Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
Þurfa að vera 2 ár
útí tíl að mega koma
á bílnum heim í frí
ISLENDINGAR sem búsettir hafa
verið á erlendri Krund skemur cn
tvö ár metja ekki t.d. í sumarleyfi
sínu eða stuttri viðskiptaferð koma
með til landsins bifreið, sem þeir
hafa keypt erlcndis. Stafar þetta af
strángri túlkun á auglýsingu um
notkun heimiidar í 3. írrein laga um
tollskrá, scm embættismenn segja
að sé afleiðinK misnotkunar á
heimildarákvæðunum til að komast
hjá Kreiðslu innfiutniní'SKjalda.
Samkvæmt 3. grein tollskrárlag-
anna er fjármálaráðuneytinu heim-
ilt að heimta ekki aðflutningsgjöld
af bifreiðum og bifhjólum, innflutt-
um af mönnum, sem hafa haft fasta
3 umferðar-
slys í Reykja-
vik -18 árekstrar
UMFERÐARSLYS í Reykjæ
vík í gær urðu 3. í einu tilviki
sliisuðust farþegar bfla er
lentu í árekstri, en í hinum
tiivikunum var ekið á mann á
Laugavegi við Hótel Esju og
ekið var á dreng á Br^iðholts-
braut.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Reykjavík urðu í
gærmorgun 8 árekstrar, en 7
eftir hádegi og til kl. 19:30 og þá
urðu fyrrgreind slys. Alls urðu
því árekstrar á þessu tímabili
15 og þar af slys í þremur
tilvikum. Einn árekstur varð
síðan í gærkveldi.
I Kópavogi varð einn árekst-
ur í gær og einn ennfremur í
Hafnarfirði.
búsetu eflendis í a.m.k. 2 ár og hafa
jafnframt ekki verið heimilisfastir
hér á landi. Framangreind heimild
gildir þó ekki lengur en í 3 mánuði
frá komu farartækisins. Geta þeir
einir vænzt framlengingar leyfisins
er færa fyrir tollyfirvöldum fullgild-
ar sönnur á að þeir hafi í fyrsta lagi
ekki launaða atvinnu né reki hér
atvinnufyrirtæki, hafi ekki tekið sér
heimilisfang hér á landi og hafi ekki
flutt búslóð sína hingað til lands.
í 1. grein auglýsingar um notkun
þessarar heimildar er síðan kveðið á
um að aðilar sem hafi haft fasta
búsetu erlendis í amk. 2 ár og hafa
ekki jafnframt átt lögheimili hér á
landi geti notið 3ja mánaða tollfrels-
is á innfluttum bifreiðum og bifhjól-
um, sem skráð séu erlendis og þeir
flytji með sér til landsins.
í auglýsingunni er ekkert fjallað
um meðferð á málum þeirra sem
veríð hafa erlendis skemur en 2 ár.
Samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk í gær er þó auglýsingin túlkuð
það strangt að tekið er með öllu fyrir
að veita slíkt tímabundið tollfrelsi á
bifreiðum þessara aðila. Þetta þýðir
til að mynda að námsmaður sem á að
baki nám í einn vetur og hefur fest
kaup á bifreið ytra, má ekki koma á
henni til lands í sumarleyfi, né
heldur starfsmaður hjá íslenzku
fyrirtæki erlendis, hafi hann unnið
þar skemur en tvö ár. Embættis-
menn segja ástæðuna fyrir þessari
ströngu túlkun vera þá, að töluverð
brögð hafi verið á misnotkun heim-
ildarákvæða þessa. Fyrir hafi komið
að námsmaður kæmi heim í sumar-
leyfi á rándýrri bifreið en færi utan
aftur með flugvél, svo að fjölskylda
hans hér heima eða vinir fengju
bifreiðina til afnota.
Ljósm. Kat;nar Majrnússon
Harðasti áreksturinn um helgina varð á mótum Reykjanesbrautar og
Smiðjuvegar.
Ashkenazy:
Áréttar gagnrýni sína
á Sinfóníuhljómsveitina
NÝLEGA birtist í erlendu tíma-
riti viðtal við Vladimir Ashken-
azy píanóleikara og hljómsveitar-
stjóra, þar sem er vikið að
staríscmi Siníóníuhljómsveitar
Meðallaun sjómanna
skert um 32 þús. á mán.
N/ERRI lætur að kjaraskerðing
sjómanna sé tæplega 32 þúsund
krónur á mánuði eftir fiskverðs-
hækkunina. sem ákveðin var nú
nýlega. Fiskverð hækkaði um 5%,
en þurfti að hækka um 13.2% til
þess að sjómenn héldu sama
hlutfalli og aðrar vinnandi stéttir
í landi. Er þá miðað við að
aflamagn haldist hið sama og
jafnframt er miðað við hækkanir
kaupgjalds verkamanna í landi
frá því í október. Hefur það
ha'kkað um 45%. en kaupgjald
sjómanna 34.7%. Vantar þá sjó-
menn um 7.8% til þess að halda
sama hlutfalli launa miðað við
landverkafólk.
Meðallaun sjómanna eru ein-
hvers staðar um 4,9 milljónir
króna á ári eða um 408 þúsund
krónur á mánuði. 7,8% hækkun,
sem sjómenn fengu ekki, en hefðu
þurft til þess að halda hlutfalli
sínu, er á grundvelli mánaðar-
launa um 32 þúsund kr. Með
þessum meðallaunum er átt við
meðallaun sjómanna, hvort sem
þeir eru á loðnuveiðum eða öðrum
veiðum, en eins og fulltrúar
sjómanna í verðlagsráði jafnan
taka fram, þá er hér um mjög
mismunandi tekjur að ræða meðal
sjómanna og launamunur meiri en
hjá nokkurri annarri stétt. Eins er
vinnuframlag þeirra mjög mis-
munandi og ef til vill meira en
tíðkast hjá landverkafólki.
Kjaranefnd fjallar
um kennaradeíluna
KJARANEFND tekur á næstunni
fyrir beiðni, sem henni hefur
borizt frá tveimur kennarasam-
böndum, Sambandi grunnskóla-
kennara og Félagi framhalds-
skólakennara, um umsögn nefnd-
arinnar um það hvort tillögur,
sem þau hafa sent fjármálaráðu-
neytinu til lausnar deilu þessara
aðila við ríkisvaldið, séu í sam-
ræmi við aðalkjarasamning þess-
ara aðila og bókun sem honum
fylgdi.
í frétt ríkisútvarpsins í kvöld-
fréttum sl. föstudag var fjallað um
Þrír f orsvarsmenn
Nautsins segja upp
ÞRÍR af forsvarsmönnum
Naustsins hafa sagt upp störfum
hjá veitingahúsinu frá og með
næstu mánaðamótum eftir því
sem Mbl. hefur fregnað. í samtali
við Mbl. í gær staðfesti Guðni
Jónsson, skrifstofustjóri Nausts-
ins, að hann hefði sagt upp
störfum við veitingahúsið, svo og
framkvæmdastjóri þess, Geir
Zoega yngri, og matreiðslumeist-
ari hússins, Ib Wessmann.
Ástæðuna fyrir uppsögn sinni
kvað Guðni vera óvissu þá sem
ríkti um framtíð veitingastaðar-
ins.
Núverandi hluthafar Naustsins
hafa um skeið reynt að fá fram
endurnýjun á húsaleigusamningi í
núverandi húsakynnum, eins og
Mbl. hefur greint frá, en það hefur
ekki tekizt. Húsaleigusamningur-
inn rennur út um áramótin
1979-1980.
deilu kennaranna og þar rakin
ummæli Ragnars Arnarlds
menntamálaráðherra á þingi
Kennarasambands Norðurlands
vestra en í fréttinni sagði svo
orðrétt m.a.: „Menntamálaráð-
herra sagði, að hann hefði fengið
kjaranefnd til þess að koma saman
og ræða málin. I morgun hefði
málinu þokað svo á leið, að sínum
dómi, að eftir fund kjaranefndar í
dag síðdegis ætti lausn deilunnar
að vera í sjónmáli og úrslitin að
liggja fyrir strax eftir helgi."
Benedikt Blöndal, formaður
kjaranefndar, staðfesti hins vegar
í samtali við Mbl. að það hefðu
verið þessi tvenn kennarasamtök
er óskuðu umsagnar kjaranefndar
um tiltekið atriði, en hann tók það
fram að hann vissi að mennta-
málaráðherra léti sér annt um
lausn málsins og hann hefði m.a.
rætt við sig um þetta mál, þar sem
hann hefði óskað eftir því að
afgreiðslu þess yrði hraðað eins og
kostur væri. Benedikt sagði hins
vegar, að það hefði verið talið rétt
af.gefnu tilefni að heyra sjónarmið
fjármálaráðuneytisins í þessu
máli og kvaðst hann eiga von á
svari þess einhvern næstu daga.
Annað væri ekki hægt að segja um
þetta mál að svo stöddu.
íslands. Segir Ashkenazy þar
meðal annars. að hljómsveitinni
sé tæknilega ábótavant, og þurfi
að fara að hljóðfæraleikurunum
eins og börnum.
í viðtali, sem birtist á blaðsíðu 26 i
Morgunblaðinu í dag, staðfestir
Vladimir Ashkenazy að hann hafi
látið þessi ummæli falla um leið og
hann leggur á það áherzlu, að þau
megi ekki skoða sem neikvæða
gagnrýni heldur sem raunsætt
mat á staðreyndum. Hann segir
það skoðun sína að ekki sé nógu vel
búið að Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, að hljóðfæraleikararnir séu
misjafnlega á vegi staddir, um leið
og hann nefnir sérstaklega þrjá
hljóðfæraleikara, sem hann telur
að skara framúr, þá Gunnar
Egilsson, Pétur Þorvaldsson og
Kristján Stephensen. Hann leggur
á það áherzlu að ekki megi miða
frammistöðu hljómsveitarinnar
við það bezta sem gerist hjá
stórþjóðunum, en segir hins vegar
að skortur á samkeppni hljóti að
vera eitt af því sem hái Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Þá leitaði Morgunblaðið til
nokkurra forvígismanna Sinfóníu-
hljómsveitarinnar og kemur þar
fram að gagnrýni Ashkenazys sé
ósanngjörn, um leið og deilt er á
frammistöðu hans sjálfs sem
hljómsveitarstjóra. Sjá nánar á
bls. 26.
©'
INNLENT
Noregur og
EBE semja
um aflakvóta
NOREGUR og Efnahagsbanda-
lagið ákváðu í gær að hefja
samningaviðræður um nýtt afla-
kvótakerfi, sem mun fá strand-
rfkjum í hendur aukið eftirlit
með fiskstofnum sínum.
Daninn Finn Olav Gundelach,
fiskimálafulltrúi EBE, sagði á
blaðamannafundi í Ósló að samn-
ingaviðræðurnar mundu hefjast í
Brussel 6. nóvember.
Hann sagði að í viðræðunum
yrði reynt að sneiða hjá fyrri
mistökum — og virtist hafa átt
við þann hátt sem hefur verið
hafður á að hafa Norðmenn ekki
með í ráðum við skiptingu
aflakvóta EBE.
Gundelach sagði í dag, að
samráð yrðu höfð við Norðmenn
áður en kvótarnir væru ákveðnir.
Embættismenn segja að gott
samstarf sé milli EBE og Noregs
þótt Norðmenn ákvæðu að standa
utan bandalagsins 1972.
Albert Guðmundsson:
„Ég vil engar breyting-
ar, hvorki á skipulagi
flokksins né forystu”
„ÉG VIL engar breytingar,
hvorki á skipulagi flokksins né
forystu," sagði Albert Guðmunds-
son, alþingismaður og borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins. er
Morgunblaðið leitaöi álits hans á
þeim hugmyndum. sem fram
hefðu komið um breytt fyrir-
komulag á forystu Sjálfstæðis-
flokksins en Mbl. leitaði álits
nokkurra trúnaðarmanna Sjálf-
stæðisflokksins á þessum hug-
myndum og birtast svör þeirra á
bls. 14 og 15 í blaðinu í dag.
Albert segir í svari sínu.
„Skipulag Sjálfsta'ðisflokksins er
gott — stefna flokksins er líka
góð og allt tal um skipulagsbreyt-
ingar og annað. sem átt hefur sér
stað að undanförnu, er eingöngu
vegna þess, að flokkurinn tapaði
nokkru íylgi í síðustu kosning-
um. bæði til sveitarstjórna og
Alþingis.“