Morgunblaðið - 13.06.1978, Page 5

Morgunblaðið - 13.06.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1978 5 Kínversku blaðamennirnir ásamt Ilelga Ágústssyni. sem tók á móti þeim í gær fyrir hönd utanríkisráðuneytisins. Með á myndinni er einnig sendiherra Kína á íslandi. Chen FenK. Hlutur íslendinga af botnfiskafla: Fer langt yfir 90% í ár Lúðvík Jósepsson gerði sér vonir um „allt að 60% Áþessu ári fer hlutur ís- lendinga í heildarbotnfisk- afla á íslandsmiðum langt yfir 90%. Fyrir tæpum 20 árum eða á árinu 1959 var hlutur íslendinga aðeins 52%. í viðtali við Sjómannablaðið Víking á árinu 1975 lét Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra, hins vegar í ljós vonir um, að hlutur Islands i aflanum muni hækka í 60%, „þegar 50 mílurnar fara að koma betur inn í myndina". Lúðvík Jósepsson sagði í þessu viðtali: „... því má slá því föstu, að hér megi veiða 700.000 til 800.000 tonn árlega, jafnvel eina milljón lesta, þegar friðunarárangri hefur verið náð eða valdi yfir fiskstofnunum SjáUstæðisflokkur eða vinstri stjórn I inngangi að kosninga- ávarpi Sjálfstæðisflokksins, sem birt var í hcild í Morgun- blaðinu í fyrradag segir m.a.r Alþingiskosningar snúast nú um það, hvort ný vinstri stjórn tekur við völdum að þeim loknum eöa Sjálfstæðisflokkur- inn verði í stjórn landsins. Virðingin fyrir einstaklingn- um og athafnafrelsi hans er kjarni Sjálfstæðisstefnunnar. Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að móta fjölbreytt þjóðfélag, sem stuðlar að því, að hæfileikar hvers einstaklingsins fái notið sín sem bezt. Frelsi og ábyrgð einstaklinganna skapar aðhald fyrir stjórnvöld og vinn- ur gegn stöðnun, öfgastefnum og spillingu í þjóðfélaginu. Aldrei aftur vinstri stjórn Sagan hefur sýnt, að vinstri stjórnir geta ekki ráðið við efnahagsmálin vegna sundur- þykkju og ágreinings. Vinstri stjórnin sem hrökklaðist frá 1974 hafði bæði stefnt öryggi þjóðarinnar í voða og komið á algjöru efnahagsöngþveiti. Á árunum 1971—1974 stóð vinstri stjórnin 12 sinnum að skerðingu eða — tilraunum til að skerða kjarasamninga og atlögu henn- ar að þeim lauk með algjöru afnámi vísitölubóta. Atkvæði greitt öðrum flokkum en Sjálf- stæðisflokknum í kosningunum nú, er lóð á vogarskál nýrrar vinstri stjórnar — efnahagsöng- þveitis og upplausnar í varnar- málum. Sjálfstæðismenn skora á alla frjálshuga íslendinga að veita flokknum brautargengi í kom- andi kosningum og hrinda þann- ig atlögu vinstri aflanna með öflugu og samstilltu átaki. Valið stendur um það, hvort þjóðin kýs að takast á við viðfangsefn- in á raunhæfan hátt á grund- velli frjálslyndra viðhorfa eða með frelsisskerðingu og ríkis- forsjá sósíalismans. Ný sókn Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningunum er eina tryggingin fyrir því, að hann geti hér eftir sem hingað til gegnt mikilvægu hlutverki sínu sem málsvari frelsis og fram- fara í íslenzku þjóðfélagi." Leiðrétting við Kosninga- ávarp Sjálfstæðisflokksins í kosningaávarpi Sjálfstæðisflokks- ins, sem birtist á bls. 48 og 49 í Morgunblaðinu sl. sunnudag höfðu á tveim stöðum fallið niður setningar. í fyrsta lagi í kaflanum við viðnám gegn verðbólgu, þar átti liður 4 að vera svohljóðandi: Rétta gengis- skráningu, frjálsan ferðagjaldeyri og önnur gjaldeyrisviðskipti til að tryggja valfrelsi neytenda og örva framleiðslu. í öðru lagi féll niður setning í kaflanum Varanlegt slitlag Sex kínversk- ir bladamenn í heimsókn >» og dregið hefur verið úr smáfiska- drápi. Það er staðreynd, að af þessum mikla afla koma aðeins 3—400.000 tonn í hlut íslendinga sjálfra (42—55%). Þetta veiðir allur okkar togara- og bátafloti. Þetta er aðeins um helmingur þess afla, sem kemur af miðunum umhverfis landið. Þó má gera ráð fyrir, að þetta færist upp í allt að 60% af öllu, þegar 50 mílurnar fara að koma betur inn í mynd- ina!“ SEX kínverskir blaðamenn komu til landsins í gær, en þeir eru hcr í boði utanríkisráðuneytisins. Áður hefur þessi kínverska sendi- nefnd heimsótt Finnland, Svíþjóð og Noreg, en þaðan komu þeir í gærmorgun. Kínverjarnir dvelj- ast hérlendis þar til á laugardag, er þeir fljúga utan til London. Formaður sendinefndar Kín- verjanna er Yuan Hsien-lu, for- stjóri alþjóðadeildar Dagblaðs alþýðunnar, en aðrir í sendinefnd- inni eru: Hsu Kai-hsiang frétta- skýrandi dagblaðsins Guangming, Yeh Wei-ping, fréttastjóri ál- þjóðafrétta við Hsinhua-frétta- stofuna, Keng Yu-hsin, ritstjóri „Peking Review", Tsien Yu-jun, fréttaritari við Pekingútvarpið, og Shen Ming-ho, ritstjóri erlendra frétta og fréttaskýrandi við Dag- blað alþýðunnar. í gærkveldi sátu hinir kínversku gestir boð Péturs Thorsteinssonar sendiherra Islands í Kína, en í dag munu þeir eiga viðræður við Einar Ágústsson utanríkisráðherra, heimsækja Háskóla íslands, og síðan verður farið í kynnisferð um Reykjavík. Á hádegi í dag verður hádegis- verður í boði sjávarútvegsráðherra og síðar farið í Þjóðminjasafnið. Þá munu kínversku blaðamennirn- ir skoða Morgunblaðið en fara síðan í móttöku til forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárns, að Bessa- stöðum. Á morgun fara Kínverjarnir KLÚBBUR norður til Akureyrar og skoða þar Akureyri og verksmiðjur SÍS. Þá fara þeir til Mývatns og koma við í Kröflu. Annað kvöld koma þeir aftur til Reykjavíkur. Á fimmtudag munu Kínverjarn- ir eiga viðræður við Þórhall Ásgeirsson ráðuneytisstjóra um viðskipti, þeir munu skoða Haf- rannsóknastofnunina, snæða há- degisverð í boði Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga og skoða Kirkjusand. Um kvöldið verður móttaka í kínverska sendiráðinu og kvöldverður í boði utanrikisráð- herra, Einars Ágústssonar. Á föstudag fara Kínverjarnir um Suðurland, til Þingvalla, að Gullfossi og Geysi til Hveragerðis og snætt verður á Laugarvatni. Um kvöldið verður boð fyrir þá, þar sem menntamálaráðherra verður gestgjafi. Eins og áður sagði munu kínversku gestirnir fara af landinu á laugardaginn. Lýst eftir vitnum MIÐVIKUDAGINN 7. júní s.l. var ekið á bifreiðina G-6373, sem er Volkswagen árgerð 1971, græn að lit, þar sem hún var á bifreiðastæði við Linnetsstíg í Hafnarfirði. Gerðist þetta fyrir hádegi. Rannsóknarlög- reglan í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum og skorar jafnframt á tjónvald að gefa sig fram við lögreglu. a Jl ... ' 7*h Komdu með 9. júlí en þá er fyrsta ferðin VILTU FJÖRÍ FRUNU? á hringveginn. Síðasta málsgreinin, 4. málsgreinin átti að vera svohljóð- andi: Sjálfstæðisflokkurinn leggur til, að þessar framkvæmdir verði fjármagnaðar af vegasjóði, tekjum af umferðinni og með framlögum. úr Byggðasjóði, enda er hér um að ræða framkvæmdir, sem hafa mikla þýðingu fyrir framtíð allra byggða landsins. Varanleg vegagerð er raunhæf byggðastefna, sem allir landsmenn geta sameinast um. Allt ungt fólk á þess kost að gerast meðlimur í KLUBB 32, sem er ferða- og skemmtiklúbbur ungs fólks. Meðlimir fá afslátt í verslunum heima og erlendis. Skoðunar- og skemmtiferðir þar sem mikið fjör er. Nú bjóðum við dvöl í nyjum íbúðum, Helios íbúðunum, - sem eru á Arenal baðströndinni - stærstu baðströnd- inni á Mallorka, í næsta nágrenni eru tugir diskóteka og skemmtistaða, og allt það sem ungt fólk þarf til skemmtunar. Auk þess getur þú valið dvöl á Hótel 33, þar sem eingöngu ungt fólk býr. Brottfarardagar: Auk þessarar sérstöku ferðar 9. júlí eru ferðir fyrir Klúbbmeðlimi: 18. júní - 2., 9., 23. og 30. júlí, 3., 10., 17. og 24. sept., L, 8. og 15. okt. Nánari upplýsingar gefur FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA Bankastræti 10. FERÐAKLÚBBUR UNGA FÖLKSINS ®q®

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.