Morgunblaðið - 13.06.1978, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1978
Matthías Sigfússon við nokkur málverka sinna.
Matthías Sigfússon listmálari;
Þurfti að fela mál-
verkin tilþess að
getahaldiðsýnmgu
MATTHÍAS Sijífússon iistmál-
ari heidur um þessar mundir
málverkasýningu í sýningarsal
Safnahússins á Selfossi. Sýn-
intíin var opnuð þann 10. júni
s.l. ojí verður opin daglega kl.
14—22. en hcnni lýkur 25. júní.
Matthías sýnir að þessu sinni
45 olíumálverk, sem flest eru
landslagsmyndir víðsvegar að af
landinu.
Að sögn Matthíasar hefur
hann ekki haldið málverkasýn-
ingu síðan hann sýndi í Þjórsár-
veri fyrir sex árum. Hann
kvaðst eiga örðugt með að safna
saman málverkum sínum á
sýningu, þar sem þau væri rifin
út úr höndunum á honum
jafnóðum og þau væru tilbúin.
Til þess að koma upp þessari
sýningu sagðist Matthías nánast
hafa orðið að fela málverkin
jafnóðum og hann lauk við'þau,
til öð hann missti þau ekki frá
sér.
Tómas.
Nauðsynlegt að samræma
hugtakið „stærð íbúðar”
Sveit Páls
Pálssonar
Norðurlands-
meistari
í bridge
Siglufirði 12. júní.
SVEIT Páls Pálssonar frá Akur-
eyri varð Norðurlandsmeistari í
hridge á Norðurlandsmeistara-
mótinu sem fram fór í Siglufirði
9. —11. júní. Tíu sveitir tóku þátt
í mótinu; tvær frá Akureyri, tvær
frá Húsavík og tvær frá Siglu-
firði og cin frá hverjum eftirtal-
inna staða. Mývatnssveit, Dalvfk,
Skagafirði og Blönduósi.
Auk Páls voru í sigursveitinni
Frímann Frímannsson, Soffía
Guðmundsdóttir, Dísa Pétursdótt-
ir, Magnús Aðalbjörnsson og
Gunnlaugur Guðmundsson. Hlaut
sveitin 130 stig. í öðru sæti varð
sveit Bjönns Þórðarsonar, Siglu-
.firði, með 125 stig, þriðja sveit
Alfreðs Pálssonar, Akureyri, með
117 stig, fjórða sveit Stefáns
Jónssonar, Salvík, með 116 stig og
fimmta sveit Boga Sigurbjörns-
sonar, Siglufirði, með 115 stig.
Fréttaritari.
Trésmiðir
mótmæla bráða-
birgðalögum
Trésmiðafélag Reykjavíkur
hélt félagsfund þann 6. júní s.I.
Þar var cftirfarandi tillaga sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum.
„Félagsfundur í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur, haldinn þriðjudaginn
6. júní 1978, mótmælir harðlega
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar frá 24. maí s.l., þar sem
endurtekin er lagasetning, sem
riftir Iöglega gerðum kjarasamn-
ingum verkalýðsfélaga og atvinnu-
rekenda.
Þessi síðari lagasmíð ríkis-
stjórnarinnar felur m.a. í sér, að
álag vegna yfirvinnu er verulega
skert frá því sem samningar kveða
á um og einnig er um að ræða
skerðingu á orlofi og lífeyris-
greiðslum frá ákvæðum kjara-
samninga.“
SKÍÐASKÓLINN í Kerlingar-
fjöllum tekur til starfa um miðja
næstu viku eða 21. þ.m. og byrjar
skólinn með tveimur unglinga-
námskeiðum. Er liður á sumarið
verða einnig haldin fjölskyldu- og
fuilorðinsnámskeið.
Valdimar Örnólfsson skólastjóri
í Kerlingarfjöllum sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að ýta
Iðnþróunarstofnun fslands vill
að gefnu tilcfni vekja athygli á
því að árið 1972 var gefinn út
fslenskur staðall „Flatarmál og
rúmmál bygginga ÍST 50“ sem
nauðsynlegt er að hafa f huga við
kaup og sölu á fasteignum.
Nú tíðkast það í æ ríkara mæli
að telja ýmsa hluta sameignar í
fjölbýli með þegar tilgreind er
hefði byrjað að ryðja veginn inn í
Kerlingarfjöll fyrir helgina og
væri nú komin inn í Ásgarð,
þannig að nú ætti að vera fært
öllum jeppum innúr. Sagði hann,
að Kerlingarfjallamenn myndu
setja upp skíðalyfturnar nú um
helgina og koma allri aðstöðu í
gott lag og síðan væri fyr§ti
hópurinn væntanlegur inn úr á
miðvikudag.
stærð íbúðar og þykir því rétt að
undirstrika að samkvæmt ÍST 50
er skilgreint á ótvíræðan hátt
hvernig meta á stærð séreignar í
sambýli.
í ÍST 50 er greint frá því, að
skiptiflatarmál er reiknað flatar-
mál, sem notað er við ákvörðun
eignarhluta í sambýli. Þegar finna
skal skiptiflatarmál séreignar í
byggingu, skal reikna allt flatar-
mál innan skilveggja séreignar (að
miðlínu) og útveggja. Við stærðar-
ákvörðun skiptiflatarmáls skal
ekki tekið tillit til þykktar ein-
angrunar, heldur reikna frá innri
fleti útveggja. Séu útveggir hjúp-
veggir (curtain walls), skal reikna
frá innri hlið veggjarjna.
Þar segir einnig að þegar
geymsla tilheyrir íbúð, skal marg-
falda flatarmál hennar með 0,6 við
ákvörðun skiptiflatarmáls. Fjallað
er ennfremur um það hvernig
stærð séreignar skuli ákveðin.
Ef þeir sem kaupa og selja
fasteignir skilgreina á mismun-
andi vegu stærðir íbúða leiðir það
til þess eins og hugtakið stærð
íbúðar verður meiningarlaust, og
væri slíkt mjög til óhagræðis. Það
er því nauðsynlegt fyrir þá sem
kaupa og selja fasteignir að
kynna sér efni staðalsins en hann
er til sölu hjá Iðnþróunarstofnun
Islands.
— Sauðárkrókur
Framhald af bls. 19
kjörum. Sjálfstæðisflokkurinn
stefnir að uppbyggingu varan-
legra vega um land allt á næstu
15 árum og í menntamálum er
stefnt að auknum tengslum við
atvinnulífið og aukinni fullorð-
inna fræðslu.
Fundarstjóri, sr. Gunnar
Gíslason tók til máls og beindi
spurningum til Pálma Jónsson-
ar þess efnis hvort fyrirhugaður
væri aukinn stuðningur ríkis-
valds til að byggja upp varma-
veitur í dreifbýlinu og hvernig
væri háttað uppbyggingu gras-
kögglaverksmiðja á landsbyggð-
inni.
Pálmi Jónsson svaraði því til
og sagðist ekki hafa tölur um
hvað kostaði að leggja varma-
veitur út i héruð, en sagði að þau
málefni yrði að athuga, þar sem
hér væri um það að ræða að búa
í haginn fyrir framtíðina. Hér
ylti á kostnaði. Um grasköggla-
verksmiðjurnar sagði hann að
gerð hefði verið áætlun um
uppbyggingu þeirra út um land-
iö og byrjað hefði verið á
Suðurlandi, en ráðagerðir væru
einnig um framkvæmdir í
Hólminum. Æskilegt væri að
takmarka innflutning á fóður-
bæti en hann væri niðurgreidd-
ur og því samkeppnisaðstaða
innlends fóðurbætis erfið.
Kári Jónsson ræddi um
stjórnmálaviðhorfið og sagði að
menn sæju fram á vinstri stjórn
færi Sjálfstæðisflokkurinn illa
út úr komandi kosningum. Sagði
hann að gera hefði þurft meira
úr því við hvernig búi núverandi
ríkisstjórn tók og benda meira á
þann árangur sem náðst hefði í
atvinnu- landhelgis- og varnar-
málum.
Jón Magnússon spurði hvað
gera ætti við raforku þá sem
framleidd yrði í Hrauneyjar-
fossvirkjun.
Otto Michelsen spurði til
hvaða ráðherraembætta Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi gera
kröfu um yrði hann í næstu
ríkisstjórn.
Geir Hallgrímsson svaraði
þessum spurningum og sagði að
hann hefði álitið það meira virði
að halda samstarfsfrið en benda
á hvernig síðasta ríkisstjórn
hefði skilið við og ræddi hann
síðan nokkuð um kjaramálin.
Sagði hann að engin ríkisstjórn
gerði það að gamni sínu að
ganga inní kjarasamninga, en
nauðsynlegt væri að draga sem
mest úr innlendum kostnaði við
framleiðslu og þar vægju launin
mest.
Um Hrauneyjarfossvirkjun
sagði ráðherra að gert væri ráð
fyrir að bygging hennar tæki
fjögur ár og yrði hennar full
þörf fyrir notkun á almennum
markaði.
Um það til hvaða ráðherraem-
bætta Sjálfstæðisflokkurinn
hyggðist - gera kröfur til yrði
hanii í ríkisstjórn, sagðist Geir
Hallgrímsson ekki vera umkom-
inn að svara, það byggðist á því
hver styrkur hans yrði og e.t.v.
yrði farið fram á þau sem
flokkurinn hefði ekki haft um
langt skeið.
— Hástúkuþing
Framhald af bls. 3.
son, Akureyri, kjörinn stórtempl-
ar. í stjórn góðtemplarareglunnar
á Islandi eru nú auk Sveins:
Stórvaratemplar Bergþóra
Jóhannsdóttir, Reykjavík; stór-
kanslari sr. Björn Jónsson, Akra-
nesi; stórritari Halldór Kristjáns-
son, Reykjavík; stórgjaldkeri Arn-
finnur Arnfinnssom, Akureyri;
stórkapellán Sigrún Oddsdóttir,
Garði; stórgæzlumaður unglinga-
starfs Hilmar Jónsson, Keflavík;
stórgæzlumaður ungmennastarfs
Árni Norðfjörð, Reykjavík; stór-
gæzlumaður löggjafarstarfs Grét-
ar Þorsteinsson, Reykjavík; stór-
fregnritari Ólafur Jónsson,
Hafnarfirði; stórfræðslustjóri
Stefán Halldórsson, Hafnarfirði
og fyrrverandi stórtemplar Indriði
Indriðason, Reykjavík.
Á stórstúkuþinginu var eftirfar-
andi samþykkt gerð:
1. Stórstúkuþing 1978 bendir á
að fréttaflutningur ýmissa dag-
blaða um áfengis- og fíkniefnamál
er oft hallur undir hagsmuni
seljanda þessa varnings. I frásögn-
um er leitast við að varpa
dýrðarljóma á neyslu áfengis og
annarra vímugjafa. Þingið varar
við slíkum fréttaflutningi sem í
raun og veru er óbein auglýsing á
efnum sem bannað er að auglýsa
samkvæmt íslenskum lögum.
2. Stórstúkuþing 1978 varar við
síendurteknum tilraunum tals-
Byrjaði að stela
daginn eftir að
honum var sleppt
Rannsóknarlögregla ríkisins
lagði í gær fram ósk við
sakadóm Reykjavíkur um að 27
ára gamall maður yrði úr-
skurðaður í gæzluvarðhald
fyrir þjófnaði. sem hann hefur
framið á undanförnum dögum.
Hér er um að ræða síbrota-
mann, sem setið hefur í gæzlu-
varðhaldi síðan í apríl fyrir
endurtekin afbrot. Honum var
sleppt 7. júní s.l. og strax daginn
eftir var hann kominn á stjá og
stal 140 þúsundum úr húsi í
Hafnarfirði. Um helgina var
maðurinn gripinn með þýfi, sem
hann hafði tekið í bústað við
Hafravatn. Að athuguðu máli
þótti Rannsóknarlögreglunni
rétt að óska eftir gæzluvarð-
haldi yfir manninum.
Á meðan hann sat inni í vor
féll dómur í nokkrum fyrri
afbrotamálum mannsins í
Kópavogí og var hann þar
dæmdur í 20 mánaða fangelsi.
Maðurinn áfrýjaði dómnum til
Hæstaréttar og kom því ekki til
fullnustu hans.
Skíðaskólinn í Kerling-
arfíöDum tekur tíl starfa
manna erlendra og innlendra
bruggfyrirtækja og auðhringa til
að koma áfengu öli á markað á
Islandi.
3. Stórstúkuþing 1978 vekur
athygli stjórnvalda á því að
áfengislögunum er í ýmsum grein-
um ekki framfylgt sem skyldi.
Nærtækasta dæmið eru vínveit-
ingar í Þjóðleikhúsi. Einnig má
benda á vínveitingar félagasam-
taka í ágóðaskyni.
4. Stórstúkuþing 1978 telur að
viðurlög við ölvun við akstur séu
ekki í samræmi við það glæpsam-
lega athæfi sem slíkur verknaður
er. Beinir þingið því til stjórnvalda
að viðurlög verði hert verulega.
5. Stórstúkuþing 1978 telur
óeðlilegt að einkahágsmunir og
gróðasjónarmið komi við sögu
varðandi áfengissölu í landinu.
Bendir þingið í því sambandi á
umboðsmannakerfið og launakerfi
framreiðslumanna.
Þá telur þingið með öllu fráleitt
að farmenn, flugliðar og ferða-
foðlk fái að taka tollfrjálst áfengi
með sér inn í landið.
Þingið mótmælir þeirri ákvörð-
un Fjármálaráðuneytisins að auka
áfengismagn það sem ferðamenn
mega taka með sér. Þar sem
ákvörðun þessi var gerð í þeirri trú
að önnur Norðurlönd ætluðu einn-
ig að breyta ákvæðum um þessi
efni en þegar er vitað að Norð-
menn munu ekki gera það skorar
þingið á fjármálaráðherra að
breyta reglugerð til samræmis við
það sjái hann sér ekki fært að
afnema þennan innflutning með
öllu.
6. Stórstúkuþing 1978 skorar á
viðskiptaráðherra að fella niður
heimild til innflutnings á öl- og
víngerðarefni og bruggtækjum
sem beinlínis eru framleidd með
gerð áfengis í huga.
7. Stórstúkuþing 1978 lýsir því
yfir að enn sem fyrr hlýtur
bindindishreyfingin að stefna að
því að sett verði lög sem banna
innflutning og sölu áfengis i
landinu á sama hátt og bann er á
innflutningi og sölu annarra vímu-
gjafa.
— Olíuinn-
flutningsbann
Framhald aí bls. 48
hrognum og nokkrum iðnaðar-
vörum, eins og skinnavöru þar
sem íyrir lá að markaðurinn
myndi tapast, ef varan ekki
bærist. „Það er svona stund milli
stríða núna,“ sagði Guðmundur
almennt um stöðuna f kjaramál-
unum.
Guðmundur sagði að það hefði
legið fyrir að Rússar hefðu það
stífa áætlun á sjnum olíu- og
bensínskipum, að þeir biðu ekkert
og breyttu ekkert sinni áætlun.
„Það lá fyrir að næsta olíuskip frá
þeim er ekki á áætlun hér fyrr en
í júlí ög að landið hefði orðið
olíulaust í byrjun júlí að öllu
óbreyttu. Olíuleysi hefði stöðvað
til dæmis fiskiskipaflotann á
skömmum tíma. í gær tókst
olíufélögunum að fá skip frá
Rotterdam með olíu, þannig að það
er rétt á mörkunum að endar nái
saman, en það er engan veginn
okkar kappsmál að stöðva fiski-
skipaflotann frekar en okkur
hefur verið kappsmál að gera
landið bensínlaust."
Eins og fram hefur komið í
fréttum hafa verið veittar undan-
þágur vegna komu tveggja bensín-
skipa, en komu gasolíuskips var
frestað vegna innflutningsbanns-
ins.
— Endanleg
ákvörðun
Framhald af bls. 48
tali við Mbl. í gærkvöldi. Kristján
neitaði að öðru leyti að svara
spurningum Mbl. um efni mál-
efnasamningsins eða aðrar sam-
þykktir meirihlutans í borgar-
stjórn.
Mbl. tókst ekki í gær að ná tali
af Björgvin Guðmundssyni borg-
arfulltrúa Alþýðuflokksins.