sínum
til Vopnafjarðar, þar sem Árni var
virtur og velmetinn héraðslæknir
um áratuga skeið. Á Vopnafirði
ólst Kjartan upp í hópi margra og
mannvænlegra systkina á fyrir-
myndar heimili góðra foreldra,
þar sem börnunum var innrættur
guðsótti og góðir siðir. Árni læknir
hafði á hendi mikið starf í
víðlendu læknishéraði og Aagot
helgaði sínu stóra heimili alla
starfskrafta sína, sívinnandi, glöð,
ánægð og úrræðagóð. Hún varð því
að eðlilegum hætti sá kjarni
heimilisins, sem skóp manni og
börnum þau skilyrði og það
andrúmsloft, sem með þurfti til að
ágætir hæfileikar þeirra fengju
notið sín. Kjartan var þannig
sprottinn úr góðum jarðvegi, hlaut
að erfðum frá merkum foreldrum
miklar og notadrjúgar gáfur og
hæfileika og fékk ytri aðstöðu til
að njóta þeirra. Hann fór ungur til
náms og tók stúdentspróf frá M.A.
18 ára að aldri. Árið 1948 lauk
hann prófum í læknisfræði frá
Háskóla íslands. Var þar næst um
misseris skeið aðstoðarlæknir á
Vopnafirði og starfaði síðan við
sjúkrahúsið á Akureyri í um það
bil 10 mánuði, fór þá á Landspítal-
ann og tók þar kandídatsárið sitt.
Settur héraðslæknir í Hafnarhér-
aði vorið 1950 og skipaður í það
embætti þann 11. desember sama
ár og flutti til Hafnar þá um
haustið. I Hornafirði var Kjartan
síðan nær óslitið héraðslæknir til
hinzta dags.
Árið 1948 kvæntist Kjartan
Ragnhildi Sigbjörnsdóttur, stúd-
ent og húsmæðrakennara, mikil-
hæfri, vandaðri og góðri konu.
Börn þeirra eru fjögur: — Birna,
húsmæðrakennari, gift Jóni
Hjaltalín Stefánssyni eðlisverk-
fræðingi í Rvík.. Þau eiga tvo syni.
— Arna, sem er við nám 1
arkitektúr í Svþjóð, hans kona er
Kristbjörg Guðmundsdóttir, þau
eiga son og dóttur; Anna lauk prófi
við Háskóla Islands í líffræði nú
i vor; og Sigbjörn, er stundar nám
i eðlisfræði við Háskólann.
I 28 ár sinnti Kjartan Árnason
héraðslæknisstarfinu í Aust-
ur-Skaftafellssýslu af frábærum
dugnaði, samvizkusemi og alúð.
Hann var glöggur og góður læknir
og svo traustur, bæði sem maður
og læknir, að af bar. Allir
héraðsbúar vissu, að þegar eitt-
hvað ábjátaði áttu þeir hauk í
horni þar sem Kjartan læknir var.
Á nóttu jafnt sem degi var til hans
leitað, hann sinnti ávallt kalli og
sparaði aldrei kraftana í þjónustu
sinni við fólkið og trúmennsku við
verksvið sitt. Fólkið vissi af
reynslu, að þegaf Kjartan kom til
skjalanna með sínar öruggu og
mjúku læknishendur og mann-
legan skilning á öllum aðstæðum,
gerði hann allt, sem í hans valdi
stóð til að létta og leysa vandann,
og lagði á sig sem sjálfsagðan hlut,
erfiðar ferðir, andvökur og
áhyggjur vegna sjúklinganna
sinna.
Kjartan Árnason var hár maður
vexti, fríður sýnum, glaðlegur,
góðlátlegur og bar með sér mikla
persónu og reisn. Algjör reglumað-
ur, virðulegur, traustur og traust-
vekjandi. Hann var mjög farsæll í
læknisstörfum sínum oggæfumað-
ur í einkalífi. Hann átti yndislega
konu, hjónaband þeirra var með
ágætum og þau voru samhent um
að skapa fagurt heimili og góðan
heimilisbrag. Hún mikil húsmóðir,
sívakandi yfir velferð manns síns
og barna og öll handaverk hennar
mótuð af vandvirkni, snyrti-
mennsku og smekkvísi. Hann
frábær heimilisfaðir, sem allt vildi
fyrir konuna sína og börnin þeirra
gera. Börnin mannvænleg, góðum
gáfum gædd og efnileg í hvívetna.
— Þau hjónin voru nýlega búin að
koma sér upp fallegu húsi á Höfn
og þar, eins og annars staðar er
spor þeirra lagu, var unnið af alúð
og allt fínt og fágað. Nýja húsið,
garðurinn í kringum það og
blómaskálinn bar fagurt vitni um
smekkvísi og ágætt fegurðarskyn
læknishjónanna.
Kjartan Árnason stóð sannar-
lega ekki einn í lífi sínu og starfi,
Ragnhildur var honum í einu og
öllu, leynt og ljóst, styrk stoð og
stytta. Ekki duldist henni að oft
lagði hann meira að sér en heilsa
hans og kraftar í rauninni leyfðu,
þó aldrei heyrðist hann kvarta.
Fáir aðrir gerðu sér grein fyrir
því, að þessi að því er virtist
þrekmikli maður, gengi ekki al-
heill til skógar. Yms hugðarefni
átti Kjartan sér utan læknis-
starfsins. Hann var mikill unnandi
góðrar tónlistar og mikill rækt-
unarmaður. Á vorin, strax og
veður leyfðu og á sumrum, skutust
þau hjónin gjarnan ef stund gafzt
upp í sumarbústað sinn, þar sem
þau hlúðu af mikilli natni og elju
að þeim trjám og öðrum gróðri,
sem þau höfðu plantað þar og óx
vel og dafnaði á fögrum stað í
Lóni. Og heima við hús þeirra á
Höfn, bæði á Útgarði og við nýja
húsið að Hrísbraut 11, bar um-
hverfið vott um að þar var hlúð að
næmum huga og höndum. Golf-
íþrótt stundaði Kjartan af kappi.
Það var honum eiginlegt að leggja
sig allan fram við hvað eina, sem
hann sinnti á annað borð.
Það er mikið lán hverju byggð-
arlagi að fá heilsteypta menn á
borð við Kjartan Árnason til
starfa innan sinna vébanda.
Austur-Skaftafellssýslan — Hafn-
arlæknishérað, sem varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að njóta starfs-
krafta hans, var framan af starfs-
ferlinum erfitt yfirferðar, stórárn-
ar óbrúaðar og vegir lélegir. Það
kom sér því vel hversu öruggur og
ótrauður ferðamaður Kjartan
læknir var. Ferðir hans um
héraðið urðu margar og oft
strangar, einkum Öræfaferðirnar
fyrr á árum. Á tímabili þjónaði
hann einnig Djúpavogshéraði og
þá bættust á hann ferðir yfir
Lónsheiði, sem fstundum urðu
hreinar svaðilfarir því oft á
vetrum var heiðin langt frá því að
vera auðveltd yfirferðar. — Kjart-
an sá landið í vetrarham og
sumarskrúða, naut stórbrotinnar
náttúrufegurðar þess og kynntist
og tengdist landinu og fólkinu á
óvenjulegan hátt. Mér virtist hann
þekkja hvern fjallstind og hverja
laut í sýslunni sinni, hverja á or
lækjarsprænu, hvert sandflæmi og
hverja jökulbungu, hverja skógar-
spildu, hvern ræktaðan blett og
hvern bæ og býli — og hvern
einasta íbúa sýslunnar. Hann vissi
margt um mannfólkið — án þess
að eyða að því orðum, en það vissu
allir að þagmælska Kjartans
læknis um sjúklinga sína brást
aldrei, þáð var eitt af hans
aðalsmerkjum.
Er tímar liðu fram breyttist
margt til batnaðar í starfsaðstöðu
héraðslæknisins á Höfn, bæði
viðvíkjandi ferðalögum og öðru er
að starfinu laut. Árnar voru
brúaðar hver af annarri, vegir
urðu greiðfærir og þeim haldið
opnum á vetrum. Læknisbústaður
var byggður, fæðingarheimili og
síðar elli- og hjúkrunarheimili var
stofnað og starfrækt og nú síðast
i haust var opnuð á Höfn heilsu-
gæzlustöð fyrir sýsluna. Lyfsali
tók og við apótekinu af héraðs-
lækni á s.l. ári. Aðstaða læknisins
var því orðin allt önnur og betri en
fyrr á árum, enda veitti ekki af,
því fólkinu í sýslunni fjölgaði og
þar með jókst starf læknisins.
Það er ómælt hversu miklu
Kjartan læknir afkastaði á sinni
— að manni fannst — alltof stuttu
starfsæfi. Allir sem honum kynnt-
ust sakna hans sárt og finnst nú
mikið skarð fyrir skiidi.
Það er ein af góðum gjöfum
lífsins að eignast góða vini á
lífsleiðinni og það er minni
fjölskyldu og mér dýrmætara en
auðvelt er að koma orðum að, að
hafa fengið að kynnast og eiga að
vinum Kjartan Arnason og fjöl-
skyldu hans. Betri, heilsteyptari
og sannari vin get ég ekki hugsað
mér að hægt se að fá. Öll árin, sem
þau hafa verið búsett hér, var
vinátta þeirra, umhyggja og
hjartahlýja í okkar garð hér í
Hraunkoti söm og jöfn og varð
ómetanlegur þáttur í tímans rás
og daganna önn. Börnin þeirra
dvöldu hér á bernskuárunum um
lengri eða skemmri tíma og þau
hjónin komu oft í kotið ef tækifæri
gáfust, með eða án barnanna
sinna. Og hús þeirra og heimili á
Höfn stóð okkur ávallt opið. Alltaf
var jafn ánægjulegt að hitta þessa
frábæru vini og finna þann
velvildar og vináttuhug, sem aldrei
brá skugga á, jafnvel þó skoðanir
féllu stundum ekki alveg í sama
farveg. Hliðstæður slíkrar vináttu
sem þeirra, hygg ég vandfundnar.
Fyrir það allt, sem þau hafa verið
okkur og gert fyrir okkur vil ég
þakka af hrærðum og einlægum
huga.
Með fráfalli Kjartans Árnason-
ar hafa íbúar Á-Skaftafellssýslu
mikið misst, en sárastur harmur
er þó kveðinn að eftirlifandi
ástvinum hans, konunni, börnun-
um, roskinni móður hans og
systkinum. Guð styrki þau og
blessi í þungri raun.
Ég efast ekki um að nú, þegar
ný veröld blasir við Kjartani
Árnasyni lækni, verður við hann
sagt: „Gott, þú góði og trúi
þjónn... yfir mikið mun ég setja
þig. Gakk inn til fagnaðar Herra
þíns.
Sigurlaug Árnadóttir
Ilraunkoti í Lóni.
Látinn er Kjartan Arnason
héraðslæknir, Höfn Hornafirði.
Þegar minnast skal þess sem
kvatt hefur þennan jarðneska
heim, mun fyrir fleirum fara sem
mér að finnast fátæklegt um að
litast í orðasafni tilfinninganna og
að orðin ein fái í rauninni lítið
sagt einkum þegar hinn látni er
kvaddur í blóma lífsins, í fullu
starfi og fullu fjöri.
Þegar Kjartan Árnason héraðs-
læknir andaðist, á ferðalagi úti í
Skotlandi, sunnudaginn 21. maí
rétt um kl. 8 að kvöldi, var heiður
himinn, sól enn hátt á lofti og
mikil heiðríkja og gleði í bílnum
okkar. En það var sem allt í einu
bæri skugga á. Einn félaga okkar
var ekki lengur með í samræðun-
um, höfuð hans hneig niður á
bringuna. Kjartan var dáinn.
Engin stuna, engin kvörtun. Og
þótt skugginn sem borið hafði
fyrir væri stór, og í rauninni svo
óendanlegur í hjörtum okkar
ferðafélaganna, og nístandi ang-
istin heltæki hugi okkar í ókunnu
landi, var þó s^o sannarlega
heiðríkja yfir ásjónu vinar okkar
þar sem hann hvíldi í örmum
okkar næsta stundarfjórðunginn.
Heiðríkja og friður — algjör hvíld.
En jarðbundnir hugir okkar
gátu ekki sætt sig við þessi snöggu
umskipti og fullir örvilnunar
börðumst við fyrir því að endur-
heimta það líf, sem nú var
slokknað.
Þannig var þá dauðinn.
Miskunnarlaus og kaldur, —
ósveiganlegur og tillitslaus. Hver
er það sem ekki hefur mætt
þessum óboðna gesti fyrr eða síðar
á lífsleiðinni, og hver hefur getað
vísað þessum óboðna gesti frá
dyrum sínum, hafi hann á annað
borð borið að gárði?
Og þó held ég að þetta andlát
hafi verið kvalalaust, eða ég trúi
því í það minnsta. Enda, hvað var
aðlilegra og betra en að hann
Kjartan, sem búinn var allt sitt líf
að fara líknandi höndum um
sjúka, græöandi höndum um brot-
ín bein og slitna vöðva, þreifandi
næmum fingrum og leitandi
skarpgreindum huga eftir sjúk-
dómseinkennum. Þrotlaus barátta
til þess að lina þjáningar annarra,
andlegar sem líkamlegar. Hvað
var eðlilegra og betra en að hann
fengi hvíld. Hvíld og um leið frið
frá því að þiggja það sem hann
hafði öðrum miðlað allt sitt líf.
Og þó að söknuður þeirra sem
eftir lifa sé sár, og eftirsjáin mikil,
þá er hitt þó miklu meira virði að
sá sem andaðist liði ekki langvar-
+
Eiginmaöur minn og faðir okkar,
HÖRDUR SIGURGEIRSSON,
Blöndubakka 12,
lézt aöfararnótt hins 2. þ.m.
Guörún Loftsdóttir
og börn.
Eiginmaöur minn, faöir ókkar og tengdafaðir,
ÞORVALDUR FAHNING,
Bólstaóarhlíö 40,
veröur jarösunginn í Fossvogskirkju mánudaginn 5. júní kl. 3.00 e.h.
Sigrióur Eyjólfsdóttir,
Rúnar Þorvaldsson, Jakobína Gunnlaugsdóttir,
Hílmar Þorvaldsson, Sigrún Aöalsteinsdóttír,
Margrót Þorvaldsdóttir, Robert Penníngton.
+
Útför móöur minnar,
MAJU BALDVINS
sem andaöist 28. maí sl. veröur gerö frá Dómkirkjunni, mánudaginn 5. júní
kl. 13.30.
Jarösett veröur á Akureyri.
Minningarathöfn fer þar fram fimmtudaginn 8. júní í kirkjunni í Innbænum
kl. 14.00.
Maia Siguröardóttir.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem vottuöu okkar samúö og vinarhug, viö
andlát og jaröarför eiginkonu, móöur og ömmu
HALLFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Stórholti 28.
Guö blessi ykkur öll kæru vinir.
Kristinn Símonarson,
María Kristinsdóttir,
Kristín Halla Daníelsdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns míns og
fööur okkar,
SKÚLA PÁLS HELGASONAR,
Sogavegi 101.
Svanhildur Jensen
og börn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og hluttekningu viö andlát og útför,
SIGRÚNAR GUDBRANDSDÓTTUR,
trá Heydalsá.
Torfi Sigurösson,
Ragnheiður Torfadóttir,
Siguröur Kristinn Finnsson,
Stefán Torfi Sigurösson,
Finnur Sigurösson,
Ármann Viðar Sigurösson,
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns
míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og sonar
BALDURS I. ÚLFARSSONAR,
Þjórsárgötu 7.
Ingibjörg Hjálmarsdóttir,
Stefanía Baldursdóttir, Haraldur Þorvaldsson,
Hjálmar Baldursson,
Gunnar Baldursson, Þóra Baldursdóttir,
Skæringur Baldursson,
Margrét Halldórsdóttir og barnabörn.
Rún Torfadóttir,
Ingibjörg Sara Torfadóttir,
Úlfar Guöjónsson,
Sigrún Arna Úlfarsdóttir,
Drífa Úlfarsdóttir.