Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978 raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Innilegar þakkir til þeirra, sem minntust okkar meö heimsóknum, gjöfum og heilla- skeytum á 70 ára afmæli okkar 9. júlí og 29. ágúst s.l. Lifið heil. Ebba og Rögnvaldur, Flugumýrarh vammi, Skagafiröi. Fiskiskip óskast Hef veriö beöinn aö útvega 150—200 smálesta fiskibát. Þarf aö hafa góöan útbúnaö til botnvörpu og nótaveiöa. Upplýsingar gefur Þorsteinn Júlíusson hrl., Skólavöröustíg 12, sími 14045. Fiskiskip Höfum til sölu m.a. 138 rúmlesta stálbát. Smíöaöur 1972, meö 640 hp. Cummins aöalvél frá 1976. Báturinn var lengdur og yfirbyggöur 1977 og er útbúinn til alhliða veiöa. Getur boriö um 330 tonn af loönu. SKIPASALA-SKIPALEIGA, JÓNAS HARALDSSON, LÖGFR. SÍML 29500 Byggingakrani Til sölu Linden-Alimak byggingakrani Typa 30—38. Sjálfreysandi og fellandi á hjólunru Upplýsingar í síma 54022 frá kl. 1—5 og í síma 52826 og 53410 á kvöldin. 1 husn ■ 9 ****** * æöi i . u Að Háteigsvegi 3 eru til leigu tvær aöskildar hæöir 220 fm og 150 fm í nýbyggöu verzlunar- og skrifstofu- húsnæöi. Húsnæðiö er bjart og rúmgott og laust til afhendingar strax. Sérstaklega hentugt fyrir teiknistofur og þess háttar starfsemi. Nánari uppl. veittar í síma 16186 í dag og næstu daga. Keflavík Til sölu rúmlega 100 fm verzlunarhúsnæöi á mjög góöum staö. Möguleiki á stækkun um 60 fm. Góö bílastæöi. Ennfremur 160 fm iönaðarhúsnæöi ásamt stórri byggingar- lóö fyrir verzlunar- og íbúöarhúsnæöi. Veöbandalaust. Eigna- og veröbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavík, sími 92-3222. Aðalfundur Skógræktarfélags Islands: Ekki má slaka á í skógrækt- ar- og landgræðslustörfum MORGUNBLAÐINU heíur borizt eftirfarandi ályktun frá aðalfundi Skógræktar- félags íslandsi Hér á eftir fara nokkrar tillög- ur, sem samþykktar voru á aðal- fundi Skógræktarfélags íslands á Stórutjarnarskóla 25.-27. ágúst s.l. Aðalfundur Skógræktarfélags íslands 1978 felur stjórn félagsins að láta kanna vandlega, hvaða lagagreinum þurfi að breyta til þess að skógrækt verði viðurkennd sem fullgild búgrein og njóti sömu fjármagnsfyrirgreiðslu og annar landbúnaður. Telur aðalfundurinn nauðsynlegt að í jarðalögum verði skógrækt skilgreind sem ein teg- und búskapar. Stjórnin beitir sér síðan fyrir því eins og kostur er að koma þessum breytingum á og gefi aðalfundi félagsins síðan á hverju ári skýrslu um það hvernig þessi mál standa. Fundurinn þakkar Skógrækt ríkisins og skógarvörðum hennar fyrir mikinn stuðning við skóg- ræktarfélögin fyrr og síðar. Fundurinn bendir á að störf skógarvarðanna hafa víða verið jöfnum höndum ráðunautastörf fyrir félögin og einstaklinga og félagsleg forystustörf, enda er það í samræmi við ákvæði laga um skógrækt. Fundurinn leggur áherslu á að skógarverðir verði jafnan nógu margir á landinu og starfssvæði þeirra verði þannig ákveðin að héruðin njóti sem best starfskrafta þeirra svo sem reglur um störf kveða á um. Fundurinn vekur athygli á því að nú er aðeins eitt ár eftir af framkvæmdatíma landgræðslu- áætlunar 1974—1978. Fundurinn beinir þeirri eindregnu áskorun til allra alþingismanna, að þeir taki höndum saman og beiti sér fyrir gerð nýrrar áætlunar, sem tryggi að ekki verði slakað á í skógrækt- ar- og landgræðslustörfum heldur haldið áfram af eigi minna afli en áætlunin, sem samþykkt var á Þingvöllum 28. júlí 1974, gerði ráð fyrir. Fundurinn vekur athygli á þeirri staðreynd, að þar sem álag á verð vindlinga, sem rennur til Landgræðslusjóðs, hefur verið óbreytt upphæð á hvem pakka um sex ára skeið, hafa þessar tekjur rýrnað óðfluga að verðgildi. Fundurinn beinir þeirri áskorun til Alþingis að hækka þetta álag þannig, að það verði eigi minna að verðgildi en það var við síðustu hækkun þess. Fundurinn felur stjórn Skógræktarfélags íslands að vinna að þessu máli ásamt öðrum úr stjórn Landgræðslusjóðs og treystir því að þessu verði fylgt fast eftir. Fundurinn vekur athygli á því, að ríkisstyrkur til skógræktar- félaganna hefur verið óbreyttur að krónutölu undanfarin þrjú ár og því rýrnað stórkostlega að verð- gildi. Margsinnis hefur verið á það bent að hlutur skógræktarfélag- anna í skógræktarstörfunum er mikill og að þau framlög, sem þau fá, eru hvatning til aukins starfs og aukinna framlaga heima fyrir. Fundurinn skorar á fjárveitingar- valdið að hækka þetta framlag myndarlega og til samræmis við breytingar á verðlagi. Fundurinn felur stjórn félagsins og framkvhemdastjóra: 1. að athuga möguleika á því að gerð veri stutt fræðslukvik- mynd þar sem sýnd séu rétt handtök við fræsöfnun, sáning- ar, dreifplöntun og útplöntun á trjáplöntum, og verði myndin sniðin við þarfir byrjanda. Jafnframt verði fléttað inn í myndina svipmyndum úr sögu skógræktarfélaganna og sé stefnt að því að myndin verði fullgerð árið 1980. 2. að birtar verði árlega í Ársrit- inu stuttar leiðbeiningar um uppeldi og meðferð trjáplantna. 3. að hafa forgöngu um að haldin verði námskeið að vorinu í 2—3 daga fyrir verkstjóra þá, sem stjórna unglingum við ræktun- arstörf. Fundurinn beinir þeirri ein- dregnu áskorun til stjórnar félags- \ ins að hún kynni sér, hvernig sveitar- og bæjarfélög haga álög- um á einstaklinga, sem stunda trjá- eða skógrækt á löndum sínum sakir þess að á nokkrum stöðum eru álögur slíkar að útilokað virðist að nokkur maður vilji stunda slíka iðju framvegis. Greinargerð: Þessi tillaga er fram komin sakir þess að einstöku sveitar- og bæjarfélög hafa nokkur undanfar- in ár hækkað bæði leigugjöld og skatta svo að frágangssök er að menn fáist til að leggja fram vinnu og fjármuni við trjá- og skógrækt, ef svo fram heldur, sem nú stefnir á nokkrum stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.