Morgunblaðið - 13.06.1978, Page 10

Morgunblaðið - 13.06.1978, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978 Vínnings- númer birt í Skyndihapp- drætti FEF Vinningsnúmer í Skyndihapp- drætti Félags einstæöra foreldra hafa nú verið birt og eru sem hér segir: Toshiba litasjónvarp að verð- mæti 356 þús. nr. 1805.'Thoshiba litasjónvarp að verðmæti 266 þús. nr. 107. Thoshiba stereosamstæða að verðmæti 165 þús. nr. 7050. Toshiba stereosamstæða að verð- mæti 165 þús. nr. 9993. 5.—12 vasatölvur hver að verðmæti kr. 6 þús. komu á þessi númer: 8364, 3131, 5571, 2896, 2886, 8526, 9183, 9192. Vinninga skal vitjað á skrifstofu FEF í Traðarkotssundi 6. 29555 Leitið upplýsinga um eignir SÖIum. Ingólfur Skúlason Lárus Helgason Svanur Þór Vilhjálmsson hdl. EIGNANAUST LAUGAVEGI 96 (vió Stjörnubió) SÍMI 29555 \ÞURF/Ð ÞER H/BYLI ★ Gamli bærinn Góð 3ja herb. 85 fm. íbúð á 2. hæð. ★ Tunguheiði 2ja herb. íbúð, rúmlega tilbúin undir tréverk og málningu, íbúðin er tilbúin til afhendingar strax. ★ Æsufell 2ja herb. íbúð á 5. hæð. ★ Birkimelur 3ja herb. íbúð á 3. hæð. ★ Barmahlíð 4ra herb. íbúð í risi. Góð íbúð. ★ Búðargerði Nýleg 3ja herb. íbúð á 2. hæð. (efsta hæð). Stofa 2 svefnherb., eldhús, bað. Suður svalir. Falleg eign. ★ Æsufell 5 herb. íbúð, 2 stofui, 3 svefnherb., eldhús, búr og bað. Glæsilegt útsýni. ★ Garðabær Fokheld raðhús, með inn- byggðum bílskúr. Glæsileg hús. ★ Breiðholt Fokheld raðhús, með innbyggö- um bílskúr. Húsin verða afhent pússuð utan með gleri, útihurð- um. Teikningar í skrifstofunni. ★ Hveragerði Einbýlishús 160 fm. Verð kr. 10—11 millj. ★ Iðnaðarhúsnæði 1. hæð, 300 fm. Lofthæð 5,60. Þrennar innkeyrsludyr, 2. hæð, 300 fm. Lofthæð 3 metrar. Húsið er tilbúið til afhendingar. HÍBÝLI & SKIP Garðastræti 38. Sími 26277 Gísli Ólafsson 20178 Björn Jónasson 41094 Málflutningsskrifstofa Jóri Ólafsson hrl. Skúli Pálsson hrl. Einstakt tækífæri íslenzkt tónlistarfólk á Listahátíð ’78 í kvöld býðst íslenskum tónlistarunnendum einstakt tækifæri til að hlýða á vandað- an kórsöng — einstakt tæki- færi í fyllstu merkingu þeirra orða> Það er lán f óláni að sídasla barnakórakeppni Norð- urlanda skuli verða á Reyk- vískri Listaháti'ð '78. í tólf ár hefur keppnin undið svo uppá sig, bæði að umfangi og gæðum tóhiistarflutnings að nú verður að leggja hana niður! Útvarps- stöðvar Norðurlanda ráða ekki lengur við umstangið og undir- búningsvinnuna og hafa tekið þetta ráð í trausti þess að kcppnin hafi nú þegar náð tilgangi sfnum sem var sá að hvetja kóra til listrænna af- reka. Forráðamenn keppninn- ar fullyrða, að Norðurlöndin eigi nú á að skipa fjölda barna- og unglingakóra sem „standa þeim bestu annarsstaðar f heiminum hvergi að baki.“ Um hlut íslenskra kóra í keppninni til þessa, þ.e. kór Öldutúnsskóla undir stjórn Eg- ils R. Friðleifssonar og kórs Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur, segja núverandi forráða- menn að hún hafi markað þáttaskil í allri starfsemi beggja kóranna og orðið „lyftistöng í starfsemi annarra barna- og unglingakóra Islands sem í auknum mæli eru farnir að bera sig saman við þessa tvo kóra sem bestir verða að teljast hér á landi og jafnvel þó víðar sé leitað." Það er ánægjulegt að forsprakkar Norrænu barna- og unglingakórakeppninnar skuli þess vissir að starf þeirra hafi borið fullnaðar ávöxt. En það skýtur skökku við, að stofnun skuli lögð niður sem allir virðast sammála um að hafi gefið góða raun. Væri ekki nær að knýja á frekar en leggja upp laupana? Auk þess verður enginn full- numa í tónlist; kórar, hljóðfæra- leikarar eða aðrir. Námið er þrotlaust og það í sjálfu sér gefur því ómælanlegt gildi. Ef barna- og unglingakórakeppni Norðurlanda hefur þann töfra- mátt sem fólk vill vera láta er það nánast skylda aðstandenda hennar að sjá til þess að starfinu verði haldið áfram í einhverri mynd ellegar draga úr stóryrðum og lofi henni til handa. Egill R. Friðleifsson tónlistar- kennari, sem ásamt Guðmundi Gilssyni vara-tónlistarstjóra Ríkisútvarpsins hefur borið hita og þunga undirbúningsstarfsins, hafði eitt og annað að segja um keppnina er blaðamaður hitti hann að máli. En áður en athugasemdum Egils verður komið á framfæri birtist hér fréttatilkynning sení aðstand- endur keppninnar hafa látið fara frá sér: Dagana 12. —18. júní nk. munu dvelja hér nær 200 nor- ræn ungmenni við samkeppni í kórsöng og söngskemmtunum fyrir almenning. Barnakóra- keppni Norðurlandanna verður hér háð í síðasta skipti 13. júní í Háskólabíói. Hún hefur farið fram undanfarin 12 ár á hinum Norðurlöndunum til skiptis og er nú komið að þáttaskilum. Bæði er að kostnaðurinn hefur farið árlega vaxandi svo að illviðráðanlegt hefur orðið og svo hitt sem talið er vera maklegt orðið að árangur þess- arar samvinnu norrænu út- varpsstöðvanna hefur orðið svo mikill að menn eru sammála um’ að bestu barnakórarnir séu orðnir það góðir að erfitt muni reynast þar um að bæta. Islensku kórarnir tveir, sem undanfarin ár hafa verið þátt- takendur í þessari keppni, hafa tekið þeim framförum við að þreyta þessa raun að þeir eru nú taldir meðal bestu sambæri- legra kóra á Norðurlöndum. Norrænu kórarnir munu dvelja í Skálholti dagana 14,—16. júní í boði Kórs Öldu- túnsskóla í Hafnarfirði sem til þess hefur hlotið nokkurn styrk frá Norræna menningarsjóðn- um og Menntamálaráðuneytinu. Þar munu færustu söngstjórar Norðurlandanna þjálfa þá sam- eiginlega og samræma þá söng- tækni sem bestan árangur hefur gefið. Einnig verður þeim kennt að syngja nokkru lög á öllum Norðurlandamálunum sem kór- arnir munu syngja á tónleikum í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð föstudaginn 16. júní. Norrænu barnakórarnir munu taka þátt í þjóðhátíð- arhöldunum 17. júní, bæði með því að syngja fyrir sjúka og aldraða og koma fram á skemmtuninni á Arnarhóli. Söngur kóranna verður að sjálfsögðu hljóðritaður af út- varpinu, og sjónvarpið mun láta gera dagskrá úr íslandsferðinni sem flutt verður í sjónvarps- stöðvum Norðurlandanna. Egill R. Friðleifsson sagði, að keppnisstjórnin hefði farið þess á leit við Jón Nordal tónskáld og skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík, að hann semdi tón- verk það, sem öllum kórunum yrði gert skylt að syngja fyrir prófdómarana. Jón varð við þessari ósk og því er nú til tónverkið SALUTATIO Egill R. Friðleifsson MARIÆ fyrir sex samkynja raddir. Það hefur verið gefið út af Ríkisútvarpinu. Ber að fagna þessu framtaki. Það er alltof sjaldan sem tónverk eru gefin út hér á landi. Einnig hafði Egill í fórum sínum nýtt kórlagahefti sem allar útvarpsstöðvar Norðurlanda stóðu að en það hefur að geyma tuttugu og fimm lög eða fimm lög frá hverju Norðurlandanna. Þetta hefti á að gefa hugmynd um tónhefð Norðurlanda, enda hefur það að geyma bæði þjóðlög, þjóðsöngva og samtímaverk. í heftinu, sem nefnist LÁT SÖNGINN HLJÓMA, eru þrjú íslensk þjóðlög. í útsetningu Jóns Ásgeirssonar, verk eftir Pál P. Pálsson er nefnist BÚ LÚ LA LA, auk þjóðsöngsins. Um tilurð þessa heftis segir Egill, að þar sem keppnin ein hafi þótt orka tvímælis, eða keppnisfyrir- komulagið, hafi Islendingarnir sem að undirbúningi unnu viljað gera meira að þessu sinni. Var Stungið uppá því, að kórarnir færu allir til Söngmóts að Skálholti að lokinni keppni þar sem gæfist tækifæri til að syngja og starfa saman við eðlilegri aðstæður. Sönglaga- heftið var tekið saman gagngert með Skálholtsmótið í huga. Er Byggingaréttur —1000 fm Til sölu er 1000 fm. byggingaréttur á einni hæö (2. hæö). Mjög vel staösettur í borginni. Upplýsingar aöeins veittar á skrifstofu minni. Magnús Hreggviösson viðskiptafr. Síðumúla 33. Félagshyggja og félagi Napóleon - leiðrétting NOKKRAR prentvillur voru því miður í grein Ólafs Björnssonar prófessors í blaðinu s.l. laugardag. í 5. línu að ofan í 3ja dálki á Jsls. 16 á að standa: „Báðum var ljóst“. í miðjum sama dálki kom orðið „ekki“ í staðinn fyrir „efld“. Setningin á að vera: „... en í öðru lagi að frjáls félagasamtök fólks- ins bæði á sviði efnahagsmála og menningarmála séu efld til frekari áhrifa.“ Rétt fyrir ofan miðju í 1. dálki á bls. 17 á að standa: „Fyrra dæmið myndi helzt vera að finna í ættflokkasamfélagi á steinaldar- »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.