Morgunblaðið - 13.06.1978, Síða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
25
FH-ingar áfttu skilið stig
ÍBV OG Þróttur léku fyrri leik sinn í 1. deild á Laugardalsvellinum síðastliðinn
laugardag. Lauk leiknum með jafntefli 2-2. Staðan í leíkhléi var einnig jöfn
1-1. Ekki voru veöurguðirnir knattspyrnumönnunum hagstæðir. Kalt var í
veðri og mjög hvasst. Ekki er hægt að segja að liðin hafi sýnt góða
knattspyrnu, heldur var hún tilprifalítil. Var undarlegt hve leikmenn reyndu
lítiö aö halda knettinum við jörðina. Sí og æ voru reyndar langspyrnur fram
völlinn og mikið um háar spyrnur sem tilviljun en réði hvar komu niður.
Lið Þróttar lék undan mjög sterk-
um suðvestan vindi í fyrri hálfleik.
Þrátt fyrir það sköpuðu þeir sér ekki
mörg umtalsverð marktækifæri og
heldur var sóknarleikur þeirra ein-
hæfur. Mikið var um langspyrnur
fram völlinn, og varla skapaðlst
hætta nema ef knötturinn barst til
Páls Ólafssonar, sem með knatt-
tækni sinni og hæfni skilaði boltanum
alltaf vel frá sér. Hins vegar hættir
þessum efnilega knattspyrnumanni
til að láta skapiö hlaupa meö sig í
gönur og brjóta ódrengilega af sér.
Reyndar átti þetta við um fleiri
leikmenn á vellinum og er það leitt.
í hita leiksins mega menn ekki
gleyma því að spila af drengskap. Of
oft sá maður leikmenn reyna að
sparka í mótherja þó knötturinn væri
nærri. Knattspyrnumenn ættu að
hafa það hugfast að þetta bitnar ekki
síður á íþróttinni heldur en þeim
sjálfum. Og þó að dómarinn láti slík
brot fara fram hjá sér, er þaö engum
til hróss aö láta slíkt sjást til sín. En
burt séð frá þessum brotum, sem
sáust því miður alltof oft í leiknum hjá
báðum liðum, þá sóttu Eyjamenn öllu
meira í fyrri hálfleik þrátt fyrir
vindinn. Á 20. mínútu leiksins átti
Tómas Pálsson gott skot aö marki en
rétt framhjá, kom þetta eftir góðan
samleik Eyjamanna. Þróttarar náðu
pressu á mark ÍBV á 22. mín, en ekki
tókst þeim að skora þrátt fyrir
aukaspyrnu rétt utan við vítateig og
svo hornspyrnu sem var vel tekin.
Hættulegasta tækifæri Þróttara kom
á 29. mín. fyrri hálfleiks er Páll
Ölafsson náði knettinum lék upp
vinstri kantinn og sendi fyrir markið
og Sverrir Brynjólfsson kom á fullri
ferð, náði að skjóta en knötturinn
hafnaði í þverslánni og hrökk út í
vítateiginn. Áfram var pressað að
marki IBV og litlu seinna skallaði Páll
rétt yfir þverslá eftir fyrrgjöf. Á 34.
mínútu áttu Þróttarar innkast við
hliðarlínu á vallarhelmingi ÍBV og
kastað var langt inn í vítateig og þar
verður Friðfinnur fyrir því óhappi að
knötturinn hrökk í hendina á honum
og dæmd var vítaspyrna á Eyja-
menn. Hrein og bein óheppni. Páll
Ólafsson var ekki í vandræðum með
að skora úr vítaspyrnunni.
Það var svo á 40. mín sem
Vestmannaeyingar náöu aö jafna
leikinn.
Dæmd var aukaspyrna á Þrótt fyrir
utan vítateig. Karl Sveinsson spyrnti
og sendi mjúka sendingu inn í
vítateiginn þar sem Óskar Valtýsson
var vel á verði, og náði að kasta sér
fram og skalla í markið. Þannig var
staöan í leikhléi eitt mark gegn einu.
í byrjun síðari hálfleiks sóttu Vest-
mannaeyingar stíft og strax á 47.
mínútu átti Sigurlás góöan skalla
sem fór rétt yfir þverslána. Á 50.
ÞrótturilBV
Texti:
Þórarinn Ragnarsson
Mynd:
Friðpjófur Helgason
mínútu leiksins fékk ÍBV innkast við
endamörk. Rétt í sama mund og
kastað var inná flautaði slakur
dómari leiksins, Arnar Einarsson, og
dæmdi vítaspyrnu á Þróttara. Voru
allir mjög undrandi á þessum dómi
sem kom eins og skrattinn úr
sauðarleggnum. Þjálfari ÍBV Skinner
gat ekki annað en brosað og hrist
höfuðið, en Þorsteinn Friðþjófsson
þjálfari Þróttar lét allt annað en fögur
orð falla um dómarann. Undirritaður
ræddi við dómarann eftir leikinn og
þá sagöi Arnar að um bakhrindingu
heföi verið að ræða á einn leikmann
ÍBV inn í vítateig. Hvað um það, þetta
var strangur dómur. Örn Óskarsson
skoraöi af öryggi úr vítinu.
Ekki var nein uppgjöf í Þrótturum
þrátt fyrir markið og sóttu þeir
töluvert á móti sterkum mótvindi. Á
50. mínútu leiksins átti Páll Ólafsson
ágæta sendingu inn í vítateiginn, en
þar var vörn ÍBV illa á verði og
Halldór Arason var óvaldaöur, það
notfærði hann sér vel stökk hátt upp
og skallaði af krafti í netið. Mjög
laglega gert. Eftir þetta mark var
töluvert þóf á vellinum og báðum
TVÖ MÖRK InKa Bjarnar Albertssonar í fyrri hálfleik tryKSÖu
Valsmiinnum tvö dýrmat sti>í. sem halda þeim innan seilingar frá
Skagamönnum í toppsætinu. En Valsmenn voru ekki nógu sannfærandi.
Eftir að hafa ráðið mestu um gang leiksins í fyrri hálfleik. misstu þeir
allt frumkvæði í síðari hálfleiknum og þá voru þeir heppnir að Fll ingar
gengu ekki á lagið af meiri grimmd. En leikurinn var skemmtilegur
á að horfa langtímum saman og áttu bæði liðin þar hlut að máli.
fallegar leikflóttur sáust og leikurinn var harður án þess þó að vera
grófur.
• lláloftaknattspyrna uppi við mark Þróttar í leik ÍBV og Þróttar. Tómas Pálsson skallar knöttinn að
marki Þróttar.
Fáttum fína drætti
hjá ÍBV og Þrótti
liðum gekk frekar illa að ná saman.
Eyjamenn sóttu allstíft í lokin og
reyndu allt hvað þeir gátu að skora
en það tókst ekki. Tómas Pálsson
átti laglega hjólhestaspyrnu á markið
en rétt yfir þverslá og svo á
lokamínútunni var hætta við mark
Þróttar eftir að þvaga hafði myndast
en þeim tókst aö bjarga og hreinsa
frá marki.
Leikur þessi var frekar tilþrifalítill
eins og áður er sagí. Enda aðstæður
slæmar til að leika knattspyrnu. Þá
var og of mikið um gróf brot
algerlega af óþörfu. Einn ágætur
maður lét þau orö falla um leikinn að
þetta minnti sig á smiðjukeppnina í
gamla daga, bæði hvað knattspyrnu
snerti og óþarfa hörku.
í STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur 10. júní, 1. deild
Þróttur—ÍBV 2-2 (1-1).
Mörk Þróttar: 34. mín. Páll Ólafs-
son úr vítaspyrnu. 56. mín. Halldór
Arason.
Mörk ÍBV: 40. mín. Óskar Valtýs-
son. 50. mín. Örn Óskarsson úr
vítaspyrnu.
Gult spjald: Sigurlás Þorleifsson
ÍBV.
Áhorfendur: 270.
Valsmenn voru mun sterkari í
byrjun og FH-ingar náðu þá varla
að senda knöttinn á samherja. Það
voru því allar horfur á rótarbursti
er Valsmenn náðu forystu eftir
aðeins 13 mínútur. Jón Einarsson
lék þá upp hægri kantinn og sendi
knöttinn á kollinn á Inga Birni
sem afgreiddi hann í netið. Þetta
var snyrtilegt mark en FH-ingar
hefðu vel getað reynt að trufla
Inga í stað þess að glápa á hann
eins og þeir gerðu. Sjö mínútum
síðar kom fallegasta mark leiksins
og það eina sem var dæmt af. Ingi
Björn skallaði inn í eyðu þar sem
Guðmundur Þorbjörnsson kom á
fullri ferð og þrumaði knettinum
í vinkilinn og inn. FH-ingar fóru
nú að láta meira til sín taka og
eftir hálftíma átti Leifur Helgason
skot sem Sigurður varði, en
afturkippurinn kom aðeins fimm
mínútum síðar, þegar Logi Ólafs-
son handlék knöttinn innan víta-
teigs eftir hornspyrnu Alberts
Guðmundssonar. Ingi Björn skor-
aði úr vítinu. Næstu mínúturnar
gerðu Valsmenn harða hríð að
marki FH, Guðmundur skallaði af
stuttu færi en Friðrik varði vel í
horn og upp úr hornspyrnunni,
skaut Guðmundur í þverslána.
Síðasta orðið í fyrri hálfleik átti
Albert Guðmundsson á 43. mínútu
er þrumuskot hans af 30 metra
færi straukst öfugu megin við
markvinkilinn.
Valsmenn náðu ekki að fylgja
góðum leik sínum í fyrri hálfieik
eftir í þeim seinni, þeir hafa e.t.v.
saknað Harðar Hilmarssonar á
miðjunni, en hann lék ekki með
vegna meiðsla. Valsmenn voru þó
fjörugri fyrstu mínúturnar, Frið-
rik varði af stuttu færi frá Inga
Birni og Albert átti tvö hörkuskot
rétt fram hjá marki FH-inga. En
FH-ingar, drifnir áfram af stór-
góðum leik þeirra Janusar, Ólafs
Danívalssonar og Leifs Helgason-
ar, fóru að sækja í sig veðrið og
síðustu 20—25 mínúturnar héldu
þeir uppi stórsókn að marki Vals.
Á 74. mínútu lék Viðar Halldósson
upp hægri vænginn og gaf vel fyrir
markið þar sem Ólafur Danivals-
son kom aðvífandi og skallaði
glæsilega í netið. 10 mínútum áður
hafði Sigurður Haraldsson varið
glæsilega þrumuskot frá Andrési
Kristjánssyni eftir aukaspyrnu.
Síðustu mínúturnar biðu Vals-
menn greinilega þess eins, að
dómarinn flautaði leikinn af og
var þá ekki heil brú í leik þeirra.
Það kom þó ekki að sök því að
framlína FH var ekki nógu beitt
til þess að refsa Valsmönnum.
Valsliðið svndi á sér tvær ólíkar
ValurrFH 2:1
Texti:
Guömundur Guöjónsson
Mynd:
Friðpjófur Helgason
hliðar í leiknum, í fyrri hálfleik
lék liðið oft og tíðum allvel bæði
í vörn og sókn, en í síðari háfleik
voru þeir ólíkir sjálfum sér, þeir
hafa kannski haldið leikinn vera
þegar unninn, en þegar upp var
staðið voru þeir heppnir að bæði
stigin voru enn þá þeirra megin.
Bestur hjá Val var markvörðurinn
Sigurður Haraldsson, en aðrir
leikmenn voru afar misjafnir.
í fyrri hálfleik var ekki að sjá
nokkra breytingu á leik FH frá því
fyrr í mótinu, liðið lék oft laglega
úti á vellinum, en vörnin var
syfjuð og framlínan bitlaus. I
síðari hálfleik virtist allt annað lið
vera inni á vellinum. Janus lék
stöðu miðvarðar í fyrri hálfleik, en
í þeim síðari var hann færður
fram og þá breyttist allur leikur
FH til hins betra. Auk Janusar
voru þeir mjög góðir Leifur
Helgason, Ólafur Danívalsson og
Viðar Halldórsson, sem þó hefur
oft leikið betur. En FH-ingar eiga
ekki að þurfa að kvíða sumrinu,
nái þeir slíkum leik gegn lakari
liðum en Val og það er nóg af þeim
í deildinni. Þeir áttu hiklaust
skilið annað stigið í þessum leik.
Í stuttu máli:
Laugardalsvöllur 1. deild 11. júní
Valur — FH 2:1 (2:1)
Dómari: Óli Ólsen
Áminningar: Gula spjaldið skoöuðu
Valsmennirnir Sævar Jónsson, Ingi
Björn Albertsson og Guðmundur
Þorbjörnsson og FH-ingurinn Viðar
Halldórsson.
Áhorfendur: 1046
Isl lan idsmoii iðl l.l lelld )
• Gísli Grétarsson ÍBK á þarna í höggi við Einar Þórhallsson UBK í leik liðanna í Kópavogi á
sunnudaginn.
Blikarnir áttu
ekki skot á mark!
Á SUNNUDAGSKVÖLDIO gerðist paö á Kópavogsvellinum, sem skrifari
Þessara lína hélt aö ekki gæti gerst, nefnilega pað að lið gæti leikið
knattspyrnu í heilar 90 mínútur án pess að skapa sér eitt einasta
marktækifæri. En pað ótrúlega gerðist í Kópavoginum petta kvöld,
Breiðablik lék heilan leik án pess að mark andstæðinganna kæmist í hættu.
Hins vegar skoruðu Keflvíkingar tvö mörk og unnu mjög verðskuldaöan sigur
2:0. Breiðabliksliöiö hefur komið mest á óvart í 1. deildinni í ár og pað fyrir
lélega leiki og pessi leikur sló öll fyrri met í peim efnum. Er augsýnilegt
að eitthvað róttækt verður að gera innan Breiðabliks ef fall á að verða
umflúið.
Ingi Björn skorar fyrra mark Vals í lciknum gcgn FH. Er hann að mestu óáreittur við iðju sína.
Keflvíkingarnir voru mun betri
aðilinn í leiknum alveg frá byrjun.
Þeir börðust miklu betur og spiluðu
miklu betri knattspyrnu en Breiöa-
bliksmennirnir og ósjaldan komst
mark Blikanna í stórhættu. Á 17.
mínútu kom fyrsta verulega mark-
tækifærið þegar Rúnar Georgsson
komst einn inn fyrir vörn Blikanna en
skaut beint á Svein markvörð. Á 24.
mínútu bætti Rúnar fyrir mistökin
með góðu marki. Friðrik Ragnarsson
braust þá í gegn hægra megin af
miklu harðfylgi og sendi vel inn í
teiginn. Sveinn markvörður hljóp út
úr markinu og ætlaöi aö handsama
boltann en gætti þess ekki aö Rúnar
getur verið snöggur í ferðum. Og það
var Rúnar sem fyrr náði til boltans og
hann sneiddi hann laglega meö
höfðinu í mannlaust markið. Eitt
tækifæri fengu Keflvíkingarnir í f.h.
þegar Rúnar komst upp að enda-
mörkum og gaf fyrir á Skúla
Rósantsson sem skaut góöu skoti á
markið en Sveinn varði vel.
Keflvíkingarnir höföu sömu yfir-
burðina í seinni hálfleik og þeir héldu
áfram aö leika prýðilega knattspyrnu.
Á 20. mínútu seinni hálfleiks munaði
UBK:ÍBK 0:2
Texti:
Sigryggur Sigtryggsson
Mynd:
Friöpjófur Helgason
litlu að Friðriki Ragnarssyni tækist að
skora en Sveinn sá við honum og
varði í horn. Mínúta leiö og þá urðu
Blikunum á mistök í vörninni, Ólafur
Júlíusson náöi boltanum og brunaöi
upp hægra megin. Hann gaf fyrir
markið til Friðriks, sem var í
sæmilegu færi en í staö þess aö
skjóta sjálfur renndi hann boltanum
út á Steinar Jóhannsson, sem kom á
fullri ferð og skoraöi með föstu
lágskoti af vítapunkti, óverjandi skot.
Keflvíkingarnir léku nú sinn bezta
leik í sumar. Geysigóð barátta var í
liöinu og knattspyrnan, sem liöið lék,
var góð. Þorsteinn markvörður var
mjög öruggur og bakverðirnir Óskar
og Guðjón, sem án efa eru minnsta
bakvaröarpar landsins, voru knáir. í
miöju varnarinnar voru þeir Gísli
Grétarsson og Siguröur Björgvinsson
sterkir, en Sigurður tók þá stööu í f.h.
þegar Gísli Torfason varð að víkja af
velli vegna meiösla. í miöju vallarins
átti Ólafur Júlíusson mjög góðan leik
og í framlínunni átti Friðrik Ragnars-
son sinn bezta leik í langan tíma. Átti
hann þátt í báðum mörkum liðsins.
Um Breiðabloksliðið þarf ekki aö
hafa mörg orð, þar var áhuginn alveg
í lágmarki og frammistaðan eftir því.
Sá eini sem eitthvaö kvaö aö var
Einar Þórhallsson í vörninni.
Kópavogsvöllur 11. júní, islands-
mótió 1. deild, Breiðablik — ÍBK 0:2
(0:1).
MÖRK ÍBK: Rúnar Georgsson á 24.
mínútu og Steinar Jóhannssoná 66.
mínútu.
ÁMINNING: Engin.
ÁHORFENDUR: 389.
Knattspvrnan fauk út í
- •' -J-
NÚ IIAFA fariö fram þrír lcikir uppi á Skipaskaga. cn cnnþá hcfur
ckki viðraö svo að hoöicgt sc til knattspyrnu. A laugardaginn fcngu
Skagamcnn Framara í hcimsókn og unnu nauman sigur. cn lcikmenn
bcggja liða cyddu þú mciri orku í aö glíma við rokið. Var cngu líkara.
cn lcifar cinhvcrs fcllibyls sunnan úr höfum hcfðu tckið scr bólfcstu
cinmitt yfir Akráncsi þessa dagstund. Lcikur þcssi var mikilvægur
fyrir þær sakir. að aðeins citt stig skildi á milli þcssara liða við topp
deildarinnar og cr því cnn grátlcgra að hann skyldi fara fram við svo
hrikalegar aðsta'ður.
'T&i ■
• ivlynd þessi cr úr lcik ÍA og KA fyrr í vor og sýnir hún þá Guðjón Harðarson (nr. 4) og Sigurbjörn
Gunnarsson sækja að Arna Svcinssyni. Skagamcnn unnu þann lcik cins og lcikinn gcgn Fram á
laugardaginn. LO.
Skagamenn sóttu mcð veður-
hæðina í bakið í fyrri hálfleik og
kom ekki oft f.vrir að Framarar
kæmust fram yfir miðju. En þrátt
fyrir stórsókn, áttu Skagamejin
sárafá góð færi, því að Framarar
voru sem frumskógur í vítateign-
um. Ef skoðuð er minnisbókin,
kemur í ljós að hún er ekki með
lengri bókum sem skrifaðar hafa
verið. Á 10. mínútu átti Kristinn
Björnsson þrumuskot rétt yfir
mark Framara og síðan gerðist
ekkert fyrr en á 33. niínútu, er
öllum nema dómaranum virtist
augljóst að Sigurbergur sló knött-
inn með hendinni innan vítateigs.
En ekkert var dæmt. Tveimur
mínútum síðar gle.vmdu áhbrfend-
ur þó þessari .vfirsjón dómarans,
því að þá geystist Karl Þórðarson
inn í vítateig Framara og skaut
þrumuskoti á markið. Guðmundur
Baldursson varði mjög vel, en hélt
ekki knettinum, sem hrökk fyrir
tærnar á Matthíasi sem fylgt hafði
vel eftir og skoraði hann það sem
re.yndist vera sigurmark leiksins.
I síðari hálfleik bjuggust margir
við því að leikurinn myndi snúast
við og eins marks forysta myndi
ekki nægja meisturunum til sigurs
er þeir þyrftu að sækja gegn
vestan rokinu. En sú varð ekki
raunin, reyndar sóttu Framarar
heldur meira en lengst af
Texti og mynd:
Guðmundur Guðjónsson
einkenndist leikurinn af því, að 20
leikmenn voru að brölta á vallar-
miðjunni og voru of uppteknir af
að senda knöttinn til mótherja til
þess að mega vera að því að byggja
upp sóknir. Langtímum saman var
knötturinn einnig uppi í skýjun-
um, engum til gagns. I stuttu máli
var leikurinn ekki eins og þeir
gerast bestir, enda buðu aðstæður
ekki upp á slíkt. En Framarar
. hefðu átt að jafna á 18. mínútu, er
Kristinn Jörundsson komst í gott
færi og lyfti knettinum skemmti-
lega yfir Jón Þorbjörnsson í
markinu, en á síðustu stundu kom
Jóhannes Guðjónsson fljúgandi og
skallaði knöttinn af marklínunni.
Sýndist flestum þarna vera um
ævintýralega björgun að ræða. Á
35. mínútu átti Kristinn aftur skot
og vind
á mark Skagamanna, en Jón varði
örugglega og á sömu mínútunni
komst Kristinn Björnsson einn inn
fyrir vörn Framara, en hikaði allt
of lengi og tækifærið rann út
Það er best að segja sem minnst
um þennan leik, það þýðir ekkert
að ætla að dæma liðin þegar leikið
er í slíku leiðindaveðri og þó að
völlurinn hafi lagast mikið er
hann ennþá afar slæmur yfirferð-
ar. Enginn leikmaður náði að
sigrast á aðstæðunum og var
leikurinn því í meira lagi leiðinleg-
ur á að horfa.
í stuttu máli:
Akranesvöllur 1. deild 10. júní
ÍA — Fram 1:0 (1:0)
Dómari: Kjartan Ólalsson.
Áminningar: Kristinn Björnsson ÍA 1
rit gula spjaldið.
Áhortendur: 708