Morgunblaðið - 07.10.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.10.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978 Pétur beint í aðal- Feyenoord - sagði framkvæmdastjóri Feyenoord, sem hefur einnig áhuga á Karli Þórðarsyni AÐ undanförnu hefur verið fjallað um þaö í fjölmiðli einum að þeim Pétri Péturssyni og Karli l>órðarsyni hafi verið hannað að fara til FC Twente að landslciknum loknum í Ilalle í AusturÞýskalandi. Var sagt að þeir hefðu fenjíið skipun um að koma heim frá formanni knattspyrnuráðs Akraness. Til að kanna þetta mál ofan í kjölinn ok fá staðreyndir ræddi Mbl. við þá Pétur Pétursson ok Karl Þórðarson o>? fara viðtiilin hér á eftir. PETIJR I’étursson hefur tekið atvinnutilhoði Feyenoord ok hann mun KanKa bcint inn í aðalliðið. saicði P. Stephan. framkvæmdastjóri Feyenoord. í viðtali við Mbl. í Kær. Þeir Pétur, Stephan og Gunnar SÍKurðsson formaður knattspyrnuráðs IA fóru til Rotterdam í morKun. þar sem Pétur mun líta á allar aðstæður hjá félaginu. Ileim koma þeir aftur á mánudaginn ok verður þá genKÍð frá því sem cftir er í samninKaKerðinni ok KSI tekið inn í myndina. Vinstri útherji Ste[)han sagði, að Pétur gæti hæði ieikið stöðu miðherja og stöðu vinstri útherja og væri slík aðlögunarhæfni dýrmæt fyrir félagið, því að þá gæti hann f.vllt háðar stöðurnar ef að svo bæri undir að leikmenn meiddust. Fyrst um sinn sagði Stephan, að Pétur yrði látinn leika á vinstri kantin- um, þar léki fyrir landsliðsmaður- inn Jan Van Deinesen, en hann væri hetri leikmaður aftar á vellinum og yrðu þar því engin vandræði. Miðherji Feyenoord er unglingalandsliðsmaður að nafni Houteman og Pétur mun taka stööu hans, verði hann fyrir meiðslum eða eitthvað annað kemur til. Fær að leika landsleiki Stephan lagði ríka áherslu á, að i samningi Péturs yrði rammi þar sem kæmi fram, að hann fengi að leikaalla landsleiki sem Islending- ar óskuðu eftir. Þetta skiptir Islendinga auðvitað miklu máli og er nýlunda meðal atvinnumann- anna erlendis. Hefur landinn oft orðið áð þola kenjar forráðamanna þeirra erlendu félaga, sem Islend- ingar eru leíkmenn með. Hefur áhuga á Karli Það kom fram í viðtalinu við Ste[)han, að hann hafði rætt dálítið við Karl Þórðarson, en honum var ekki boðinn samningur að svo komnu máli. Hins vegar sagði Stephan, að hann hefði fullan hug á að bjóða Karli út til æfinga með félaginu. Stephan sagði: — Það er mín skoðun, að það fari Karli illa að leika sem tengiliður eins og hann hefur verið látinn gera með landsliðinu, til þess er hann ekki nógu stór og sterlfur. Ég tel það hæfa honum betur að leika stöðu útherja og ef úr verður að hann þekkist boð Feyenoord um að koma til æfinga, mun ég reyna hann í þeirri stöðu. Ekki er útilokað að Feyenoord hjóði honum svipaðan samning. Það er ekki gott að segja, hvort eða hvenær Karl kemur til okkar, kona hans á von á barni í desember og hann er að íhuga hvað gera skal. Landsleikirnir gerðu honum ekki npgu góð.skil, því að þar lék hann í röngum stöðum, það er mitt álit. Pétur Pétursson hefur þá bæst í ört stækkandi hóp íslenskra at- vinnumanna í knattspyrnu og af orðum P. Stephan mátti ráða, að Karli Þórðarsyni kynni að vera boðið að fylgja í fótspor Péturs áður en langt um liði. Það er ekki félag af verri endanum sem Pétur Pétursson, miðherji íslenska landsliðsins, hefur gerst leik- maður með, Feyenoord vann Evrópubikar meistaraliða árið 1970, er liðið vann Celtic 2—1. Þá hefur liðiö unnið UEFA-bikarinn eftir úrslitaleiki gegn enska liðinu Tottenham. F’eyenoord er í 5. sæti hollensku deildarkeppninnar eins og er, en þó skammt undan efsta liðinu Ajax. Um síðustu helgi vann Feyenoord meistaraliðið PSV Eindhoven á heimavelli sínum með einu marki gegn engu og má af því draga nokkra ályktun um styrkleika liðsins. — gg. • Feyenoord frá Rotterdam. eitt fra'gasta lið Evrópu. og hið nýja lið Péturs Péturssonar. miðherja islenzka landslipsins. Ráðum gjörðum okkar sjátfir segja Pétur og Karl — Það er rétt að haft var samband við mig í Halle að landsleiknum loknum, og mér stóð til boða að fara til FC Twente til að skoða allar aðstæður, sagði Pétur. Ég vissi hins vegar að okkar var beðið heima á Fróni, af framkvæmdastjóra Feyenoord og tók þá ákvörðun alveg á eigin ramleik að fara beint heim. Það sem klifað hefur verið á að okkur Bændaglíma á Hvaleyrí SÍÐASTA keppni sumarsins á Hvalevrarvellinum fer fram í dag og er það Bændaglíma Golfklúbbs- ins Keilis. Allir byrja jafnt kl. 13.30 og verður ræst með flugelda- skoti. hafi verið bannað að fara til Twente er ekki rétt. — Það að við Pétur höfum ' fengið skilaboð um að fara alls ekki með Van Dalen til Hollands, er algjört bull. Sannleikurinn er sá, að maðurinn talaði við Pétur, en leit ekki við mér. Hefði hann áhuga á að ræða við mig einnig, hafði hann alla möguleika á því. Hringt var í okkur frá íslandi þetta kvöld og var Pétri sagt að þessi P. Stephan væri hér staddur. Við töluðum þá saman og við ákváðum að fara beint heim, það var algerlega okkar ákvörðun. F.vrir mér lá ekkert annað en að koma beint heim, sagði Karl Þórðarson í viðtali við Mbl. í gær, er hann var spurður um þá full.vrðingu, að honum og Pétri hafi beinlínis verið fjarstýrt frá Halle og þeim meinað að fara með framkvæmdastjóra Twente í kynningarferð til félagsins. —r Eitthvað var um það rætt, að ég mætti koma til Feyenoord í næstu viku og skoða aðstæður, en það mál er allt mjög óljóst á þessu stigi og ég vil helst ekkert um það segja. Annars er mér eiginlega alveg sama þó að þetta virðist hafa hrokkið upp fyrir eins og er. Ég verð bara uppi á Skaga eitt ár enn^ ég veit þar a.m.k. hvar ég stend sagði Karl ennfremur. Um það hvort ekki væri um fleiri félög að ræða, vildi Karl ekki tjá sig, sagði þó eitthvað vera i deiglunni, en ekki tókst blm. að véiða upp úr honum hvað það var. - ÞR/gg • Pétur Pétursson t.h. verður nú leikmaður með Feyenoord. Fylgir Karl Þórðarson t.v. honum til Hollands áður en lanKt um líður? Forest gegn Everton! DREGIÐ hefur verið í 4. umferð ensku deildarbikarkeppninnar ok kennir þar ýmissa grasa. Athygli hefur vakið. hve mörg störu liðanna hafa verið slegin út úr keppninni. nú síðast Manchester Utd. og Bolton Kegn liðum úr 3. deild. Watford og Exeter. Þau urðu síðan að bíta í það súra epli. að dragast saman í 4 umferðinni á heimavelli Exeter. Aðalleikur umferðarinnar er vafalaust leikurinn á Goodison Park. milli Everton ok NottinKham Forest. en síðarnefnda liðið er auk þess að vera EnKlandsmeistari. handhafi deildarbikarsins. Þá er útséð. að a.m.k. 3 lið utan 1. dcildar komast áfram í næstu umferð. Annars lítur drátturinn þannig út. Everton — Nottingham Forest Norwich — Blackpool eða Man. City Exeter — Watford Aston Villa eða Crystal Palace — Luton QPR — Sheffield Utd. eða Leeds Charlton — Stoke Brighton — Peterbrough eða Swindon Rotherham eða Raeding — Southhampton Leikirnir fara fram dagana 6—8 nóvember. „Slask" í Laugardalinn VESTMANNAEYINGAR semja nú við pólska liðið Slask Wroclaw með milligöngu pólska handknattleiksþjálfarans Bodans Kowalscky, sem er einmitt frá félaginu. Eftir fyrstu samningaviðræður um hvenær leika skuli UEFA-bikarleikina og hvar, eru allar horfur á því að leikið verði heima sunnudaginn 21. október. Tóku Pólverjarnir vel í þá hugmynd, en engir leikir eru þá í pólsku deildinni. Hin hugmyndin er sú að báðir leikirnir fari fram ytra og voru Pólverjarnir að sögn hrifnir af þeirri hugmynd. Verði leikið heima, mun leikurinn fara fram á Laugardalsvell- inum. — SS Trimmkeppni vinabæjanna VINABÆJAMÓT, svokölluð Trimmkeppni, fer fram í Keflavík 15. okt. næstkomandi. Þá verður einnig keppt í fjórum vinabæjum Keflavíkur, Kerava í Finnlandi, Trollháttan í Svíþjóð, Hjörring í Danmörku og Kristiansand í Noregi. Það er almenningur bæjanna, sem keppir, og er hverjum bæ frjálst að keppa í hverju sem hann óskar, síðan verða gefin stig samkvæmt íbúafjölda hvers bæjar. Keflvíkingar geta valið um i hverju þeir keppa, þeir geta synt 1000 metra, hjólað 5 km, skokkað eða hlaupið 2.5 km eða leikið 9 holur á golfvellinum. Uppskeruhátíð hjá ÍR IJPPSKERUHÁTÍÐ knattspyrnudeildar ÍR verður í Breiðholtsskóla kl. 14.00 í dag. Fríar veitingar og verðlaunaafhending. Allir velkomnir. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.