Morgunblaðið - 10.10.1978, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1978
21
4tlorj3ntunnt»iti
nmmirnj
Teitur sænskur meistari!
14 ISLANDSMET A AKUREYRI
Á LAUGARDAG gekkst Lyftinga-
samband íslands fyrir úrtökumóti
til unglingalandsliðs vegna Norð-
urlandamóts sem haldiö verður i
næstunni. Úrtökumótið var hald-
iö á Akureyri og voru mörg góð
afrek unnin. Hæst ber bó árangur
ÖSTER, lið Teits Þórðar-
sonar, hefur nú svo gott
sem tryggt sér sænska
meistaratitilinn, eftir að
hafa svínbeygt AIK 5—0
á heimavelli sínum. A
sama tíma náði Malmö
FF aðeins jafntefli á
heimavelli gegn Halm-
stad og hefur Öster því
náð 8 stiga forskoti.
Öster hefur einnig mun
stcrkara markahlutfall
og má því segja, að
meistaratignin sé í höfn.
Úrslit í Svíþjóð um helg-
ina urðu þessii
Djurgaden —
Kalmar FF 1-1
Göteborg —
Atvidaberg 1-0
Malmö FF —
Halmstad 0-0
Norrköping —
Örebro 0-0
1-1
5-0
Vasteras —
Elfsborg
Öster Vexjö —
AIK
Staða efstu liðanna er þessi,
er aðeins 4 umferðir eru eftir.
Öster 22 15 6 1 43-15 36
Malmö FF 22 11 6 5 27-12 28
IFK
Götebors 22 12 4 6 36-23 28
Kalmar FF22 10 7 5 32-27 27
Birgis Borgbórssonar, KR, sem
keppir í 90 kg flokki. Birgir setti
ísl. met unglinga bæöi í snörun
og jafnhöttun og Þá að sjálfsögðu
einnig í samanlögðu, en alls lyfti
Birgir 300 kg sem er frábær
árangur.
Framkvaemd mótsins á Akureyri
var til mikillar fyrirmyndar og var
Bernhard Haraldsson röggsamur
stjórnandi. Yfirdómari var Már
Vilhjálmsson og meðdómarar hans
þeir Guðmundur Svanlaugsson og
Kristján Falsson.
Árangur keppenda var sem hér
segir:
110 kg. fl.
Ágúst Kárason, KR
snörun 120, jafnh. 160 samt. 280
100 kg. fl.
Óskar Kárason
snörun 120, jafn. 140, samt. 260
• Stærðfræðilega séð. er enn
möKuleiki á því að Teitur missi
af titlinum, en hvefandi er
hann.
Tæp milljón
f 7. LEIKVIKU getrauna komu fram
5 seðlar með 11 réttum og var
vinningur á hvern kr. 185.000.—
Allir þessir seðlar voru frá Reykja-
vík.
Með 10 rétta voru 65 raðir og
vinningar fyrir hverja 6.100.— kr.
Þátttaka í getraunum hefur aukist
jafnt og þétt í haust og mest varð
aukningin í síðustu viku eða um
26%. Vinningshluti fyrir 1. vinning
var 925.000 og á næstu vikum
gefst væntanlega tækifæri til þess
að vinna eina milljón fyrir þann,
sem verður svo heppinn að vera
einn með 11 eöa 12 rétta.
Skrífar Pétur undir í dag?
PÉTUR Pétursson kom
heim í gær frá Hollandi
þar sem hann kynnti sér
aðstæður hjá hollenska
liðinu Feyenoord.
Pétur Pétursson íhug-
ar nú tilboðið, sem hann
hefur fengið frá félaginu,
sem er mjög freistandi og
ef af því verður, að Pétur
fari til Feyenoords, sem
telja má líklegt, verður
skrifað undir samning-
inn á blaðamannafundi í
dag.
Pétur fékk mjög góðar viðtök-
ur ytra og vakti koma hans
mikla athygli. Viðtal var haft
við hann í útvarpi og myndir
birtust af honum í blöðum. Þá
sýndi hollenska sjónvarpið kafla
þann úr landsleik íslands og
Hollands þar sem Pétri tekst að
komast í gegnum hollensku
vörnina en er brugðið.
Framkvæmdastjóri Feyen-
oords kom með Pétri aftur til
íslands ásamt formanni knatt-
spyrnuráðs Akraness, Gunnari
Sigurðssyni. — ÞR.
Met hjá
Skúla,
Gústaf
JT
ogOskari
ÞEIR Skúli Öskarsson,
Gústaf Agnarsson og
Óskar Sigurpálsson
voru allir sterkir á
kraftlyftingamótum
um helgina og allir
settu þeir ný
íslandsmet.
Á innanfélagsmóti hjá KR
lyfti Skúli 295 kg í hné-
beygju, 300 kg í réttstöðu-
lyftu og 115 kg í bekkpressu.
Samanlagt 710 kg, íslands-
met í hans flokki. Gústaf
Agnarsson snaraði 155 kg og
jafnhattaði 202,5 kg, samtals
357,5 kg í 110 kg flokknum og
er það íslandsmet. Gústaf
snaraði síðan 165 kg í auka-
tilraun.
Á kraftlyftingamóti í Vest-
mannaeyjum setti Óskar Sig-
urpálsson nýtt íslandsmet í
yfirþungavigt. Metið var í
samanlögðum þunga og lyfti
Óskar 785 kg allt í allt.
90 kg. fl.
Birgir Borgþórsson, KR
130(íslm) 170(íslm) 300(íslm.)
82.5 kg. fl.
Guðgeir Jónsson, Á.
snörun 120, jafnh. 162,5 samt.
282.5
Guðgeir snaraði 130 kg. í aukatil-
raun sem er ísl.met.
Guðmundur Helgason, KR
snörun 105, jafnh. 130, samt. 235
Sigmar Knútsson, IBA
snörun 100, jafnh. 130, samt. 230
75 kg. fl.
Þorsteinn Leifsson, KR
snörun 110, jafnh. 140, samt. 250
Þorsteinn snaraði 115 kg. í aukatil-
raun sem er ísl.met.
Gísli Ólafsson, ÍBA
snörun 90, jafnh. 115, samt. 205
Freyr Aðalsteinsson, ÍBA
snörun 107,5, óg.
67.5 kg. fl.
Haraldur Ólafsson, IBA
snörun 85, jafnh. 110, samt. 195
Garðar Gíslason, IBA
snörun 77.5, jafnh. 95, samt. 172.5
Gylfi Gíslason, ÍBA
snörun 72.5, jafnh. 92.5, samt. 165
Baldur Borgþórsson, KR
snörun 70, jafnh. 90, samt. 160
60 kg. fl.
Þorvaldur Rögnvaldsson, KR
snörun 81(íslm.), jafn. 95, samt.
176
Þrír efstu menn í stigakeppninni
voru þeir Birgir Börgþórsson með
655 stig, Guðgeir Jónsson með
642 og Þorsteinn Leifsson með
595 stig. Sigb. G.
Reykjavíkurmótið:
Úrslit
í kvöld
Úrslitaleikurinn í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik fer fram í
Laugardalshöllinni í kvöld og hefst
hann klukkan 20.00. Þar mætast
Valur og Fram. Lið þessi eru efst
og jöfn og er því hér um hreinan
úrslitaleik aö ræöa. Bæöi liðin hafa
sýnt bærilega leiki í mótinu til
þessa, Valsmenn hugsanlega virk-
að ívið sterkari. En það mun litlu
skipta hvernig fyrri leikir hafa farið,
er út í slaginn er komið og
sannarlega getur allt gerst er
Reykjavíkurrisarnir mætast í
kvöld.
GREIÐSLUR TIL FÉLAGANNA STAÐREYND
AÐ UNDANFÖRNU hef-
ur verið mikið rætt og
ritað um þær kröfur sem
íslenzk knattspyrnufélög
eru farin að gera ef
íslenzkir leikmenn ætla
að gerast atvinnumenn
erlendis. Nú virðist sú
staða komin upp, að
félagaskipti eru ekki
lengur samþykkt nema
greiðsla komi til frá hinu
erlenda félagi sem samn-
ingur er gerður við. Þar
sem þessi mál eru svo
mjög í brennidepli nú
þessa dagana fór blaðið á
stúfana og ræddi við
Pétur Sveinbjarnarson,
formann knattspyrnu-
deildar Vals, en eins og
kunnugt er samþykkti
Valur félagaskipti Skot-
ans James Bett yfir í
belgíska félagið Lokaren
í síðustu viku. Lokaren
bauð greiðslur af fyrra
bragði fyrir kostnað. Þá
ræddi blaðið við formann
KSÍ um málið. Haft var
samband við formann
knattspyrnudeildar Vík-
ings, en hann vildi ekk-
ert um málið ræða.
Pétur Sveinbjarnarson sagði:
— Það er ekkert leyndarmál að
við í knattspyrnudeild Vals
fengum greiddar 700 þúsund
krónur frá belgíska félaginu
fyrir það sem við áliturrí beinan
kostnað við dvöl James Bett í
Val. Þá á ég við þá aðstöðu, sem
félagið veitti honum við æfing-
ar, þjálfun og fleira. Við fengum
senda ávísun upp á 1500 þúsund
krónur en 800 þúsund af því var
greiðsla upp í skuld Betts hér á
landi, og hafði Lokaren gengið í
ábyrgð fyrir þeirri upphæð.
— Menn verða að gera mjög
glöggan mun á tvennu. Annars
vegar á því að félögin eiga fullan
rétt á að fá endurgreiddan þann
kostnað sem þau hafa orðið
fyrir vegna viðkomandi leik-
manna, og hins vegar á því
hvort félagið er að selja viðkom-
andi og hafa af því hreinan
hagnað. Félögin eiga ekki að
standa í vegi fyrir því að
leikmenn komist í atvinnu-
mennsku í knattspyrnu og eiga
að hafa fullt samráð við viðkom-
andi leikmann um alla samn-
inga.
En gleymum því ekki, að það
fæst enginn til að ganga um með
betlistaf í hendi til að gera út
ísiensk knattspyrnufélög til þess
eins að erlend félög geti náð af
okkur góðum leikmönnum fyrir
ekki neitt. Ef Lokaren hefði
samið við James Bett ári fyrr, er
hann var á samningi í Skotlandi
hefðu þeir þurft að greiða félagi
því, sem hann var samnings-
bundinn, milljónir kr.
Lokaren fór heldur ekki nægi-
lega kunnáttusamlega að sínum
málum hér. Samkvæmt reglum
alþjóðaknattspyrnusambandsins
er bannað að hafa samband við
leikmenn á keppnistímabili.
Þetta virtu þeir ekki, og voru
kærðir fyrir bragðið, ekki af Val
heldur Víking. 1 raun og veru
hefði Valur átt að fara fram á
skaöabætur vegna framkomu
þeirra sem voru fyrir neðan
allar hellur. Það er kominn tími
til að félögin og leikmenn nái
samkomulagi um þessi mál og
að þau séu á hreinu, þannig að
ekki þurfi að verða nein leiðindi
varðandi þaú, sagði Pétur.
Ellert Schram: — Mér sýnast
félögin eiga siðferðilegan rétt til
að'fara fram á greiðslur svo
framarlega sem það eyðileggur
ekki samningsgrundvöll við-
komandi leikmanns sem sótzt er
eftir. Leikmenn hér heima geta
sagt sig úr félögum hér ef þeim
er neitað um félagaskipti. Það
tefur þó fyrir leikmanninum uni
eitt ár, samkvæmt alþjóðaregl-
um FIFA. Mér sýnist þurfa að
fara að þessum málum með gát
og umfram allt ekki að valda
neinum leiðindum, sagði Ellert.