Morgunblaðið - 14.09.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978
3
Flokksráðsfundur og
formannaráðstefna
S j álfstæðisflokksins
í lok október n.k.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að boða til
flokksráðsfundar og formannaráð-
stefnu hjá Sjálfstæðisflokknum
helgina 28. til 29. október n.k. og
verður fundurinn haldinn í
Reykjavík. Að sögn Sigurðar
Hafstein, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, eiga rétt til
setu á fundinum - rúmlega 300
manns víðs vegar að af landinu en
Kveikt á flug-
brautarljós-
um í Grímsey
Grímsey, 13.september.
í DAG var í fyrsta skipti kveikt
á flugbrautarljósunum, sem sett
hafa verið upp við flugbrautina
hér í Grímsey. Var verið að
prófa ljósin og verða þau að fullu
tekin í notkun næstu daga. Með
tilkomu þessara ljósa verður
hægt að fljúga hingað til Gríms-
eyjar allan sólarhringinn ef
veður hamlar ekki að öðru leyti.
Þá eru í pöntun aðflugshallaljós
og með tilkomu þeirra verður
búnaður flugvallarins orðinn
mjög fullkominn.
— Albert.
flokksráðsfundir Sjálfstæðis-
flokksins eru haldnir þau ár, sem
ekki er haldinn landsfundur
flokksins, og er hann að þessu
sinni haldinn um mánuði fyrr en
venja er til.
Á fundinum verður meðal ann-
ars fjallað um skipulag og starf-
semi Sjálfstæðisflokksins. Þá ráð-
gerir Sjálfstæðisflokkurinn að
halda almenna stjórnmálafundi í
októbermánuði víðs vegar um
landið en ekki hefur verið ákveðið
hvar og hvenær einstakir fundir
verða haldnir.
FM-stöð á
Húsavíkur-
fjalli
Húsavík, 13. sept.
TEKIN hefur verið í notkun ný
FM-örbylgjustöð á Húsavíkurfjalli
og á hún fyrst og fremst að þjóna
Húsavík, nærliggjandi sveitum og
jafnvel að ná til Grímseyjar. Þetta
mun bæta mjög hlustunarskilyrði
á þessu svæði.
— Fréttaritari.
Matthías Á. Mathiesen.
Guðmundur H. Garðarsson.
Jónas Bjarnason.
Ólafur B. Thors.
, ,Ef:nahagsúrr æði’ ’
vinstri stjómarinnar
Til umræðu á Varðarfundi í kvöld
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
í Reykjavík gengst fyrir almenn-
um stjórnmálafundi í kvöld, þar
sem rædd verða „efnahagsúr-
ræði“ vinstri stjórnarinnar.
Fundurinn verður haldinn að
Hótel Sögu, Súlnasal.
Málshefjendur á fundinurn
verða þeir Matthías Á. Mathiesen,
alþingismaður, Guðmundur H.
Garðarsson, formaður Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, og
Jónas Bjarnason, formaður
Bandalags háskólamanna.
Fundarstjóri verður Ólafur B.
Thors, borgarfulltrúi.
Fundurinn, sem verður eins og
fyrr segir í Súlnasal Hótels Sögu,
hefst klukkan 20.30 í kvöld og er
öllum opinn.
Fyrsti hópur verkstjóra fór tiÉBandaríkjanna í júlí s.l. og hér er
hópurinn staddur fyrir utan höfuðstöðvar Coldwater ásamt
Þorsteini Gíslasyni forstjóra.
SH menn í heim-
sókn til Coldwater
Á SUNNUDAG heldur í heim-
sókn til Bandaríkjanna
130 — 140 manna hópur frá
frystihúsum innan vébanda
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna. en hópurinn mun skoða
og kynna sér starfsemi Cold-
water, dótturfyrirtækis SH í
Bandaríkjunum.
Guðmundur H. Garðarsson
blaðafulltrúi SH sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að eins
og flestum væri kunnugt, væri
aðalmarkaður íslenzkra sjávar-
afurða í Bandaríkjunum og
þangað færi mestur hluti
frystra fiskflaka frá íslandi og
hlutdeild Bandaríkjamarkaðar í
íslenzkum sjávarafla færi vax-
andi. Því væri þýðing þessa
markaðar geysimikil fyrir þenn-
an helzta atvinnuveg Islendinga.
Coldwater Seafood Corp. hef-
ur um árabil verið einn um-
fangsmesti aðili í sölu á frystum
sjávarafurðum í Bandaríkjun-
um. Hefur fyrirtækið sífellt
aukið starfsemi sína og er nú
svo komið að það er stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar þar í
landi. Áætluð sala á þessu ári er
um 200 millj. dollara, eða meira
en 60 milljarðar ísl. kr.
Guðmundur sagði, að með
tilliti til hinnar miklu uppbygg-
ingar og eins söluaukningar
fyrirtækisins, hefði verið fjallað
um það á aðalfundum fyrir-
tækisins á undanförnum árum,
að auka þyrfti kynni á þessari
starfsemi hér heima, m.a. með
því að bjóða fulltrúum fjölmiðla
til fyrirtækisins, og efna til
ferða fyrir forráðamenn og
verkstjóra hraðfrystihúsanna.
Þessum áformum var hrundið
af stað á þessu ári. I júlímánuði
s.l. fóru tæplega 30 verkstjórar
og eftirlitsmenn frá SH í för
vestur, skoðuðu þeir verk-
smiðjurnar og framleiðslustarf-
semina. Og eins og fyrr segir
fara forráðamenn hraðfrysti-
húsanna í heimsókn vestur n.k.
sunnudag, og fara 1—2 frá
hverju frystihúgi, en 71 frysti-
hús er nú starfandi innan SH.
Um mánaðamótin októ-
ber—nóvember fer annar hópur
verkstjóra vestur og ennfremur
fréttamenn frá dagblöðum,
ríkisútvarpi og sjónvarpi.
Að sögn Guðmundar H.
Garðarssonar er talið mjög
mikilvægt að þeir sem bera
ábyrgð á framleiðslustarfsem-
inni hér heima, kynni sér sem
bezt þær kröfur, sem þessi
mikilvægi markaður gerir til
gæða á sjávarafurðum.
Júní seldi
fyrir 50
millj. kr.
TOGARINN Júní frá Hafnarfirði
seldi 153 lestir af fiski í Hull í
gærmorgun fyrir tæplega 50 millj.
kr. og var meðalverð á kíló kr. 325.
Forstöðumaður
rekstrardeild-
ar RARIK
GUÐJÓN Guðmundsson var ný-
lega skipaður íorstöðumaður
rekstrardeildar Rafmagnsveitna
ríkisins af Gunnari Thoroddsen
þáverandi iðnaðarráðherra.
Guðjón hefur verið skrifstofu-
stjóri og forstöðumaður fjármála-
deildar Rafmagnsveitnanna frá
því á árinu 1967 en við skipulags-
breytingu, sem gerð var hjá
Rafmagnsveitunum á sl. ári, tók
hann við starfi rekstrarstjóra.
Guðjón hefur starfað hjá Raf-
magnsveitunum allt frá stofnun
þeirra 1. maí 1947 og starfaði áður
hjá Rafmagnseftirliti ríkisins í
nokkur ár.
Guðjón Guðmundsson.
Skipstjórinn á Faldi
millj. kr. sekt
hlaut 1
SKIPSTJÓRINN á vélbátnum
Faldi VE 138, sem tekinn var að
ólöglegum veiðum í Skagafirði í
s.l. viku hlaut 1 millj. kr. í sekt
þegar dómur var kveðinn upp í
máli hans hjá sýslumannsemhætt-
inu á Sauðárkróki í gærmorgun.
AUKAÞING Sambands ungra
sjálfstæðismanna verður haldið í
Valhöll á Þingvöllum dagana 30.
sptember og 1. október næstkom-
andi. Þing S.U.S. eru alla jafna
haldin annað hvert ár, og hefði
næsta þing ekki átt að vera fyrr
en að ári samkvæmt lögum S.U.S.
Stjórn S.U.S. ákvað hins vegar að
boða til aukaþings í haust til þess
að ræða úrslit kosninganna í vor,
og einnig verður rætt ítarlega um
Sjálfstæðisflokkinn, starfsemi
hans og skipulag, auk ýmissa
annarra mála.
Þingið verður sett klukkan 10
árdegis á laugardag, með því að
formaður sambandsins, Jón
Magnússon, flytur ávarp. Síðan
verður kosið í starfsnefndir, og
Ef skipstjóri greiðir ekki sekt
sína innan 4 vikna, hlýtur hann 3
mánaða varðhald í staðinn. Þá var
botnvarpa bátsins gerð upptæk til
Landhelgissjóðs, og skipstjóra
gert að greiða allan kostnað við
dómsmeðferð málsins.
nefndir munu starfa um daginn,
auk þess sem almennar umræður
verða síðdegis.
Um kvöldið verður síðan kvöld-
vaka í Valhöll, en þingstörf hefjast
að nýju klukkan 10.30 á sunnu-
dagsmorgun, hinn 1. október. Þá
verða almennar umræður um
starfsemi ungra sjálfstæðis-
manná, og eftir matarhlé verða
umræður um starfsemi Sjálfstæð-
isflokksins, rætt og væntanlega
ályktað um verðbólgu og kjör-
dæmamál, auk þess sem borin
verður undir atkvæði almenn
stjórnmálayfirlýsing.
Þinginu lýkur síðan um klukkan
18 á sunnudag, með því að
formaður Sjálfstæðisflokksins,
Geir Hallgrímsson, flytur ávarp.
Til viðbótar var skipstjórinn á
Faldi dæmdur í 4000 kr. sekt vegna
brots á reglum um lögskráningu
skipverja.
Fyrir dómi viðurkenndi skip-
stjóri aldrei að hafa verið að
veiðum með botnvörpuna innan 12
mílna fiskveiðilögsögunnar, en
samkvæmt því sem Jóhann
Salberg sýslumaður á Sauðárkróki
sagði Mbl. í gær komu svo mörg
gögn fram í málinu, meðal annars
hátterni skipverja, sem benti til
þess að báturinn hefði verið að
veiðum innan 12 mílna markanna
með botnvörpu.
Loðnuflot-
inn undan
Scorebysundi
LÍTIL veiði er nú hjá íslenzka
loðnuflotanum og eru skipin nú
dreifð á svæðinu frá Jan Mayen að
Scorebysundi á Grænlandi, en þar
mega skipin veiða allt upp að 12
mílum, þar sem 200 mílna fisk-
veiðilögsaga við Grænland nær
aðeins norður að 67. breiddar-
gráðu.
Frá því i fyrradag og þar til í
gærkvöldi tilkynntu aðeins tvö
skip um veiði, Bjarni Ólafsson með
800 lestir og Dagfari með 350
lestir.
Aukaþing SUS verð-
ur haldið á Þingvöll-
um um mánaðamótin