Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 48
aik;i/vsin<;asimínn er: 22480 jrcgisiilrlftfrifr Verzliö í aérverzlun meö litmjónvörp og hljómUeki? ^BÚOIN SkiphoÍlT'Í9, sími 29800 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 — ÉG TEL að staða okkar sé mjö« sterk og að það komi á daginn að þessi riftun sé algjörlega út í hött. Við teljum hana óvenjulega og jafnvel einstæða og mér finnst fréttatilkynning stjórnar V.B. um að fjárhagslegt hrun sé framundan svívirðileg, því ef hrun verður álít ég það verða af þeirra völdum, sagði Sigurður Jónsson forstj. Breiðholts hf. um riftun verksamn- ingsins milli stjórnar Verkamanna- bústaða i Reykjavík og Breiðholtf hf. — Spurningin er um það hvort við getum staðið þetta áhlaup af okkur, sagði Sigurður einnig, við höfum tvo lögfræðinga sem eru reiðubúnir að ræða þessi mál áfram, en við vonum að þetta verði ekki dómstólamál, því fjárhagsgeta mín er ekki slík að ég geti staðið í málaferlum við aðila, sem virðist hafa nægilegt fjármagn til þess. Ég er reiðubúinn að semja en það verða ekki neinir nauðungar- samningar. Við teljum stjórn V.B. skýlaust verða skaðabótaskylda og höfum sent þeim bréf þar að lútandi. Um veð fyrirtækisins sagði Sig- urður að blásið hefði verið út hvernig þau mál stæðu, — það getur ekki verið um endalaus veð að ræða og rekja má það að nokkru til framkvæmdaleysis að þau skuli ekki hafa verið losuð, sagði Sigurður Jónsson, og þegar búið er að draga frá það sem Rafha skuldar okkur þá er skuld okkar við Sementsverk- smiðjuna um 25 milljónir. En það má nefna líka að við höfum ekki enn fengið að fullu greitt fyrir það sem unniö hefur verið við verkamanna- bústaðina og munum setja þá reikninga í innheimtu. Að lokum sagði Sigurður að fundir með stjórn V.B. hefðu staðið yfir á fimmtudag og föstudag, og að þeir væru reiðubúnir að ræða áfram við stjórnina hvenær sem væri. Sjá nánar bls. 47i „óvíst hvort greiða þarf trygginguna.“ Það hefur aukizt mjög á undanförnum árum að siglingakappar víðs vegar að úr heiminum hafa „rennt i hlað“ á íslandi á fleyjum sínum og hér er mynd af einni sem kom til Reykjavíkur í vikunni frá Main í Bandaríkjunum á leið til Englands. Skútan bíður nú eftir hagstæðum byr, en hún mun hafa viðkomu í Vestmannaeyjum. Ljósmynd Mbl. Ól.K.M. Alþýðuflokkurinn hlýtur að verða að svara VMSÍ / — segja Steingrímur Hermannsson og Olafur Ragnar Grímsson VART mun koma í ljós fyrr en eftir morgundaginn hver áhrif ályktunar Verkamannasambandsins, um að Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag taki aftur upp viðræður, verða á yfirstandandi viðræður Sjálfstæðisflokksins, Al- þýðuflokksins og Fram- sóknarflokksins. Geir Hall- grímsson formaður Sjálf- Starfsmenn á landbúnaðarsýningunni við skepnuhirðingu. Landbúnadarsýningin: Rúmlega 3000 gestir fyrsta daginn MIKILL f jöldi gesta kom á landbúnaðarsýninguna á Selfossi fyrsta sýningar- daginn að því er Sigurður Jónsson tjáði Mbl. og voru gestir yfir 3000. I gær- morgun, þegar opnað var kl. 10, var strax mikill straumur sagði Sigurður og bjóst hann við að sýningin yrði vel sótt yfir helgina, en hún verður einnig opnuð kl. 10 í dag, en kl. 14 á morgun. Meðal dagskráratriða í dag er kynning á starfsemi Land- græðslu ríkisins og er ráðgert að flugvél hennar, Páll Sveinsson, fljúgi yfir sýningarsvæðið kl. 15:30 og verður e.t.v. dreift úr henni sérstökum lukjcumiðum, ef veður leyfir. Þá verður tízkusýning kl. 15 og aftur kl. 21. Hestaleiga verður starfrækt kl. 16:30 til 19:30 og dregið verður í verðlaunagetraun kl. 17:30 og kl. 21:30. A hrossasýningunni kl. 16 verður m.a. afkvæmasýning og sýnd afkvæmi Léttis frá Vík, Leira frá Reyni og Sörla frá Hvítárvallaholti, 3 stóðhestar, Logi frá Kirkjubæ, Blær frá Hellu og Högni frá Sauðárkróki og 14 hryssur. Þá verður og sýndur happdrættishesturinn Kópur frá Hvassafelli. Sigurður Jónsson sagði að áherzla væri lögð á hestaleiguna, sérstaklega með tilliti til barnanna, að þar gætu þau fengið tækifæri til að bregða sér á bak. Nokkrir hópar hafa komið á sýninguna, m.a. bændur úr Húnavatnssýslu og kvenfélags- konur frá Skagafirði og sagði Sigurður að fleiri hópar hefðu boðað komu sína m.a. norskir bændur og aðrir útlendingar. stæðisflokksins, sem for- ystu hefur um þessar við- ræður, vildi ekki leggja mat á það að svo stöddu hver áhrif ályktunarinnar yrðu en Steingrímur Her- mannsson, annar fulltrúi Framsóknarflokksins í við- ræðunum, kvaðst álíta að ályktunin gæti gjörbreytt þeim grundvelli sem yfir- standandi stjórnar- myndunarviðræður hófust á. „Það er alveg ljóst að þessi ríkisstjórn, ef úr yrði, verður eins og allar aðrar slíkar að hafa náið samstarf við verkalýðshreyfing- una, en þarna hefur veigamikill hluti verkalýðshreyfingarinnar tjáð sig vilja skoða betur aðra möguleika," sagði Steingrímur en tók fram að þetta væri fyrst og fremst hans persónulega skoðun þar sem ekki hefði verið fjallað um þessi nýju viðhorf innan þing- flokksins. Steingrímur sagði enn- fremur, að eins og getið hefði verið í Morgunblaðinu hefðu þeir Al- þýðuflokksmenn mætt til viðræðn- anna í fyrradag með takmarkað umboð að því er virtist og sagði Steingrímur, að honum fyndist að næsta skrefið hlyti að vera að Alþýðuflokksmenn svöruðu ályktuninni frá Verkamannasam- bandinu áður en lengra yrði gengið í viðræðunum. í sama streng tók Ól&fur Ragnar Grímsson, formaður fram- 291 hvalur veiddur ALLS hefur nú vciðzt 291 hvalur það sem af er hvalvertíðinni, og eru þá taldir með hvalir þeirra þriggja báta sem voru á innleið í gærdag og liðna nótt. Skiptast hvalirnir þannig að langreyðar eru 206, 84 búrhvalir og 1 sandreyður. Veður hefur verið nokkuð óhagstætt síðustu daga þoka og súld. kvæmdastjórnar Alþýðubanda- lagsins. Hann kvað Alþýðubanda- lagsmenn telja, að nú þyrftu fyrst og fremst að koma fram viðbrögð frá Alþýðuflokknum, sem nú ætti í stjórnarmyndunarviðræðum við aðra tvo flokka. Mjög óvenjulegt væri og nánast óhugsandi, að flokkurinn gæti tekið upp á sama tíma viðræður við þriðja flokkinn, sem stæði utan við þessa stjórnar- myndunartilraun, svo að viðræður milli flokkanna tveggja kæmu naumast til greina fyrr en botn væri fenginn í yfirstandandi við- ræður hinna flokkanna þriggja og sá botn hlyti að vera að ekki kæmi til stjórnarmyndunar þeirra. Benedikt Gröndal formaður Al- þýðuflokksins sagði í samtali við Mbl. að ályktun VMSÍ hefði borizt inn á fund í þingflokki Alþýðu- flokksins á föstudag og þá aðeins verið rædd almennt. Hins vegar væri fyrirhugaður þingflokksfund- ur á mánudaginn að loknum viðræðunum með fulltrúum Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks og yrðu þá þessi nýju viðhorf rædd frekar. Sjá viðbrögð verkalýðs- hreyfingarinnar bls. 2. Bretaprinsi gengur vel KARL Bretaprins, sem nú er við veiöar í Hofsá í Vopnafirði, fékk í fyrradag 5 laxa og hefur hann yfirleitt fengið millí 5 og 7 laxa á dag skv. upplýsingum er Mbl. fákk í veiðihúsinu við Hofsá. Veður í Vopnafirði hefur ekki veriö hið bezta til veiða aö pví er veiðimenn eystra sögðu, sólríkt og nokkur strekkíngur, en veiðin samt veriö saamileg. Er reiðubúinn að semja - en enganauð- ungarsamninga - segir forst jóri Breiðholts h.f. *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.