Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1978 Rœtt við PálHer- steinsson um rann- sóknirhans á íslenzka refnum Ljósm. Mbl. Emilía. „I ísári gæti hunda- æði borist hingað með refum frá Grænlandi” Þær eru hraustlegar tófutennurnar. hann, fyrir utan frásagnir refa- skyttna og fróðlega bók eftir Theódór Gunnlaugsson, sem einmitt var ætluð grenjaskytt- um. Síðan þá hefur mig ætíð fýst að rannsaka þessa dýrateg- und.“ — Hvernig hagar þú rann- sóknunum? „Eg veiði refi í fótsnörur, sem eru svipuð áhöld og dýrabogar, en meiða refina ekki. Síðan festi ég á þá háisbönd með senditækj- um og hef síðan móttökutæki sjálfur, sem gerir mér kleyft að fylgjast með ferðum þeirra. Þar sem ég verð að geta fylgst með sömu tófunum ár eftir ár, samdi ég við fólkið sem á jörðina í Ofeigsfirði um að tófan yrði ekki skotin þar. Því var vel tekið og hefur fólkið einnig léð mér íbúðarhúsið til afnota, en það býr þar ekki nema að sumri til. Ég er því einn þarna á veturna og það er býsna langt til næsta byggðabóls, en það er sími í húsinu svo ég get alltaf náð sambandi við umheiminn á þann hátt.“ „Þegar ég hef miðað einhverja tófuna út með móttökutækinu, reyni ég að læðast að henni og fylgjast með því hvað hún aðhefst og les þá allt sem máli skiptir inn á segulband, en vélrita það síðan upp. Þar fyrir utan fylgist ég með því hvað tófan étur.“ — Geturðu greint frá ein- hverju af því sem komið hefur í ljós við þessar rannsóknir, varðandi hegðun tófunnar? „Það er ýmislegt sem ég hef uppgötvað í fari tófunnar, a.m.k. hér á ströndum, sem ég hef ekki heyrt um áður. Það hefur komið í ljós að refirnir hér mynda hópa með þremur einstakling- um, en fara ekki um í pörum, eins og ávallt hefur verið talið. I hverjum hóp er einn steggur, ein læða og ein geld-læða að auki, þ.e. læða sem ekki eignast yrðlinga það árið. Það er ekki ljóst hvaða hlutverki hún gegnir í hópnum, en e.t.v. er þar um að ræða afkvæmi hinna tveggja. Allavega er ljóst að innan hópsins er samkomulag með ágætum.“ „S.l. vetur fylgdist ég með þremur slíkum hópum og það kom í ljós að hver hópur eignaði sér mjög afmarkað svæði og gætti þess vel að víkja ekki út af því inn á svæði hinna. Þrátt fyrir þessa hópamyndun er það greinilegt að refurinn veiðir alltaf hver fyrir sig, en aldrei í hóp. Þessi svæði eru mjög misstór. Það stærsta er fjórum sinnum stærra en það minnsta, en það er greinilegt að „landa- Páll við úrvinnslu gagna í Öfeígsfirðinum. Fyrir skömmu var úthlutað styrkjum úr Vísindasjóði til ýmissa vísindastarfa og rann- sókna. Einn þcirra vísinda- manna sem hlutu styrk að þessu sinni var Páll Hersteins- sun, en hann hlaut 1200 þús. kr. til rannsókna á vistfræði ís- lenzkrar tófu og villiminks. Páll lauk stúdentsprófi frá náttúrufræðideild MR árið 1971 og stundaði nám f lifeðlis- fræði við háskólann í Dundee í Skotlandi. Hann dvaldi siðan f tvö ár í Cambridge við rann- sóknir á sviði taugalífeðlis- fræði og si'ðan í Oxford við undirhúning rannsókna sinna hér á landi. Mbl. ræddi við Pál í vikunni um þær rannsóknir sem þar er um að ræða. “Ég hef verið að rannsaka atferli tófunnar í Ófeigsfirði á Ströndum frá því í mars og þar til fyrir skömmu og ég fer aftur þangað norður nú um miðjan mánuðinn og verð þar þá í vetur. Atferlisfræðin byggist á því að rannsaka hegðun ýmissa dýra, því rétt eins og sköpulagið, þá skiptir hegðunin mjög miklu máli varðandi afkomu dýra og er eins og útlitið, að vissu marki tekin í arf. Það hefur ekki mikið verið fengist við rannsóknir sem þessar fyrr en á síðustu árum. Áður beindust rannsóknirnar fyrst og fremst að flokkun tegunda." „En nú er sem sagt verið að kanna af hverju ákveðin hegðun stafar og að hve miklu leyti hún er eðlislæg og að hve miklu leyti aðlögun að tilteknu umhverfi. Einnig er kannaður sveigjan- leiki í hegðun dýra, hvernig hegðun breytist eftir umhverf- inu; landslagi, gróðurfari, veðr- áttu og dýralífi." „Heimskautarefurinn sem lif- ir hér á landi, lifir við mjög misjöfn skilyrði. Við Ófeigsfjörð er hann t.d. ætíð nærri sjó, en t.d. á svæðinu norðan við Vatnajökul er iangt til sjávar. Það er m.a. ætlun mín, með því að kanna atferli tófunnar á þessum tveimur svæðum að athuga hvort tófan sem lifir fjarri sjó leitar e.t.v. þangað á vissum árstímum og yfirleitt hvernig refurinn lifir við svo misjöfn skilyrði, eins og í Ófeigsfirði og norðan Vatnajök- uls. Á síðarnefnda svæðinu er mikið um hreindýr og það gæti hugsanlega haft úrslitaþýðingu varðandi afkomu tófunnar þar, það sem mikið fellur þar til af stórum hræjum. Ég vonast til að geta byrjað á rannsóknum á því svæði eftir u.þ.b. eitt og hálft ár, en þangað til verð ég við rannsóknir í Ófeigsfirðinum." — Hvers vegna ákvaðstu að rannsaka einmitt atferli tófunn- ar, fremur en annarra dýra? „Ég hef alla tíð haft mjög gaman að dýrum og hafði gaman af því þegar ég var strákur að fylgjast með ýmsum smádýrum. Rándýr hafa þó alla tíð heillað mig mest og þegar ég valdi mér íslenska refinn að ritgerðarefni í menntaskóla uppgötvaði ég að það var nær ekkert til af heimildum um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.