Morgunblaðið - 14.09.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978
13
U mf er ðarskól-
inn Ungir veg-
farendur 10 ára
Árið 1978 er afmælisár um-
ferðarskólans Ungir vegfarendur,
en hann er bréfaskóli fyrir börn á
aldrinum 3—7 ára. Tilgangurinn
með starfi skólans er að vinna
fyrirbyggjandi starf í baráttunni
við umferðarslysin. Skólinn er
rekinn í sameiningu af 59 sveitar-
félögum og Umferðarráði, og eru
allir kaupstaðir og stærri sveitar^
félög landsins aðilar að honum. I
skólanum eru nú 18.400 börn og
lætur nærri að það sé um þ.b. 93%
af öllum 3—6 ára börnum á
landinu.
En betur má ef duga skal,
markmiðið er, að öll börn á
landinu verði þcssarar fræðslu
aðnjótandi. í nútíma þjóðfélagi
verður ekkert barn einangrað frá
umferð og þeim hættum sem
umferð er samfara. Þess vegna er
stefnt að því að öll sveitarfélög
gerist aðilar að skólanum.
Sendingar efnis frá skólanum,
eru á tímabilinu frá febrúar —
júní og ágúst — desember og fær
skólinn upplýsingar um heimilis-
föng barnanna í desember ár
hvert. Reynslan hefur sýnt, að þó
nokkur fjöldi barna flyst búferlum
eftir að listi með heimilisföngum
þeirra er gerður og hefur það
valdið starfsfólki töluverðum erf-
iðleikum að hafa upp á nýjum
heimilisföngum nemendanna. En
allar sendingar frá skólanum eru
skráðar á nöfn barnanna. Það eru
því vinsamleg tilmæli starfsfólks
Umferðarráðs, að foreldrar til-
kynni breytt heimilisföng strax í
síma 27666 eða skrifi til Umferðar-
ráðs Hverfisgötu 113, 105 Reykja-
vík. „5. september verður næsta
sending umferðarskólans póstlögð
til allra nemenda hans á aldrinum
3—6 ár, og má búast við því, að
þúsundir barna bíði spennt eftir
að fá bréfin sín, en gætu orðið
fyrir vonbrigðum ef heimilisfang
þeirra er ekki rétt skráð hjá
skólanum.
A þessum tímamótum þakkar
starfsfólk Umferðarráðs foreldr-
um og öðrum uppalendum barna,
samstarfið á liðnum árum og
óskar þess, að fólk haldi áfram að
gefa sér tíma með börnum sínum í
þessu leiðbeiningarstarfi.
Strandarkirkja —
ekki Strandakirkja
Leiðrétting við frétt
í Morgunblaðinu í gær, á bls. 5,
er frá því greint, að Mbl. hafi
verið beðið um að koma til skila
fimmtfu þúsundum króna. sem
voru gjöf til Strandarkirkju í
Selvogi. í fréttinni er kirkjan
hins vegar nefnd Strandakirkja
og er það ekki sök gefandans eins
og sjá má á orðsendingu hans
utan á umslaginu.
Strönd heitir í Selvogi — ekki
Strandir — og ber því að segja og
skrifa Strandarkirkja.
Morgunblaðið biðst velvirðing-
ar á þessum mistökum. sem stafa
af misskilningi við lestur próf-
arkar.
Norrænahúsið
minnist 150
ára afmælis
Henriks Ibsens
NORRÆNA húsið minnist tíu ára
afmælis síns með hátíðardagskrá
21. og 22. október í vetur, en
vetrarstarfsemi hússins hefst með
því að minnst verður 150 ára
afmælis Henriks Ibsens.
Það er norska leikkonan Toril
Gording frá Þjóðleikhúsinu í Ósló
sem kemur hingað og flytur
dagskrá er nefnist „Bergmannen
norsk diktning" í Norræna húsinu
fimmtudaginn 14. september kl.
20:30. Leikkonan flytur þætti úr
Brandi, Pétri Gaut, Brúðuheimil-
inu, Þjóðníðingnum og fleiri leik-
ritum er lýsa því, hvernig Ibsen
leit á sjálfan sig og köllun sína
sem leikritahöfundur og þjóð-
félagsgagnrýnandi.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Hér má sjá nemendur í Umferðarskólanum vinna verkefni, sem börnin fá send heim,
Gasnvarín
fura
endist von
úr viti
IEingöngu er notuð góð fura og nær gagnvörnin
2.
3.
4.
alveg að kjarna viðarins.
Viðnum er síðan rennt inn í þar til gerða
tanka.
Tankurinn er síðan fylltur með Boliden
saltupplausn og henni þrýst inn í viðinn undir
7 hg/cm þrýstingi.
Viðurinn er síðan tilbúinn til notkunar en þarf
þó að þorna í ca. 2 vikur.
Tilraunir sýna, að gagnvarinn viður endist
a.m.k. fjórum sinnum lengur en óvarinn viður.
Við erum eina fyrirtækið á íslandi, sem höfum
tæki til að gagnverja við undir þrýstingi.
Timburverzlunin Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244