Morgunblaðið - 10.10.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
19
Horít yíir rústirnar.
„ Ömurlegast að
horfa á kýrnar og
geta ekki leystþœr”
17 kýr og hestur drápust í milljóna
tuga eldsvoða á Vötnum í Olfusi
VATNABÓNDINN Eyjólfur Björnsson var að koma óskcmmdu
heyi úr brunninni hlöðu sinni í iön úti á einu túninu þegar okkur
bar að jfarði Vötnum í Ölfusi í gær, en 17 kýr þeirra hjóna á
Vötnum drápust í eldsvoða á laugardagskvöld, er fjós, hlaða og
hesthús brunnu til kaldra koia.
Búið var að koma hræjunum'
fyrir en einnig drapst hestur í
brunanum. í þessum bruna var
iífsviðurværi þeirra hjóna slegið
af, en tvíbýli er á Vötnum, 6
manna fjölskylda Eyjólfs sem
rak búið og fjögurra manna
fjölskylda. Tjónið af völdum
eldsvoðans er tugir milljónir
króna, en sjálfsíkveikja mun
hafa orðið í heitu heyinu. „Ég
fór úr fjósinu klukkan 9 á
laugardagskvöld og það var
heldur í seinna lagi miðað við
venjulega, en þá var allt í iagi í
gripahúsunum," sagði Eyjólfur.
„Það var síðan rétt fyrir klukk-
an 12 á miðnætti að eg var
vakinn og tilkynnt um eldinn, en
maður í bíl sem var á leið um
varð eldsins var. Ég hringdi
strax í slökkviliðið í Hveragerði.
Síðan fór ég strax út í fjósið og
komst inn í það að sunnanverðu
þar sem venjulega er gengið inn
en hávaða norðan rok var á. Ég
hélzt ekki við inni í fjósinu og
varð að hörfa út undan reykn-
um, en þó sá ég að kýrnar stóðu
allar og voru furðu rólegar. Ég
reyndi þá að fara inn um aðrar
dyr hlöðumegin, en í þann mund
hrundu þær í eldinum. Skömmu
síðar sá ég tvær yngstu kýrnar
koma á mikilli fart út úr fjósinu
og hafa þær einhvern veginn
getað leyst sig úr básunum sem
þær voru í innst í fjósinu. Alls
voru 19 kýr í fjósinu og það voru
því 17 sem drápust. Önnur kýrin
sem slapp brenndist aðeins á
júgrum og var svolítið snoðuð í
hársvörð. í hesthúsinu við hlöð-
una var einn hestur sem ekki
varð bjargað og mikið af heyinu
í hlöðunni gjörónýttist, en ég
átti um 35 kýrfóður af heyi.“
„Hvernig kemur þetta tjón út
fjárhagslega?" „18 kýr voru
tryggðar og 800 hestburðir af
heyi, en allur húsakostur var
lágt tryggður þar sem um gömul
hús var að ræða.
Þetta er því gífurlegt tjón, en
maður verður að sjá hvað kemur
út úr þessu hjá tryggingunum
áður en maður getur frekar rætt
þær hugmyndir manns að
byggja þetta upp. Þó ég fengi
kýr nú hef ég enga aðstöðu til að
hirða þær í vetur, en þetta
skýrist vonandi fljótlega. Ég
náði að bjarga 14 kálfum og
geldkvígum úr kálfahúsi, en við
urðum hreinlega að reka kálf-
ana út í kuldann. Það var
ömurlegt að sjá gripahúsin og
hlöðuna í ljósum logum en
Eyjólíur Björnsson bóndi á
Vötnum.
ömurlegast var að komast inn
til kúnna og horfa á þær, en geta
ekki leyst þær.“
Grannar Eyjólfs voru að
aðstoða hann í gær við að koma
heyjum í galta og hreinsa til á
svæðinu, sem er flakandi sár
eftir brunann. Tjónið er a.m.k.
30—40 milljónir króna. Þótt kýr
og hluti af heyforðanum sé
tryggt má gera sér í hugarlund
hve mikið tjón er hér um að
ræða fyrir fólkið í Vötnum og þá
er rekstrartjónið ekki síður
mikið um leið og kippt er
stoðum undan lífsviðurværi
fólksins. — á.j.
Kálfar og geldkvígur sem unnt var að slcppa úr Séð yíir hlöðurústirnar heim að bænum Vötnum.
gripahúsunum gengu í töðuna á túninu í gær. Ljósmyndir Mbl. Emilía.
„ Unga fólkið
gengur markvisst
fram í trúnnVy
Rætt við tvo gesti Fíladelfíusafnað-
arins sem standa fyrir Biblíuskóla
ÓLAFUR Ólafsson úr byggðum
Vestur-Islendinga og dr. Robert
Thomson kennari og prédikari
standa fyrir Biblíuskóla á vegum
Fíladelfíusafnaðarins á næstunni
og hefjast Biblíulestrar í dag kl.
5. Verða tvær samkomur daglega
kl. 5 og 20.30 í tva“r vikur nema á
mánudögum og föstudögum. Allir
eru velkomnir á þessar samkom-
ur. en Guðni Einarsson mun
túlka mál dr. Roberts.
í spjalli við þá Ólaf og dr.
Robert í gær kvaðst Ólafur, sem
talar lýtalausa íslenzku, vera
fæddur í Kanada, en foreldrar
hans voru bæði fædd á íslandi.
Faðir hans var Þorgrímur Ól-
afsson úr Borgarfirði og móðir
hans var Guðrún Rósa Þorsteins-
dóttir af Suðurlandi.
Ólafur hefur bæði hér heima og
vestan hafs stofnað sjóð til
styrktar ungu fólki sem vill afla
sér menntunar í Biblíufræðum og
hafa íslenzk ungmenni hlotið styrk
í því tilefni. Þá hefur Ólafur séð
um kaup á upptökutækjum fyrir
söfnuðinn hér og mun tækið skila
kassettum með upptöku á sam-
komum í lok þeirra, þannig að
samkomugestir geta, ef svo má
segja, tekið samkomurnar með sér
heim. Ólafur kvaðst hafa starfað á
vettvangi Krists i 45 ár og hann
bar fyrir kveðjur hingað frá
söfnuðinum úti og öðrum löndum
þar. „Landinn fyrst," sagði Ólafur
að væri viðkvæði sem sér líkaði.
Dr. Robert Thomson hefur ritað
8 bækur um trúmál og kenningar
Biblíunnar og tvær þeirra hafa
verið gefnar út á almennum
bókamarkaði en sex eru notaðar
sem kennslubækur og uppsláttar-
bækur í kristnifræðslu. Ólafur
kvað dr. Robert hafa verið mikla
blessun fyrir marga á þeim slóðum
sem hann starfar. Dr. Robert
hefur samið mikið af kristilegum
söngv'um, bæði texta og tónlist en
hann leikur á píanó.
Aöspurðir kváðu þeir félagar
ungt fólk í dag hafa meiri áhuga á
kristinni trú en ungt fólk fyrir 20
árum. „Unga fólkið í dag er mjög
gáfað og ákveðið og þegar það
hefur eignast trúna þá gengur það
markvisst fram,“ sögðu þeir félag-
ar um leið og þeir vildu hvetja sem
flesta til þess að taka þátt í
samkomunum í Fíladelfíu.
Ljósmynd Mbl. RAX.
Ólafur Ólafsson. dr. Robert Thomson og Daníel Glad starfsmaður
Fíladelfíu.
Svöðusár á úlnlið
18 ára piitur slasaðist töluvert
á handlegg föstudag þegar
smergilskífa gekk inn í úlnlið
hans og tók m.a. í sundur slagæð.
Slysið varð laust eftir hádegið.
Pilturinn stóð í stiga, sem reistur
hafði verið við gafl húss við
Ægisgötu. Var pilturinn með
slípirokk og var á honum smergil-
skífa. Vann pilturinn við það að
slípa sprungur á gaflinum en
gaflinn átti að mála. Slípirokkur-
inn gekk til í höndum piltsins og
gekk smergelskífan djúpt inn í
vinstri úlnliðinn. Þrátt fyrir að
mikið blæddi úr sárinu tókst
piltinum að komast hjálparlaust
r
Utvarpssaga
í bókarformi
UT er komin skáldsagan „Reynt að
gleyma" eftir Arlene Corliss.
Hefur Axel Thorsteinsson rithöf-
undur þýtt bókina, en sjálfur las
hann sögu þessa í Utvarpinu fyrr á
þessu ári. Er bókin rúmlega 200
blaðsíður. Kápumynd hennar
teiknaði Kjartan Guðjónsson, en
bókin er prentuð hjá Leiftri en
Bókaútgáfan Rökkur hér i bænum
gefur hana út.
niður stigann og kalla á hjálp. Var
hann fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans til aðgerðar.
Afmæli
Á SUNNUDAGINN var. 8. októ-
ber. varð Kristjón Kristjónsson
forstjóri. Reynimel 23. sjötugur.
— Ilann hefur undanfarið verið
erlendis. —