Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
inKamálunum við ríkisstarfsmenn,
enda voru honum ekki frekar en
öðrum ráðherrum og stuðnings-
mönnum á þingi vandaðar
kveðjurnar og þá ekki síður frá
þeim sem hefðu átt að vera þeirra
sverð og skjöldur. En nú hafa þeir
uppskorið, sem síðustu misserin
sáðu sorpinu, gróðapúkar sem
aðrir. Og verði þeim að góðu með
uppskeru sína.
En almenningur undrast og
skelfist þegar skattskráin upplýsir
að þessir nýju sjálfskipuðu „full-
trúar verkalýðsins“ úr hinum einu
sönnu „verkalýðsflokkum", sem
eru komnir inn á Alþingi, voru á
því herrans ári, sem þeir hörðust
hvað harðast fyrir ha'rri launum
með f jórföld laun verkamannsins,
með miklu hærri laun en fyrir-
rennarar þeirra á Alþingi sem þeir
þó hvað mest skitu út fyrir sín háu
laun og nokkru hærri-en ráðherrar
hafa og þykja þeir þó ekki
bónbjargarmenn í launum. Þessir
harðdrægu sérhagsmunamenn
sem notað hafa rétt lýðræðisins og
vanmátt til að grafa undan
stofnunum þjóðfélagsins þykjast
einnig þekkja til neðanjarðar-
streymis fjármuna. Er ekki
ástæða fyrir skattalögreglu að
kanna hvort hin háu ritlaun
síðdegisblaðanna til þeirra leigu-
penna sem réðust hvað harðast að
ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar
hafi öll verið talin fram til skatts?
í sjónvarpsþætti ritstjóranná á
dögunum afhjúpaði einn
„fréttamafíuforinginn" sig
átakanlega, þegar hann bað kjós-
endur að fyrirgefa sér heiiúsku
sína og barnaskap, sem vitaskuld
var hvorugt, heldur að vitneskja
almennings um svik og lygar
þessara manna á liðnum mánuð-
um var oðin þekkt.
Blekkingarnar komu nefnilega
fram þegar valdagræðgin bar
eölishvatir refsins ofurliði.
I þessum þætti ákallaði Árni
Gunnarsson þjóðina og bað hana
að viðurkenna karlmennsku sína,
því hann hefði nú þrek til að
viðurkenna að hann hefði haft
rangt fyrir sér í öllum megin-
ályktunum sínum. sem fram
komu í skrifum hans og fullyrð-
ingum um efnahagsmál á liðnum
misserum.
Bæði hanri og Kjartan Ólafsson
viðurkenna nú nauðsyn aðgerða
fyrri ríkisstjórnar í kaup- og
kjaramálum, báðir eru þeir nú
sammála um nauðsyn skerðingar
þeirra launasamninga sem gerðir
voru á síðasta ári og báðir telja
nauðsynlegt að fella gengið því
baggar útflutningsatvinnuveg-
anna séu orðnir of þungir.
Það er engu líkara en þessir
herrar telji sína launaskerðingu og
svik á kjarasamningum betri, þótt
blessað sé yfir henni af leiðitöm-
um flokksþrælum komma og krata
í verkalýðshreyfingunni.
Umræddir ritstjórar eiga enga
afsökun. Þeir höfðu aðgang að
öllum upplýsingum sem fyrrver-
andi ríkisstjórn byggði sínar
aðgerðir á og núverandi stjórn
einnig. Þessir ritstjórar tóku
meira að segja þátt í umræðum
um leiðir til aðgerða, byggðum á
þessum upplýsingum og þeim var
boðin þátttaka um mótun og gerð
nauðsynlegra aðgerða á sl. vetri.
Aðgerða, sem allir vissu að ein-
hverjar þyrftu að vera eftir
launasamninga ársins 1977 eins og
þáverandi ríkisstjórn margbenti á
og varaði við.
Þessir ritstjórar í „fréttamafí-
unni“ gerðu' oft kröfu til þess að
fyrrverandi ríkisstjórn og stuðn-
ingsmenn hennar á Alþingi segðu
af sér.
Nú þegar fyrir liggur sönnun og
opinber viðurkenning á því sem í
flestum þingræðislöndum væri
kallað glæpsamlegt athæfi þessara
ritstjóra, sem nú eru orðnir
alþingismenn, er sú krafa almenn-
ings skýlaus að þeir skili aftur til
kjósenda því umboði sem þeir
fengu á röngum og fölskum
forsendum og segi af sér þing-
mennsku. Annars halda þeir
áfram að vera kjarklausir
launsátursmenn.
Ægir.“
Þessir hringdu . . .
• Stjórnarkreppa
Eftirfarandi kvæði er ort í
ágústmánuði síðastliðnum:
„Á rökstólum sitja og gerast
nú gráir í vöngum
gunnreifir kappar af
íslenzkum stjórnmálasviðum.
Þeir sveitast og þrátta
og baða út öllum öngum
en aflinn er lítill er fá þeir
á sáttanna miðum.
Þótt geri þeir atlögur
gengur hvorki né rekur
því gloppótt og rykug
er stjórnmálasigluvoðin
og hætt er við því
að hver sem taumana tekur
teljist í fyrstunni
hvorki hrár eða soðinn.
Því erfitt mun reynast
að sneiða hjá brimi og boða
og bjarga þeim afla sem verður
að komast að landi
því nú er það fyrsta að reyna
að varna þeim voða
að verðbólgudraugurinn
atvinnuleiðunum grandi.
Það tekst ef menn vilja með
stillingu og slökun á kröfum
og staðfestum þrótti til löngunar
einhverju að fórna
þið íslenzku þegnar þið vitið
að vald til þess höfum
að verða til hjálpar þeim
mönnum sem eiga að stjórna.
Hugrún."
HÖGNI HREKKVÍSI
a . ©1978
MeNaugbt Synd., Ine.
,Og í þetta skipti er bannað að bíta!"
Vandervell
vélalegur
■
■
■
I
Ford 4-6-8 strokka
benzín og díesel vélar
Austin Mini
Bedford
B.M.W.
Bulck
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
CHroen
Datsun benzin
,- og diesel
‘ Dodge — Plymouth
Flat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzin og diesel
Mazda
Mercedes Benz
benzih og diesel
Opel
Peugout
Pontlac
Rambler
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Simca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og diesel
I
Þ JÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
- Seljum—
reyktan lax
og gravlax
Tökum lax í reykingu
og utbúum gravlax.
Kaupum einnig lax.
til reykingar.
Sendum í póstkröfu —
Vakúm pakkað el óskað er.
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6.
Hafnarlirði Simi: 51455
SÍMI í MÍMI er 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
í öll skírteini.
barna&fjölsk/ldu-
Ijósmyndir
AUSÍURSTWn 6 SÍMI12644
KAUPMANNASAMTÖK
B / L/ ÍSLANOS
Viðskiptavinir
athugið
Allar verslanir félagsmanna okkar veröa lokaöar
frá kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 14. sept. vegna
breytinga á söluskatti. Verslanirnar veröa opnar
á venjulegum tíma á föstudaginn 15. þ.m.
Félag kjötverslana. Félag matvörukaupmanna.
Lokum fimmtu-
dag frá kl. 12.30
vegna afnáms
söluskatts á
matvælum.
Opnum föstu-
dagsmorgun kl.
<10$
S'Oi? BScD®TnCfflOC55@Tr®(MliR£l
LAUOAL'*K *•
sími 35020