Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978 Frá Sigtryggi Sigtryggssyni hlaðamanni Mbl. í Köln AKURNESINGAR stóðu svo sannarlega fyrir sínu er þeir mættu FC Köln, deildar- og bikarmeisturum V-býzkalands, í Evrópukeppni meistaraliða a Mungersdorf-leikvanginum í gærkvöldi. bjóðverjarnir báru sigur úr býtum 4il, en það var of stór sigur miðað við gang leiksins og marktækifæri. Mörk bjóðverjanna voru af ódýrari gerðinni og Akranes hefði átt að skora fleiri mörk í leiknum en það eina, sem Matthías Ilallgri'msson skoraði í seinni hálfleik, eftir gla'silegan undirhúning Karls bórðarsonar. Þegar Köin dróst á móti Akra- nesi spurðu þýzku blöðin: — Hvað er Akranes? Þau fengu svarið í gærkvöldi frá þessum litla 4 þúsund manna bæ norður á Islandi. Þaðan kom sterkt lið, sem stóð sig miklu betur en nokkur átti von á og lék knattspyrnu, sem var fyllilega sæmandi liði í Evrópu- keppni. Það var mál manna eftir leikinn að liðið hefði komið mjög á óvart. Byrjunin var heldur slæm hjá íslenzka liðinu og Skagamennirnir voru lengi að taka við sér. Köln hóf stórsókn þegar í upphafi og reyndu mikið krossendingar inn í teiginn frá bakvörðum og kantmönnum. Ljóst var að þær myndu skapa mikinn usla í vörn ÍA og nokkrum sinnum munaði litlu að illa færi eftir slíkar sendingar og er leið á leikinn voru það einmitt slíkar sendingar sem komu Skagamönn- um í koll. Fyrsta mark leiksins kom á 13. mínútu. Eftir góðan undirbúning Neumanns barst knötturinn inn að markteigi ÍA og Littbarski skall- aði í netið framhjá Jóni mark- verði. Á 26. mínútunni bættu þeir við öðru marki og eins og áður átti Neumann upptökin, sótt var upp hægri kantinn og þaðan kom fyrirgjöf frá Nowalka, sem Nau- mann skallaði í netið. Bæði þessi mörk voru heldur ódýr og það er spurning hvort Jón hefði ekki getað forðað mörkunum með úthlaupum. A 29. mínútu léku Akurnesingar laglega í gegnum vörn Þjóðverj- anna og Pétur átti aðeins miðvörð- inn eftir, lék á hann og ætlaði að skjóta er honum var gróflega brugðið. Daninn Sörensen, sem dæmi leikinn, sá þó ekkert athuga- vert við brotið og leikurinn hélt áfram. Mínútu síðar sótti Karl skemmtilega upp vinstri kantinn meðfram endamörkunum á fullri ferð og sendi fasta sendingu inn í markteiginn þar sem Matthías var staddur og skoraði af stuttu færi örugglega í markið. Við þetta lifnaði yfir Skaganum, en þeim tókst ekki að brjótast í gegnum vörn Kölnar. Á 40. mínútu skoraði Köln síðan sitt þriðja mark og kom það nokkuð óvænt. Úr skyndi- sókn náði Neumann að skora með skalla af stuttu færi, vörnin var illa á verði. I upphafi seinni hálfleiks fram- kvæmdi Árni aukaspyrnu skammt frá vítateig og Pétur stökk hærra en aðrir, en skalli hans fór hárfínt framhjá. Á 6. mínútu hálfleiksins slapp Pétur úr gæzlunni og nýtti sér það vel. Hann fékk knöttinn fyrir utan vítateig, lék á einn varnarmann og skaut þrumuskoti, sem stefndi í samskeytin, en markvörðurinn Schumacher varði snilldarlega. Enn sóttu Skaga- menn og Pétur fékk boltann inn fyrir vörnina, greinilega rang- stæður án þess að línuvörður veifaði. Hann lék að markinu, en • Jóhannes Guðjónsson á í höggi við Littharski hjá Köln í leiknum í gærkvöldi, Skagamenn töpuðu 1—4, sem var of stór sigur miðað við gang leiksins. (Símamynd AP) Karli var óspart klappað lof í lófa Köln vann Akranes 4:1 í skemmtilegum leik Schumacher náði að hirða knött- inn af tám hans. Á 15. mínútu lék Sveinbjörn laglega í gegn, gaf á Pétur í dauðafæri, sem hitti ekki boltann. Eftir þessi góðu tækifæri dofnaði yfir Akurnesingum og leikmenn Kölnar byrjuðu að sækja á ný. Á 26. mínútu hálfleiksins var sótt upp vinstri vænginn og bakvörðurinn Konopka skoraði með skoti af um 25 metra færi, jarðarboltinn smaug á milli varn- armanna og í netið án þess að Jón hefði möguleika á að verja, þar sem hann sá boltann of seint. Eftir þetta var leikurinn tíðindalítill og fátt markvert gerðist, Köln sótti meira, en vörnin gaf sig ekki. Karl var í sérflokki Skaga- manna og fór hvað eftir annað illa með v-þýzku varnarmennina. í seinni hálfleik var það orðið þannig að er Karl fékk knöttinn var óspart klappað í áhorfenda- stúkunni. Hann var hetja áhorf- enda í þessum leik, nettur með knöttinn, átti mark Skagamanna, gerði engin mistök og sýndi allar sínar beztu hliðar í leiknum. Á blaðamannafundi að leiknum loknum var Kirby þjálfari Akur- nesinga hvað eftir annað spurður um Karl Þórðarson. Pétur var í strangri gæzlu og hefur oft unnið betur en í þessum leik. En þrátt fyrir að við erfiða andstæðinga væri að etja, þá var Pétur mjög hættulegur. Matthías Hann sá við mér, því miður — bETTA var stór markvörður og ég freistaði þess frekar að reyna að renna knettinum í stað þess að skjóta. Hann sá við mér, því miður, sagði Ingi Björn Albertsson að loknum leik Vals og Magdcburgar, en Inga Birni brást bogalistin í bezta tækifæri leiksins aleinn á móti markverð- inum snemma í seinni hálfleikn- um. — — Ég viðurkenni að það var smá titringur í mér þegar ég hljóp að boltanum í vítaspyrn- unni, en hún heppnaðist sem betur fer. Ég er mjög ánægður með leik okkar, við börðumst allir vel. Ég var orðinn svo þreyttur í lokin að ég varð að fara út af með krampa f fótunum, sagði Ingi Björn. — þr. var laginn með knöttinn og eftir að hafa ekki skorað í sjö leikjum kom mark frá honum í þessum skemmtilega Evrópuleik. Svein- björn vann vel á miðjunni og á hrós skilið. Árni Sveinsson lék þennan án þess að meiðslin frá síðustu helgi tækju sig upp og stóð hann sig vel. Sömuleiðis átti Jóhannes Guðjónsson mjög traust- an leik. Neumann var sterkastur Þjóð- 'verjanna, en hann er v-þýzkur landsliðsmaður. í lið Kölnar vant- aði Dieter Múller, Japanann Okudera og Heinz Flohe, en lið Kölnar er greinilega mjög sterkt og forföll þessara kappa virtust ekki veikja liðið. Njósnarar á hverju strái NJOSNARAR frá mörgum félögum voru viðstaddir leík Köln og IA í gærkvöldi til pess aö fylgjast meö Pótri Péturssyni, en hróður hans hefur greinilega víða borizt. Þarna voru a.m.k. njósnarar fró fimm félögum, Standard Liege, La Louviere og Beveren í Belgíu, Borussia Monchengladbach í V-Þýzkalandi og Feyenoord í Hol- landi. Fulltrúar Feyenoord og La Louviere ræddu viö Pétur að leiknum loknum, en Þeim var tilkynnt að Pétur myndi ekkert gera í sambandi við atvinnumennsku fyrr en að loknum síðari leik liðanna í Evrópukeppninni. Að mínu mati lék Pétur ekki sérlega vel aö pessu sinni, en hann var reyndar í mjög strangri gæzlu. Þegar Pétur slapp frá gæzlumönn- um sínum var hann mjög ógnandi og greinilegt var aö menn voru almennt hrifnir af honum. Þá er öruggt, aö mörg félög hafa fengið áhuga á Karli Þórðarsyni í Þessum leik, en hann stóð sig frábærlega vel. — SS/ —áij Úrslití Evrópuleikjunumí gærkvöldi M eistarake ppn in FC Hruiofp — Wisla Krakow, Póllandi 2.1 Miirk Hruc^c, Ceulemans oit Cools Mark Wisla. Kapka Áhorfendur. 17.000 XXX AEK Aþena — Porto Liasabon 6.1 Mörk AEK. Bayavic (2). Ardizozlu. Tassos, Nikolau. Mavros. Mark Porto. Olivera Áhorfendur. 35.000 XXX Juventus — Glasf«iw Ramters 1J) Mark Juventus. Pierpaolo Virdis á 9. mínútu XXX Malmö — AS Monaco 0.0 Áhorfendur. 5.500 XXX Fenerbache. Tyrklandi — PSV Eindhoven 2,1 Mörk Fenerbache. Rasil og Emin Mark PSV. Brandts Áhorfendur 45.000 XXX Valkesakosken. Haka, Finnlandl — Dynamo Kiev 0.1 Mark Dynamo, Boltaeha Real Madrid — Progres Niedecorn, Lúxemborg 5,0 Mörk Real. Jensen, Juanito (2), Del Bosgue. Wolff Áhorfendur, 60.000 XXX Omonia. Kýpur — Bohemians. (rlandi 2.1 Mörk Omonia. Kanaris ok (ös.tokritou Mark Bohemians. 0‘Connor Áhorfendur. 14.000 XXX Nottinttham Forest — Liverpool 2JI (Ul) Mörk Forest. Gary Birtles og Colin Barrett Áhorfendur. 38.316 XXX Linfield. Nlrlandi — Lilleström 0.0 XXX Partizan Belgrade — Dynamo Dresden 2,0 XXX Oden.se — Lokomotiv Soffia 2.2 Mörk Odense. Nilsen 2 Mörk Lokomotiv. Kolev og Velftzkov Áhorfendur. 8.700. Keppni bikarhafa PAOK Saionika Servette Mörk PAOKi Koudas og Saraíis 2-0 íbúö óskast Okkur vantar til leigu litla íbúö fyrir erlendan þjálfara, helst í smáíbúöa- og Bústaðahverfi. Upplýsingar veittar í síma 72590. Handknattleiksdeild lörpedo Moskva — Molde 4—0 Mörk Torpedo. Vasiliev. Mironov. Grishin og Suehilin. Áhorfendur, 28.000. XXX Valetta Floriaanna — Inter Milanó 1—3 Mar Valetta. Zuereb Mörk Inter. Altohelli 3 (1 víti) Áhorfendur, 15.000. XXX Rieka (Júgósl.) — Wrexham 3—0 Mörk Rieka, Tomic. Durkalic og Cucriv. Áhorfendur. 11.000. XXX Barcelona — Sehaktor Donetzk 3—0 Mörk Barcelona. Krakl 2 og Sanehez. Áhorfendur. 50.000. XXX Valur — Magdehurg 1 — 1 Mark Vals. Ingi Björn AiberLsson. Mark Magdeborgar. Steinhach. Áhorfendur, 7.000. XXX Beveren — Bailemeyna 3—0 Mörk Beveren. Albert, Stevens og Schoen- maker. Áhorfendur, 17.000. XXX AZ‘67 Alkamaar — Ipswich 0—0 Áhorfendur, 13.500. XXX Frem — Nanry 2—0 Mörk Frem, Jakobsen og Ilansen. Áhorfendur, 1.136. XXX Shamroek Rovers — Apoel Nikosia 2—0 Banie Ostrava — Sporting Lísbon 1 —0 Mark Banik, Antalik. UEFA-keppnin CSKA Soffia — Valenria Mörk CSKA, Djevizon og Ristov. 2-1 Mark Valeneia, Solsona. Áhorfendur, 40.000. XXX Tvente Knschede — Manehestrr City 1 — 1 Mark Tvente, Thoresen Mark City. Dave Watson. Áhorfendur, 12.000. XXX Iladjuk Split - Rapid Vienna 2-0 Mörk Hadjuk, Cop og Luketin. Áhorfendur, 20.000. XXX Carl Zeiss, Töpfer. Áhorfendur, 10.000. XXX Borrussia Mönchengladbaeh — Sturm Graz 5—1 Mörk Mönchengladbach, Bruns (2), Gores, Nielsen og Simonscn Mark Sturm Graz, Scheffer Áhorfendur, 10.000. XXX JeruneNse Esch — Lausanne Sport 0—0 Áhorfendur 2.000. XXX AC Mflan — Lokomotiv Kosice (tékk) 1—0 Mark Mflano, Novelino Á horfend ur.65.000 XXX Grasshoppers — Valetta (Möltu) 8—0 Mörk Grasshoppers, Qonte 2. Sulser 5 og Ehrli Áhorfendur, 3.200 Ilihernian — Nörrköping 3—2 Mörk Hihs, Higgins 2 og Temperley Mörk Nörrköping. ólsen og Andersen Áhorfendur, 10.000 XXX Real Gijon — Torino 3—0 Mörk Gijon, Ferrero og Moran Áhortendur, 30.000 XXX Dukla Prag — Lanerossi Vicenza 1 —0 Mark Dukla. Nehuda Áhorfendur. 14.000 XXX Nantes — Bendiea Mörk Benefica. Shanana og Nene 0-2 XXX Arsenal — Lokomotiv Leipzig 3—0 Mörk Arsenal, Stapelton 2 og Sunderland Áhorfendur, 34233 XXX EHsborg — Kacing Strasshorg 2—0 Mörk Svfanna, Svenson og Magnuson XXX Athlctico Bilhao — Ajax 2—0 Mörk Athletico. Van Dord sj.m og Vidal Áhorfendur, 40.000 XXX Basle — Stuttgart 2—3 Mörk Basle, Stohler og Tanner Mörk Stuttgart, Höness og Olieher 2 Áhorfendur. 25.100 XXX Duisburg — Lech Poznan (Póll.) 5—0 Mörk Duisburg. Worm 2, Jara, Alhaus og BUssers Áhorfendur, 8.000 XXX Standard Liege — Dundee Utd. 1—0 Mark Standards, Ocnicrs Áhorfendur, 8.000 XXX Galatararay - WBA 1—3 Mark Gala., Fathih víti Mörk WBA, Rohson og Cunningham 2 Áhorfendur, 50.000 XXX Dynamo Berlin — Rauóa Stjarnan 5—2 Mörk Dynamo, Riediger 3, Netz og Brillat Mörk Rauftu Stjörnunnar, Sestic og Savic Áhorfendur, 26.000 XXX Ifertha Berlin - Trakia Plodiv 0—0 Áhorfendur, 4000 XXX Start Kristiansand — Esbjerg 0—0 Áhorfendur. 1410 XXX Finn Harps — Everton 0—5 Mörk Evcrton, King 2. Thomas. Walsh og Latchford Áhorfendur, 2800 XXX Sporting Braga — Hibernian (Malta) 5—0 Mörk Sporting, Gordo 4 og l.ito Áhorfendur 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.