Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978
17
Götumynd frá Köln
Fyrir stuttu var fréttamönn-
um gefinn kostur á aö skjótast
meö einni af vélum Arnarflugs
til Diisseldorf og kynnti Hall-
dór Sigurösson sölustjóri
starfsemi félagsins fyrir frétta-
mönnum. Var haldið af staö
snemma morguns og flogiö til
Díisseldorf þar sem gafst
kostur á aö fá örlitla nasasjón
af landinu. Var m.a. fariö í
skoöunarferö til Kölnar, þar
sem getur aö líta hina öldnu
dómkirkju. Endaö var á því aö
koma viö í brugghúsi nokkru,
Verige í Altstadt í Diisseldorf,
og haldiö heim laust eftir
kvöldmat. Þetta var því mjög
snögg ferö.
/
Halldór Sigurðsson sagöi aö
Arnarflug heföi oröiö aö
byggja afkomu sína í þessi tvö
ár á leiguflugi þar sem stjórn-
völd heföu synjað öllum um-
sóknum félagsins um áætlun-
arflug. Hann sagöi aö félagið
heföi annazt reglubundiö flug
fyrir þýzkar feröaskrifstofur frá
Dússeldorf til íslands og er-
lendum feröaskrifstofum veriö
boöin sú nýjung aö fara
Norðupólsflug með viökomu á
Svalbarða.
— Þessar feröir hafa vakið
mikla athygli, sagöi Halldór, og
sannað gildi sitt. Nefna má aö
vesturþýzka sjónvarpiö sýndi
mynd frá slíkri ferö sem farin
var 24. júní s.l. og erum viö aö
ráögera að halda pólfluginu
áfram á næsta ári. Þaö má
segja frá því til gamans líka aö
flug sem þetta tíökast hinum
megin á hnettinum, yfir Suður-
skautiö.
Um flugvélakostinn er þaö
aö segja aö hann hefur nú
verið endurnýjaöur. Þota af
gerðinni Boeing 720B meö 149
sæti var tekin í notkun í maí á
síðasta ári og ber ttún ein-
kennisstafina TF-VLB og þota,
sem ber stafina TF-VLC, kom í
gagnið í september s.l. Sögöu
flugmennirnir í feröinni aö
þessar vélar heföu gott flug-
þol, kallað „medium long
range“ og gætu þær flogiö
mun hærra en t.d. Boeing 727.
Þeir sögöu einnig aö þetta
væru hinar skemmtilegustu
vélar, og góöir gripir aö fljúga.
Halldór Sigurösson sagöi aö
vegna mikilla verkefna fyrir
erlend flugfélög heföi gengiö
erfiölega aö halda hinum
græna lit félagsins á þotunum.
Sjö mánaöa leigusamningi viö
Kenya Airways er nýlega lokiö
og störfuöu þá í Nairobi milli
20 og 25 íslendingar. Þá hefur
frá því 1. apríl veriö flogið fyrir
Air Malta á ýmsum áætlunar-
leiöum í Evrópu og hafa
starfaö aö því 20 flugliöar.
Vonaöist Halldór til aö því flugi
yröi haldiö áfram eitthvað
frameftir vetri. Ekki kvaö hann
veröa fullbókað í vélarnar á
komandi vetri, en unniö væri
aö því aö hafa næg verkefni.
Sagöi Halldór að mikið fram-
boö væri á leiguvélum aö
vetrarlagi hvarvetna í heimin-
um.
Fyrstu mánuöi þessa árs
fluttu flugvélar á vegum Arnar-
flugs 120500 farþega, og var
mikill hluti þeirra í ferðum milli
staöa erlendis, en allt áriö
1977 fluttu vélar á vegum
félagsins 80.360 farþega.
Starfsmönnum hefur einnig
fjölgaö mikið en nú vinna hjá
félaginu um 100 manns, flug-
liðar, viöhaldsdeild á Keflavík-
urflugvelli, sölufólk erlendis,
og starfsfólk á skrifstofunni aö
Skeggjagötu 1.
Um þessar mundir hefur
Arnarflug yfir aö ráöa 8
flugáhöfnum. Þrír bandarískir
flugstjórar starfa hjá félaginu í
sumar og voru þeir fengnir til
afleysinga þar sem hörgull
hefur veriö á íslenzkum flug-
mönnum meö réttindi á þotur
Arnarflugs.
Aö ööru leyti verður hér ekki
rakin nein feröasaga, því stutt
ferö gerir ekki annað en vekja
forvitnina og löngun til annarr-
ar og lengri dvalar í Dusseldorf
eöa annars staöar viö Rín.
it
í Altstadt í Dusseldorf var staldrað við á útimarkaði og kenndi þar margra grasa.
Útsala — Útsala
Útsalan hefst í fyrramáliö. Kjólar, dragtir, blússur,
pils, 00—80% verölækkun.
Dragtin,
Klapparstíg 37.
ELDHÚS-OG
KLŒÐASKÁPi
Fifu-skáparnir eru ný form sem skapa fjölda möguleika og
'gera innréttingarnar mun aðgengilegri en áður. Auðvelda
einnig endurnýjun og breytingar á eldra húsnæði. Ytri fletir
Fifu-skápa eru spónlagðir með Lamel-spæni, hnotu, eik eða
gullálmi. 1 harðplasti getið þér valið eigin liti.
Fifu-skáparnir eru sérstaklega ódýrir.
Kynnið yður verð og gæði. Leitið tilboða.
SL
JlJA
I
HÖFUM SÝNINGARELDHÚS
KOMIÐ OG SKOÐIÐ
UPPLÝSINGABÆKLINGAR
LIGGJA FRAMMI.
HÚSGAGNAVINNUSTOFA
AUÐBREKKU 53
SÍMI 43820.
BÍLAEIGENDUR, BÍLAMÁLARAR
ÞARF AD BLETTA EÐA SPRAUTA BÍLINN ?
Dupont lökkin LUCITE og IMLAR eru
gæðavara, margreynd og henta
íslenskum staöháttum.
Gefið okkur upp bílategund, árgerð
og litanúmer. Viö afgreiðum litinn
meö stuttum fyrirvara.
í Dupont blöndunarkerfinu eru 7000
litaafbrigði möguleg.
Öll undirefni svo sem grunnar, þynn-
ar og sparsl fást einnig hjá okkur.
Laugavegi 178 simi 38000
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
INILAR*
LUCITE