Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.08.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. ÁGUST 1978 13 Bræðurnir Örvar og Ævar fylgjast spenntir með hvernig gengur... Giant og Grandes Jorres sem bæði eru liðlega 4000 m há. Þá má geta þess að Morgun- blaðið mun verða í fylgd með þeim félögum á ferð þeirra og verður nánar sagt frá því síðar í máli og myndum. Þá vfkum við tali okkar að íslenzka alpaklúbbnum og innti ég þá eftir því hvernig fyrsta árið hefði gengið hjá þeim, en klúbburinn er eins og áður sagði rúmlega eins árs. — Samkvæmt lögum klúbbsins er markmið hans að efla að mætti fjalla- mennsku hér á landi og til nánari skýringar er með orðinu fjallamennska átt fyrst og fremst við svokallaðar meiri- háttar fjallgöngur, þar sem t.d. ferðazt er um erfið fjallasvæði um langan tíma, ferðir á jökla og auðvitað beint klifur með aðstoð ýmiss konar búnaðar. Aftur á móti er ekki lögð nein sérstök rækt við venjulegar gönguferðir, enda er vettvangur fyrir slíkt þegar fyrir hendi í ríkum mæli. Að mati félaga í klúbbnum hefur starfsemin þetta fyrsta starfsár gengið mjög vonum framar. Þegar boðað var til stofnfundarins var það talið mjög gott ef til hans mættu 30—40 manns en raunin varð heldur betur önnur og um eitthundrað manns mættu til hans, síðar hefur félögum stöð- ugt farið fjölgandi og í dag eru þeir um 180 talsins. — Starfið á árinu hefur fyrst og fremst verið fólgið í æfingaferðum, námskeiðum og almennum félagsfundum. Æfingaferðirnar hafa verið farnar vítt og breitt um landið, Suður-, Suð-Austur-, Norður- og Vesturland. Þá hafa verið haldin námskeið fyrir félaga í undirstöðuatriðum fjallamennskunnar. Þeim er skipt í þrennt: fjallamennska í snjó, fjallamennska í ís og klettaklifur. í þessu sambandi hefur það verið happ fyrir klúbbinn, að innan vébanda Séð yffir úfinn ísinn að Mýrdalsjökli... verður að fara með járnbrautar- lest í gegnum hið fræga fjall Eiger upp í um 3500 m hæð og er það það hæsta sem járnbraut gengur í Evrópu. Frá Jungfrau- joch þar sem brautin endar er síðan haldið niður eftir skrið- jökli, Jungfraufirn, til róta fjallanna sem ætlunin er að klífa. Eftir þetta er hugmyndin að fara á frægasta fjallasvæði landsins Wallis, syðst í Sviss, og klífa þar nokkur fjöll, s.s. Matterhorn 4478 m, Weisshorn 4506 m og Monte Rosa 4634 m en það er jafnframt hæsta fjall landsins. Síðustu dögunum í ferðinni ætla félagarnir svo að eyða í Frönsku Ölpunum, mest á svo- kölluðu Chamonix-svæði, sem er eitt þekktasta fjallasvæði Evr- ópu. Þar hyggjast þeir klífa nokkur fjöll s.s. Mont Blanc 4807 m, hæsta fjall Evrópu, Dent de Reynt eftir misjöfnum leiðum ... ^4 „Kikkað" ( sprungu... hans eru starfandi margir menn sem hafa þegar öðlazt mikla reynslu í fjallamennsku og eru nokkrir með kennsluréttindi í greininni frá erlendum fjalla- mennskuskólum. Það sem hefur háð klúbbnum hvað mest í starfi hans er að hann hefur ekki yfir neinu húsnæði að ráða, þar sem t.d. væri hægt að koma upp bóka- safni og hafa opið hús fyrir félaga einu sinni í viku. Það hefur þó bjargað miklu að Slysavarnafélag Islands hefur sýnt klúbbnum mikinn velvilja og lánað honum fundarsali þegar á hefur þurft að halda og er hér með komið á framfæri sérstöku þakklæti til þeirra. Að síðustu kom það fram hjá þeim félögum að hugmyndin að stofnun klúbbsins væri nokk- urra ára gömul og hefði raun- verulega fæðzt 1974 þegar fjórir núverandi félagar hans voru við æfingar og nám í fjallamennsku í Ölpunum og kynntust þarlend- um klúbbum, sem starfa með svipað markmið og íslenzki alpaklúbburinn. — sb Helgi, Sveinn og Örvar slappa af á Vestra-skolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.