Morgunblaðið - 07.10.1978, Síða 40
(JLYSINíiASIMINN KR:
22480
|ílflT0lTObI«íltí>
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1978
Hækkun afurðalána frystiiðnaðar um 1800 millj. kr. á ári;
„Að markaðsverð hækkí
eða gengið hljóti að síga”
ÁTVR — Mynd þessi er
tekin sjö mínútum fyrir
klukkan fimm í útsöiu
ÁTVR við Lindargötu í
gærdag, föstudag. Þetta
er jafnframt fyrsti föstu-
dagur í mánuði. Eins og
myndin ber með sér er
ekki samfelld einföld röð
viðskiptavina við af-
greiðsluborðið. Óvenjuleg
mynd, þegar við slíkar
aðstæður eru jafnan 4 til
5 raðir viðskiptavina við
borðið, og oft fullt út úr
dyrum. Áfengi hefur á
síðasta misseri hækkað í
tvígang, samtals um
38%.
— segir Eyjólfur Isfeld hjá SH
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna
(>K Sjávarafurðadeild SÍS hafa
ákveðið 3% hækkun á útborKunar
vcrði til frystihúsa innan vcbanda
sinna og Kildir það fyrir tímahilið
1. okt. — 1. janúar. Þá hefur
Seðlabanki íslands ákvcðið að
afurðalán til fiskvinnsiuhúsa
hækki um 3%, en þctta þýðir um
1800 millj. kr. miðað við síðasta ár.
Samkvæmt upplýsingum Eyjólfs
Isfelds forstjóra SH er þessi
hækkun á útborgunarverði gerð til
þess að mæta auknum kostnaði við
rekstur frystihúsanna vegna 5%
fiskverðsha'kkunarinnar.
Jón Sigurðsson forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunarinnar sagði í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi að staða
frystihúsanna fyrir fiskverðs-
hækkunina hafi verið frekar knöpp.
„Eg hygg,“ sagði hann, „að þeir hafi
verið með 1—2% tap áður en þessu
var bætt við, en 5% fiskverðs-
hækkun þýðir 2’/fe—3% af tekjum
frystihúsanna." Tekjur frystihús-
anna eru um 60 milljarðar á ári
þannig að hér er um að ræða um
1500-1800 millj. kr.
„Þessi hækkun á útborgun er gerð
til þess að mæta hækkun á fisk-
verðinu,“ sagði Eyjólfur, „en reikna
má með að framleiðsluverðmæti
fyrir þetta tímabil til áramóta verði
um 14 milljarðar króna.“ 3%
hækkun afurðalána þýðir því 420
millj. kr.
Aðspurður um það hvernig unnt
væri að greiða þessa hækkun eins og
staða frystihúsanna væri sagði
Eyjólfur: „Þá fer að versna í því,
gengið er óbreytt og markaðsverðið
er óbreytt og menn hljóta því að
hugsa hver fyrir sig að annað hvort
verði að markaðsverð hækki eða
gengið hljóti að síga. Þetta er því
ekki á pottþéttum grunni og þéss ber
að geta að framleiðsla þessa tímabils
fer væntanlega ekki á markað fyrr
en eftir áramót."
Aðspurður sagði Eyjólfur að ekki
væri útlit fyrir að markaðsverð
mynídi hækka eða lækka.
Tómas Árnason fjármálaráðherra;
SH hefur þær reglur að jafnaði að
halda eftir um 5% af verði fyrir
afurðir þar til hvert tímabil er gert
upp og sagði Eyjólfur aðspurður að
það fé myndaði enga sjóði því það
væri gert ráð fyrir því í hverju
lokauppgjöri á hverju tímabili, en
þáu eru að jafnaði þrjú á ári.
Þá var Eyjólfur spurður um þau
vilyrði sem fylgdu í ráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar vegna frystihús-
anna og sagði hann að loforð lægju
fyrir um lækkaða vexti og afnám
söluskatts og tolla af vélum til
fiskvinnslu.
Sem dæmi um það hvað það þýddi
fyrir frystihúsin að fá lækkaða vexti
á afurðalánum nefndi Eyjólfur að
lækkun vaxta úr 19% í 8% þýddi tæp
2% af tekjum frystihúsanna, en hins
vegar kvað hann ekkert endanlegt
hafa komið frá ríkisstjórninni í
þessum efnum.
Samþykkt að leggja fram
frumvarp með fyrirvara
— misskilningur segja ráðherrar Abl. og bóka mótmæb
Vísir og Dag-
blaðið kærð
VERÐLAGSSTJÓRI kærði í gær
útgáfufélög Dagblaðsins og Vísis,
Dagblaðið hf. og Reykjaprent hf.,
fyrir verðlagsbrot og hefur hann
falið verðlagsdómi málið til viðeig-
andi meðferðar.
Sverrir Einarsson sakadómari,
formaður verðlagsdóms, sagði í
samtali við Mbl. í gær, að hann hefði
kallað framkvæmdastjóra útgáfu-
fyrirtækjanna tveggja og stjórnar-
menn fyrir dóminn á mánudaginn.
Meðdómendur Sverris í verðlags-
dómi eru Gunnar Eydal hdl. og Egiil
Sigurgeirsson hrl.
Sjá kæru verðlagsstjóra til
verðlagsdóms & bls. 19.
„ÞAÐ var samþykkt að leggja fram þetta fjárlagafrumvarp með þcim fyrirvara að menn ættu eftir að tala um
stefnuna í vissum greinum og það er það sem ríkisstjórnarflokkarnir eru nú að gcra,“ sagði Tómas Árnason
fjármálaráðherra er Mbl. ra'ddi við hann í gær vegna þeirra ummæla Ragnars Arnalds menntamála- og
samgönguráðherra í blaðaviðtali í gær, að það sé misskilningur að tala um að fjárlagafrumvarp hafi verið
samþykkt í ríkisstjórninni. Svavar Gestsson viðskiptaráðherra sagði í samtali við Mbl. í gær, að „engin
atkva‘ðagreiðsla“ hefði íarið fram innan ríkisstjórnarinnar um fjárlagafrumvarp og „það er ckki hægt að tala
um neina aðra samþykkt.” Sagði Svavar að ráðherrar Alþýðubandalagsins hcfðu á ríkisstjórnarfundi á
fimmtudag látið bóka mótmæli sín við þeirri túlkun. að samþykkt hcfði verið gerð.
„Við teljum nauðsynlegt að þegar
fjárlagafrumvarp er lagt fram þá
liggi fyrir þær breytingar sem
ríkisstjórnin ætlar að gera og þær
Banastys
í Dölum
BANASLYS varð í Ilvammsdal
í Saurbæ í Dalasýslu síðdegis á
fimmtudag. 17 ára piltur,
Tryggvi Jónsson, Eyjahrauni 33,
Þorlákshöfn, varð undir vinnu-
vél og beið bana.
Tryggvi heitinn vann við
lagningu Vestfjarðarlínunnar.
Vann hann einn á stórum bor,
sem boraði fyrir háspennustaur-
um. Sat hann á bornum og var að
færa hann til þegar borinn valt
ofan í gil, rúmlega 20 metra niðijr
bratta hlíð. Er talið að Tryggvi
heitinn hafi orðið undir bornutn
og látizt samstundis, en enginn
sjónarvottur var að slysinu.
verði þannig, að um þær sé samstaða
ríkisstjórnarflokkanna," sagði Svav-
ar Gestsson. „Við þurfum að vinna
okkur niður á samkomulag um
forsendur frumvarpsins. Það er
enginn óyfirstíganlegur vandi, en til
þess þurfum við tíma.“
I gær tók til starfa sex manna
starfshópur ríkisstjórnarflokkanna
til að fjalla um forsendur fjárlaga-
frumvarpsins. í hópnum eru: Lúðvík
Jósepsson og Geir Gunnarsson frá
Alþýðubandalaginu, Sighvatur
Björgvinsson og Magnús H. Magnús-
son frá Alþýðuflokknum og Tómas
Árnason og Halldór E. Sigurðsson
frá Framsóknarflokknum.
í blaðaviðtali í gær segir Ragnar
Arnalds m.a.: „Að fjármálaráðherra
leggi fram sitt eigiö frumvarp tel ég
hins vegar ófært, enda hefur það
aldrei þekkst." „Þetta er algjör
misskilningur,“ sagði Tómas Árna-
son fjármálaráðherra er Mbl. bar
þessi orð undir hann. „Ragnar hefur,
eins og aðrir ráðherrar, fengið
tækifæri með sínu starfsliði til að
vinna með fjármálaráðuneytinu að
gerð fjárlagafrumvarpsins."
Undirboð
Kanadamanna
Síldarútvegsnefnd hefur látið
kanna undirboð Kanadamanna á
saltsíldarmörkuðum í Evrópu og
Bandaríkjunum. Samkvæmt
samanburði sem síldarútvegs-
nefnd og fulltrúar stjórnvalda á
Nýfundnalandi hafa nýlega gert
greiddu vinnslustöðvar vestra á
sl. ári fyrir fersksíldina rösklega
fjórðung þess verðs, sem söltun-
arstöðvar hér á landi greiddu.
Segir í upplýsingabréfi síldarút-
vegsnefndar að meginástæður
þess að Kanadamenn geta boðið
saltsíld á svo lágu verði sem raun
ber vitni sé hið lága verð sem
kanadískar söltunarstöðvar
greiða fyrir fersksíldina.
Sjá bls. 19. Skýringar á undir
boðum Kanadamanna.
Hafa átt 450 millj. kr.
verðmæti í Zaire í 2 ár
í SAMTALI við Guðbjörn
Ingólfsson forstjóra ís-
stöðvarinnar í Garðinum í
gær kom fram, að þurrfisk-
framleiðendur, flestir í
Garðinum, hafa ekki feng-
ið ennþá greiddar um 450
milljónir króna fyrir þurr-
fisk sem sendur var
Zaire í september 1976.
til
„Það má segja að þurr-
fiskframleiðendur búi við
ennþá meiri erfiðleika um
þessar mundir en frysti-
iðnaðurinn og hér hjá okkur
er mikið um þurrfiskfram-
leiðslu. Það eru miklir
erfiðleikar að selja og í tvö
ár höfum við átt 400—450
milljón kr. verðmæti í Zaire
í Afríku, en þann 2. sept.
1976 var farmurinn
sendur. Um 60% af þessari
upphæð er fyrir fisk frá
örfáum mönnum hér í
Garðinum, þannig að það er
ekki lítill vandi að velta
vaxtabyrði af slíku árum
saman."