Morgunblaðið - 14.09.1978, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1978
11
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Gunnar Gunnarsson>
SVARTFUGL.
Ritgerð um Svartfugl
eftir Svein Skorra Höskulds-
son.
Orðaskýringar og verkefni
eftir Eystein Þorvaldsson.
Almenna bókafélagið 1978.
SVARTFUGL er meðal helstu
skáldsagna Gunnars Gunnars-
sonar, saga um myrk öfl manns-
hugans. Um morðmálin kennd
við bæinn Sjöundaá á Rauða-
sandi fjallar Gunnar í senn af
nærfærni og skarpskyggni. Rýni
hans í mannleg örlög er misk-
unnarlaus. Niðurstaðan gæti
verið sú að torvelt sé að kveða
á um hver sé í raun sekur.
Bjarni og Steinunn eru að vísu
sek fundin um morð, en aðdrag-
andi morðanna og tíðarandi í
upphafi nítjándu aldar dregur
úr sekt þeirra í vitund lesand-
ans. Bjarni og Steinunn verða
fórnarlömb siðgætimats sem í
eðli sínu er valt. Gunnar Gunn-
arsson eftirlætur lesendum að
draga ályktanir og dæma.
Sagan er lögð í munn Eyjólfs
Kolbeinssonar kapelláns. Það er
hann sem með fortölum fær þau
Bjarna og Steinunni til að játa.
Þegar hann hefur máð því
marki lýsir hann hugarástandi
sínu á þessa leið:
„Samt var eitthvað það, sem
enn skar mig og nísti. Ég vissi
ekki hvað. Var það hinn jarð-
neski vanmáttur minn: hér, þar
sem ég feginn hefði viljað
Gunnar Gunnarsson.
Sekt og samsekt
hjálpa? Eða óljós meðvitund um
samsekt? — sekt, sem mér
myndi reynast örðugt ef ekki
ómögulegt að komast að nokk-
urri viðunandi niðurstöðu um.
En án þess virtist ógerlegt að
bæta fyrir hana.“
Svartfugl fjallar um jarðnesk-
an vanmátt, um syndina sem
enginn sleppur við og laun
hennar. Þar er enginn undan-
skilinn; síst Eyjólfur kapellán
sjálfur sem með slóttugra hjálp
eignast konu sem bróðir hans
hefur lagt hug á. Fyrir það
verður hann að gjalda með missi
einkasonar síns.
Sagan hefst árið 1817 daginn
sem Hilaríus, sonur kapelláns-
ins, drukknar. Þá hefur aftaka
Bjarna farið fram og Steinunn
er látin. Kapellánin rifjar síðan
upp alla þá sögu sem tengd er
Sjöundármálum og hann kallar
skriftamál sín. Örlög Bjarna og
Steinunnar verða þáttur af hans
eigin harmatölum, enda mun
athugull lesandi sjá hvernig
hinar mörgu persónur Svart-
fugls eru hluti sama uppgjörs
höfundar, hver og einn á sína
sögu sem aðeins er brot heildar-
myndar skáldsögunnar.
Miklar skáldsögur eru oft
þungar aflestrar. Ekki skal
þrætt fyrir það að Svartfugí er
ekki létt saga í venjulegum
skilningi. Það er því engin furða
þótt skólaútgáfu hennar fylgi
ritgerð eftir Svein Skorra
Höskuldsson og orðaskýringar
og verkefni eftir Eystein Þor-
valdsson. Sveinn Skorri segir að
grein hans sé skrifuð í þeim
tilgangi „að benda á leið til
lestrar skáldsögunnar Svart-
fugls og skilnings á henni".
Honum er ljóst að til eru aðrar
leiðir til annars skilnings og
hvetur lesendur til sjálfstæðra
athugana, enda „endanleg bók-
menntaskýring" ekki til að mati
hans. Ég sé ekki betur en frá
þessu sjónarmiði sé ritgerð hans
góð og gild, eflaust getur hún
orðið lesanda til stuðnings. Hún
ber þess merki að vera unnin af
alúð og er ánægjulegt til þess að
vita að fræðimer.n skulu vera
farnir að sinna skáldverkum
Gunnars Gunnarssonar að ein-
hverju marki. Einhverra hluta
vegna hefur það ekki verið gert
sem skyldi. Það var að mörgu
leyti táknrænt að með því
síðasta sem Kristinn E. Andrés-
son tók sér fyrir hendur var að
skrifa ritgerðina: Kjarninn í
verkum Gunnars Gunnarssonar.
Af skrifum Kristins mátti ráða
að honum þótti hafa dregist um
of að gera Gunnari verðug skil
og vildi bæta fyrir það.
Smyglið fór
landshoma
á milli
LÖGREGLUMENN urðu varir
við það á miðvikudag í sl. viku,
að bíl var lagt á bryggjuna á Rifi,
þar sem Stuðlafoss lá þá. og
grunaði þá að ekki væri allt með
felldu um erindi ökumanns bíls-
ins við skipverja. Áður en heima-
menn höfðu tök á að kanna málið
sjálfir, var bíllinn á bak og burt,
og gerði Ólafsvíkurlögreglan þá
rannsóknarlögreglunni aðvart.
Rannsóknarlögreglumönnum
tókst fljótlega að hafa uppi á
ökumanni bílsins eftir að hann
var kominn til Reykjavíkur og
kom þá í ljós, að hann hafði flutt
úr skipinu 60 flöskur af vodka og
6 kassa af vindlingum, sem sex
skipverjar á Stuðlafossi hafa nú
viðurkennt að vera eigendur að.
Sæmileg sala
í Fleetwood
ÁRSÆLL Sigurðsson HF seldi 89
lestir af ísuðum fiski í Fleetwood
í fyrradag fyrir 24.4 millj. kr.
og var meðalverð á kíló kr. 275.
Þá seldi togari Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, Snorri Sturluson RE,
195 lestir af fiski í Cuxhaven í
gærmorgun fýrir 47.6 millj. kr. og
var meðalverð á kíló kr. 244.
Það sem eftir er vikunnar eiga
þrjú skip eftir að selja í Englandi
og eitt í Þýzkalandi.
ÞURFIÐ ÞER H/BYLI
★ Krummahólar
2ja herb. íbúö á 4. hæð,
bílskýli, fallegt útsýni.
★ Barmahlíö
Ca. 85 ferm. íbúð í kjallara, sér
inngangur, sér hiti.
★ Laugarás
3ja herb. íbúð á jarðhæð, sér
inngangur.
★ Kleppsvegur
4ra herb. íbúð — eitt herb. í
risi.
★ Breiöholt
5 herb. íbúö á 7. hæö, glæsilegt
útsýni.
★ Kleppsholt
140 ferm. íbúð á tveim hæðum.
★ Raöhús í smíöum
Innbyggður bílskúr í Breiðholti
og Garöabæ.
★ Seltjarnarnes
3ja herb. íbúð á hæð í þríbýlis-
húsi. í skiptum fyrir sér hæð
eöa raöhús eöa einbýlishús á
Nesinu.
★ Arnarnes
Sjávarlóð viö Haukanes.
Mosfellssveit
Húseign með útihúsum 1.
hektari lands fylgir. Tilvalið fyrir
hestamenn.
★ Jörö Snæfellsnesi
Nýlegt íbúöarhús 120 hektara
girt land. Gott útræöi.
★ ísafjöröur
Húseign meö tveimur íbúðum
ásamt stórum bílskúr. Eignin
selst í einu eða tvennu lagi.
Hagstæð kjör.
★ lönaðarhús
1. hæð 300 ferm, góöar inn-
keyrsludyr. 2. hæð 350 ferm.
Húsið er uppsteypt með gleri.
★ Seljendur íbúöa
Höfum fjársterka kaupendur á
flestum stærðum íbúöa. Verð-
leggjum íbúðir samdægurs,
ykkur að kostnaöarlausu.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38. Sími 26277
Gísli Ólafsson 20178
Björn Jónasson 41094
Málflutningsskrifstofa
Jón Olafsson hrl. Skúll Pálsson hrl.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Hringbraut
2ja herb. íbúðir á 1. og 2. hæö
við Hringbraut. Bílskúr fylgir
annarri íbúðinni. Útborgun
6,5—7 millj.
Krummahólar
2ja herb. íbúð á 2. hæð í
háhýsi. Bílageymsla fylgir. Að
mestu frágengin. Útborgun 7
millj.
3ja herb.
samþykkt kjallaraíbúð í sam-
býlishúsi viö Barmahlíö. Sér
inngangur. Sér hiti.
3ja herb.
um 90 fm jaröhæö í þríbýlishúsi
við Langholtsveg. Sér inngang-
ur. Útb. 8 millj.
3ja—4ra herb.
vönduð íbúð á 3. hæð í háhýsi
við Krummahóla. Útborgun 8
millj.
4ra herb.
108 fm á 3. hæð ásamt einu
herbergi í kjallara við Hraun-
bæ. Útborgun 11 millj.
4ra herb.
100 fm á 3. hð við Grundarstíg.
Útborgun 8—8,5 millj.
3ja—4ra herb.
á 4. hæð ásamt geymslurisi við
Leifsgöt7. Suður svalir. Útborg-
un 10 millj.
Háaleitisbraut
Höfum í einkasölu 4ra herb.
vandaða jaröhæö í blokk um
110 fm. Útborgun 9—9,5 millj.
Kópavogur
4ra herb. á 1. hæð í tvíbýlishúsi
við Hlaðbrekku um 110 fm. Sér
hiti og inngangur. Bílskúrsrétt-
ur. Útborgun 9,5 millj.
Hafnarfjöröur
Höfum í einkasölu 5 herb. íbúð
á 1. hæð við Álfaskeiö um 120
fm. Bílskúrsplata fylgir. Þvotta-
hús á sömu hæð. Vill selja beint
eða skipta á 2ja herb. íbúð á
hæð í Hafnarfiröi. Útborgun
10—10,5 millj.
m\mi
i fiSTEIGNIB
AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆÐ
Slmi 24850 og 21970.
Heimasími 38157
i'o-.-- æ (Q m— •
:;.'i
Oscilloscope
Til sölu er lítiö notaö
„oscilloscope" (rafsjá).
Tegund. Telequipment
d83,s2a,v4,50Mhz. Vagn
fylgir.
Verö ca. 750 þús.
upplýsingar í síma 27125.
Miðborg—Hus - byggingarleyfi
Til sölu er steinhús á góöum staö viö
miöborgina. Húsiö er kjallari, hæö og ris.
Byggingarréttur fyrir 3 hæöir ofaná húsiö.
Verö: 20.0 millj.
Fasteignaþjónustan
Austurstrætí 17 (Si!U& Valdi)
sími 26600
Ragnar Tómasson.
MIOBORG
fasteignasalan í Nýja-biohusinu Reykjavík
Símar 25590,21682
2—3ja herbergja Njálsgötu
íbúöin er í timburhúsi og skiptist í stofu, svefnherbergi,
eldhús og snyrtiherb. Ris yfir íbúöinni. Sér inng. Ser hiti.
Verö 8.5 millj. Útb. 5.5 millj.
2—3ja herbergja Hlíöarveg Kóp.
Ca. 80 ferm. samliggjandi stofur sem má skipta, hol,
hjónaherbergi og baö. Gæti losnaö fljótlega. Verö 10 millj.
Útb. 7 millj.
3ja herbergja Dúfnahólar
íbúöin er á 3ju hæð meö góðu útsýni. Bílskúrsplata fylgir.
Verö 13.5 millj. Útb. 9 millj.
4ra herbergja Ásbraut Kópavogi
íbúðin er á 4. hæö. Gott útsýni, 3 svefnherbergi eru í
íbúðinni. Verö 14 millj. Útb. 9.5 millj.
4—5 herbergja Þverbrekku (toppíbúð)
Sér þvottahús er í íbúöinni (mætti hafa sem svefnherb.).
Samliggjandi stofur, 3 svefnherb. Tvennar svalir. íbúðin er
öll vönduö. Gott útsýni. Verð 17-18 millj. Útb. 11-12 millj.
Látiö skrá íbúðina
strax í dag.
Jón Rafnar sölustjóri,
heimasimi 52844.
Vantar íbúdir
allar stæröir.
Guðmundur Þórðarson hdl.