Morgunblaðið - 20.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.07.1978, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR 153. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Weizman sagður í reiðikasti Tel Aviv, 19. júlí. AP. EZER Weizman varnarmála- ráðherra ísraels kippti í gær í bræði niður veggspjaldi með áletruninni „Shalom“, friður, á skrifstofu Begins forsætis- ráðherra og reif spjaldið í tætlur með þeim ummælum að hann efaðist um að stjórnin vildi raunverulega frið, að því er tvö blöð í Jerúsalem skýra frá í dag. Er atvik þetta talið til marks um ósamkomulagið sem ríkir í stjórn Begins um næstu skref í friðarumleitun- um við Egyptaland og aístöð- una til helztu deilumálanna. Talsmaður fyrir Weizman sagði í dag að hann hefði fjarlægt spjaldið af veggnum en það væri alrangt að hann hefði á einhvern hátt skeytt skapi sínu á því eða látið einhver orð falla við þetta tækifæri. Weizman hefur verið gagn- rýndur í stjórn Begins fyrir að hafa átt fund með Sadat Egyptalandsforseta í Austur- ríki í síðustu viku og þykir sumum meðráðherra hans Framhald á bls. 20 Weizman Lögreglukona í Bandarikjunum virðir fyrir sér lítinn tveggja manna kafbát sem lögregla tók í sína vörzlu í Miami í gær. en báturinn var hlaðinn sprengiefnum. sem talið var að ætti að nota gegn hvalveiðiskipum frá löndum Suður-Ameríku. (Símamynd AP) Kafbátur með sprengi- efni á mið hvalbáta? Carter bannar sölu á tölvum til Sovétríkjanna Miami, Flórida, 19. júli. AP. LÖGREGLUMENN stöðvuðu í dag ferðir lftils tveggja manna kafbáts í Miami og fundu um borð í bátnum miklar sprengiefnabirgðir sem tal- ið er að átt hafi að nota gegn hvalveiðiskipum í SuðurAmeríku, að því er bandaríska alríkislögregl- an, FBI, skýrði frá í dag. Ekki er vitað með vissu hvernig nota átti kafbátinn í þessu skyni en talsmaður FBI í Miami staðfesti að hann væri hluti af útbúnaði sem hafzt hefði upp á og ætlaður væri gegn hvalveiðiskipum annarra þjóða. Lögreglan hafði á föstudag hendur í hári manns nokkurs, James R. Rose jr. að nafni, sem talinn er standa á bak við mál þetta. Var Rose ákærður fyrir að flytja skotfæri og sprengi- efni ólöglega milli fylkja í Banda- ríkjunum. Lögreglan tók í sína vörzlu úr kafbátnum mikið af sprengiefni sem í ljós kom að var mjög öflugt, en einnig fannst í bátnum fullkominn köfunarútbúnað- ur. Rose er kafari að atvinnu. I AP-frétt segir enn fremur að hvalveiðimenn víða um lönd hafi orðið fyrir aðkasti umhverfis- og dýraverndunarmanna sem telja að hvalastofnum sé hætta búin. WashinKton. 19. júlí. AP. Rcutor. CARTER Bandaríkjaforseti ákvað í dag að banna siilu á fullkominni tölvusamsta'ðu til sovézku fréttastofunnar Tass og að sögn talsmanns handaríska viðskiptaráðuneytisins hyggist þessi ákvörðun á réttarhöldunum yfir sovézku andóísmönnunum tveimur sem dæmdir voru í fyrri viku í þungar refsingar. Hjá talsmanni ráðuneytisins kom jafnframt fram að Carter hefði ákveðið að takmarka einnig í framtíðinni útflutning til Sovét- rikjanna á háþróuðum búnaði og tækni við olíuleit og orkuöflun. Juanita Kreps viðskiptaráð- herra Bandaríkjanna er sögð hafa verið mótfallin ákvörðun forsetans og ekki viljað blanda saman þeim viðskiptum sem hér um ræðir og mannréttindamálum í Sovétríkj- unum. I Bandaríkjunum var þessum ákvörðunum Bandaríkjaforseta yfirleitt vel tekið meðal þeirra þingmanna sem tjáðu sig um málið og leiðtogar kristilega demókrataflokksins í V-Þýzka- landi lýstu hryfningu sinni yfir þessari ákvörðun. í Moskvu varaði Sovétstjórnin Bandaríkjamenn við því að beita þrýstingi í viðskiptum eða öðrum ráðum til afskipta af innanríkismálum í Sovétríkjunum og sagði slíkar ráðagerðir einungis mundu leiða til átaka milli stór- veldanna. Izvestia, málgagn sovétstjórnar- innar, segir í grein í dag að bann við viðskiptum við Sovétríkin hafi á dögum kalda stríðsins einungis komið sér illa fyrir nokkur banda- rísk fyrirtæki en ekki haft hin minnstu áhrif á efnahagslíf í Sovétríkjunum. Bendir blaðið á að til viðskipta sé stofnað vegna hagsmuna beggja aðila og muni . ákvörðun um að draga úr viðskipt- um landanna því koma niður á Bandaríkjamönnum sjáifum. Mannrétt- indi Baad- er-Meinhof ekki brotin Bonn. 19. júlí. AP. Mannréttindanefnd Evrópu- ráðsins hefur vísað á bug ásökun- um um að vestur-þýzk stjórnvöld hafi brotið mannleg réttindi hryðjuverkamannanna Andreas- ar Baaders. Gudrunar Ensslin og Jan-Carl Raspe á meðan þau sátu í fangelsi. að því er v-þýzka dómsmálaráðuneytið skýrði frá í dag. Talsmaður ráðuneytisins. Sepp Binder. sagði að nefndin hefði kveðið upp þann úrskurð jið meðferðin á þcssum þremur meðlimum í Baader-Meinhof hópnum „hafi í engu verið ómannúðleg eða niðurlægjandi" Framhald á bls. 20. Lítið miðaði í viðræð- unum í Leeds kastala Vance í nýja ferd til Midausturlanda London. 19. júlí. AP. Reuter. TVEGGJA daga fundum utan- ríkisráðherra ísraels. Egypta- Korchnoi stefnir fyrst að nokkrum jafnteflum —segir Tal, fyrrum heimsmeistari í skák Batruio. Filippscyjum. 19. júlí Rcutcr. SOVÉZKI skákmaðurinn Mikhail Tal, sem eitt sinn var heimsmeistari í skák, sagði í dag að hann byggist við því að Korchnoi stefndi að því að gera röð jafntefla í fyrstu skákum heims- meistaraeinvígisins í skák í þeirri von að Karpov verði síðan á mistök. Tal er staddur á Filippseyjum í hópi að- Tal. stoðarmanna Karpovs heimsmeistara. Karpov og Korchnoi voru í dag báðir við skákrannsóknir og létu ekki á sér kræla utan hvað Korchnoi fór og skokkaði í stutta stund í skóginum við hótel sitt í morgun. Karpov svaf fram eftir morgni og snæddi morgunverð um hádegisbilið. Talið er að báðir skákmenn- irnir hafi eytt tíma sínum í dag ásamt aðstoðarmönnum sínum við að fara yfir fyrstu einvígis- Framhald á bls. 20. lands og Bandaríkjanna í Lccds kastala á Englandi lauk 1' dag án þess að nokkrum sýnilegum árangri væri náð. Vance utan- ríkisráðherra Bandarikjanna sagði að fundinum loknum að hann mundi að tveimur vikum liðnum halda til Miðausturlanda og hafa milligöngu um frekari viðra-ður og sagði hann að íundinum loknum að hann og stjórn hans væru enn þeirrar skoðunar að stjórnir Israels og Egyptalands óskuðu báðar eftir varanlegum friði og að Banda- ríkjamenn myndu halda áfram að styðja þá viðleitni. Hann lagði áherzlu á að enn bæri mjög mikið á milli deiluaðila en sameiginleg afstaða hefði náðst til nokkurra atriða. Framhald á bls. 20 Flugkóngur- inn Freddie Laker var í ga-r kvaddur á fund Elízabetar Bretadrottningar og aðlaður fyrir störf sín að flug- málum. Fram- vegis verður hann því kallað- ur Sir Freddie. Ilér sést hann fyrir framan Buckingham- höll í Lundún- um í ga>r eftir að hann hafði hlotið titilinn og heiðurspening sem honum fylgir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.