Morgunblaðið - 03.06.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNI 1978
15
Þessa dagana er nóg að gera hjá þeim myntsöfnurum. sem safna
peningum tengdum viðburðum í íþróttum. Argentínustjórn hefir
i nokkurn tíma og gefur enn út peninga í sambandi við
heimsmeistarakeppnina í kanttspyrnu, sem nú stendur yfir þar
suðurfrá. Á myndinni er aftur á móti fyrsta olympíumyntin vegna
leikanna sem haldnir verða í Moskvu 1980. Eru þetta 5 og 10
rúblna peningar og einn 100 rúblna gullpeningur.
Samkeppni um hönnun
minnispenings myntsafn-
arafélagsins, myntuppboð
Starfi Myntsafnarafélagsins í
vetur lýkur með fundi í dag
klukkan hálf þrjú í Templara-
höllinni. Eins og nokkrum sinn-
um hefir verið minnst á í
þáttum þessum, er starfið afar
líflegt. Fundir hafa verið haldn-
ir tvisvar í mánuði og á öðrum
fundinum hafa verið myntupp-
boð, sem eru sívinsæl. Fundur-
inn í dag er engin undantekning
enda eru óvenju mörg númer á
uppboðsskránni, 123 samtals.
Gætir þar margra grasa. íslenzk
mynt er nú boðin upp í pokum,
allt frá 13 til 100 stykki í einum
poka, að sjálfsögðu blönduð
ártöl og margir gæðaflokkar.
Þessi magnsala hefir verið
reynd lítillega áður og þykjast
þeir hafa gert góð kaup sem
keypt hafa þannig. Af minnis-
peningum má nefna Karlakórs-
peninginn frá 1946, Skógræktar-
félagspeninginn frá 1974, Iðnað-
armannafélagspeninginn frá
1967 o.fl. Margir danskir pen-
ingar verða boðnir upp, sá elzti
frá 1874. Á uppboðinu verða
ennfremur peningar frá Noregi,
Kanada, Austurríki, Hollandi,
Ráðstjórnarríkjunum, Máritan-
íu, Uganda, Mön, Svíþjóð,
Þýzkalandi og Slésvík. Seðlar
verða bæði úr Keflavík og af
þriðju útgáfu Landsbankans.
Hæsta lágmarksverðið er á
eftir RAGNAR
BORG
norskri spesíu frá 1726, 19.000
krónur. Verður áreiðanlega
slegist um hana. Á uppboðinu er
einnig 2000 króna hlutabréf í
íslandsbanka með 7 undirskrift-
um. Minnist ég þess ekki að hafa
séð svona hlutabréf á uppboði
hjá Myntsafnarafélaginu fyrr.
Stjórn Myntsafnarafélagsins
hefir kjörið nefnd til að undir-
búa myntsýningu og sláttu
minnispenings í tilefni af 10 ára
afmæli félagsins sem verður á
næsta ári. Er ráðgert að mynt-
sýningin verði í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins um miðjan apríl.
Samkeppni verður um gerð
minnispeningsins og verður
háum verðlaunum heitið þeim
sem vinnur. Samkeppnin verður
væntanlega auglýst bráðlega og
munu allir listamenn þjóðarinn-
ar geta tekið þátt í því að hanna
fegursta minnispeninginn.
Þetta er síðasti myntþáttur-
inn í vetur.
Gagnfræðaskóla ísafjarðar slitið:
30 ára nemendur færðu
skólanum málverk að gjöf
GAGNFRÆÐASKÓLA ísafjarðar
var sagt uþp laugardaginn 20. maí
s.l. í Isafjarðarkirkju. S.l. vetur
stundaði 191 nemandi nám við
skólann en 62 útskrifuðust að
þessu sinni. Fastráðnir kennarar
við skólann voru 11 auk skóla-
stjóra og tveggja stundakennara.
Að lokinni skólaslitaræðu Kjart-
ans Sigurjónssonar skólastjóra,
afhenti Pétur Sigurðsson skólan-
um málverk að gjöf frá 30 ára
nemendum.
Myndin er af Gústaf Lárussyni
fyrrum kennara og skólastjóra
skólans, sem starfað hefur lengst
allra við hann. Hann þakkaði
gefendum fyrir hönd skólans og
lýsti ánægju sinni með þann
hlýhug sem honum væri sýndur
með þessu.
Þá var veitt viðurkenning þeim
nemendum sem beztan vitnisburð
fengu í hverjum árgangi. Þau, sem
þessa viðurkenningu fengu, eru
Heiðdís Hansdóttir, 9. bekk,
Gunnar Níelsson, 8. bekk, og þær
Svanhildur Vilbergsdóttir og
Rannveig Halldórsdóttir, 7. bekk.
Ráðstefna sjálfstæðis-
manna í Reykjaneskjördæmi
RÁÐSTEFNA formanna
allra sjálfstæðisfélaganna
í Reykjaneskjördæmi,
bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins og frambjóðenda
hans til Alþingis var hald-
in í Sjálfstæðishúsinu í
Kópavogi (Hamraborg 1)
fimmtudaginn 1. júní.
Rætt var um stjórnmála-
viðhorfið að loknumm
byggðakosningunum og
komandi alþingiskosning-
ar. Ráðstefnumönnum
kom saman um að reyna
að snúa vörn í sókn í
kosningabaráttunni fram-
undan og berjast allir sem
einn fyrir kjöri þriggja
manna af D-lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi, en hinn
fjórði fylgir þeim sem
landskjörinn. Til máls
tóku Stefán Jónsson,
Hafnarfirði, Gísli Ólafs-
son, Seltjarnarnesi, Sigur-
geir Sigurðsson, Seltjarn-
arnesi, Tómas Tómasson,
Keflavík, Ólafur G. Ein-
arsson, Garðabæ, Magnús
Erlendsson, Seltjarnar-
nesi, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, Kópavogi,
Matthías Á. Mathiesen,
Hafnarfirði, Bragi
Michaelsson, Kópavogi,
Salóme Þorkelsdóttir,
Mosfellssveit, Eggert
Steinsen, Kópavogi, Jón
Þorvaldsson, Kópavogi,
Eyjólfur Guðmundsson,
Vogunum og Ellert Eiríks-
son, Keflavík.
~HAFNAH:
STRCTI
AUSTUR-
ennþá betri þjónustu en áður.
MÖÍ!
□OOÖÖÖÖÖ
Zy, JnWtmAG MhANÞS
FERÐASKRIFSTOFAN
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900
wm^mum
• 1 pT 71 Ul r§]
[ « r * i r • 1 • 1