Morgunblaðið - 20.07.1978, Page 18

Morgunblaðið - 20.07.1978, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 20. JÚLÍ 1978 fltofgiitiMftfttfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fróttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Skemmdarverk nokkurra y erkalýðsforing j a Þossa dajíana berast fréttir uni, aö frystihús sjái fram á lokun á næstunni vefjna rekstrarerfiöleika. Fr.vstihús á Suðurnesjum hafa boðað lokun í þessum mánuði oj; frystihús í Norðurlandi vestra hafa tilkynnt, að starfsfólki verði sa};t upp störfum á næstu vikum. A sama líma berast frennir af mokafla hvarvetna urrr landið ou nú er svo komið, að því meiri afli sem berst á land þeim mun meira verður tap fiskvinnslustöðvanna! Ut af fyrir kíjí væri hæut að líta á þetta sem skopleik, ef alvara málsins væri ekki eins mikil og raun ber vitni. Atvinnuleysi meðal starfsfólks í frystiiðnaði, sem smátt ok smátt mundi breiðast út til annarra atvinnuKreina, er mikið alvörumál. Þeir flokkar, sem voru í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili, seuja að þetta sé dænii um viðskilnað núverandi stjórnarflokka. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks ok Framsóknarflokks skilji við atvinnulífið í rúst. Þetta er ekki rétt. Ástandið í frystiiönaði ok öðrum atvinnurekstri á þessu sumri er ekki dæmi um viðskilnað ríkisstjórnarinnar heldur áranuur eða afleiðinK þeirrar stefnu í kjaramálum, sem Alþýðusamband Islands hefur rekið á síðustu 12 mánuðum. Þeir sem bera meKÍnábyrgð á þessu ástandi eru forystumenn Alþýðusambands Islands, með þá Snorra Jónsson ok Guðmund J. Guðmundsson í fararbroddi. Þeir hafa notið dygKÍlegs stuðninKS forystumanna AlþýðubandalaKs og Alþýðuflokks á undanförnum mánuðum. Þe;;ar forráðamenn þessara tveKKja flokka ræða um leiðir út úr þessu önKþveiti er þeim hollt að hafa í huj;a, að þeir eru að kljást við vandamál, sem þeir sjálfir eiga mestan þátt í. Það var öllum ljóst, ok hæj;t að vitna í fjölmarj;ar forystugreinar Mor;;unblaðsins frá því fvrir 12 mánuðum, þess efnis, að kjarasamninj^rnir, sem Kerðir voru sumarið 1977 voru lanf;t umfram öll skynsamleg mörk oj; hlutu að leiða til vaxandi verðbólgu og rekstrarerfiðleika atvinnuvej;anna. Þetta vissu forystumenn Alþýðu- sambands íslands jafn vel og allir aðrir, enda gerðu margir þeirra ráð fyrir því þegar á sl. sumri, að ríkisstjórnin kæmist ekki hjá því að skerða gildandi kjarasamninj;a þej;ar kæmi fram á veturinn. Forystumenn Alþýðusambandsins mótuðu kröfur fyrir samningagerð- ina á sl. vori og sumri, sem voru í engu samræmi við greiðslugetu atvinnuveganna eða greiðsluþol þjóðarbúsins. Þeir keyrðu þessar kröfur fram af fullkomnu ábyrgðarleysi. Vissulega má sejya, að yfirlýsingar Ólafs Jóhannessonar hafi hjálpað þeim til þess oggefið þeim þá afsökun upp í hendurnar, að þeir gætu ekki samið um minna en það sem einn af helztu forystumönnum ríkisstjórnarinnar hafði opinberlega lýst yfir, að væri eðlilegt og sjálfsagt. Eitt af meginmarkmiðum Alþýðusam- bandsins með þeSsari samningsgerð var að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum. Alþýðusambandinu tókst ekki að koma henni frá áður en kjörtímabili hennar lauk, en Alþýðusambandinu tókst að hafa þau áhrif á þróun efnahagsmála, að ríkisstjórnin fékk ekki traust kjósenda á ný. Með þessum oröum er ekki sagt, að hinir lægstlaunuðu séu ofsælir af sínum launum í þeirri óðaverðbólgu, sem við búum við. Verðbólgan fer illa með marga, en hún fer verst með láglaunafólkið. Þeir, sem tala um kjör láglaunafólks, ættu að hafa í huga, að bætt kjör láglaunafólks umfram aðra hefur gengið eins og rauður þráður í gegnum kjarastefnu ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar frá upphafi, en aðstæður innan Alþýðusambands íslands hafa allan tímann og raunar miklu lengur verið á þann veg, að þeir hópar innan þess, sem hærri hafa launin, hafa veriö ófáanlegir til þess að minnka bilið milli sín og hlnna lægstlaunuðu. Þess vegna hafa kjarabætur til láglaunafólks nær alltaf farið ú£ í launakerfið og komið hinum betur settu til góða og meira en það. Nú er talað um að ríkisstjórnin eigi í samráði við for.vstumenn þingflokka að ábyrjyast greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði til þess að halda frystiiðnaðinum gangandi. Öllum er Ijóst, að í því felst engin lausn. Með því að taka slíka ákvörðun eru stjórnmálaflokkarnir einungis að ákveða að prenta meira af peningaseðlum, sem munu stuðla að enn meiri verðbólgu. Vandinn vex en minnkar ekki. Spurningin er sú, hvort ekki er orðið tímabært, að við sem þjóð horfumst í augu við afleiðingar eigin gerða og að Alþýðusamband íslands, Alþýðubandalag og Alþýðufiokkur standi þjóðinni reikningsskil gerða sinna. Þessir þrír aðilar bera mesta ábyrgð á þeirri rekstrarstöðvun frystihúsa, sem við blasir. Framundan eru launahækkanir 1. sept. og 1. des. Aiþýðusam- band íslands hefur haldið því fram, að ekki megi hreyfa við kjarasamningum. Er ekki orðið tímabært, að forystulið Alþýðusam- bandsins upplýsi þjóðina og þá félagsmenn sína um það, hvernig halda á atvinnuvegunum gangandi með kjarasamningunum í gildi og stórfelldum launahækkunum 1. sept. og 1. des.? Er ekki orðið tímabært að Alþýðusambandið upplýsi hvernig það hugsar sér að ráða bót á þeim vanda, sem nú blasir við í atvinnumálum? Er ekki orðið tímabært, að erkalýðshreyfingin á íslandi verði gerð ábyrg fyrir verkum sínum? Morgunblaðið hefur um langt árabil lagt þunga áherzlu á náið nráð ríkisstjórna við verkalýðssamtökin. En þau skemmdarverk, sem mennur hópur verkalýðsforingja hefur unnið á íslenzku efnahagslífi dðustu 12 mánuðum eru svo augljós og æpandi, að ekki verður undan <ví vikizt að fjalla um þau. Vinstri stjómii Var felld í KR-húsmu við Kaplaskjólsveg Ráðuneyti Hermanns Jónassonar 1956—58 er til þessa eina sam- stjórn þeirra flokka sem nú hafa byrjað stjórnarmyndunarviðræður; Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Ráðuneyti Hermanns tók við af samstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir forsæti Ólafs Thors, en þá stjórnarsam- vinnu rauf Framsóknarflokkurinn vegna ágreinings um efnahagsmál- in, en viöraeður höfðu farið fram milli Alþýðuflokksins og Fram- sóknarflokksins um samstjórn þeirra. Þegar ráöuneyti Ólafs Thors hafði beðizt lausnar 27. mars 1956, ræddi forseti íslands við formenn þingflokkanna hvern um sig og spurði þá hvort þeir gætu myndaö meirihlutastjórn og svöruðu því allir neitandi. Hermann Jónasson lagði til við forsetann Ásgeir Ásgeirsson að Framsóknarflokkurinn myndaði minnihlutastjórn með stuðningi Alþýðuflokksins og ætti sú stjórn að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Að öðrum kosti yrði mynduð utanþingsstjórn til þessa: Forsetinn hafnaði báðum þessum kostum og bað ráðherra að gegna áfram störfum og voru ekki geröar frekari tilraunir til stjórnarmyndunar fyrir kosningarnar. • Hræðslubanda- lagið og Alþýðu- bandalagíö Kosningabaráttan var bæði löng og hörð. Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur höfðu gert með sér kosningabandalag þannig að þeir buðu ekki fram á móti hvor öðrum og skyldu kjósendur Alþýðuflokks- ins kjósa Framsóknarmenn þar sem þeir voru í kjöri og gagnkvæmt. Þetta kosningabandlag gekk undir nafninu „Hræðslubandalagið". Ann- að bandalag kom líka fram til þessara kosninga, þar sem Sósíalistaflokkurinn og nokkrir vinstri sinnaðir menn undir forystu Hannibals Valdimarssonar, sem um þetta leyti var rekinn úr Alþýðu- flokknum, tóku höndum saman og stofnuðu Alþýöubandlagið. Kosningarnar fóru þannig að Alþýðu- bandalagið fékk 8 þingmenn, en Sósíalistaflokkurinn hafði haft 7, Alþýðuflokkurinn fékk 8 þingmenn (6), Framsóknarflokkurinn fékk 17 þingmenn (16) og Sjálfstæðisflokk- urinn fékk 19 þingmenn (21). Alþýðuflokkinn og Framsóknar- flokkinn vantaði því tvo þingmenn til þess aö hafa hreinan meirihluta. (Sem sjá má eru styrkleikahlutföil þessara flokka nú með nokkuð öðrum hætti en var 1956. Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur eru nú sem þá jafnstórir þingflokkar en þingmannatala þeirra að vísu önnur en Framsóknarflokkurinn sem þá var stærri en hinir báðir til samans er nú minnstur þeirra þriggja.) Ljóst var eftir kosningarnar 1956 að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokk- ur þurftu þriðja aðilann til stjórnar- samstarfs. Sjálfstæðisflokkurinn kom ekki til greina eftir það sem á undan var gengið, og hlaut því Hermann Jónasson forsætisráðherra á Albýöusambandspinginu í nóvember 1958. T.v. Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ og félagsmálaráðherra vinstri stjórnarinnar, t.h. Jónas Haralz efnahags- ráðunautur. Hvað segja hæstu skatt- greið- endur? Leitað álits skatthæstu aðila á Norðurlandi eystra, Vest- fjörðum og í Vestmannaeyjum Skattskrár fara nú að koma fram víðsvegar um landið. Úegar hafa verið birtar í Morgunbiaðinu skrár yfir hæstu gjaldendur í þremur umdæmum. á Norðurlandi eystra, á Vestfjiirðum og í Vestmannae'yjum. Morgun- blaðið leitaði álits hæstu skatt- greiðenda í hverju umdæmi fyrir sig á sköttunum að þessu sinni. og ræddi bæði við skatthæstu einstakiinga og fulltrúa skatthæstu fyrir- tækja. Skattskráin spegl- ar síður en svo núverandi ástand „Það er síður en svo, að þessi skattskrá spegli ástandið eins og það er nú,“ sagði Jóhannes G. Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Ishúsfélagi Isfirðinga hf. sem er hæsti skattgreiðandi á Vestfjörð- um að þessu sinni. „Þessi gjöld spegla afkomu okkar í fyrra, en nú er orðið bullandi tap á rekstrinum, sérstaklega eftir 1. júlí. Þar koma til hækkanir á launum og fisk- verði, auk þess sem 11 prósent detta út úr viðnámsverði verðjöfn- unarsjóðs. Veiði hjá okkur nú hefur að vísu verið mjög jöfn og þokkaleg." Ishúsfélag Isfirðinga greiðir í jyöld í ár 48 milljónir og 438 þúsund. Höfum meiri áhyggjur af öðru en sköttunum „HLJÓÐIÐ er alltaf gott hjá okkur" sagði Hjörtur Hermanns- son yfirverkstjóri hjá Fiskiðjunni hf. sem er skatthæsta fyrirtækið í Vestmannaeyjum að þessu sinni. En hann bætti við: „Það þýðir ekkert annað en að taka sköttun- um eins og þeir eru, — við höfum miklu meiri áhyggjur af öðru en þeim.“ „Hér er töluvert mikið að gera nú“ sagði Hjörtur. „En við eigum í miklum rekstrarörðugleikum eins og öll fyrirtæki í þessari grein. Við höfum miklu meiri áhyggjur af þeim en þessum sköttum, þá verðum við bara að bera eins og aðrir.“ Alls greiðir Fiskiðjan 19 millj- ónir 881 þúsund krónur í skatta þetta ár. Fjórir stærstu skatt- greiðendur í Eyjum í ár eru fiskvinnslustöðvar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.