Morgunblaðið - 13.06.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
27
TÚNIS KVADDI
MEÐ TILÞRIFUM
TÚNIS hefur lokiö Þátttöku í Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu aö
pessu sinni en öruggt má telja að frammistaða Túnismanna í keppninni veröi
lengi í minnum höfð. Enginn átti von á pví að Túnis tækist að skora mark
í keppninni hvað pá að vinna leik en pað fór á annan veg. Túnís vann Mexico
í fyrsta leiknum, tapaði naumlega fyrir Póllandi í öörum leiknum og
hápunkturinn var jafntefli gegn sjálfum heimsmeisturum Vestur-Þýzkalands
á laugardaginn. Jafnteflið í leiknum pýddi að Pólland varð sigurvegari í 2.
riðli meö 5 stig, Þjóöverjarnir komust einnig áfram í keppninni með 4 stig
en „litla" Túnis kom par á eftir með 3 stig. Litlu munaði að Túnismönnum
tækizt að skora mark í leikslok á laugardaginn og Þá hefði Túnis komist
áfram en heimsmeistararnir dottiö út. Það hefðu vafalaust orðið óvæntustu
tíðindin í samanlagðri sögu Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu.
Leikur Túnismanna og Vest-
ur-Þjóöverja fór fram í Cordoba. Eins
og vænta mátti sóttu Þjóðverjarnir
mun meira og hver sóknarlotan eftir
aöra dundi á varnarmönnum Túnis.
En þeir voru fastir fyrir auk þess sem
markvöröurinn Moktar Naili átti
stórleik í markinu og varöi hvað eftir
annað meistaralega. Ekki er ástæöa
til aö telja upp mýmörg tækifæri
Þjóðverjanna en ekkert þeirra gaf
mark. Túnismenn áttu nokkrar
hættulegar sóknarlotur og framlínu-
menn þeirra komu Þjóöverjunum oft
í bobba með leikni sinni. Túnismenn
áttu þrívegis möguleika á því að
skora í fyrri hálfleik en Sepp Maier
í markinu kom í veg fyrir þaö.
í seinni hálfleik sóttu Þjóðverjarnir
áfram aö marki Túnis en tókst ekki
að skora. Undir lok leiksins fjaraöi
sóknin út hjá Þjóðverjunum og
Túnismenn náöu aö síöustu tökum á
miöju vallariris og meö smáheppni
hefðu þeir getað skorað mark. Þegar
flautaö var til leiksloka fögnuöu
leikmenn Túnis úrslitunum ákaflega
enda ekki á hverjum degi sem þeim
tekst að ná stigi af sjálfum heims-
meisturunum. Ahorfendur fögnuðu
þeim líka vel og lengi.
Eftir leikinn sagði Helmuth Schön
einvaldur þýzka liösins aö hann væri
óánægöur með leikinn. Leikmönnum
hefði verið sagt aö leika til vinnings
en þaö heföi ekki gengiö. — Viö
vissum að þetta yröi erfiður leikur,
því Túnismenn höföu leikiö mjög vel
í tveimur fyrstu leikjunum og komið
verulega á óvart. Einvaldur Túnisliðs-
ins, Adbelmajid Chetali, sagöi:
— Markalaust jafntefli gegn heims-
meisturunum veröur að teljast mikill
sigur fyrir okkur. Þjóðverjarnir sóttu
mjög kröftuglega og ég var ánægöur
meö vörnina hjá okkur. Það heföi
óneitanlega veriö gaman ef okkur
heföi tekizt aö skora eitt mark og
vinna leikinn.
Lið V-Þýzkalandst Maier. Voxts. Dietz.
Russmann. Kaltz. Bonhof. Flohe. Fischer.
RummenÍKKe. Dieter Miiller. Ilans MUIIer.
LiA Túnisi Naili. Dhouib. Kaabi. Gasmi.
I.ahidi. Gommidh. Rehaim. Akid (Aziza).
Lahzami. Dhiah. Jebali.
Dómari, Cesar Orozco. Perú.
Argentina'78
Perú vann riðilinn
PERÚMENN, sem komió hafa veru-
lega á óvart fyrir góóa frammistöóu,
tryggóu sér sigur í 3. rióli meó
öruggum sigri yfir íran. Teofilo
Cubíllías, sem jarðaói Skota meÓ
tveimur glæsimörkum, var Persum
einnig skeinuhættur, en Cubillias
skoraói Þrennu og er markahæstur
leikmanna í HM eins og er.
Perú fékk sannkallaða drauma-
byrjun, er Velasques skallaöi glæsi-
lega í netiö eftir aðeins tvær mínútur.
En þó aö Perú hafi sótt miklu meira
allan leikinn, voru það íranir sem áttu
næsta færið í leiknum og kom það
aöeins 3 mínútum eitir markið
fyrrnefnda, þá átti Naxari hörkuskot,
sem Quiroga varöi glæsilega. En
Perúmenn náöu öllum tökum á
leiknum og þeir Cubillias, Velazques
og Cueto léku allir frábærlega og
voru allir nærri því aö skora. Um
miðjan hálfleikinn var dæmd víta-
spyrna á írani og úr henni skoraði
Cubillias og skömmu síðar lék hann
sama leikinn á ný og var þá staöan
orðin 3:0. En síöasta orðið átti
Rowshan sem minnkaöi muninn fyrir
íran rétt fyrir leikhlé.
í síðari hálfleik voru Persarnir mun
virkari og líflegri og áttu þeir
Rowshan og Ghasimpour báöir fleiri
en eitt færi, en þeir ýmist létu
Quiroga verja frá sér, eöa þá að þeir
hreinlega hittu ekki markiö. Kom
nokkuð á óvart hve óörugg vörn Perú
reyndist er að henni var sótt. Eina
mark hálfleiksins skoraöi Teofilo
Cubillias og var þaö jafnframt hans
þriöja mark í leiknum. Perú á nú á
brattann aö sækja, liöiö lendir í riðli
meö Brasilíu, Argentínu og Póllandi,
en Perúmenn hafa hins vegar sýnt að
þeir eru til alls líklegir.
Lið Perút Quiroica, Manzo. Chumpitas.
Diaz. Duarte, Velasquez. Cubilleas. Cueto.
Munante, La Rosa og Oblitas.
Lið fran< Iledjazi. Naxari, Kazerani,
Abdollah. Aiiahverdi, Parvin, Danaifard,
Sadexhi, Ghasempour. Rowshan, Faraki.
Dómarit Jarguz frá Póllandi.
• Komið hefur nokkuð á óvart hversu sterkir ítalir eru í HM. Þeir hafa unnið alla sína leiki til þessa.
síðast gestsjaíana ArKentínumenn ojí má á myndinni sjá Roberto Beítega skora sÍRurmarkið í þeim leik.
Franco Causio fylgist með. (Símamynd AP)
Níu leikmenn frá Juventus
léku gegn Argentínumönnum
IIINIR sókndjöríu framherjar ítalska landsliðsins Bettesa og Rossi
trygjíðu liði sínu sigur gegn Argentínu í Buenos Aires á
lauKardaBskviildið. Þeir léku saman í ReKnum argentínsku vörnina á
G7. mínútu ok Bettega rak endahnútinn á sóknina með Róðu marki. sem
var það eina. sem scrt var í leiknum. Varnarmaður ítala. Mauro
BelluRÍ. varð að yfin?efa völlinn vegna meiðsla stra.x á 5. mínútu ok
tók Antonellu Cuccureddu stöðu hans. Með komu hans í liðið voru 9
ieikmenn úr ftalska meistaraliðinu Juventus komnir inn á völiinn. sém
hlýtur að vera fáda-mi. Aðeins Rossi og AntoRnoni leika með öðrum
liðum en það er nú reyndar svo að Juventus á helminRÍnn í Rossi ok
talað er um að Juventus a-tli að kaupa Antognoni frá Fientorina strax
cftir IIM!
Það voru 80 þúsund áhorfendur
á River Plate vellinum í Buenos
Aires or auðvitað voru þeir allir á
bandi heimamanna. Argentínska
liðið var betri aðilinn í léiknum á
launardaRÍnn ojj segja niá að fyrri
Þeir skora á HM
TEOFILO Cubillias er nú markhæstur
á HM og hefur kappinn skoraö 5
mörk, þar af tvö úr vítaspyrnum. Á
hæla hans kemur hollenska stjarnan
Rob Rensenbrink meö 4 mörk, en
hann hefur skoraö þrjú þeirra úr
vítum. Aörir sem fundiö hafa leiðina
í netið eru þessir:
2 MÖRK: Rossi og Bettega (Ítalíu),
Rummenigge og Flohe (V-Þýzkal.),
Boniek (Póllandi), Gemmell (Skot-
landi), Luque (Argentínu) og Krankl
(Austurríki).
1 MARK: Schachner (Austurríki),
Benetti og Zaccarelli (Italíu), Lato og
Deyna (Póllandi), Hansi og Dieter
Múller (V-Þýzkal.), Passarella og
Bertoni (Argentínu), Platini,
Lacombe, Lopez, Berdoll og
Roucheteo (Frakklandi), Dalglish og
Jordan (Skotlandi), Cueto og Vela-
squese (Perú), Rep (Hollandi), Dani-
far og Rowshan (íran), Dani og
Asensi (Spáni), Reinaldo og Roberto
(Brasilíu), Sjöberg (Svíþjóö), Vazquez
og Rangel (Mexíkó), Khaabi, Gomm-
idh og Dhouib (Túnis), Csabo, TÓth
og Zombory (Ungverjalandi).
hálfleikurinn hafi verið nánast
einstefna á ítalska markið. En
ítalska 'vörnin átti enn einn
stórleikinn or hún hélt framlínu-
mönnum Argentínu að mestu í
skefjum. Hafði það líka sitt að
segja að' helsti markaskorari
Arjíentinumanna, Leopoldo Luque,
ítat ekki leikið með vegna meiðsla.
VeRna þess hve vörn Italanna var
þétt fyrir urðu Argentínumenn-
irnir að skjóta af löngu færi en
árangurinn af þeim skottilraunum
var enginn.
Hvorugt liðið lék jafn vel og í
fyrri leikjum og Italirnir urðu oft
að beita ljótum brögðum í vörn
sinni og svo fór að Benetti var
bókaður í seinni hálfleik. Tvisvar
vildu áhorfendur fá vítaspyrnur
dæmdar á Italina en dómarinn
sinnti þeim hrópum engu.
Þrátt fyrir góðan leik ítölsku
varnarinnar fengu Argentínu-
menn eitt og eitt tækifæri til að
skora en þau voru misnotuð eða þá
að Zoff varði. ítalirnir áttu einnig
sín færi og þeir Rossi og Bettega
komu vörn Argentínumanna oft í
bobba. Samvinna þeirra tveggja,
sem orðin er mjög góð, skapaði hið
mikilvæga mark.
Eftir leikinn sagði Enzo Bear-
zot, einvaldur italska liðsins, að
þetta hefði verið erfiðasti leikur
liðsins í keppninni. — Við lékum
í kvöld við rnjög gott lið, sem hefði
hæglega getað unniö okkur, sagði
hann.
Einvaldur argentínska liðsins,
Cesar Menotti, sagði eftir leikinn
að lið sitt hefði í fyrri hálfleik sýnt
beztu knattspyrnuna, sem sést
hefði á HM til þessi Menotti
neitaði því alveg að leikntenn
hefðu ekki lagt hart að sér í
leiknum vegna þess að þjóðirnar
höfðu þegar tryggt sér þátttöku-
rétt í úrslitunum. — Bæöi liðin
fóru út á völlinn með því hugarfari
að vinna leikinn. ítalska liöið fór
með sigur af hólmi og ég óska vini
mínurn Bearzot til hamingju-með
sigurinn og lið sitt, sem mér sýnist
að sé mjög gott. Þessi ósigur
skiptir ekki máli, það mikilvæg-
asta er að Argentína hefur komizt
áfram úr þessum erfiða riðli.
LIÐ ARGENTÍNH, Fillol. Olxuin. Galvan.
Passarclla. Tarantini. GalloKo. Yalencia.
Ardiles. Bertoni. Kempes. Otriz (llousman).
LIÐ ÍTALÍU. Zofí. Gentile. Cabrini. Benetti.
BelluKÍ (Cuccureddu). Scirea. Causio. Tar
deli. Rossi. AntoKnoni (Zaccarelli). Bettega.
DÓMARI. Abraham Klein írá ísrael.
HM
E'im&t tL.
I=YR:ieÚ&i
EKAS' Uiu womvinJA.
PL»,useo v/eir=/vie
kiappa,
<bo-boo Á-HO(2P-
PMDO& OÞ~i\jvvA
yj-e>i M/stos
LOFI Lí^RA,
BfcSTA L-i fs> \ -e>
OM NJ .