Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978
Skattar Eimskips
hækka um 50 millj.
FORRAÐAMENN Eimxkipa-
félatís íslands áætla. að skattar
fyrirtækisins vesna efnahagsráð-
stafana ríkisstjórnarinnar muni
hakka um 50 milljónir króna.
þar af eru um 20.7 milljónir
króna eÍKnaskattsauki en afjíanjí-
urinn tekjuskattsviðauki.
Morgunblaðið spurðist fyrir um
hækkunina hjá nokkrum fleiri
hinna stærstu fyrirtækja en sam-
kvæmt svörum forráðamanna
þeirra er í fæstum tilfellum farið
að athuga þau mál nánar.
Hvítir kollar á hæstu
fjöflum í Mývatnssveit
Björk, 13. september.
HÉR HEFUR síðustu daga verið
heldur svalt og hafa hæstu fjöll
nú sett upp hvíta kolla. Þó hefur
sáralítil úrkoma vcrið hér í
hyggð. Nú standa yfir göngur í
Portúgals-
olía í
október
FYRRI olíufarmurinn af tveimur,
sem íslendingar hafa fest kaup á í
Portúgal er væntanlegur til lands-
ins síðari hluta október, en það eru
7500 lestir. Upphaflega átti fyrri
farmurinn að koma í ágúst, en
honum seinkaði, þar sem olíu-
hreinsistöðin sem hreinsar olíuna
er enn i byggingu og er nú verið að
Ijúka henni.
Seinni farmurinn átti skv.
samningum að koma í nóvember,
en nú er Ijóst að honum seinkar
fram í janúar, að því er Þórhallur
Ásgeirsson ráðuneytisstjóri tjáði
Morgunblaðinu í gær.
Suðurafrétti og verður réttað í
Baldursheimsrétt á morgun. í
gær var farið í Hcrðubreiðar-
lindir og Grafarlönd og fundust
þar um 120 fjár. Að öðru leyti
verður ekki farið í fyrstu göngur
í Austurafrétt fyrr en 21. septem-
her og réttað í Reykjahlíðarrétt
24. þessa mánaðar.
Berjaspretta er hér víðast hvar
mjög góð og kartöfluuppskera
virðist ætla að verða vel í meðal-
lagi þrátt fyrir frekar óhagstæð
veðurskilyrði framan af sumri.
Enn heldur land áfram að rísa á
Kröflusvæðínu. Fyrir nokkrum
dögum varð vart við jarðhræring-
ar, sem talið er að átt hafi upptök
sín við Gyðuhnjúk, sem er á milli
Bláfjalls og Sellandafjalls. Frá því
í september á síðasta ári er talið
að vatnsbotn Grænavatns hafi
hækkað um rúma 20 sentimetra og
gæti það bent til að land hafi þar
sigið sem því nemur. Athyglisvert
er að á yfirstandandi sumri varð
með minnsta móti vart við mývarg
hér í Mývatnssveit en aftur á móti
var rykmý meira en um margra
ára skeið. Fróðlegt væri að heyra
álit vísindamanna á þessu fyrir-
hæri. —Kristján.
Ný spariskírteini
fyrir 1 milljarð
A FÖSTUDAG hefst sala á
spariskírteinum ríkissjóðs í 2. fl.
1978 og eru alls útgefin í þeim
flokki skírteini að upphæð 1.000
milljónir króna. Eru skirteinin
bundin fyrstu íimm árin en frá
10. september 1983 eru þau
innleysanleg og hvenær sem er
næstu fimmtán árin. Höfuðstóll
og vextir skírteinanna eru verð-
tryggðir miðað við breytingar á
byggingarvísitölu.
I fréttatilkynningu frá Seðla-
bankanum segir að útgáfa þessara
spariskírteina byggist á fjárlaga-
heimild, og verður lánsandvirðinu
varið til opinberra framkvæmda á
grundvelli lánsfjáráætlunar ríkis-
stjórnarinnar fyrir þetta ár.
Skírteinin eru gefin út í þremur
verðgildum, 10.000, 50.000 og
100.000 krónum og skulu þau skráð
á nafn með nafnnúmeri eiganda en
skírteinin, svo og vextir af þeim og
verðbætur, eru undanþegin fram-
talsskyldu og skattlagningu á
sama hátt og sparifé.
Grunnskólakennarar í Reykjavík og nágrenni komu í gær saman til fundar þar sem þeir fjölluðu um
aðgerðir vegna launamismunar. sem þeir telja sig verða að sæta eftir því hvenær þeir hafa tekið
embættispróf. Ljósm. Kristján.
Grunnskólakennarar taka ekki
kennaranema í æfingakennslu
— vegna deilna við menntamálaráðuneytið um launamál
NOKKUR hundruð grunnskóla-
kennarar í Reykjavík og ná-
grenni komu saman til fundar f
Sigtúni í gær þar sem fjallað var
um deilu grunnskólakennara við
menntamálaráðuneytið vegna
þess að kcnnarar telja að þeim sé
mismunað í launum eftir því
hvort þeir hafi tekið embættis-
próf frá gamla Kennaraskólanum
eða frá Kennaraháskólanum.
Hafa grunnskólakennarar nú
ákveðið að ráða sig ekki til
æfingarkennslu nemenda úr
Kennaraháskólanum og fá því
nemendur, sem eru á þriðja ári,
lokaári kennaranámsins enga
æfingakennslu en hins vegar
hefur stjórn Sambands grunn-
skólakennara mælt með því við
kennara að þeir heimili nemend-
um af fyrsta ári í Kennara-
háskólanum að koma í tvær vikur
til kynningarheimsókna í skól-
ana fyrir áramót.
Valgeir Gestsson formaður
Sambands grunnskólakennara
sagði í samtali við Mbl. að þessi
deila hefði hafist árið 1976 og þá
vegna þess að mismunur væri á
launum grunnskólakennara eftir
því hvenær þeir hefðu tekið sitt
embættispróf. „Við höfum talið
okkur einu stéttina sem hefur
mismunandi laun eftir því hvenær
við tókum okkar embættispróf. I
kjarasamningunum í fyrra náðum
við fram stórum áfanga í þessu
máli en þegar hins vegar var farið
að framkvæma úrskurð kjara-
nefndar var kennurum verulega
mismunað. Kom þá í ljós að um
800 kennarar sem tóku próf frá
gamla kennaraskólanum og voru
sumir hverjir með allt að 14 ára
starfsreynslu sátu enn í 13.
launaflokki, sem er byrjendaflokk-
ur kennara en fengu ekki tilfærslu
milli flokka vegna starfsaldurs
eins og tíðkast hefur,“ sagði
Valgeir.
„ÉG á von á því að í dag verði
gengið frá hækkun afurða-
lána vegna saltfisks og freð-
fisks en ég get ekki á þessu
stigi sagt hversu mikil hækk-
unin verður," sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri í
samtali við blaðið í gær.
Aðspurður um hvort ein-
hverjar breytingar yrðu að
þessu sinni gerðar á vöxtum,
en sem kunnugt er er í
starfslýsingu ríkisstjórnar-
innar gert ráð fyrir að vextir
afurðalána lækki, sagði
Jóhannes að engar breyting-
Fram kom hjá Valgeiri að
grunnskólakennarar hefðu átt í
viðræðum við menntamálaráðu-
neytið frá í maí um þetta mál en
engin niðurstaða hefði enn fengist
og hefðu kennarar því ákveðið að
ráða sig ekki til æfingakennslu
kennaranema meðan þetta mál
væri óleyst.
ar yrðu að þessu sinni gerðar
á vöxtum afurðalána.
Fram kom hjá Jóhannesi
að í lánsfjáráætlun fyrri
ríkisstjórnar fyrir þetta ár
hefði verið gert ráð fyrir
hækkun afurðalánanna og
sagðist hann vonast til að sú
hækkun, sem nú væri fyrir-
huguð færi ekki fram úr
þeirri hækkun, sem þar hafði
verið áætluð. Um afurðalán
til landbúnaðarins sagði
Jóhannes að þau yrðu
væntanlega tekin til athug-
unar seinna í haust þegar í
framhaldi af sauðfjárslátrun.
Afurðalán:
Ákvörðun um hækkun
vegna saltfisks og
freðfisks tekin í dag
Sjálfstæðisflokkurinn:
Uttektamefndin skilar
um mánaðamótin
NEFND, sú sem miöstjórn Sjálf-
stæðisflokksins kaus í sumar til að
Adalfundur
Heimdallar á
sunnudaginn
AÐALFUNDUR Heimdallar, sam-
taka ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, verður haldinn á sunnu-
daginn, hinn 17. september. Fundur-
inn verður í Sjálfstæðishúsinu
Valhöll við Háaleitisbraut, og hefst
hann klukkan 2 síðdegis.
Á dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf, skýrsla fráfarandi
stjórnar, lagðir verða fram endur-
skoðaðir reikningar, lagabreytingar,
umræður og afgreiðsla stjórnmála-
ályktunar og kosning stjórnar og
tveggja endurskoðenda.
Félagar í Heimdalli S.U.S. eru nú
um þrjú þúsund talsins, og hefur
þeim fjölgað verulega tvö undanfar-
in ár.
Formaður Heimdallar er Kjartan
Gunnarsson.
gera úttekt á starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins með tilliti til
úrslita síðustu kosninga áformar
að sögn Birgis ísleifs Gunnarsson-
ar, formanns nefndarinnar, að
ljúka störfum um eða eftir næstu
mánaðamót. Leggur nefndin að
sögn Birgis á það áherzlu að ljúka
störfum tímanlega fyrir flokks-
ráðsfund og formannaráðstefnu
Sjálfstæðisflokksins, sem boðið er
til síðari hluta októbermánaðar.
Matvöruverzl-
anir lokaðar
eftir hádegi
Matvöruverzlanir í Reykjavík
verða almennt lokaðar eftir hádegi
í dag, fimmtudag, vegna verð-
breytinga, sem gera þarf vegna
niðurfellingar söluskatts af mat-
vörum. Var samþykkt um þetta
efni gerð á fundi matvöru- og
kjötkaupmanna en verzlanirnar
verða opnar á föstudag.