Morgunblaðið - 03.06.1978, Síða 44
ai:<;lVsin<;asíminn er:
22480
JHorflimblfiíiiíi
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1978
AljíiLYSINGASIMÍMN ER:
22480
JWorfjnnblnÍJiö
DJASS MUN FYLLA LAUGARDALSHÖLLINA í KVÖLD. Oscar Peterson, píanóleikarinn frægi, kom
til Reykjavíkur í gær, svo og Niels Henning Örsted Pedersen bassaleikari. Þeir munu halda fyrstu
tónleika, sem haldnir eru á vegum Listahátíðar. Þriðji maðurinn úr tríói Petersons, gítarleikarinn Joe
Pass, veiktist fyrir stuttu og liggur í sjúkrahúsi. Getur hann því ekki komið og leikið með þeim félögum.
Þessar myndir eru teknar á Hótel Sögu í gær. Á annarri er Oscar með syni sínum, sem kominn er
hingað með honum, en á hinni er Niels Henning að skrá sig inn á hótelið með bassann undir
handleggnum.
Alvarleg
líkamsárás
ALLALV ARLEG líkams-
árás var framin í fyrrinótt,
er ráðizt var á 66 ára
gamlan næturvörð á Hrafn-
istu, Dvalarheimili aldraðra
sjómanna í Reykjavík. Varj
maðurinn með áverka á
höfði eftir árásina, úlnliðs-'
brotinn og fingurbrotinn og
missti hann mikið blóð.
Hann var fluttur í slysa-
deild Borgarspítalans, en
fékk að fara heim, er hann
reyndist minna slasaður en
í fyrstu var óttazt. Árásar-
mennirnir hafa ekki fundizt
og er málið í rannsókn hjá
Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
SIS:
Greiðslur lífeyrissjóðs
verðtryggðar um 70%
Verður yfírvinnubanni
V.M.S.Í. breytt í tákn-
ræna mótmælaaðgerð?
ÁSKORUN Verkamannasam-
hands íslands til aðildarfélaga
sinna um boðun yfirvinnubanns
10.—30. júní hefur sætt talsverðri
gagnrýni innan Alþýðusambands
Islands. sem telur aðgerðirnar
ótímabærar á svo pólitískum
óvissutíma, sem er fram að
alþingiskosningum. T.d. munu
iðnaðarmannafélögin alls ekki
tilbúin til slíkra aðgerða, en
ráðagerðir hafa verið uppi um að
ná samstöðu um yfirvinnubann á
breiðari grundvelli en Verka-
mannasambandinu.
Friðrik
vann
mótið
FRIÐRIK Ólafsson stórmeist-
ari varð sigurvegari alþjóða
skákmótsins í Las Palmas á
Kanaríeyjum, scm Iauk í gær-
kvöldi. F’riðrik hlaut 8‘á vinn-
ing í 11 skákum eða jafn-
marga vinninga og Orestes
Rodriguez írá Perú en Friðrik
híaut fleiri stig samkvæmt
Sonnenborn Berger stigakerf-
inu og telst því sigurvegari
mótsins.
í 12. umferð í gærkvöldi vann
Friðrik Spánverjann Pedro
Lezcano í 31 leik en Rodrigues
gerði jafntefli við Padron í 14
leikjum. Þá vann Tatai Spán-
verjann Cabrera en aðrar skák-
ir fóru í bið.
Sem fyrr segir urðu Friðrik
og Rodrigues efstir með 8'/2
vinning, Csom hefur 7Vz vinn-
ing og biðskák, Padron 7
vinninga og Westerinen 5‘/2
vinning.
í gær var haldinn fundur i
10-manna nefnd ASI, þar sem
þessi mál voru m.a. til umræðu. I
framhaldi af þeim fundi er ráð-
gerður fundur í framkvæmda-
stjórn Verkamannasambandsins á
mánudag og á þriðjudag fundur í
miðstjórn ASÍ. Torfi Hjartarson
hefur svo boðað vinnuveitendur og
Verkamannasambandið til sátta-
fundar á miðvikudag klukkan 14.
Forysta Alþýðusambandsins
veltir því nú fyrir sér á hvern hátt
sé unnt að komast undan ákvörðun
Verkamannasambandsins um boð-
un yfirvinnubanns frá 10. til 30.
júní. Velta menn helzt fyrir sér að
boðað verði til táknræns yfir-
vinnubanns í eina viku eða svo,
sem standi þá frá 10. til 17. júní
og verði aðeins mótmælaaðgerð
við bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar, en alls ekki aðgerð
til þess að knýja fram kaupgreiðsl-
ur samkvæmt samningunum frá
22. júní í fyrra. Þá eru og raddir
um að öllum aðgerðum verkalýðs-
hreyfingarinnar verði frestað
fram yfir alþingiskosningar 25.
júní.
STJÓRN lífeyrissjóðs
starfsmanna Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga
ákvað siðastliðinn mið-
vikudag, að sjóðurinn
skyldi verðtryggja lífeyri
til lífeyrisþega að 7/10
hlutum.
Erlendur Einarsson, for-
stjóri Sambandsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið í
gær að ástæðan fyrir því að
þetta væri kleift, væri að
lífeyrissjóðurinn hefði verið
ávaxtaður í verðtryggðum
spariskírteinum ríkissjóðs
og er verðbótin á bréfunum
notuð til þess að tryggja
lífeyrisgreiðslurnar á þenn-
an hátt. Erlendur kvað það
skoðun sína að verðtryggja
ætti allan lífeyri lands-
manna og ættu stjórnvöld
að sjá til þess. Kvað hann
sömu leikreglur eiga að
gilda fyrir alla þegna þjóð-
félagsins í þessum málum.
Samið
viðFÍA
KJARASAMNINGAR við flug-
menn í Félagi íslenzkra atvinnu-
flugmanna, FÍA, voru undirritaðir
á fimmtudagsmorgunn og í gær-
kveldi var félagsfundur meðal
flugmanna, þar sem fjallað var um
samningana. Þegar Morgunblaðið
Framhald á bls. 25.
Björgvin Guðmundsson:
Sérstakt rád yfir emb-
ætti borgarverkfræðings
,VIÐ höfum á undanförnum
árum oft flutt tillögur um breyt-
ingar á stjórnarkerfi borgarinn-
ar. þannig að ég reikna með að
þær verði eitt þeirra atriða sem
upp koma við gerð málefnasamn-
ingsins," sagði Björgvin Guð-
mundsson borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins. þegar Mbl. spurði
hann í gær hvort og þá hvaða
hreytinga rna’tti vænta á stjórn-
kerfi borgarinnar frá hinum nýja
meirihluta. Nefndi Björgvin m.a.
að hann væri eindregið þeirrar
skoðunar að setja þyrfti sérstaka
stjórn yfir borgarverkfræðings-
embættið, „eins konar ráð verk-
legra framkvæmda á vegum
borgarinnar" og einnig gat hann
þess að hann hefði sjálfur flutt
tillögu um þátttöku starfsfólks
stjórn borgarfyrirtækja.
Björgvin gat þess að fjölgun
borgarfulltrúa og hlutlaus em-
bættismaður í starf borgarstjóra,
sem fulltrúar allra meirihluta-
flokkanna hefðu lýst sig samþykka
við, teldist auðvitað til breytinga
á stjórnkerfi borgarinnar.
Framhaid á bls. 25.
Aðalfundur SH:
Tap frystihúsa4000 millj. á ári
eftir síðustu launahækkanir
w
Ovíst hver kostnaðaraukning
verður vegna nýs fiskverðs
MIÐAÐ við rekstrarskilyrði
frystihúsanna í landinu í maí-
mánuði s.l. er áætlað rekstrartap
frystihúsanna í landinu 1500
millj. kr. á ári, en þegar hækkun
launakostnaðar sem varð 1. júní
s.l. bætist við er áætlað tap
frystihúsanna 4000 millj. kr. á
ári, en launakostnaður hækkaði
um 2500 millj. kr. 1. júní ef miðað
er við ársgrundvöll. Kemur þetta
fram í ályktun aðalfundar Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
sem lauk í Reykjavík í gær.
í ályktun aðalfundarins segir: í
ályktun aukafundar S.H. 16.
desember 1977 og 14. febrúar 1978
var vakin athygli á, að geta
frystihúsanna til að standa undir
þeim miklu kostnaðar hækkunum,
sem urðu á síðasta ári, -hafi
eingöngu byggst á hækkun
markaðsverðs á erlendum mörk-
uðum og stöðugu gengissigi.
Gengislækkun í byrjun ársins var
svo annars vegar til að mæta þeim
skuldbindingum sem
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins
hafði tekið á sig, og hins vegar
þeirri hækkun fiskverðs, sem tók
gildi um síðustu áramót.
Á fyrri helmingi þessa árs hafa
litlar sem engar hækkanir orðið á
framleiðsluvörum okkar erlendis
og gengi á helztu gjaldmiðlum
Framhald á bls. 25.