Morgunblaðið - 03.06.1978, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978
Nákvæmar mælingar
á jarðhreyfingum
við Vestmannaeyjar
Mælamir mikilvægur liður í almannavamakerfi landsins
Starfsmenn Norrænu eldfjalia-
stöðvarinnar eru um þessar
mundir að setja upp tvo halla-
mæla í Vestmannaeyjum, sem
gerðir hafa verið á stofnuninni.
Eru þetta sams konar mælar og
verið hafa í notkun við Kröflu
síðan í ágúst í fyrra og reynzt
mjög vel og vakið hafa athygli
erlendra vísindamanna. Er
nákvæmni mælanna mjög mikil
og segja þeir nákvæjnlega til um
allar hreyfingar jarðskorpunnar
þar sem þeir eru staðsettir. Ef að
likum lætur verða þcssir mælar
mikilvægur liður f almanna-
varnaker.fi landsins en reynslan
af Kröílumælinum er sú, að sögn
Guðmundar Sigvaldasonar jarð-
fra'ðings. forstöðumanns
Norrænu eldfjallastöðvarinnar.
að hann varaði við eldsumbrotum
mcð nokkurra klukkutíma fyrir-
vara og gerði einnig kleift að
túlka atburðarásina jafnóðum til
mikils hagræðis fyrir almanna-
varnaaðila. Síðar er meiningin að
setja upp mæla við Kötlu, í
Kverkfjöllum, við Öskju og víðar
og tengja alla mælana við tölvu-
kerfi.
Að sögn Guðmundar er mælir-
inn, sem settur er upp í Vest-
mannaeyjum, ný gerð af halla-
mæli, sem hefur verið þróaður við
Norrænu eldfjallastöðina, en Guð-
mundur veitir henni forstöðu sem
kunnugt er. Mælinn hafa gert
Sigurjón Sindrason tæknifræðing-
ur og Halldór Olafsson starfsmað-
ur stöðvarinnar og ennfremur
hefur Ævar Jóhannesson starfs-
maður Raunvísindastofnunar átt
þátt í gerð mælisins.
Mælirinn hefur verið reyndur
síðan í ágúst í fyrra norður við
Kröflu og hefur reynslan af
honum verið mjög góð. Mælir þessi
mælir hallabreytingar á landi og
er það næmur, að hann getur
skynjað breytingu, sem nemur
1/10 úr millimetra á línu, sem er
einn kílómetri að lengd. Að sögn
Guðmundar er þetta tæki, sem er
mjög vel nothæft til þess að mæla
allar hallabreytingar, sem verða á
jarðskorpunni en slíkar breytingar
gefa mikilvægar upplýsingar um
það hvert ástandið er á eldfjalla-
svæðum og hver virknin er. Við
Kröflu hefur mælirinn fylgst með
landrisinu fyrir norðan síðan í
ágúst í fyrra og gefið mjög
mikilsverðar upplýsingar. Til
dæmis er línurit, sem birtist með
greinargerð nokkkurra vísinda-
manna um Kröflusvæðið í dag-
blöðum nýlega, að miklu leyti
byggt á mælinum. Hefur komið
fram við umbrotin á Kröflusvæð-
inu að mælirinn varar við þeim
með nokkrum fyrirvara, eins og
reyndar sést á meðfylgjandi mynd.
— Við erum svo núna að setja
mælinn upp annars staðar og fyrir
valinu urðu Vestmannaeyjar,
sagði Guðmundur.
— Við teljum ástæðu til þess að
sjá hvort einhverjar hreyfingar
eru þar á jarðskorpunni eða þá að
allt sé þar með kyrrum kjörum
eins og maður vonar au.ðvitað. En
á því viljum við fá staðfestingu.
Þetta er liður í stærra verkefni
sem á að skera úr um það hvort
nokkur virkni sé á þessu svæði
ennþá. Við höfum einnig verið með
nákvæmar fjarlægðarmælingar
milli Heimaeyjar og úteyja, sem
voru framkvæmdar í maíbyrjun og
verða svo endurteknar með nokk-
urra mánaða millibili framvegis,
til þess að sjá hvort einhverjar
lengdarbreytingar verða í kringum
gossprunguna sem er á Heimaey
og líklega gengur neðansjávar allt
til Surtseyjar. Eru þessar
fjarlæðarmælingar framkvæmdar
með leysisgeislum og eru frávik
innan við 1 sentimetri á 10 km
vegalengd. Þá er ennfremur í
Vestmannaeyjum jarðsjálftamæl-
ir, sem rekinn er af Raunvísinda-
stofnun háskólans og það eru
ýmsar fleiri mælingar, sem er
ætlunin að gera þarna í eyjunum
í samráði við almannavarnanefnd
Vestmannaeyja en það er hún, sem
stendur að verulegu leyti straum
við kostnað við mælingarnar og
uppsetningu mælanna en við
leggjum þá til, segir Guðmundur.
— Þessa dagana er verið að
setja upp tvo mæla til að kanna
hversu vel þeir bregðast við
þessum stað. Það er dálítil spurn-
ing hvort aðstæður leyfa svona
nákvæmar breytingar. Sjávar-
gangur, brim og veður kunna að
valda svo miklum truflunum að
ekki sé hægt að framkvæma
mælinguna af nógu mikilli
nákvæmni. Þessir tveir mælar
eiga að sýna hvort þetta er
mögulegt og ef svo er þá verða
RÉTT fyrir kl. 16 þann 8. sept. 1977 byrjaði seguihallamælir við Kröflu
að sýna hratt sig til norðurs. Samtímis kom fram stöðugur titringur á
öllum jarðskjálftamælum. Sigið orsakaðist af því að bergkvika streymdi
neðanjarðar úr kvikuhólfi undir Kröflu í átt til Gjástykkis. Um kl. 17i30
stíflaðist kvikustraumurinn og um kl. 17>50 ruddist kvikan upp á
yfirborðið, en í fremur litlu magni miðað við heildarmagn kvikunnar, sem
var á ferð neðanjarðar. Um kl. 18>30 brast fyrirstaða í kvikuhólfinu og
nú streymdi kvikan til suðurs f átt að Bjarnarflagi og Kísiliðjunni. Kvikan
hafði þar með fundið nægt rými neðanjarðar og eldgosið fjaraði fljótlega
út.
Línuritið sýnir að mælirinn varar við gosi tveimur tfmum áður en það
hefst og gerir einnig kleift að túlka atburðarásina jafnóðum til mikils
hagræðis fyrir almannavarnaaðila.
settir upp fleiri. Þessir mælar eru
báðir á Heimaey, annar á Stór-
höfða og hinn við gamla sjúkra-
húsið. Ef fleiri mælar verða settir
upp seinna, verða þeir væntanlega
settir upp í úteyjum.
— Við erum með ýmislegt fleira
í huga, t.d. að setja mælana upp
við Kötlu, Kverkfjöll og Öskju en
þetta eru staðir sem við vitum að
miklar hreyfingar eiga sér stað.
En með tilliti til almannavarna
urðu Vestmannaeyjar fyrir valinu
fyrst, því þar er mikilvægast að
vita um ástand svæðisins með
tilliti til byggðarinnar.
— Framtíðaráætlunin er sú að
reyna að fá merki frá öllum
þessum mælum inn á tölvukerfi,
sem þá yrði væntanlega í Reykja-
vík. Það gefur auga leið, að eftir
því sem mælunum fjölgar verður
erfiðara að vinna úr þeim gögnum
sem frá þeim kemur þar sem um
gífurlegt magn verður að ræða,
sagði Guðmundur að lokum.
Vinaminni:
Nýtt blað um
umhverfis-
verndun
út er komið nýtt blað sem
ncfnist Vinaminni og fjallar það
um umhverfisverndun.
Blaðið leggur áherslu á verndun
húsa og telur að við húsverndun
verði að gæta þess að hús haldist í
ákveðinni mynd en sé ekki gjör-
breytt á ytra borði. Einnig telur það
að hús þurfi að falla vel inn í
upprunalegt umhverfi sitt.
I fréttatilkynningu frá aðstand-
endum blaðsins kemur fram að þeir
eru ánægðir með það endurreisnar-
starf sem borgaryfirvöld hafa látið
vinna að í viðgerð gamalla húsa við
Tjörnina.
Blaðinu verður dreift í Reykjavík
í 12.000 eintökum og er það ókeypis.
Þeir sem ekki fá blaðið sent en hafa
áhuga fyrir að eignast það er bent
að snúa sér til Sögufélagsins,
Garðastræti 13 b, s. 14620.
Vinaminni
Blaö um umhverf isverndun
1,tbl. 1.árg.-Mai 1978
HMI.DARPI.AN VANTAR í
REYKVÍSKA HÚSAVF.RNDLN
Bumirot
Sedum
Ýmsir hnoðrar (Sedum)
eru ræktaðir í steinhæðum
þar á meðal helluhnoðrinn
íslenski, sem myndar lágar
gular breiður. Hærri í
loftinu og tilkomumeiri er
þó frænka hans
BURNIRÓTIN, líka kölluð
burn, blóðrót og svæfla.
Hún vex víða í klettaskor-
um og á heiðum til fjalla.
Hún er talsvert ræktuð í
görðum, einkum í stein-
hæðum og myndar fagra
brúska. Blöðin sitja þétt og
eru þykk og breið, blágræn
á lit. Blómin ljósgul og sitja
í þéttum blómmörgum
skúfum á stöngulendunum
í maí/ júní. Þroskuð kven-
blóm með gildum gulrauð-
um aldinum eru mjög fögur
þegar á líður. Oft roðna
blöðin á haustin. Burnirót-
in vex upp af gildum
gulleitum jarðstöngli, sem
ilmar líkt og rós við þurrk-
un.
Konur suðu fyrrum ilm-
andi hárvatn úr jarðstöngl-
inum og átti það að örva
roseum
hárvöxt (sbr. nafnið greiðu-
rót).
„Svæfla bilaðan læknar
koll“, segir gamalt mál-
tæki. í Ferðabók Eggerts
Ólafssonar og Bjarna Páls-
sonar segir m.a. um burni-
rót: „Rót hennar marin og
hnoðuð saman við smjör er
notuð til að lina útvortis
þrautir. Best ef lögð er heit
við verkinn."
Áður var burnirót stund-
um gróðursett á torfveggi
og þök og var það mjög til
prýðis.
Auðvelt er að fjölga
burnirót með skiptingu og
græðlingum. Hún sómir sér
prýðilega í steinhæð eink-
um þar sem birtu nýtur vel.
I skugga vill hún verða
læpuleg þegar líður á sum-
ar. Má þá skera ofan af
henni og nýir sprotar vaxa
fljótlega aftur.
Burnirót vex víða um
norðanverða Evrópu og á
fjöllum sunnar. Einnig vex
hún á Grænlandi og víða í
Norður-Ameríku. — I.D.
Morðfjár fyrir að sanna
heimsókn geimvera
London, 1. júní. — AP.
SKOZKT viskífyrirtæki, sem heit-
ir Cutty Sark kunngerði í dag að
það myndi veita einnar milljón
sterlingspunda verðlaun hverjum
þeim sem getur komið með
sannan vitnisburð fyrir því að
fólk frá öðrum hnöttum geti
ferðast til jarðar. Talsmaður
fyrirtækisins lét og fylgja með —
til að sýna hversu alvarlega málið
væri tekið — að fyrirtækið hefði
tryggt sig gcgn þeim möguleika
að þurfa að reiða fram féð, en
ekki var látið uppskátt um
hversu hátt iðgjald varð að
greiða.
Forstjóri fyrirtækisins sagði
blaðamönnum að full ástæöa væri
til að sýna þessu máli bæði áhuga
og ákveðna virðingu, þar sem
margt benti til að jarðarbúar væru
ekki einir í alheimi og ýmsir væru
farnir að hneigjast til þess að
verur utan úr geimnum væru svo
þróaðar að hugsanlegt væri að þær
væru öðru hverju í heimsóknum
hér.
Fyrir nokkrum árum bauðst
þetta sama fyrirtæki til að greiða
ámóta verðlaun þeim sem sannaði
tilvist Loch Ness-skrímslisins svo
að ekki yrði um villzt. Ekki hefur
þó enn komið til að það fé væri
greitt.
APíiI.VsiNOASÍMINN Klt:
22480
Blorflmiblnbib