Morgunblaðið - 03.06.1978, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JUNÍ 1978
33
Sjötugur:
V'X ^ I Friðrik P. Dungal
II I I I II III III ■ Á fyrstu áratugum þessarar 20. fyrirtækið Remedia h.f. og v
* A A H aldar ólnst unn í Stvrimannaskól- forstióri bess um árabil. Remec
skip og báta
V erkefni
fyrir stelpur og stráka
3
Á vorin myndast oft pollar
úti — og ef til vill er pyttur
nálægt heimili þínu, bæjarlæk-
ur eða smátjörn. Ef ekki, þá
má vel sigla litlum bátum í
baðkeri eða vaski, og það er
skemmtilegur leikur að gera
litlar bryggjur og hafnir í læki
og polla, og láta síðan skip
sigla milli þeirra.
Efst á myndinni hér sést
greinilega, hvernig gufuskip
er myndað úr mörgum smá-
kubbum. sem neglast saman.
Hin skipin á myndinni eru
ýmist flutningaskip, farþega-
skip eða skútur, og ef til vill
langar þig að hafa þín skip
eitthvað öðru vísi en þau, sem
hér eru sýnd.
SKIP er einfaldlega búið til úr
flötum viðarbúti, sem sagaður
er í odd að framan. og ef til vill
ávalur að aftan. Húsið á
skipinu er lítill, fcrhyrndur
kubbur, t.d. úr sama búti og
botninn, sagaður þvert á og
lagður endilangur á bátinn.
Skorsteinninn er úr sfvölum
viðarbúti, t.d. af kústskafti og
möstrin tálgar þú svo til úr
mjóu priki.
„Hvað ætli Skella litla
kosti?“
Stína segir honum frá
konunni í borginni. Konan
hefði átt átján börn og seldi
hvert þeirra á tíu krónur.
„Þú færð hana fyrir tíu
krónur," segir hún loks. „Ég
veit, að Palli vill hels.t losna
við hana. Hún er líka
tröllabarn, seg eiginlega
ætti að vera hjá tröllunum
úti í skógi."
„Ágætt," segir Vester-
mann og tekur tíu króna
seðil upp úr vasanum og
réttir Stínu. „Ég kaupi þá
telpuna." Síðan fer hann
leiðar sinnar með Skellu,
sem brosir glaðklakkalega
til hans.
„En heyrðu!" kallar Stína
á eftir honum. „Vester-
mann, þú verður að vera
góður við hana!“
„Já, ég skal vera henni
góður," svarar sjómaðurinn
kíminn.
Stína tekur þá á sprett
niður í verzlun kaupmanns-
ins og fer inn. Á afgreiðslu-
borðinu er fullt fat af
kókósbollum. Og þær eru
uppáhald Stínu.
„Hvað var það fyrir ung-
frúna?" spyr Nisse kaup-
maður. En Stína leggur tíu
króna seðilinn þegjandi á
borðið og tekur eina kókós-
bolluna. Hún opnar munn-
inn og bítur í mjúka, ilm-
andi bolluna. En skyndilega
er eins og góðgætið bragðist
ekki vel, því að hún hættir
að tyggja. Hún stendur bara
og starir fram fyrir sig.
Henni finnst allt í einu eins
og hún hafi gert eitthvað
hræðilegt.
„Hvað er að?“ spyr kaup-
maðurinn.
Stína segist vera mað
magapínu, tekur á rás út úr
verzluninni og síðan eftir
veginum. Hún mætir Palla
á vegamótunum.
„Hvar er Skella?" spyr
hann. „Fórstu með hana
heim aftur?"
„Nei, hún er týnd,“ svarar
Stína.
„Týnd?“ endurtekur Palli.
„Það getur ekki verið. Hún
getur ekki verið týnd. Hvar
er hún?“
Á fyrstu áratugum þessarar 20.
aldar ólust upp í Stýrimannaskól-
anum hér í Reykjavík sex bræður.
Foreldrar þeirra voru hin gagn-
merku hjón Páll Halldórsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans, og
kona hans Þuríður Níelsdóttir frá
Grímsstöðum á Mýrum. Þegar
piltar þessir uxu úr grasi urðu þeir '
hinir glæsilegustu menn, vel gefn-
ir til líkama og sálar, hlutu allir
ágæta menntun, hver á sínu sviði.
Nafnkenndastur þessara bræðra
var sá elsti, Níels, sem varð læknir
og prófessor. Ættarnafnið Dungal
tóku bræðurnir upp um 1920. Nú
er aðeins einn eftir af þessum
glæsilega bræðrahópi, Friðrik
Dungal kaupmaður, en hann á 70
ára afmæli í dag.
Friðrik stundaði nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík 1922-1925 og
tók þaðan gagnfræðapróf, fór
síðan til Þýzkalands 1928, og var
þar við tannsmíðanám í 2 ár.
Friðrik stofnaði fyrsta sjálfstæða
tannsmíðaverkstæðið hér á landi
og vann fyrir ýmsa tannlækna.
Rak hann jafnframt verzlun með
tannlækningatæki og efni til
tannlækninga. Var það fyrsta
sérverzlun hér á landi sinnar
tegundar. 1938 stofnaði Friðrik
Bardagar í
S-Líbanon
Beirút 1. júní. Reuter.
GÆZLULIÐ Sameinuðu þjóðanna
sagði í dag að 10 hefðu fallið og 15
særzt í bardögum sem hafa
magnazt í Suður-Líbanon milli
hægrimanna og Palestínumanna
og skæruliða líbanskra vinstri-
manna. Bardagarnir fylgdu í
kjölfar þriggja tíma stórskotabar-
daga hægrimanna í þorpinu Kleya
við Litaniána og Palestínumanna í
fornu virki handan árinnar. Bar-
dagasvæðið er rétt utan við
yfirráðasvæði SÞ.
fyrirtækið Remedia h.f. og var
forstjóri þess um árabil. Remedia
h.f. er ennþá starfandi, en nú í
höndum sonar Friðriks, Páls
Dungal.
Friðrik Dungal er elskulegur
maður í umgengni og allra manna
glaðastur eins og sagt var um Ólaf
konung Tryggvason.
Kæri Friðrik, sú er afmælisósk
okkar Guðrúnar til þín, að þú
megir halda reisn þinni og gleði
meðan lífið endist. Með beztu
kveðju.
Ásgeir Þ. Ólafsson.
B|B]E]E]G]E]^^]QÍG]E]E10G]B]B]B]S]SIQ1
i SÍAtÚU I
| Bingó kí. 3 í dag. |
51 Aöalvinningur vöruúttekt fyrir kr. 40.000.— Qj
EllaÍlaÍGlElGlGlEllatlblGUaliaHaltalGlEllaÍtaÍEIEI
Kaktus að Flúðum
1. dansleikur sumarsins.
Sætaferöir frá B.S.Í., Selfossi, Þorlákshöfn, Hvera-
gerði, Eyrarbakka og Stokkseyri.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
9
fp
Þl’ AUGLYSIR UM ALLT
LAXD ÞEGAR Þl' AUG-
LÝSIR I MORGUXBLAÐINU
Listahátíð í Norræna húsinu:
Laugardagur 3. júní kl. 17:00 opnun listsýninga.
Sunnudagur 4. júní kl. 20.30 Strokkvartett Kaupmannahafnar leikur verk eftir
Mozart, Þorkel Sigurbjörnsson og Schub
Mánudagur 5. júní kl. 20.30
í sýningarsölum í kjallara:
í bókasafni:
Grieg-Dúóiö leikur verk eftir Jón Nordal, Grieg og
Beethoven.
Seppo Mattinen og Helle-Vibeke Erichsen
málverk og grafíkmyndir opið 14—19
Vigdís Kristjánsdóttir „íslenskar jurtir og blóm“
vatnslitamyndir. Opiö 14—19
NORR€NA HÖS® POHJOLAN TAIO NORDENS HUS