Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978 25 — Samið við FÍA Framhald af bls. 44. fór í prentun, haföi ekkert spurzt af fundinum. I dag er ráðgerður samningafundur með samninga- nefnd Félags Loftleiðaflugmanna, sem einnig hafa átt í kjaradeilu við Flugleiðir h.f. Samningarnir tókust eftir sátta- fund, sem staðið hafði í 40 til 50 klukkustundir. Samningarnir veita flugmönnum hlutfallslega sömu hækkanir og aðrir starfs- hópar í þjóðfélaginu hafa fengið. Gilda þeir frá 15. október síðast- liðnum og til 1. febrúar 1979. — Aðalfundur SH Framhald af bls. 44. okkar er nánast óbreytt seinustu mánuðina. Á sama tíma verður fiskvinnslan að mæta stöðugum kostnaðarhækkunum hér innan- lands, sem leitt hafa til þess að við rekstrarskilyrði í maí þá er áætlað rekstrartap frystihúsanna 1500 millj. kr. Frá fyrsta þessa mánaðar hækkar launakostnaður frystihúsanna um 2500 milljónir kr. á ári. Nú standa yfir samningar um nýtt fiskverð frá 1. júní og því óvíst hvaða kostnaðaraukningu það hefur í för með sér. Af þessu má vera ljóst að útflutningsframleiðslan hefir ekkert bolmagn til að mæta þessum hækkunum. Þessi vandi krefst aðgerða í efnahagsmálum nú þegar. Léleg afkoma á undanförnum árum hefir leitt til þess, að nokkur frystihús hafa hætt rekstri, en önnur hafa starfað með hálfum afköstum og flest bendir til, að fleiri muni hætta á næstu mánuðum. Hér er um hættulega þróun að ræða, sem áður en varir hlýtur að leiða til alvarlegs atvinnuleysis og upplausnar í þessari þýðingarmiklu atvinnu- grein. Frystihúsin eru burðarás atvinnulífsins í framleiðslu- byggðarlögunum umhverfis allt landið. Það hlýtur því að vera sameiginlegt takmark stjórnvalda, launþegasamtaka og allra ábyrgra þjóðfélagsafla, að þessum atvinnu- rekstri sé á hverjum tíma tryggð- ur rekstrargrundvöllur, sem skapi þorra frystihúsanna viðunandi starfsskilyrði og möguleika á eðlilegri endurnýjun og hag- ræðingu.“ Að loknum aðalfundinum í gær fór fram stjórnarkosning og í aðalstjórn voru kosnir: Gunnar Guðjónsson, Guðfinnur Einarsson, Gísli Konráðsson, Einar Sigur- jónsson, Ágúst Flygenring, Ólafur Gunnarsson, Rögnvaldur Ölafsson, Ásgrímur Pálsson og Ólafur H. Ólafsson. — Sérstakt ráð... Framhald af bls. 44. „Þá höfum við árlega flutt tillögu um að gerð yrði allsherjar- úttekt á rekstri borgarinnar með því að fela hlutlausu fyrirtæki könnum á því hvernig koma megi við aukinni hagræðingu og sparn- aði í borgarkerfinu," sagði Björg- vin. Þegar Mbl. spurði Björgvin hvaða átit hann hefði varðandi breytingar á embættismannaliði borgarinnar með nýjum meiri- hluta borgarstjórnar, svaraði hann: „Það er auðvitað vitað mál að allir æðstu embættismenn borgarinnar eru sjálfstæðismenn. En ég vil á þessu stigi ekkert segja um hvort það eitt er ástæða til einhverrabreytinga. Flestir þessara manna eru skipaðir með æviráðningu og ég býst alla vega ekki við að við förum að grípa til einhverra bolabragða til að koma slíkum mönnum úr starfi.“ — Marokkó Framhald af bls. 1 búa og óttast mjög að þar verði gerð árás líkt og í Kolwezi. Fréttir frá höfuðborg Zaire, Kinshasa, hermdu í dag að Zaire- stjórn hygðist mótmæla því kröftuglega við Belgíumenn að hreyfingin sem innrásina gerði í Shaba-hérað hefði skrifstofu í Belgíu og aðgang að fjölmiðlum þar. Að sögn fréttastofunnar í Kinshasa íhuga Zairemenn nú að kalla heim sendiherra sinn í Brússel til að leggja áherzlu á óánægju sína og jafnvel að slíta stjórnmálasambandi landanna. — Skæruliðar Framhald af bls. 1 að því er franska landvarnaráðu- neytið tilkynnti í dag í París. Skæruliðarnir eru félagar í hin- um svonefndu Frolinat-samtök- um og njóta stuðnings stjórnar Lfbýu. Undanfarna daga hafa verið harðir bardagar f Chad og hafa skæruliðar mjög sótt á og er nú talið að þeir ráði yfir allt að tvcimur þriðju hlutum landsins. Tvö hundruð skæruliðar féllu í bardaga í gær skammt frá höfuðborginni. Skæruliðarnir gerðu skyndiárás á þorpið Ati snemma í þessum mánuði en voru hraktir þaðan með aðstoð frönsku hermannanna. Ati er mjög skammt frá þar sem skæruliðarnir hafa verið um- kringdir. Skæruliðum tókst á mánudag að skjóta niður hljóðfráa þotu franska flughersins, en franskar þotur eru nú sagðar láta rigna sprengjum yfir liðið sem umkringt er. — Bandaríkin Framhald af bls. 1 lögsögu landanna séu og hvernig háttað skuli veiðum sjómanna þjóðanna á slíkum svæðum. Kanadamenn til- kynntu um hádegið í dag að öll bandarísk fiskiskip yrðu að vera komin úr kanadískri land- helgi fyrir hádegi á sunnudag og Bandaríkjamenn gáfu út svipaða tilkynningu nokkrum klukkustundum síðar. -Kvikmyndir Framhald af bls. 19 VIOLETTA NO- ZIERES. Hún fjallar um þennan atburð sem raunverulega gerðist í París á fjórða áratugn- um. Þau verðlaun sem koma kannski hvað mest á óvart, eru verð- laun fransmannsins Louis Malle fyrir leik- stjórn nýjustu myndar sinnar PRETTY BABY. Hún er gerð í New Orleans og algjörlega fjármögnuð af Banda- ríkjamönnum. „Snotra barn“, sem gerist að mestu leyti á hóruhúsi og fjallar um kornunga vændiskonu, hefur hlotið frekar neikvæða dóma víðast hvar. Staksteinar Framhald af bls. 7 milljónir ungs fólks án atvinnu, sem er u.p.b. 40% atvinnulausra í pessum ríkjum. — Í staó pess aó tryggja rekstrar- öryggi atvinnugreina okkar á pann hátt sem gjört var, vildi AlpýAu- bandalagiA leggja nýjan veltuskatt á atvinnu- reksturinn, sem óháóur átti aó vera rekstraraf- komu hans. Slíkt hefói beinlínis stuölað að rekstrarstöðvun og at- vinnuleysi — vió ríkjandi efnahagsaðstæður. Hvern veg slíkt stefnumið Alpýðubandalagsins hefói komið vió hina lægst launuðu parf ekki um aó ræða. Þjóðaríþrótt Þjóðarípróttin, stakan, lifir góöu lífi enn í dag. Jörundur Gestsson, skipasmiður, bóndi á Hellu, kastaði fram pess- ari stöku — staddur f Reykjavík í úrhellisrign- ingu — er úrslit í borgar- stjórnarkosningum lágu fyrir „Hugsun skýr fór par í Prot, pví er glópskan engu lík, himinn grætur glappaskot góóra manna í Reykjavík. Morgunblaóió óskar :ir blaóburóarfólki Austurbær Kjartansgata Upplýsingar í síma 35408 'SftsfyftndkiíKbtb Mosfellingar og ferðamenn Athugið, verzlunin Kjörval er opin: Mánudag—Laugardag 9.00—22.00. Sunnudaga frá kl. 10.00—19.00. Kjöt, fiskur, mjólk, brauð og allar nýlenduvörur, Kjörval, verzlunin sem alltaf er opin og síminn er 66656. §ÍÍÍBM»M»MMÍ ALLT MEÐ EIMSKIP Á næstunni ferma skip vor til íslands, jl sem hér segir: ANTWERPEN: Fjallfoss 6. júní Stuðlafoss 6. júní Lagarfoss 14. júní Fjallfoss 19. júní ROTTERDAM: Fjallfoss 7. júní Lagarfoss 13. júní Fjallfoss 20. júní FELIXSTOWE: Dettifoss 5. júní Mánafoss 12. júní Dettifoss 19. júní ! Mánafoss 26. júní | HAMBORG: Dettifoss 8. júní Mánafoss 15. júní Dettifoss 22. júní Mánafoss 29. júní PORTSMOUTH: Bakkafoss 6. júní Selfoss 15. júní Hofsjökull 23. júní Bakkafoss 28. júní Skeiösfoss 5. júlí GOTHENBURG: Laxfoss 5. júní Háifoss 12. júní Laxfoss 19. júní KAUPMANNAHÖFN: Laxfoss 6. júní Háifoss 13. júní I Laxfoss 20. júní ! HELSINGBORG: J Urriðafoss 6. júní Grundarfoss 12. júní | Urriðafoss 21. júní MOSS: Urriðafoss 7. júní Grundarfoss 13. júní KRISTIANSAND: Urriðafoss 8. júní [W Grundarfoss 14. júní g Urriðafoss 23. júní fi=J © STAVANGER: Urriðafoss 9. júní kíJ Urriðafoss 24. júní l© GDYNIA: 1 Bæjarfoss 5. júní 1 ÞRANDHEIMUR: Álafoss 5. juni VALKOM: Múlafoss 19. júní VENTSPILS: Múlafoss 15. júní WESTON POINT: Kljáfoss 13. júní Kljáfoss 27. júní Reglubundnar ferðir alla mánudaga frá Reykjavík til isafjarðar og Akureyrar. Vörumóttaka í A-skála á töstu- dögum. ALLT MEÐ EIMSKIP i 1 1 1 i i i i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.