Morgunblaðið - 03.06.1978, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
Þcgar fjölhrautaskólanum í
Breiðholti var slitið 25. maí sl.
brautskráðust í fyrsta sinn
ncmcndur á hússtjórnarsviði.
Eru það fyrstu 10 nemendurn-
ir. scm lokið hafa námi í
matvæla- og hússtjórnarfræð-
um. bóklcKum og verklcgum.
En þeir nemendur eiga eftir að
Ijúka 34 vikna starfsþjálfunar-
tima á sjúkrahúsum eða stærri
mötuneytum til að nám þeirra
verði fullgilt. Hér er um alveg
nýja námsbraut að ræða. Þess
vegna var leitað til Bryndísar
Steinþórsdóttur deildarstjóra
hússtjórnarsviðsins og hún
Nemendur á hússtjórnarbraut á öðru ári f Fjölbrautaskólanum f Breiðholti. 10 hafa Iokið tveggja
ára námi og eiga eftir verklega þjálfun. En eins og tftt er í áfangakerfi eru þeir mislangt komnir.
Bryndís Steinþórsdóttir er lengst til hægri í aftari röð.
Hússtjórnarnám
til stúdentsprófs
Þáttur í fjölbraut í Breiðholti
spurð nánar um þctta nýja
hússtjórnarnám. Þarna er um
brautryðjandastarf að ræða. en
flciri skólar hafa nú þegar á
þessu vori auglýst hliðstæðar
námsbrautir.
Bryndís sagði, að ástæðan
fyrir uppbyggingu námsbraut-
arinnar væri að vinnumarkað-
inn vantaði þessa starfsstétt.
Hingað til hefur þeim ekki
gefist kostur á menntun, sem
vinna við matreiðslustörf á
sjúkrahúsum og í mötuneytum,
aðeins þeim sem stjórna, sagði
hún. Þörfin er mikil á lærðu
fólki og ætti þjóðin að setja
metnað sinn í að efla manneldis-
mál og gera miklu meiri kröfur
i þeim efnum bæði fyrir heil-
brigða og sjúka. Starfsgrund-
völlurinn er því mikill framund-
an, þar sem næringar- og
hollustuháttum hefur verið allt
of lítill gaumur gefinn. Þáttur
heimilanna hefur minnkað í að
framleiða fæði handa heimilis-
fólkinu, en um leið eykst þáttur
mötuneyta fyrir barnaheimili,
skóla, starfshópa o.fl.
•Búa undir
ýmsa þætti
atvinnulífsins
Bryndís var innt eftir
markmiði og möguleikum nem-
enda á þessu nýja námsviði.
Hún sagði, að með hússtjórnar-
náminu öðluðust nemendur al-
menna hagnýta menntun, sem
væri hverjum einstaklingi nauð-
s.vnleg, en um leið gæfist þeim
kostur á sérhæfingu og/eða
framhaldnámi til stúdentsprófs
með valgreinum eftir því hvert
hugur þeirra stefnir í háskóla-
námi.
— Markmið náms á hús-
stjórnarsviði er að auka kunn-
áttu og hæfni nemenda í bókleg-
um og verklegum greinum á
sviði næringar- og matvæla-
fræði, svo og í almennum
heimilisstörfum með því í fyrsta
lagi að veita nemendum hagnýta
menntun og um leið undirbún-
ing að framhaldsnámi í öðrum
skólum, t.d. Hótel- og veitinga-
skóla Islands. I öðru lagi að búa
nemendur undir ýmsa þætti
Stór þáttur náms á hússtjórnarbraut er samvinna og skipulagning.
Þá vinna nemendur tveir eða íleiri saman að verkeíninu.
atvinnulífsins, t.d. að standa
fyrir litlum mötuneytum eða
veitingastöðum eða aðstoða við
stærri. Og í þriðja lagi að
stunda nám að stúdentsprófi.
— Er þetta allt í sömu
námsbrautinni?
— Nei, námsbrautirnar á
hússtjórnarsviðinu í fjölbrauta-
skólanum verða á næsta ári
tvær: matreiðslutæknibraut og
hótel- og veitingabraut, svaraði
Bryndís og gaf nánari skýring-
• Starfsþjálfun
á sjúkrahúsum
— Á matreiðslutæknibraut
gefst nemendum kostur á
þriggja ára námi. Fyrstu tvö
árin fer bóklega og verklega
námið fram í skólanum, en á
þriðja ári fer starfsþjálfun fram
á sjúkrahúsum borgarinnar í 34
vikur. Samkomulag hefur náðst
við Landspítalann og Borgar-
spítalann um að gefa nemendum
kost á starfsþjálfun í sumar or
hófst þjálfunin að loknum próf-
um á vorönn.
Til skýringar er rétt að skjóta
hér inn í, að í fjölbrautaskólan-
um er áfangakerfi og náminu
skipt í skólakjarna, sviðskjarna
og kjörsviðsgreinar. Allir nem-
endur stunda sama nám í
skólakjarna og þar með gefst
þeim kostur á að stunda nám ao
stúdentsprófi og einnig að
skipta um námssvið ef þeir óska
þess. Námsgreinar þar eru
íslenzka, tungumál, stærðfræði,
félagsfræði og mynd- og hand-
mennt. í sviðskjarna, sem val-
inn er með tilliti til kjörsviðs-
greina, eru greinar eins og
sálarfræði, líffæra- og lífeðlis-
fræði, næringarfræði o.fl. Og
kjörsviðsgreinar eru mat-
reiðslu- , framleiðslu- og hrein-
lætistækni, vörufræði, áhöld,
tæk og vélar ásamt þáttum í
híbýlafræði, bókfærslu, stjórn-
un o.fl. Auk þess géta nemendur
eins og á öðrum sviðum valið sér
námsgreinar eftir því sem hug-
ur þeirra stefnir og tími vinnst
til.
• Hússtjórnarnám
íæst metið
— Á hótel- og veitinga-
braut er nemendum gefinn
kostur á undirbúningsnámi fyr-
ir Hótel- og veitingaskóla ís-
lands, heldur Bryndís áfram.
Rætt hefur verið samstai'f milli
skólanna og sú hugmynd komið
fram, að á fyrsta ári verði
námsgreinar þær sömu og fyrir
matreiðslutæknibraut og hótel-
og veitingabraut, en á öðru
námsári verði bóklegar náms-
greinar í fjölbrautaskólanum,
en verklegar greinar í Hótel- og
veitingaskólanun. Framhalds-
nám í H.V.I. fyrir þá nemendur,
sem komist hafa á samning.
Nemendur, sem lokið hafa
námi í hússtjórnarskólum eða
framhaldsnámi i hússtjórnar-
greinum í öðrum skólum gefst
kostur á að fá nám sitt metið
inn á brautirnar, og þá til
styttingar.
— En hvernig kemur hús-
stjórnarsviðið til stúdentsprófs
að gagni í framhaldsnámi?
— Á hússtjórnarsviði eiga
nemendur kost á að stunda nám
til stúdentsprófs í kjörgreinum
og/eða valgreinum, sem koma
að notum í áskólanámi, t.d.
kennaranámi í sérgreinum,
manneldisfræði, matvælaverk-
fræði, sjúkrafræði, hótelstjórn
o.fl. Allir nemendur skólans
eiga raunar kost á að velja
eftirtaldar námsgreinar: nær-
ingarfræði, vörukost, örveru-
fræði, matreiðslu-, framleiðslu-
og hreinlætistækni, híbýlafræði,
fatasaum, ungbarnameðferð og
heimahjúkrun.
— En hvað um konur, sem
lokið hafa uppeldisstörfum á
heimilum sínum og vilja fá sér
framhaldsmenntun á því sviði,
sem þær þekkja.
— Þær geta að sjálfsögðu
gengið inn í áfangakerfi fjöl-
brautaskólans. Fyrra nám, svo
sem í húsmæðraskólum, geta
þær fengið metið, en enn sem
komið er hefur starfsreynsla
ekki verið metin. Fullorðnar
konur hafa sýnt þessu áhuga og
jafnvel talað um að koma í
skólann. En ekki hefur enn orðið
af því.
— Hvað eruð þið að hugsa um
að gera í framhaldi af þessu?
— Talað hefur verið um
ræstitækni eða stjórnun ræst-
ingar sem framhaldsverkefni í
skipulagningu á þessu námi.
Einnig um iðjubrautir, mat-
væla- og fataiðnað, meðferð
þvotta og einnig braut sem
nefnist heimilishjálp. Hún
mundi veita rétt til að sinna
störfum á heimilum, t.d. í
forföllum húsmóður o.fl. En ég
tek fram að þetta hefur enn sem
komið er aðeins komið til
umræðu.
— Áhugi á bættu mataræði
fer ört vaxandi, sagði Bryndís að
lokum. Ég vona því að þessi
tilraun takist vel og að nám á
þessu sviði eigi eftir að verða
veigamikill þáttur í samræmdu
framhaldsskólaker^. Fræðslu-
yfirvöld og stjórnendur sjúkra-
húsa borgarinnar hafa sýnt
málinu mikinn áhuga. Fleiri'
skólar hafa nú auglýst hliðstæð-
ar námsbrautir og einnig gefost-
ur á styttra námi í hússtjórnar-
skólum.
- E.Pá.
Vcrkíegi þátturinn fór fram í Húsmæðrakcnnaraskóla Islands, nemendur nutU leiðsagnar kennara
þar. Hér ræða nemendur matseðlagerð og verkefnin framundan.