Morgunblaðið - 07.10.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978
. u VT
VELVAKANDt
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
en ég á ekkert bágt með að skilja
fólk, sem ekki kann að meta slíkar
trakteringar. Litiar og ljúfar
melódíur held ég þó að eigi aðgang
að öllu venjulegu fólki hvenær sem
er og hvar sem er. Þess vegna
langar mig til að þakka enn fyrir
þennan ágæta þátt og vona að
hann verði sem lengst á dagskrá.
Ég hef heyrt ýmsa hæla honum,
meðal annars fólk, sem situr undir
stýri á þessum tíma á leið til
vinnu. Það hafði á orði að það væri
einhver munur að útvarpa þessari
góðu tónlist í staðinn fyrir for-
ystugreinastaglið, sem til skamms
tíma var á dagskrá á sama tíma.
Að lokum langar mig, Velvakandi
sæll, að vita hvort ekki er hægt að
fá upplýsingar um það hver sé
umsjónarmaður þáttarins.
Guðrún Aðalsteinsdóttir.“
Á tónlistardeild útvarpsins fékk
Velvakandi þær upplýsingar að í
sumar hefðu tveir námsmenn
annast þáttinn, en að undanförnu
hafa það verið tveir starfsmenn
tónlistardeildar, þeir Knútur R.
Magnússon og Ragnar Jónsson.
Sagði Ragnar að reynt væri að
velja blandaða tónlist úr ýmsum
áttum. Jafnframt upplýsti hann —
bréfritara til hrellingar væntan-
lega — að í ráði væri að þáttur
þessi hyrfi með vetrardagskránni,
en þó væri það ekki að fullu
afráðið. Velvakandi þykir ástæða
til að taka undir með bréfritara að
hér er um mjög áheyrilegan þátt
að ræða, sem þyrfti endilega að fá
að vera enn um sinn á sínum stað.
Þessir hringdu . . .
• Bjórinn
í staðinn
Ö.Á.,
— Nú er verið að taka ger-
sveippina frá þeim sem hafa þurft
á þeim að halda fyrir bruggið og
þykir mönnum mjög misjafnt
hvernig það mælist fyrir. En í
sambandi við þetta er annað sem
mætti e.t.v. biðja um í staðinn og
það er að hingað verði fenginn
almennilegur bjór til sölu í öllum
verzlunum. Maður er í rauninni
aldeilis gáttaður á að það skuli
ekki hafa verið geft fyrir langa
löngu.
• Betri stað
K.B.,
— Það er áreiðanlega hægt að
finna turninum sem nú er í
Austurstræti betri stað, því mér
finnst eins og fleirum hann
skyggja mjög á útsýnið úr Banka-
stræti og úr Austurstrætinu sé
horft austur éftir. Mér finnst í
rauninni skemmd að því að hafa
turninn þarna því loksins þegar
stíll er kominn á umhverfið þarna
þá er þessum „kassa“ eða „kubbi“
eins og ég vil kalla hann, skellt
þarna niður. Ég held að turnínn sé
betur kominn við Lækjargötuna
þar sem símaklefinn er nú eða
jafnvel við hinn enda Austur-
strætis við Aðalstræti gegnt Hall-
ærisplaninu.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pitursson
Á skákmóti í Ungverjalandi í ár
kom þessi staða upp í skák þeirra
Perenyis, sem hafði hvítt og átti
leik, og A. Schneiders.
17. IIxd7!! - Dxd7, 18. gxfG -
Bd6, 19. Be6 - Dc7, 20. Í7+ -
Kd8, 21. Ildl - Hc8, 22. Dxe5! og
svartur gafst upp. Eftir 22. —
Rxe5,23. Bg5+ - De7, 24. Hxd6+ -
Kc7, 25. Bxe7 hefur hvítur fjögur
peð og öflugt biskupapar fyrir
skiptamuninn.
HOGNI HREKKVISI
Þu NOT/\R AUXoF fV\\<\€) A? fAPP'ifó'
37
í nokkrar fólksbifreiðar, Pick-up bifreið með fjórhjóladrifi.
Ennfremur nokkrar ógangfærar bifreiðar, þ. á m. vörubifreið og
sendibifreið er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 10.
október kl. 12—3.
Tilboöin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna.
MHHU
wmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mm
Píanótónleikar
Rögnvaldur Sigurjónsson heldur píanótónleika í
Þjóöleikhúsinu sunnudaginn 8. október kl. 3 e.h.
Á efnisskrá eru verk eftir Mozart, Liszt, Chopin,
Debussy og Prokofieff.
Aðgöngumiöar seldir í Þjóöleikhúsinu.
Bifreiðastillingin
Smiöjuvegi 38, Kópavogi, sími 76400.
Eru Ijósin í lagi?
Ljósastilling samstundis.
Bifreiðastillingin,
Smiðjuvegi 38, Kópavogi, sími 76400.
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburðarfólki
Austurbær:
□ Skólavöröustígur
□ Sóleyjargata
□ Sjafnargata
□ Hverfisgata 4—62
□ Laugavegur 1—33
Úthverfi:
□ Gnoöarvogur 14—42
Vesturbær:
□ Kvisthagi
□ Miöbær
□ Ægissíöa
□ Nesvegur 40—82.
□ Skeiðarvogur
Uppl. í síma 35408
ffotgtntirltiMfr