Morgunblaðið - 20.07.1978, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.07.1978, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 20. JULÍ 1978 35 urum áfram ÞRÓTTUR sigraði KR 3-2 í þóíkenndum baráttuleik á Laugardalsvellinum í gærkvöldi, ok hefur þar með tryggt sér sæti í fjögurra liða úrslitum í bikar- keppni KSÍ. Það var Halldór Arason sem skoraði sigurmarkið með laglegum skalla á marka- mínútunni miklu 43. mínútu í síðari hálfleiknum. Ilafnaði knötturinn efst í samskeytum marksins. Fyrri hálfleikur var ekki vel leikinn hjá liðunum í gærkveldi, allar sendingar voru tilviljana- kenndar og mikið reynt af lang- spyrnum. Mikil barátta var samt hjá báðum liðum. Fyrsta mark leiksins kom á 38. mínútu. Sverrir Herbertsson sendi knöttinn lag- lega utan af kantinum á Sigurð Indriðason sem var óvaldaður við miðja vítateigslínuna, tók Sigurð- ur knöttinn laglega niður með brjóstinu og skaut síðan þrumu- skoti út við stöng, sem markmaður Þróttar réði ekki við. Var þetta ljómandi laglega gert hjá Sigurði. En Adam var ekki lengi í paradís. Markamínútan var á næsta leyti, og hana nýttu Þrótt- arar sér til hins ýtrasta. Eftir hornspyrnu frá vinstri myndaðist þvaga við mark KR-inga, eftir mikið spark og læti inn við markteig hrökk knötturinn út fyrir vítateiginn, þar sem Jóhann Hreiðarsson var fyrir og var hann ekki að tvínóna við hlutina, skaut þrumuskoti og skoraði laglega. Staðan í leikhléi var því 1—1. Ekki voru liðnar nema rétt 10 mínútur af síðari hálfleiknum er Sverrir Herbertsson tók mikla einleikssyrpu upp miðju vallarins, og rétt utan vítateigs skaut hann frekar lausu skoti að því er virtist, og í netinu hafnaði boltinn. Þetta skot hefði markmaðurinn átt að ráða við. Á 70. mínútu leiksins náðu Þróttarar góðri sókn, Jóhann Hreiðarsson var að elta knöttinn rétt utan markteigsins er Magnús Guðmundsson markvörður KR hljóp út og brá Jóhanni illa. Valur Benediktsson dæmdi réttilega vítaspyrnu. Var þarna um algert óþarfa brot að ræða hjá Magnúsi. Páll Ólafsson tók vítaspyrnuna fyrir Þrótt og skoraði af öryggi. Nú sóttu liðin ó báða bóga en lítið var um marktækifæri. Allt útlit var fyrir að leikurinn yrði fram- lengdur. En þessi umtalaða markamínúta lætur ekki að sér hæða. Á 43. mínútu síðari hálf- leiksins fengu Þróttarar langt innkast, knötturinn barst inn í vítateiginn, KR-ingar náðu að skalla knöttinn en ekki betur en svo að hann hrökk fyrir markið, og Halldór Arason kom á fleygiferð og skallaði glæsilega í netið. Með þessu marki innsiglaði Halldór sigur Þróttar og áframhald í bikarkeppninni. - Þr. Þróttur - KR 3:2 • Stelán Örn Sigurðsson fagnar marki Sverris Herbertssonar. ENN VINNUR VALURIEYJUM SIGURGANGA Valsmanna í knatt- spyrnunni heldur áfram og í gær- kvöldi bætti liðiö enn einni skraut- fjöður f hattinn er pað bar sigurorð af ÍBV í 8 liöa úrslítum og var pó leikiö í Eyjum. Valur sigraði 2—0 og stefnir nú aö sigri bæði í deild og bikar. Leikurinn í Eyjum í gærkvöldi var hinn fjörugasti og á köflum mjög vel leikinn af báöum liöum. Góð knatt- spyrna, mikið af marktækifærum og IBV - Valur 0:2 p. • • Sveinn Skúlason Blikamarkvörður bægir hættunni frá með tilþrifum miklum. Og hann hélt hreinu. er UBK lagði Fram að velli í ga'rkvoldi. Ovæntur Blikanna Breiðablik - Fram 2:0 í FYRSTA skipti í sumar fóru áhangendur Breiðabliks ánægðir heim af vellinum eftir að peirra menn höfðu unnið Fram í bikar- keppninni 2:0 á Fífuhvammsvellin- um. Þetta var fyrsti sigur Breiða- bliks á heimavelli í sumar. Þar með eru Blikarnir komnir í 4-liða úrslitin í bikarkeppni KSÍ og Þeir eru aðeins feti frá úrslítunum. Þaö var blíðuveður í Kópavoginum í gærkvöldi, glaöasólskin og ekki hægt að hugsa sér betra knatt- spyrnuveöur. Það var fjölmennt á vellinum en áhorfendur fengu ekki að sjá góða knattspyrnu fyrir aurana, því miöur. Leikurinn var mjög slakur, mest þóf á miðjunni og framlínur beggja liöa voru ákaflega bitlausar. Segja má aö Breiöablik hafi skoraö úr þeim tveimur tækifærum, sem liðið fékk í leiknum. Fyrra markið kom á 8. mínútu og var það hreint gjafamark. Segja má aö þessi sóknarlota hafi verið sú fyrsta, sem Breiðablik fékk í leiknum og fram að markinu hafði Fram sótt stöðugt. En Blikarnir náðu skyndisókn og Gísli Sigurösson fékk boltann, iék laglega á vörn Fram og skaut síöan að markinu. Boltinn fór í bakið á Sigurbergi Sigsteinssyni og skoppaði af honum í markiö framhjá Guð- mundi markveröi, sem var búinn að henda sér í gagnstætt horn. Eftir markið sóttu Framararnir áfram og tvisvar voru þeir nærri því aö skora en Sveinn Skúlason var mjög öruggur í marki Breiöabliks og varði hann allt sem á markið kom, m.a. erfið skot frá Sigurbergi og Pétri Ormslev. Seinni hálfleikurinn var mjög þóf- kenndur. Sóknarmenn beggja liða voru ákaflega daufir og þaö var helzt að sjá á framlínumönnum Fram að þeir nenntu þessu ekki. Varnirnar höfðu því yfirhöndina og mörkin komust sjaldan í hættu. Næst því aö skora var Rafn Rafnsson, sem átti lúmskt skot í bláhorn marksins en Sveinn sá viö honum og varði mjög vel. Seinna mark Breiðabliks kom á lokamínútu leiksins. Jón Orri Guð- mundsson, sem komiö hafði inn sem varamaður, lék á fullu í átt að marki Fram. Þegar hann var kominn inn í vítateig gaf hann góöa sendingu til hægri á Hákon Gunnarsson, sem kom á fullri ferö og negldi boltann í netið. Blikarnir léku ekki góöa knatt- spyrnu aö þessu sinni en þeir börðust mjög vel, voru miklu ákveðn- ari í boltann og svo nýttu þeir færin sín, en þaö skipti auövitaö sköpum. Vörnin var sterkasti hluti liðsins með miöveröina Einar og Benedikt sem beztu menn. Sveinn var einnig mjög góöur og sömuleiöis áttu þeir góöan leik Sigurjón Rannversson og Hákon Gunnarsson. Framliöiö lék einn sinn léiegasta leik í sumar. Vörnin var sterk en miöjan slök, aö undanskildum Ás- geiri Elíassyni og framlínan gjörsam- lega bitlaus. Hákon Gunnarsson, Knútur Krist- insson og Gústaf Björnsson voru bókaðir í leiknum. — SS. glæileg tilþrif markvaröanna. Ekki er aö efa, aö Valur á nú aö skipa besta liöinu og þaö þarf miklu meira en heppni til að ná þeim árangri sem liöiö hefur náö aö undanförnu. Valsliöiö er skipaö mjög jafngóöum leikmönnum og í liðinu er mikill baráttuvilji og sannkölluö leikgleöi. Enn einu sinni varð slakur varnar- leikur Eyjaliöinu aö falli. Bæöi mörk Vals komu eftir hrikaleg varnarmis- tök, þar sem öll dekkun í vörninni rauk út í veður og vind, þegar sóknarmenn Vals brunuöu upp völlinn. Fyrra mark Vals kom á 20. mínútu fyrri hálfleiks, þá brunaöi Jón Einarsson upp kantinn, gaf fyrir og þar var Ingi Björn gjörsamlega einn og óvaldaöur í ákjósanlegu færi og hann skallaði í horniö niöri, óverjandi fyrir Ársæl markvörð. Seinna mark Vals kom aöeins 6 mínútum síðar og enn var þaö Jón Einarsson sem gaf fyrir, en nú var það Guðmundur Þorbjörnsson sem stóö á nákvæmlega sömu torfunni og Ingi Björn fyrr, hann sneri auðveld- lega á Friöfinn og skoraöi með föstu skoti. Eyjamenn voru nærri því aö minnka muninn. Tómas Pálsson átti glæsiskot í þverslá úr aukaspyrnu og skömmu síðar varöi Siguröur Haraldsson glæsilega í horn gott skot Tómasar. Valsmenn skoruöu sitt þriöja mark, aö því er virtist gott mark, en línuvörður dæmdi rang- stööu. Sigurður Haraldsson varði síöan hreint stórkostlega geysifasta aukaspyrnu Arnars Óskarssonar. Valsmenn drógu sig nokkuö aftur í seinni hálfleik, greinilega ánægöir með fenginn hlut. Sóttu Eyjamenn töluvert meira í seinni hálfleik, en gekk sem fyrr erfiólega aö skapa sér góö færi, enda komu Valsmenn vel aftur og voru snöggir aö dekka upp. Valsmenn notuöu síöan snöggar stungusendingar fram vöilinn og geröu þeir Jón Einarsson og Guð- mundur Þorbjörnsson oft og tíöum usla í óöruggri vörn ÍBV, en Ársæll Sveinsson lokaði marki sínu meó góöri markvörslu. Valsvörnin var aftur á móti hin öruggasta og Sigurður Haraldsson kóngur í ríki sínu í vítateignum. Lauk leiknum því með sigri Vals, 2—0. Eyjamenn léku á köflum ágætis knattspyrnu, en varnarleikurinn er mikill höfuðverkur hjá þeim. Þá hefur hinum snöggu og leiknu framherjum liösins gengiö erfiölega aó láta boltann rata í netamöskvana að undanförnu. Besti maöur liösins í gærkvöldi var Sveinn Sveinsson, sem baröist óhemju vel á miðjunni. Þá átti Tómas Pálsson góðan leik. Um Valslióió þarf ekki aö fjölyrða meira en áður er getið, árangur liðsins talar sínu máli. Þeirra leið liggur upp á við og ekkert liða okkar hefur yfir meira hugmyndaflugi í leik að ráöa. Besti maður liðsins í gærkvöldi var tvímælalaust Siguröur Haraldsson, mjög góöur og traust- vekjandi markvöröur. Einnig átti Jón Einarsson ágætan leik. Dómari var Þorvaröur Björnsson og dæmdi vel. — hkj. ÞRENNUR HJÁ PÉTRI OG MATTA LOKSINS kom aó Því að Einherji tapaði leik og pað gerðist er Þeir fengu íslandsmeistarana frá Akranesi í átta liða úrslitum Bikar- keppninnar. Akurnesingar sigruöu Einherja með 6—1. Jafnræöi var meö liöunum tyrsta stundarfjórð- unginn, en síöan tóku Skagamenn leikinn í sínar hendur, en allt kom fyrir ekki, boltinn vildi ekki í netið. Annað hvort skutu Þeir framhjá eða yfir, eöa Þá að Sveinn Antoníusson varöi af stakri snilld, en Þó aldrei eins og Þegar Matthías Hallgríms- son skallaði aö marki eftir horn- spyrnu, en Sveinn fleygði sér niður eins og köttur og varði meistara- lega. Einherjar vöröust vel á Þess- um tíma og áhorfendur voru svo sannarlega með á nótunum. Það var svo á síðustu mínútum fyrri hálf- leiks, að Skagamönnum tókst að skora, Pétur Pétursson komst einn inn fyrir og skoraöí af öryggi, 1—0 í hálfleik. Á 12. mínútu s.h. skoraöi síðan Pétur örugglega annað mark ÍA eftir laglega sendingu frá Árna Sveins- syni. Á 17. mínútu skoraði svo Matthías af stuttu færi eftir horn- spyrnu og tveimur mínútum síðar var Matti aftur á feröinni eftir undirbún- ing Péturs Péturssonar. Matthías fullkomnaöi síöan þrennuna á 31. mínútu, eftir að Skagamenn höfðu splundraó vörn Einherja mjög skemmtilega, 5—0. Á 39. mínútu skoraði síöan Pétur þriöja mark sitt og sjötta mark ÍA, eftir aö Karl Þórðarson, sem átti mjög góöan leik, Framhald á hls. 20 Einherji - ÍA 1: Gullskalli Hall- dórs kom Þrótt-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.