Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNI 1978 Ingi Björn og Pétur eru erfiðustu mótherjamir • Diðrik ólafsson einbeittur á svip þar sem hann hefur varið knöttinn örugglega eftir að hafa varið vítaspyrnu Inga Björns. og er ekki á því að missa hann frá sér. -segir DiðrikÓlafsson markvörður Víkings EINN af þeim knattspyrnumönnum, sem sýnt hefur stöðugar framfarir í gegn um árin er markvörður Víkingsliðsins, Diðrik Ólafsson. Hann er nú einn af okkar albestu markvörðum. og í vor hefur hann átt góða leiki, þrátt fyrir að frammistaða Víkinga hafi enn sem komið er ekki verið eins góð og búast mátti við. Morgunblaðið náði stuttlega tali af Diðrik og fékk hann til að spá um þá leiki sem leiknir verða um helgina og álit hans á knattspyrnutímahilinu. á því að Valsmenn og Akurnes- ingar sigli frá hinum liðunum, þeir fara að tapa stigum. Úrslit okkar á móti Þrótti eru ekki mælikvarði á getu liðsins, við höfum alltaf átt í miklum erfiðleikum með Þróttara í gegnum árin. Þegar Diðrik var spurður að því hvaða framlínumanni væri erfiðast að leika á móti, sagði hann: — Tvímælalaust þeim Inga Birni Albertssyni og Pétri Péturssyni, þeir hafa alltaf verið mér erfiðir. Leikir helgarinnar Laugardagur 3. júní 1. deildi Keflavíkurvöllur, ÍBK — Þrótt- ur kl. 17.00, dómari Róbert Jónsson. Kaplakrikavöllur, FH — ÍA kl. 14.00, dómari Magnús V. Péturs- son. Vestmannaeyjavöllur, ÍBV — Valur kl. 17.00, dómari Guð- mundur Haraldsson. Um tímabilið sem nú er hafið sagði Diðrik: — Eftir því sem ég held verður þetta svipað sumar og í fyrra, nema að við í Víkingi eigum eftir að standa okkur betur. Við komum með breyttu hugarfari í næsta leik og verðum ekki eins bundnir í þá leikaðferð sem við höfum leikið að undanförnu. Ég hef enga trú Spá Diðriks 1. DEILD. ÍBK — Þróttur 2 — 1 FH — ÍA 2-2 ÍBV - Valur 3-2 Víkingur - UBK 2 - 1 2. DEILD. Austri — Völsungur 2 — 0 KR — Þróttur 3 — 1 Þór — Ilaukar 2 — 1 Ármann — ÍBÍ 2 — 2 Fylkir - Reynir 3-2 2. deild. Eskifjarðarvöllur, Austri — Völsungur kl. 15.00 Laugardalsvöllur, KR — Þrótt- ur kl. 16.00 Akureyrarvöllur, Þór — Haukar kl. 16.00 Sunnudagur 4. júní 1. deild. Laugardalsvöllur, Víkingur — UBK kl. 20.00, dómari Rafn Hjaltalín. 2. deild. Laugardalsvöllur, Ármann — ÍBÍ kl. 14.00 Mánudagur 5. júní 2. deild. Laugardalsvöllur, Fylkir — Reynir kl. 20.00 íslandsmótið Þrjár umferðir hafa nú verið leiknar í 1. deild og línur því aöeins teknar að skýrast. Eins og margir spáöu í byrjun hafa Valsmenn og Akurnesingar tekið forystu. Leikir þessara liða hafa verið bezt leiknir, einkum hefur Valur náö góöum leikköflum þegar bezt hefur til tekizt. Allt stefnir því að baráttu þessara tveggja liða, sem undanfarin þrjú ár hafa verið í forystu íslenzkrar knattspyrnu. Margir spáöu Fram misjöfnu gengi aö þessu sinni. Undirritaður var þó öllu bjartsýnni með þeirra árangur. Framarar eru í þriðja sæti og þrátt fyrir mjög misjafna blaöadóma trúi ég því enn að lið þeirra skili góðum árangri að lokum. Þróttarar, Vest- mannaeyingar og FH viróast til alls líklegir, hafa hvorki leikiö betur né verr en spáð var. Þessi liö hafa þá eiginleika að geta stundum leikið „toppleiki,“ en þess á milli dettur allt niður fyrir meöalmennsku og jafnvel neðar á stundum. Víkingur er enn það lið sem mest hefur valdiö sönnum vonbrigðum. Leikur liðsins afar stefnulítill og ósann- færandi. Akureyrarliöið KA kom sterkara og ákveönara til leiks en menn gerðu ráð fyrir, og hafa verður það í huga aö liöið hefur leikið alla sína leiki á útivöllum. Keflvíklngar og Breiöabliksmenn eru þau liö sem hvaö mest koma á óvart með slökum árangri enn sem komið er. Leikir þessara beggja liöa hafa verið mjög festulitlir, einkum hafa Breiðabliksmenn valdiö mörgum vonbrigðum, bæöi áhangendum sínum og öörum er meö liðinu hafa fylgst. Hvort um lánleysi eða eitthvað annað er að ræða veröur tíminn aö leiða í Ijós, en þrátt fyrir að þaö sé e.t.v. skýringin verður liðiö að hugsa vel sinn gang á næstunni ef ekki á illa aö fara. Mikiö vatn er enn órunniö til sjávar og því allar leiöir opnar og allt getur skeö hjá hvaöa liði sem er. Eitt virðist þó mega álíta eftir þessar þrjár umferöir, þaö aö baráttan viröist ætla aö veröa enn harðari en menn álitu í byrjun einkum hvað því við kemur að halda sæti sínu í deildinni aö ári. Landsleikurinn í Noregi. íslend- ingar léku sinn fyrsta landsleik á Linur eru aðeins teknar að skýrast þessu ári í Noregi (lið 21 árs og yngri) s.l. þriðjudag. Leikir sem ekki eru A—landsleikir hafa aldrei eins mikinn „sjarma“ og þess vegna falla þeir í skuggann fyrir öðru ef betra býðst. Tölur í leikjum segja ekki alltaf allt, og samkvæmt upplýsingum sem borist hafa var leikurinn lélegur. Sé liðsskipan grannt skoðuö er aö mínu áliti ekki ástæöa til að örvænta þrátt fyrir slaka útkomu. í fyrsta lagi er hér um frumraun að ræða hvað varðar landsleiki af þessari gráöu. í ööru lagi eru þeir sem þátt tóku í leiknum allir góðir knattspyrnu- menn á íslenzkan mælikvaröa og í þriöja lagi var hér um frumraun landsliösþjálfarans að ræöa. Þaö er sannfæring mín að landsliös- þjálfarinn, dr. Youri llitchev, sé frábær þjálfari, en þurfi meiri tíma bæði til aö kynnast leikmönnum og einnig aö þreifa fyrir sér með leikkerfi og annaö er aö leiknum lýtur. Bobby Charlton leikurinn. Á meöan landsliöiö var aö koma sér fyrir í Noregi var annaö úrvalsliö K.S.Í. aö glíma viö brezka liðið hans B. Charlton í skemmtilegum leik á Laugardalsvelli. • Bobby Chariton sýndi það á Laugardalsvellinum að lengi lifir f gömlum glæðum. Eins og áður hefur verið rætt varöandi þennan leik, mega menn alls ekki álíta að hér sé um aö ræða neina raunhæfa æfingu eða annaö varðandi landsliö, eins og margir vilja fram halda. Heldur var hér um aö ræða ágæta auglýsingu á knattspyrnunni almennt. Þaö sem ég vildi þó benda mönnum á eftir þennan leik er, að það sem Bobby Charlton sýndi mönnum t þessum eina leik, maður kominn á fimmtugsaldur, var nær undan- tekningarlaust gert samkvæmt bestu kennslubókum. Hér var því um að ræða einhvern bezta skóla fyrir hvern einasta mann er knattspyrnu „stúderar", ekki síst ungu drengina sem fylgdust með leiknum. Þaö aö geta sýnt slíka snilli á gamalsaldri, sýnir bezt hvaöa listamaöur og snillingur B. C. hefur verið í „good old days“. Landsmót yngri flokka. Landsmót yngri flokka í knatt- spyrnu eru aö hefjast um þessar mundir. Næstu kvöld munu nær allir knattspyrnuvellir landsins verða iöandi af ungum knatt- spyrnumönnum sem berjast um íslandsmeistaratitilinn hver í sínum aldursflokki. Skipulag yngri aldurs- flokka í landsmótum er mjög yfirgripsmikil vinna og erfið. Óvíða í nágrannalöndum er sami háttur hafður á varðandi landsmót yngri flokka og víöast ekki um skipuleg landsmót að ræða fyrr en í 2. aldursflokki. Kostnaður í beinhörð- um peningum við landsmótin er gífurlegur, svo mikill að til eru dæmi þess að lið sem unnið hafa sér rétt til úrslitakeppni á lands- móti hafa hætt við þátttöku og fariö heldur til útlanda í æfinga- og keppnisferð. Nokkrar umræður hafa átt sér staö um skipulag og breytingar á skipan þessarra mála en heildar úttekt hefur ekki veriö gerð. Leikir yngri flokkanna eru undantekningarlítið leiknir á malarvöllum og því oft um leiðin- legri knattspyrnu að ræða en tilefni gefur til. Leikir yngri flokk- anna eru þó oftast skemmtilegir og vel leiknir, og rétt aö minna fólk á aö kíkja á næsta knattspyrnuvöll næstu góöviöriskvöld og gá hvort ekki séu leikir. Einkum vil ég hvetja fólk til aö horfa á leiki hinna yngstu, 5. flokks, en þar eru oft skemmtilegustu tilþrifin. Heímsmeistarakeppnin í knattspyrnu: Hætt er viö aö á næstunni hverfi knattspyrna víða í skugga fyrir heimsmeistarakeppn- inni í Argentínu. Undirritaður mun ekki blanda sér í þær umræður en vonar aö sjónvarpiö taki vel viö sér og verði snöggt aö útvega myndir frá keppninni, þannig aö íslenzkir knattspyrnuáhugamenn fái aö sjá sem fyrst það bezta sem völ er á um þessar mundir. Árni Njálsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.