Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGUST 1978 23 Oft vill það þó verða þannig að það eru nánustu ættingjar og vinir viðkomandi aðila, sem fyrstir uppgötva hættuna á tvöföldum ávana. í því sambandi má nefna dæmið um Karen og Frank. Karen er kona komin undir fertugt og hafði hún búið með Frank í tólf ár áður en hún ákvað að flytja burt frá honum. Hún hefur eftirfarandi sögu að segja: „Frank hafði drukkið mikið svo árum skipti, áður en það var orðið að vandamáli. Hann gat drukkið allt upp í fimm viskíglös á dag án þess að það hefði áhrif á getu hans til að sinna vinnu sinni og félagslífi eins og skyldi." „Þegar hann komst á fimmtugs- aldurinn fór hann að verða áhyggjufullur og kvíðinn og varð það til þess að hann byrjaði að taka inn valium. Frank var þó ekki sú manngerð sem er hrifin af mikilli iyfjatöku og geri ég ráð fyrir því að fræðilega hafi han vel gert sér grein fyrir hættunni samfara því að taka inn lyf og drekka áfengi um leið, en tilfinn- ingalega held ég ekki að hann hafi gert sér grein fyrir því hvað var að gerast, og án efa gerir hann það ekki ennþá." Þegar hann fór að taka inn lyf gat hann ekki drukkið eins mikið. „Undarlegir hlutir byrjuðu að gerast þegar hann hóf að taka inn róandi lyf. Hann var farinn að taka allt upp í 20 til 30 milligrömm af valium á dag, sem telst nokkuð stór skammtur. Áður hafði hann getað innbyrt töluvert mikið magn af áfengi án þess að það sæist á honum, en nú var svo komið að eftir tvö.til þjrú glös var hann orðinn verulega drukkinn. Hann varð óviðræðuhæfur og eftir á gat hann ekki munað neitt." „Áhyggjur mínar vegna þessa jukust stöðugt, sérstaklega vegna þess að hann lenti í nokkrum minniháttar bílslysum og var nokkrum sinnum tekinn ölvaður við akstur. Frank fékk þó alltaf lyfseðilinn á valium endurnýjaðan hjá lækninum sínum. Hann gætti þess alltaf vel að drekka ekki fyrr en eftir klukkan fimm á daginn. Þegar ég heyrði ísmolana klingja í glasinu klukkan fimm vissi ég að hann ætti eftir að vera með rænu í um það bil hálítíma. Þá flýtti ég mér að segja það sem ég þurfti við hann, því eftir þann tíma vissi ég að hann yrði ekki viðræðuhæfur. En smátt og smátt varð þetta til þess að eyðilegja samband okkar, því að ekki varð aftur snúið." „Eftir á er sambandið á milli drykkjunnar og lyfjatökunnar augljóst, en á sínum tíma gerði ég mér þetta alls ekki ljóst. Eg vissi alltaf að áfengið væri vandamál, en ekk lyfin. Mér hugkvæmdist því aldrei að biðja hann um að hætta lyfjatökunni, en ég vildi að svo hefði verið, því þá hefði eflaust allt farið öðruvísi." En hvers vegna gerast slíkir hlutir? Þekkir fólk ekki takmörk sín? Því miður er það oft svo, en svo eru það líka aðrir, sem vita nákvæmlega hversu mörg glös þeir þola og hvað margar pillur þeim er óhætt að taka inn. En það sem þeir vita ekki, nema þeim sé sagt það sérstaklega, er hver áhrifin verða, sé þessum tveimur hlutum bland- að saman. Setjum svo að maður drekki eitt glas af áfengi og rétt finni ásér. Hann veit að honum er óhætt að drekka tvö til þrjú glös til viðbótar, án þess að verða verulega drukkinn. En taki hann inn róandi lyf, jafnframt því að drekka þetta eina glas af áfengi, getur hann áður en hann veit af verið kominn inn í allt annan heim, þó svo að hið róandi lyf hafi verið alveg skaðlaust, eitt sér. Þýtt og endursagt. Byggingarfélag verkamanna Reykjavík Til sölu þriggja herbergja íbúö í 4. byggingarflokki viö Stórholt og fjögurra herbergja íbúö í 7. byggingarflokki viö Nóatún. Félagsmenn skili umsókr-,m sínum til skrifstofu félagsins aö Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi mánudaginn 21. ágúst n.k. Félagsstjórnin Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig meö heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum á 75 ára afmæli mínu. Guö blessi ykkur öll. Jón Björnsson, málarameistari. Lóubúð Léttar mjúkar ullarkápur í Ijósum litum fyrir dömur. Úrval af fallegum barnafatnaöi. Pils — blússur — . samfestingar. Lóubúð Bankastræti 14, sími 13670, Lóubúd Skólavördustíg 28, sími 15099. okkar landsfræga hefst mánudaginn lé.ágúst Og hvadmed verdid? Terylenebuxur frá 5.900.— kr. Gallabuxur frá 4.500.— kr. Flauelsbuxur frá 4.500.— kr. Kvenblússur frá 2.500.- Mittisblússur frá 2.900.- Sailor jakkar frá 12.900.- Sheltlandspeysur frá 2.900.— kr. Kjólar frá 6.900.— kr Aðrar peysur frá 3.900.— kr. Skyrtur frá 1.990.— kr. o.fl. o.fl. Athugið Stórkostleg hljómplötuútsala að Laugavegi 89. r6 Snss f \ _____' Laugavegi37 simi12861 Laugavegi 89 simi10353

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.