Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978
39
hans: „Snúið mér út að gluggan-
um, svo ég sjái blómin og trén.“ Á
þessum erfiða tíma í lífi Höddu og
Gunnars sendum við starfsstúlk-
urnar í Reykjadal þeim ókkar
innilegustu samúðarkveðjur, en í
allri sorg sinni geta þau samt verið
glöð yfir því að hafa verið trúað
fyrir svona yndislegum dreng.
Tómleiki og sársauki er okkur í
sinni nú við fráfall okkar kæra
vinar, en andi hans svífur yfir öllu
hér í Reykjadal, og starfið heldur
áfram.
Andrea og starfsstúlkurnar í
Reykjadal.
Ég vil aðeins í örfáum orðum
minnast látins vinar og elskulegs
drengs, Hjartar Þórs Gunnarsson-
ar, er lést á Landsspítalanum þann
26. júlí eftir langa baráttu við
harðan sjúkdóm. Ég kynntist Hirti
fyrst er ég hóf kennslu við
Öskjuhlíðarskóla haustið 1977, en
þar var Hjörtur nemandi um
nokkurra ára skeið. Þótt kynni
okkar yrðu ekki löng verða þau
mér ætíð ógleymanleg og lær-
dómsrík.
Hjörtur var hjartahlýr og glað-
vær nemandi sem miðiaði birtu og
yl til allra sem umgengust hann.
Hann var í eðli sínu félagslyndur
drengur enda voru samskipti hans
og skólafélaga til fyrirmyndar.
Þrátt fyrir vanheilsu sína tókst
honum að ná undraverðum
árangri í námi og allt sem hann
gerði bar vott um ótrúlegan
viljastyrk og vandvirkni.
Ég votta foreldrum hans og
bræðrum samúð mína og bið Guð
að styrkja þau i sorg þeirra, einnig
hjónunum í Selbrekku 32 Kóp. en
þau báru ávallt mikla umhyggju
fyrir honum.
Guð blessi minningu góðs
drengs.
Dóra Guðrún Kristinsdóttir.
Einar B. Sigurðs-
— Minning
son
í dag fer fram útför Einars B.
Sigurðssonar iðnrekanda. Hann
varð bráðkvaddur aðfararnótt
þriðjudagsins 25. f.m. Hann hafði
ekki áður látið þess getið, að heilsu
hans væri að neinu leyti ábóta-
vant. Kom því fráfall hans öllum
er til þekktu mjög á óvart.
Einar var fæddur 11. september
1911, sonur hjónanna Sigurðar B.
Runólfssonar forstjóra frá Norð-
tungu í Borgarfirði, og Jóhönnu
Rögnvaldsdóttur frá Lambanes-
reykjum, Fljótum í Skagafirði.
Systkini átti hann þrjú: Elínu,
Viðar og Sverri, sem eru öll á lífi.
Sigurður er látinn fyrir mörgum
árum, en Jóhanna lést háöldruð í
janúar s.l. Það kom fram hjá
Einari drenglyndi hans við móður
sína, hve oft hann gerði komur
sínar til hennar, enda hafði alla
tíð verið einkar kært á milli
þeirra.
Kynni okkar Einars hófust árið
1931, er hann gerðist félagi í
Karlakór K.F.U.M. (síðar Fóst-
bræður). Það tókst fljótlgga með
okkur góður kunningsskapur og
síðar vinátta, sem alla tíð hefir
haldist með okkur. Einar hafði
mikla og fagra söngrödd. Ekki var
hann búinn að vera lengi í
kórnum, þegar honum var falið
hlutverk einsöngvara. Það var ekki
vandalaust að taka við því af
forverum hans, þeim Símoni Þórð-
arsyni og Óskari Norðmann undir
stjórn hins góðkunna söngstjóra
Jóns Halldórssonar. Minnisstæður
er mér söngur hans í sænska
Haraldur Kristjánsson
stöðvarstjóri-Minning
Fa-ddur 22. júní 1911.
Dáinn 14. júlí 1978.
Foreldrar Haraldar voru hin
mætu hjón, Guðrún Ólafsdóttir,
sem lést háöldruð 13. febrúar s.l.
og Kristján Kristjánsson, hafn-
sögumaður, sem öllum er
ógleymanlegur, er honum kynnt-
ust. Haraldur var elstur 5 systk-
ina, en 2 systkina hans létust í
æsku. Á yngri árum stundaði
Haraldur sjómennsku, fyrst með
föður sínum, síðan mörg ár á
samvinnufélagsbátunum og var
eftirsóttur vélstjóri.
Eftir að sjómennskuferli hans
lauk gerðist hann vélstjóri við
Rafveitu ísafjarðar og síðar
stöðvarstjóri, þar til yfir lauk.
Engum, sem til ísafjarðar koma
og lagt hafa leið sína í Engidalinn
og skoðað hafa rafstöðina þar, sem'
reist var 1936, líður úr minni sú
snýrtimennska, sem blasir við,
þegar inn í þessa gömlu stöð er
komið. Þar er allt skínandi fágað,
engu líkara en að allt sé nýtt, enda
var hún stolt Haraldar og yndi og
hún átti hug hans allan.
Mér er í minni, er ég hitti
tengdaföður minn í fyrsta sinn,
hvað hann og hans góða fólk tók
mér vel. Hann var óþreytandi við
að sýna mér alla þá fallegu staði,
sem hér eru að sjá og hann var
héill hafsjór af sögum og sögnum
um staði og kennileiti. Betri
leiðsögumann á ferðalagi var ekki
hægt að hugsa sér. Haraldur var
sérstaklega barngóður maður og
hændust börn að honum.
Yokohama
vörubílahjólbaröar
á mjög hagstæöu
veröi.
Véladeild
Sambandsins
HJÓLBARÐAR
BORGARTÚNI 29
SÍMAR 16740 OG 38900
Hann kvæntist Ásgerði Einars-
dóttur og eignaðist með henni son,
Einar Loga, hljómlistarmann og
rithöfund. Þau slitu samvistum.
Síðar á lífsleiðinni bjó hann með
Guðbjörgu Jónsdóttur, er var hans
önnur hönd við framleiðslustörfin.
Hún er framúrskarandi velvirk og
dugleg kona og hefir staðið
heilshugar við hlið hans. Ég bið
henni styrks nú, þegar hún hefir
misst förunaut sinn og bezta vin.
Veri minn gamli góði vinur svo
kært kvaddur af mér og mínum.
Bjarni Jónsson.
SKYNDIMYNMR
laginu „Jag drömde", er við
sungum það í Almannagjá á
Þingvöllum, með hamravegginn að
bakhjarli.
Vandaðar litmyndir
í öll skírteini.
barna&fþlsk/ldu-
Ijósmyndir
/NJSTURSTRÆTI6 3MI12644
Hann kvæntist Kristínu
Magnúsdóttur árið 1941, en missti
hana alltof fljótt og tregaði hana
alla tíð. Son eignaðist Haraldur
áður en hann kvæntist, Pétur, og
var samband þeirra í milli ætíð
gott, en hann ólst upp hjá föðurafa
sínum og ömmu, sem hann mat
mikils og leit ætíð á sem sína
foreldra. Kristín og Haraldur ólu
upp bróðurdóttur Haraldar, Ástu
Dóru, þar til Kristín lést.
Haraldur var búinn að ákveða
að fara í ferðalag til Vestmanna-
eyja og skoða hinar fögru Eyjar.
En enginn má sköpum renna. Nú
er hann farinn í annað ferðalag og
við sem eftir stöndum vitum, að
þar verður tekið vel á móti honum.
Hvíli hann í friði.
Tengdadóttir.
%
LANDSLIÐIÐ í BRANSANUM SKEMMTIR í
BRAUTARTUNGU LOGALANDI
LUNDAREYKJADAL LAUGARDAGINN
FÖSTUDAGINN OG SUNNUDAGINN
4. ágúst 5. og 6. águst
GÓÐ TJALDSTÆÐI Á BÁÐUM STÖÐUM
BALDUR
BRJÁNSS.
STÍGUR í
BETRI FÓTINN
MEÐ
BRELLUM OG
RAKVÉLA-
BLÖÐUM Á
SUNNUDAG
KNATTSPYRNULEIKUR A EYRINNI FYRIR
NEÐAN REYKHOLT Á LAUGARDAG KL. 4-5
LANDSLIÐIÐ MÖTI REST • KOMIÐ EF PIÐ ÞORIÐ
DANSLEIKIR
HELGARINNAR
SÆTAFEROIR FRÁ AKRANESt • BORGARNfeSl OG B.S.Í., REYKJAVÍK
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ KOMA í
BORGARFJÖRÐINN HEILLIN
MUNIÐ SUND
OG GUFUBAÐ
í REYKHOLTI
- FRÁBÆRT -
Auk alls þessa
kemur yngsta og
efnilegasta
hljómsveitin í dag
fram á laugardags
kvöld. Ævar.
U.M.S.B,