Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 1
44 gÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
230. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ijögregla laut
í lægra haldi
\ ín. f). uktúber. Reutrr.
LÖGREGLA hafði hendur í hári |
hryðjuverkamanns og vinkonu
hans í Vín í dag en þau yfirbuguðu
lögreglumennina, stálu bfl og kom-
ust undan að sögn lögreglunnar.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að hryðjuverkamaðurinn væri
sennilega Christian Klar, einn
þriggja manna sem mest er leitað
að vegna morðsins á vestur-þýzka
iðnrekandanum Hanns Martin
Schleyer og bankastjóranum
Jiirgen Ponto.
Hundruð lögreglumanna slógu
hring um Vín og leituðu flóttamann-
anna en hryðjuverkamaðurinn og
vinkona hans voru horfin. Menn úr
varalögreglunni voru kallaðir út.
Lögreglumennirnir sem upphaflega
höfðu hendur í hári mannsins og
konunnar voru tveir og meiddust
lítið.
Lögreglan kveðst ekkert vita um
konuna. í síðustu viku fann lögregl-
an fingraför af Inge Viett úr
Baader-Meinhof-samtökunum í einni
útborg Vínar.
Hryðjuverkamaðurinn og vinkona
hans voru handtekin í íbúð í
versturúthverfum Vínar. Þau læstu
lögreglumennina inni í íbúðinni
þegar þau höfðu yfirbugað þá, flúðu í
bíl en yfirgáfu hann fljótt, stöðvuðu
annan bíl, fleygðu bílstjóranum upp
á gangstétt og óku burt í bíl hans.
Öfgamenn myrða
sex í Tyrklandi
Ankara, 9. október. Reuter.
SEX félagar Verkamannaflokksins,
sem er í stjórnarandstöðu í Tyrk-
landi, voru myrtir í gærkvöldi og
Bulent Ecevit forsætisráðherra
sakaði öfgamenn til hægri um að
koma af stað vandræðum til að
komast til valda í landinu.
Bíllinn fannst seinna yfirgefinn
norðurúthverfum Vínar.
Övissa í
einvíginu
Baguio. 9. október. Reuter.
ÚRSLIT einvígisins um heims-
meistaratitilinn í skák eru nú í
mikilli óvissu þar sem heims-
meistarinn Anatoli Karpov
hefur tapað tveimur skákum í
röð fyrir áskorandanum Viktor
Korchnoi og sérfræðingar segja
að ómögulegt sé að spá nokkru
um úrslit.
Korchnoi stendur sálfræðilega
betur að vígi en Karpov og
áskorandinn vann í dag að
rannsóknum sem eiga að
tryggja honum sigur í einvíginu.
Karpov hefur senniiega teflt
meira en nokkur annar heims-
meistari í skáksögunni. Hann
hefur alls teflt rúmlega 100
skákir síðan hann varð heims-
meistari fyrir þremur árum.
Þegar einvígið hófst hafði hann
tapað aðeins sex skákum — og
aldrei tveimur í röð.
Korchnoi lét í ljós ánægju í dag
með taflmennsku sína í síðustu
skákinni en þakkaði sigur sinn
skyssum Karpovs fremur en eigin
snilli. Heimsmeistarinn er sagður
dauðþreyttur.
Hann vitnaði í vin sinn Bobby
Fischer, fyrrverandi heimsmeist-
ara, og sagði: „Fischer hefur
alltaf sagt að ég hafi keppnis-
skap.“
„Eg held að þetta sé í fyrsta
skipti á skákferli Karpovs sem
hann hefur tapað tveimur skák-
um í röð,“ bætti hann við.
Sjá nánar bls. 27.
Öeirðir
vegar
/
í
yiðs
Iran
Tehoran. 9. októher. VI*.
ÓEIRÐIR geisuðu í sex borgum
Irans í dag og lögreglumenn skutu
að minnsta kosti sex manns til bana
og enn fleiri særðust.
Verkfall ríkisstarfsmanna hefur
breiðzt út til flestra ríkisstofnana.
Jaafar Sharif-Emami forsætisráð-
herra hefur skorið niður herútgjöld
og útgjöld til smíði kjarnorkuvera
til þess að ganga að launakröfum
verkfallsmanna.
Upphaflega lögðu starfsmenn fjar-
skiptakerfisjns og ríkisbanka niður
vinnu og þegar þeir fengu 100%
kauphækkun fóru starfsmenn ann-
arra ríkisstofnana fljótlega að dæmi
þeirra.
í dag gengu rúmlega 30.000
starfsmenn stáliðjuvera í Isfahan í
lið með verkfallsmönnum og kröfð-
ust launahækkana og umbóta í
húsnæðismálum og læknaþjónustu.
Nýtt skólaár hófst í dag en
þúsundir skóla eru lokaðir vegna
verkfalls kennara og nemenda.
7.000 verkamenn í Khuzestan,
suðvestur af Teheran, hótuðu í dag
að ganga fylktu liði til höfuðborgar-
innar.
Andstæðingar stjórnarflokksins
lögðu í dag undir sig tvær skrifstofu-
byggingar flokksins í Teheran.
Areiðanlegar heimildir herma að
yfirmenn hersins, þar á meðal
herstjórinn í Teheran, Gholam-Ali
Ovisi hershöfðingi, sitji á rökstólum.
Reykmökkur og eldtungur í' iðnaðarhverfi
undanförnu.
í' Beirút. Þetta hefur verið hversdagsleg sjón í borginni að
Sarkis fær flesta
gegn sér í Líbanon
Bcirút. 9. októbcr. Routcr.
ALLSHERJARVERKFALL lamaði
í dag athafnalíf í vesturhluta
Beirút þar sem múhameðstrúar-
menn eru í meirihluta og libanskir
vinstri sinnar lögðu áherzlu á
kröfur sínar um að sýrlenzkir
hermenn yrðu áfram í austurhluta
borgarinnar þar sem kristnir menn
eru í meirihluta.
Elias Sarkis forseti fór flugleiðis
til Saudi-Arabíu eftir árangurslitl-
ar viðræður í Damaskus. Sam-
kvæmt blaðafregnum leggur hann
til að fækkað verði í sýrlenzka
herliðinu í Austur-Beirút.
Vinstrisinnarnir sem lögðu niður
vinnu í Vestur-Beirút bentu á hvað
hann hefði lítið svigrúm í tilraunum
sínum til að koma í veg fyrir nýja
bardaga Sýrlendinga og vopnaðra
sveita kristinna manna. Vikulöngum
bardögum hægrimanna og Sýrlend-
inga, er breyttu stórum hlutum
Austur-Beirút í auðn, lauk með
vopnahléi á laugardaginn.
Hægrimenn krefjast algers brott-
flutnings Sýrlendinga frá Líbanon
og þeim finnst áætlun Sarkisar um
skipan öryggismála ekki ganga nógu
langt. En vinstrimönnum finnst hún
ganga alltof langt. Þeir óttast að
brottflutningur Sýrlendinga leiði til
nýrrar borgarastyrjaldar á við þá
sem geisaði 1975—76.
Á fundinum í Damaskus var
ákveðið að utanríkisráðherrar Sýr-
lands og Líbanons kæmu saman til
fundar. Þar sem svo lítill árangur
virðist hafa orðið af ferð Sarkisar
forseta er talið vafasamt að vopna-
hlé það sem hann og Hafez Al-Assad
forseti sötndu á laugardag geti orðið
varanlegt.
Viðræðurnar sýndu líka að Líban-
onsforseti er í sjálfheldu.
Vinstrimenn tortryggja hann og
hægrimenn eru honum beinlínis
fjandsamlegir.
Bhutto-sinnar
teknir höndum
Islamahad. 9. októhcr. Rcutcr.
IIERFORINGJASTJÓRNIN í
Pakistan hefur hafizt handa um að
Osamkomulag um
arftaka Fálidins
Stokkhólmi. 9. októhcr. Rcutcr.
FORSETI sænska þingsins. Henry Allard. tilkynnti í kvöld að loknum viðræðum við leiðtoga helztu
stjórnmálaflokkanna að honum hefði ekki tekizt að ná samkomulagi um tilnefningu eftirmanns Thorbjörn
Fálldins forsætisráðherra sem baðst lausnar fyrir sig og stjórn sína í síðustu viku vegna ágreinings um
stefnuna í kjarnorkumálum.
Stjórnmálafréttaritarar hafa talið að líklegasti eftirmaður Falldins sé leiðtogi frjálslynda
Þjóðarflokksins, Ola Ullsten. Ullsten hefur verið talinn líklegri til þess að geta aflað sér stuðnings
sósíaldemókrata en leiðtogi íhaldssama Ha'gfara flokksins, Gösta Bohman.
Allard þingforseti sagði að hann
mundi hefja að nýju viðræður við
leiðtoga stjórnmálaflokkanna á
morgun.
Samkvæmt síðustu skoðana-
könnunum eru sænskir kjósendur
enn fylgjandi borgaralegri stjórn.
Næstu þingkosningar eiga að
fara fram í september 1979.
Bohman, leiðtogi hægrimanna,
sagði í dag að hann vonaði að aftur
gæti komizt á einhvers konar
samvinna milli Miðflokksins,
frjálslyndra og hægrimanna.
Hægrimenn hafa reiðzt því að
mikið var um það rætt um helgina
að Ullsten kynni að halda þeim
utan við stjórnina ef hann yrði
næsti forsætisráðherra.
í kosningunum 1976 hlutu
sósíaldemókratar 152 þingsæti af
349, Miðflokkurinn 86, hægrimenn
55, frjálslvndir 39 og kommúnistar
17.
handtaka stuðningsmenn Zulfikar
Ali Bhuttos fyrrverandi forsætis-
ráðherra til að afstýra óeirðum
þegar hæstiréttur tekur fyrir
áfrýjunina við dauðadómi hans.
Að minnsta kosti 500 félagar úr
flokki Bhuttos hafa verið teknir
höndum síðustu daga. Jafnframt
hafa staðið yfir opinberar aðgerðir
til stuðnings Bhutto. Sex hafa
kveikt í sér opinberlega og einn
þeirra beðið bana.
Bhutto, sem var forseti og for-
sætisráðherra Pakistans í fimm og
hálft ár, var dæmdur til dauða fyrir
að fyrirskipa morð á pólitískum
andstæðingi fyrir fjórum árum.
Úrskurðar hæstaréttar um áfrýjun
hans er að vænta eftir næstu
mánaðamót.
Handtökurnar sem nú standa yfir
líkjast handtökum sem voru fyrir-
skipaðar í marz þegar yfirrétturinn i
Lahore dæmdi Bhutto til dauða.
Hinir handteknu eru hafðir í haldi
án ákæru í einn til þrjá mánuði
samkvæmt lögum um lög og reglu.
Einn af leiðtogum flokks Bhuttos
sagði um helgina, að flokkurinn
hygðist efna til mótmæla um land
allt. En ráðherra í stjórninni sagði
áð stjórnarflokkurinn kynni að svara
með herferð til stuðnings kröfum um
að Bhutto vrði tekinn af lífi.