Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 15 maeralínurnar“ á milli svæð- anna eru alltaf mjög svipaðar að lengd. Stærsta svæðið er á nesi og „landamærin" því hlutfalls- lega stutt og refirnir virðast ekki vilja hafa óþarflega löng „landamæri". — Hve stór er íslenski tófu- stofninn; er hann í hættu sakir veiðiskapar? „Það eru nú ekki til áreiðan- legar tölur um fjölda unninna refa nema frá síðustu tuttugu árum, þannig að það er erfitt að segja til um útrýmingarhættu, en það virðist vera að u.þ.b. 400 pör eignist 4—7 yrðlinga á hverju ári og árlega eru veiddir samtals 1500 refir. Þrátt fyrir sívaxandi tækni við veiðarnar fer veiddum refum stöðugt fækkandi, þannig að mér þætti ekki ósennilegt að eftir svo sem áratug gæti stofninn verið í hættu, verði ekki að gert. Til samanburðar má geta þess að heimskautarefurinn, sem er sú tegund er hér lifir, hefur verið alfriðaður í fimmtíu ár í Sví- þjóð, Noregi og Finnlandi, en hefur ekkert fjölgað þrátt fyrir það, þannig að ljóst er að það verður að fara varlega í það að ganga nærri stofninum." „Það er gott að það komi fram að það getur haft mjög mikla hagnýta þýðingu að rannsaka háttalag heimskautarefsins, með tilliti til þess að í ísári gæti hundaæði hugsanlega borist hingað með honum frá Græn- landi. í Evrópu hefur á undan- förnum árum verið lögð mikil áhersla á rannsóknir á rauðref í sama augnamiði, enda eru refir helstu smitberar hundaæðis." — Nú höfum við nær ein- göngu rætt um refinn, hvernig verður háttað rannsóknum þín- um á villiminknum? „Það er nú fljótlegt að greina frá því, þar sem ég mun beita mjög svipuðum aðferðum við það. í því sambandi hef ég mestan áhuga á að kanna samspil þessara tveggja teg- unda, en vitað er að tófur hafa drepið minka og nú er mikið af tófu í Ófeigsfirðinum en hins vegar lítið um mink. Það er þetta sem ég vil kanna nánar." — Heldurðu að það verði ekki býsna einmanalegt í skammdeg- ismyrkrinu á Ströndunum í vetur? „Ég kvíði því ekki, enda kann ég vel við einveruna. Þegar ég var yngri langaði mig mikið til að verða vitavörður á einhverj- um útkjálkanum. Svo hef ég vissulega félagsskap þarna norður frá, þar sem ég er að ala upp yrðling, sem ég vona að geti auðveldað mér ýmsar rannsókn- ir á háttalagi tegundarinnar." - SIB EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Stjórnmálaviðhorfið • Fulltrúaráö Sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík efnir til fundar miövikudaginn 16. ágúst kl. 20:30 í Valhöll, Háaleitis- braut 1. • Geir Hallgrímsson, formaöur Sjálf- stæöisflokksins flytur framsöguræöu um stjórnmálaviöhorfiö. • Almennar umræöur aö lokinni fram- söguræöu. Miðvikudagur 16. ágúst - Kl. 20.:30 - Valhöll Húsgagnasýning Dúna Síöumúla 23 heldur sýningu um helgina á allskonar húsgögnum og húsbún- aöi í dag kl. 13.30—18.00. í tilefni sýningarinnar höfum við fengið mjög mikið úrval af enskum húsgögnum, sem aldrei fyrr hafa fengist hér á landi. h Síðumúla 23 - Sími 84200 Nú er rétti tíminn til að tryggja sér falleg húsgögn á viðráöanlegu verði. GHIPPY Komið og skoðið húsgögnin og húsmunina frá Old Charm, Beutilux, Cabinet Export, Abbey Craft, Chippy

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.