Morgunblaðið - 03.06.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978
29
V'
■kJ- <
ri
i a
*■»
a.
-t“ £’S vi
» > ’v --Js ,J,
's O”
** C)
•P
J. .
4-
u ~L L
ö
poppheiminu
nn
Uj
• *
ABBA
BONNIE TYLER
Vinsœldalistar
Eins og fyrri daginn skipa Boney M. efsta sætið á brezka vinsældalistanum og virðist
fátt geta hrakið hljómsveitina þaðan. Yvonne Elliman færðist aðeins upp listann í
vikunni, en aðrir héldu sig að mestu leyti í sömu sætum og í fyrri viku. Þó vekur athygli
stökk Ian Dury úr 19. sætinu í það 8. Frá Bretlandi hverfum við til Bandaríkjanna,
en þar gerðust þau undur og stórmerki að Andy Gibb skauzt í efsta sætið. Það er ekki
oft sem einhver Gibbaranna er í því sæti! Af öðrum vinsældalistum er frekar lítið að
frétta og vendum við því kvæði okkar í kross og birtum listana.
London
1. ( 1) Rivers of Babylon — Boney M.
2. ( 3) Boy from New York city — Darts.
3. ( 5) If I Can’t have you — Yvonne Elliman.
4. ( 2) Night fever — Bee Gees.
5. ( 9) More than a woman — Tavares.
6. ( 4) Because the night — Patti Smith.
7. ( 7) Love is in the air — John Paul Young.
8. (19) What a waste — Ian Dury.
9. ( 6) Too much, too little, too late — Johnny
Mathis og Deniece William.
10. (14) Come to me — Ruby Winters.
(24) Ca plane pour moi — Plastic Bertrand.
Tvö lög jöfn í tíunda sæti.
New York
1. ( 4) Shadow dancing — Andy Gibb.
2. ( 2) Too much, too little, too late — Johhny
Mathis og Deniece Williams.
3. ( 3) You’re the one that I want — Olivia
Newton-John og John Travolta.
4. ( 1) With a little luck — Wings.
5. ( 6) Baby hold on — Eddie Money.
6. ( 7) Feels so good — Chuck Mangione.
( 5) The closer I get to you — Roberta Flack
og Donny Hathaway.
8. (11) It’s a heartache — Bonnie Tyler.
9. (17) Baker street — Gerry Rafferty.
10. ( 9) Imaginary lover — Atlanta Rhythm
Section.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Amsterdam
1. ( 1) Rivers of Babylone — Boney M.
2. (2) Substitute — Clout.
3. ( 4) Ca Plane pour moi — Plastic Bertrand.
4. ( 3) Night fever — Bee Gees.
5. ( 5) Lady McCorey — Band Zonder Naam.
6. ( 6) Met de vlam in de pijp — Henk
Wijngaard.
(28) Eagle — ABBA.
8. (13) Presence dear — Blondie.
9. ( 7) Argentina — Conquistador.
10. (17) Best of both worlds — Robert Palmer.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Bonn
1. ( 1) Take a chance on me — ABBA.
2. ( 2) Rivers of Babylon — Boney M.
3. ( 7) If you can’t give me love — Suzi Quatro.
4. ( 3) Stayin’ alive — Bee Gees.
5. ( 4) For a few dollars more — Smokie.
6. ( 6) Love is like oxygen — Sweet.
( 5) Mull of Kintyre — Wings.
8. ( 8) Don’t stop the music — Bay City Rollers.
9. ( 9) Runaround Sue — Leif Garrett.
10. (15) Hey Deanie — Shaun Cassidy.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Hong Kong
1. ( 1) Emotion — Samantha Sang.
2. ( 2) Dust in the wind — Kansas.
3. ( 4) Fantasy — Earth, Wind and Fire.
4. ( 5) You’re the one that I want — John
Travolta og Olivia Newton-John.
5. (10) I was only joking — Rod Stewart.
6. ( 3) Night fever — Bee Gees.
( 7) With a littla luck — Wings.
8. (15) Falling — Le Blanc og Carr.
9. (11) Ego- — Elton John.
10. (14) Take a chance on me — ABBA.
Tvö lög jöfn í sjötta sæti.
Myndin hér að ofan var tekin fyrir stuttu af þeim Peter Gabriel og Bob Fripp, er þeir
voru að vinna að upptökum á nýrri plötu Gabriels, „Peter GabrieP. Plata þessi átti
að koma út í Bretlandi í fyrradag, en þetta er önnur platan sem Gabriel hefur látið
frá sér fara, síðan hann yfirgaf Genesis.
„Króknr læknir” með
líass í fóram sínom
Marga rekur eflaust minni til
þess fjaðrafoks sem hljómsveit-
in Doctor Hook olli í fyrrasumar
hér á Islandi, er sjónvarpsþátt-
ur með hljómsveitinni var sýnd-
ur í sjónvarpinu. Þótti mörgum
sem hljómsveitarmenn hefðu
verið undir áhrifum einhverra
eiturlyfja og fordæmdu harka-
lega þá ráðstöfun sjónvarps að
sýna þáttinn. Fordæmendur
læknisins virðast hafa haft
nokkuð til síns máls, því að
nýverið voru tveir hljómsveitar-
manna teknir fyrir að hafa hass
undir höndum. Voru kapparnir
sektaðir um 25.000 krónur hvor
og sleppt við svo búið.
Tvimenningarnir, Ray Baas
Sawyer og Dennis Michael
Locorrier, eru aðalsöngvarar
hljómsveitarinnar, og var
hljómsveitin í Ástralíu, þegar
þeir voru handteknir.
Báðir kváðust þeir vera sekir
af ákærunni, en lögfræðingur
þeirra tjáði dómaranum að í þau
tíu ár sem hljómsveitin hefði
starfað, hefði aldrei neinn verið
uppvís að notkun eiturlyfja og
enginn verið handtekinn fyrir
að eiga þau í fórum sínum. Svo
kannski voru þeir aðeins fullir í
þættinum, sem sjónvarpið sýndi
i fyrrasumar.
Springsteen og
borgardimman
Innan skamms er væntanleg á
markaðinn ný hljómplata með
bandaríkjamanninum Bruce
Springsteen. Plata þessi ber
nafnið „Darkness On The Edge
Of Town“ og eru á henni 10 lög.
Ástæðan fyrir því að jafn
langt er um liðið síðan síðasta
plata kappans kom út og raun
ber vitni er sú að Springsteen
hefur átt í málaferlum út af
höfundarrétti laga. Málaferlin
stóðu í rúmt ár, og meðan á
þeim stóð var Springsteen bann-
að að hljóðrita ný lög. En nú er
allt sem sagt klappað og klárt og
á hljómplatan að koma út í
vikunni í Bandaríkjunum.
Tull gefur út
afmœlisplötu
Á þessu ári mun hljómsveitin
Jethro Tull eiga tíu ára starfs-
afmæli. ( tilefni af þeim mcrku
tímamótum hyggst hljómsveit-
in gefa út tvöfalda hljómleika-
plötu og er fyrirhugað að
platan komi á markaðinn í
október næstkomandi.
En Ian Ánderson leiðtogi
Tull hefur fleiri járn f eldinum.
Kappinn hefur nú ákveðið að
taka fljótlega upp sína fyrstu
sóló-plötu, og verða öll lögin á
plötunni leikin á órafmögnuð
hljóðfæri.
Hljómleikaplata Tull verður
að öllum líkindum tekin upp í
lok hljómleikaferðalagsins,
sem hljómsveitin lagði nýverið
upp í. Er gert ráð fyrir að
platan verði hljómblönduð í
Sviss og eins og áður sagði
kemur svo platan vonandi út í
haust.
Þrœlastríðið
á hljómplötu
Fyrir stuttu síðan kom á
markaðinn í Bretlandi hljóm-
plata sem ber nafnið „White
Mansions". Plata þessi er hin
athyglisverðasta fyrir þá sök að
á henni leika margir kunnir
country- og rokkhljómlistar-
menn svo sem Waylon Jennings,
Jessi Colter, Steve Cash, John
Dillon, Eric Clapton og Bernie
Leadon. Tónlistina samdi hins
vegar óþekktur Breti, Paul
Kennerley.
Á plötunni greinir frá þræla-
stríðinu í Bandaríkjunum, eins
og það kom fjórum Bandaríkja-
mönnum fyrir sjónir. Upptöku-
stjóri var Glyn Johns, en hann
er vel þekktur beggja vegna
Atlantshafsins. Hljómplatan
var tekin upp í stúdíói Johns í
London og naut Kennerley
aðstoðar kunnra sessionhljóm-
listarmanna á plötunni, svo sem
Dave Markee, Henry Spinetti og
Tim Hinckley. Á plötunni eru 20
lög og samdi Kennerley þau á 12
dögum. Upptakan á plötunni tók
hins vegar 21 dag. Platan hefur
fengið lofsamlega dóma í flest-
um blöðum Bretlands, en búizt
er við aö Bandaríkjamönnum
muni ekki líka hún jafn vel, því
að þrælastríðið standi þeim enn
of nærri til að svo megi verða.