Morgunblaðið - 31.10.1978, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978
Loks kom tap hjá Liverpool
ÞAÐ HLAUT að koma að því að Liverpool tapaði leik og leikmiinnum liðsins hefur vafalaust sárnað að það
skildi koma í hlut erkifjendanna Everton að stöðva sigurKÖngu þeirra. Everton vann verðskuldað 1—0 með
marki Andy King á 14 mi'nútu síðari hálíleiks. Liverpool hefur enn forystu í 1. deild, en sú forysta er aðeins
2 stig og það er Everton sem fylgir liðinu eins og skuggi. Skammt undan er Nottingham Forest, sem náði
heppnisstigi á útivelli gegn Southampton. Tvö neðstu liðin, Birmingham og Úlfarnir töpuðu leikjum sínum
að venju, en Chelsea krækti sér í dýrmætt stig. Southampton, Bolton og Derby töpuðu einnig leikjum sinum
og eru eigi all fjarri hættusvæðinu í 1. deild.
Kihg stöðvaði Liverpool
Mark Andy King á 14. mínútu
síðari hálfleiks, reyndist vera
sigurmark leiksins gegn erki-
fjendúnum Liverpool. Vörn
Everton, með þá Roger Kenyon og
Billy Wright bestu menn átti
lýgilega auðvelt með að stöðva í
fæðingu flestar sóknarlotur Liver-
pool. Dave Johnson taldi sig samt
hafa jafnað fyrir Liverpool, þegar
hann skoraði úr erfiðri stöðu
nokkru eftir mark King, en
dómarinn taldi hann hafa verið
rangstæðan. Everton var mun nær
því að bæta öðru marki við, þegar
Bob Latchford skallaði naumlega
framhjá eftir snjalla fyrirgjöf
Dave Thomas.
4. mörk í f.h.
Það gekk mikið á í fyrrii hálfleik-
leiks Manchester City og WB Mick
Channon náði forystunni fyrir MC
á 19. mínútu, en 5 mínútum síðar
jafnaði Cirel Regis fyrir WBA.
Hartford náði forystunni á ný
fyrir MC, en Bryan Robson jafnaði
rétt fyrir hlé eftir mikinn hama-
gang í markteignum. Ekkert var
skorað í síðari hálfleik þrátt fyrir
góð færi beggja liða.
Heppni Forest
Lawrie McMenemy, fram-
kvæmdastjóri Southampton, setti
markakónginn Ted MacDougall út
úr liði sínu gegn Forest. Og Peter
Shilton varði einu sinni snilldar-
lega frá varamanni hans Funnel.
Shilton var maðurinn að baki
stigsins sem Forest hlaut, hann
varði oft frábærlega vel, einkum
einu sinni, er Boyer komst í
dauðafæri.
1 1. DEILD | | 2. DEILD 1
Liverpool 12 10 1 1 35,5 21 Stoke 12 7 4 1 17 9 18
Everton 12 7 5 0 15,6 19 Fulham 12 8 2 2 17 11 18
Nottingh. Forest 12 5 7 0 15.8 17 Crystal palace 12 6 5 1 19 10 17
West Bromwich 12 6 4 2 27,13 16 West Ham 12 6 3 3 23 14 15
Manchester City 12 5 5 2 21,14 15 Charlton 12 5 4 3 18 12 14
Manchester Utd. 12 5 5 2 19,18 15 Bristol Rovers 12 6 2 4 20 17 14
Arsenal 12 5 4 3 19,13 14 Burnley 12 5 4 3 18 17 14
Coventry 12 5 4 3 17.18 14 Newcastle 12 5 4 3 13 12 14
Tottenham 12 5 4 3 14,20 14 Sunderland 12 5 4 3 16 16 14
Aston ViIIa 12 4 4 4 14.12 12 Luton 12 5 3 4 29 14 13
Bristol City 12 5 2 5 15,16 12 Notts County 12 5 3 4 16 22 13
Leeds 12 4 3 5 22,18 11 BrÍKhton 12 5 2 5 20 18 12
Norwich 12 3 5 4 23,23 11 Wrexham 12 3 6 3 9 8 12
Middlesbrough 12 4 2 6 17,17 10 Sheffield United 12 4 3 5 18 18 11
Ipswich 12 4 2 6 13.15 10 Orient 12 4 2 6 13 14 10
Queens P. Ranxers 12 3 4 5 10,14 10 Cambridjce 12 2 6 4 8 10 10
Southampton 12 2 5 5 13,18 9 Cardiff 12 4 2 6 16 27 10
Bolton 12 3 3 6 18,26 9 Leicester 12 2 5 5 9 12 9
Derby 12 3 3 6 12,25 9 Oldham 12 3 3 6 14 20 9
Chelsea 12 2 3 7 15,26 7 Blackburn 12 2 4 6 12 20 8
Wolverhampton 12 3 0 9 10.22 6 Preston 12 1 4 7 17 27 6
Birmingham 12 0 3 9 7.24 3 Millwall 12 1 3 8 7 23 5
Allt á suðupunkti á Molinew
Manchester Utd hafði leikinn í
hendi sér framan og komst í 3—1 í
hálfleik, Jimmi Greenhoff (2) og
litli bróðir Brian Greenhoff skor-
uðu fyrir MU, en Ken Hibbitt fyrir
Úlfana með hörkuskoti. Úlfarnir
sóttu allt hvað á tók í síðari
hálfleik, og um miðjan hálfleikinn
virtist sókn þeirra ætla að bera
ávöxt, því að þá komst Billy
Rafferty einn inn fyrir vörn MU_
og var þar gróflega sneiddur niður
af Arthur Albiston. Þetta virtist
vera augljóst víti, en dómarinn
gerði enga athugasemd. Roche
náði boltanum er Rafferty féll við,
spyrnti fram til Joe Jordan, sem
var a.m.k. 10 metrum fyrir innan
vörn Úlfanna, sem sagt rang-
stæður. Enn gerði dómarinn enga
athugasemd og Jordan þakkaði
fyrir og skoraði fjórða mark MU.
Þetta kann að hafa skipt sköpum í
leiknum, því að í staðinn fyrir að
Úlfarnir skoruðu úr víti, gerði MU
út um leikinn. Steve Daley skoraði
annað mark Úlfanna rétt fyrir
leikslok.
Brady á skotskónum
Bristol-liðið er óútreiknanlegt,
fyrir viku vann það Man. Utd á
Óld Trafford næsta auðveldlega,
en á laugardaginn tapaði liðið
fyrir Arsenal á heimavelli sínum
Ashton TE. Liam Brady og Frank
Stapelton komu Arsenal í 2—0 í
fyrri hálfleik, en Dave Rodgers
minkaði muninn fyrir hlé. Brady
var í essinu sínu í þessum leik og
hann innsiglaðP sigurinn með
marki úr víti skömmu fyrir
leikslok.
• Mick Channon vindur upp á sig í leik gegn Liverpool fyrr í haust. City tapaði þá illa, en náði þó í stig um
helgina gegn WBA. Og Channon tókst að skora eitt mark. Gott hjá honum.
Köln í fallbaráttu!
KAISERSLAÚTERN heldur sínu
striki í' þýzku deildarkeppninni,
liðið heldur 2 stiga forystu, mest
vegna þess að næstu liðum gekk
síst betur en þeim, sumum lakar.
Kaiserslautern náði þó alltjént í
stig, það er meira en sum lið við
toppinn gerðu. En það var
heppnisstig sem liðið önglaði f
gegn Schaíke. Fischer náði for-
ystunni fyrir heimaliðið, og
þeirri forystu hélt liðið allt þar
til síðla leiks, er Geye tókst að
jafna.
Komið hefur verulega á óvart,
hve lélegt lið Kölnar virðist vera,
almennt var reiknað með liðinu í
toppbaráttunni, en satt að segja
blasir erfið fallbarátta við félag-
inu eins og staðan er núna, liðið
hefur aðeins 9 stig, en þriðja
neðsta liðið, Hertha, hefur hlotið 8
stig. Á laugardaginn tapaði liðið
fyrir Armenia Bielefeld 0-1.
Tagelsdorf skoraði eina mark
leiksins í síðari hálfleik og Gerber
hjá Köln var rekinn af leikvelli.
Reinders, Möhlman og Blau
skoruðu mörk Werder gegn
Bochum, sem svaraði með mörkum
Abel (2) og Wunder.
Nurnberg tapaði af dýrmætu
stigi, þegar Bernd Dietz skoraði
eina mark leiksins fyrir Duisburg
þegar aðeins 5 mínútur voru til
leiksloka.
Burgs Múller skoraði tvívegis, er
lið hans Borussia Dortmund lagði
að velli Fortuna Dusseldorf.
Huber skoraði þriðja markið úr
víti.
Gersdorf náði forystunni fyrir
Herthu gegn Bayern rétt fyrir
leikhlé, en snemma í síðari hálf-
leik tókst Gerd Múller að jafna
metin. Leikur þessi þótti hinn
leiðinlegasti á að horfa.
Jurgen Grabowski lék sinn 400.
deildarleik gegn Darmstadt og
hann innsiglaði sigur sinna
manna, með marki úr vítaspyrnu á
73. mínútu. Borchers skoraði fyrra
mark Frankfurt á 18 mínútu.
Þá er aðeins eftir að geta hver
skoraði fyrir Brunswich gegn
Hamburger, en það var maður að
nafni Erler og skoraði hann með
síðustu spyrnu fyrri hálfleiks.
Aðrir leikir.
Tottenham-liðið hefur tekið
miklum framförum á undanförn-
um vikum og Bolton átti enga
möguleika og sigur Tottenham
hefði getað orðið enn stærri. Colin
Lee skoraði í fyrri hálfeik eftir
fyrirgjöf Perryman. John Pratt
skoraði síðara markið með skalla í
síðari hálfleik og í kjölfarið fylgdi
töluverð sókn af hálfu Bolton.
Morgan átti skot í þverslá, en
þegar Villa kom inn á fyrir Hoddle
sem var farinn að þreytast, tók
Tottenham öll völd á vellinum á ný
og leikmenn Bolton ógnuðu ekki
frekar.
Tvö mörk Tommy Hutchinson,
eitt í hvorum hálfleik, sökti
lánlausu og lélegu liði Birming-
ham, sem enn hefur ekki unnið
leik á keppnistímabilinu. Gary
Pendrey, Birmingham, var rekinn
af leikvelli og upp úr því fór leikur
Brum batnandi. Don Givens
skoraði eina mark liðsins.
Á föstudagskvöldið léku Aston
Villa og Middiesbrough 'á Villa
Park og lauk leiknum með nokkuð
óvæntum sigri Boro. Það gekk
mikið á, Ashcroft var rekinn af
leikvelli, markvörður Villa varði
víti, en Burns og Cochrane skoruðu
mörk liðsins.
Jimmy Adamson byrjaði feril
sinn vel hjá Leeds og sá hann
drengi sína rífa og tæta vörn
Derby í tætlur. Flynn, Hart og
Graham skoruðu í fyrri hálfleik og
John Havley í síðari. Tony Currie
var maður leiksins. Gordon Hill
fékk eina tækifæri Derby í leikn-
um, en skot hans hafnaði í
þverslánni.
Ef einhvers staðar gekk mikið á,
þá var það á Brúnni í Lundúnum
þegar Chelsea fékk Norwich í
heimsókn. Ken Swain náði forystu
fyrir Chelsea, en Peters jafnaði.
Clive Walker náði forystunni á ný
og fiskaði síðan víti sem Gary
Stanley skoraði úr. En leikmenn
Norwich höfðu ekki sagt sitt
síðasta orð, John Ryan minnkaði
muninn með tíunda marki sínu á
haustinu og Martin Peters jafnaði
með fallegu skallamarki 2 mínút-
um síðar. Síðustu 5 mörk leiksins
komu á 18 mínútna kafla um
miðjan síðari hálfleik.
Ipswich vann nú loks sigur á
heimavelli, eftir 4 tapleiki þar í
röð. Eric Gates skoraði fyrsta
mark Ipswich snemma í síðari
hálfleik og skömmu síðar lék hann
vörn Rangers grátt, sendi á
Mariner sem skoraði glæsilega
með skalla. Gerry Francis minkaði
muninn fyrir Rangers, en fleiri
urðu mörkin ekki.
ENGLAND 1. DEILD. ÍTALÍA, 1. DEILD,
Aston Villa — Middlesbrough 0-2 Bolognia — Juventus 0-0
Bristol City — Arsenal 1-3 Catanzaro — Roma 1-0
Chelsea — Norwich 3-3 Lazio — Lanerossi 4-3
Coventry — Birmingham 2-1 AC Mflan — Fiórentina 4-1
Everton — Liverpool 1-0 Napólí — Atalanta 2-0
Ipswich — QPR 2-1 Perugia — Avellinó 0-0
Leeds — Derby 4-0 Torínó — Inter Mflan 3-3
Manchester C. — WBA 2-2 Verona — Ascoli 2-3
Southhampton — Nott. Forest 0—0
Tottenham — Bolton 2—0
Wolves — Manchester Utd. 2—4
ENGLAND, 2. DEILD,
Blackburn — Wrexham 1 — 1
BrÍKhton — West Ham 1—2
Cr. Palaee — Fulharn 0—1
Leicester — Bristol Rovers 0—0
Millwall — Charlton 0—2
Newcastle — Cardiff 3—0
Notts County — Cambridge 1 — 1
Oldham — Sundcrland 0—0
Orient — Luton 3—2
Preston — Burnley 2—2
Stoke - Sheffield Utd. 2-1
ENGLAND, 3. DEILD.
Bury — IIull City 1 — 1
Carlisle — Swindon 2—0
Chester — Swindon 3—1
Mansfield — Colchester 1—1
Oxford — Gillinnham 1—1
Plymouth — Blackpool 0—0
Rotherham — Shrewsbury 1—2
Sheffield Wed. - Walsall 0-2
Swansea — Peterbrough 4—1
Watford — Exeter 1—0
ENGLAND, 4. DEILD,
Bradford City — Huddersfield 1 — 1
Darlington — Port Vale 4—0
Grimsby — Hereford 1—1
Halifax — Bournemouth 0—2
Hartlepool — Rochdale 5—1
Newport — Barnsley 1—1
Reading — Stockport 3—3
Wigan — Northampton 2—0
Wimbledon — Doncaster 3—2
York — Scunthorpe 1—0
SKOTLAND, ÚRVALSDEILD,
Dundee Utd. — Partick Th. 2—0
Hearts — Celtic 2—0
Morton — Aberdeen — 2—1 Motherwell
— St. Mirren 1—2
Rangers — Hibernian 2—1
Dundee Utd.
Celtic
Hihernian
Rangers
Aberdeen
Patrick Thistle
St. Mirren
Morton
Hearts
Motherwell
11 5 5 1 15 8 15
11 0 1 4 20 14 13
11 4 5 2 12 10 13
11 3 6 2 12 10 12
11 4 3 4 22 14 11
11 4 3 4 12 12 11
11 5 1 5 12 12 11
11 3 4 4 13 16 10
11 3 4 4 12 18 10
11 2 0 9 8 24 4
Það var óvenju mikið skorað á Ítalíu
að þessu sinni, allt upp í 7 mörk f leik.
Inter náði hvað eftir annað forystunni
gegn Torfnó, sem jafnaði jafnharðan.
Paolo Rossi skoraði tvfvegis, er lið hans
Lanerossi tapaði 3—4 fyrir Lazió. AC
Milan hefur forystuna f deildinni með 9
stig að loknum 5 leikjum. Perugfa hefur
9 stig í öðru sæti. Þeir Albertó hjá AC og
Trevisanelló hjá Ascoli skoruðu þrennur
fyrir lið sfn, slíkt er óvenjulegt í ftalskri
knattspyrnu.
HOLLAND, 1. DEILD,
Sparta Rotterdam — Nec Nijmegen 1—0
Den Haag — Maastricht 1—1
AZ ’67 Alkmaar — FC Utrecht 3—0
Haarlem — Pec Zwolle 2—1
GAE Deventer — Nac Breda 1—0
PSV Eindhoven — Tvente 1—0
VVV Venló — Volendam 1 — 1
Vitesse Arnhem — Roda JC 2—5
Ajax — Feyenoord 0—0
Leikur Ajax og Feyenoord vakti mesta
athygli fyrir hvað gekk á eftir að honum
lauk, cn þá voru áflog og skemmdarverk
f öllum hornum og tugir fólks, allt frá
13—20 ára. handtekið meira og minna
grátt fyrir járnum. Einn var tekinn með
hlaðna skammbyssu. Leikurinn sjálfur
var aldrei eins fjörugur og slagsmálin
eftur að honum lauk.
Jan Poortvliet skoraði eina mark PSV
gegn Tvente og það dugði til sigurs.
Pierre Vermaulen, Nanninga (2) og De
Jong (2) skoruðu fyrir Roda JC gegn
Arnhem, sem svaraði með mörkum
Veenstra og Bursac.
Varavaravara-markvörður Deventer
Jan Endeman var maður leiksins gegn
Nac Breda. Endeman cr fjórði markvörð-
urinn sem Deventer notar f haust.
Tommy Kristiansen frá Danmörku,
skoraði sigurmark Deventer.
Ajax hefur sem fyrr 2 stiga forystu, 19
stig eftir 11 leiki. PSV og Roda JC hafa
bffiði 17 stig, svo að enn getur brugðið til
hegjrja vona.
SPANN, 1. DEILD,
Real Sociedad — Ilercules 2—1
Sevilia — Espanól 4—3
Valencia — Gijon 4—0
Salamanca — Celta 1—0
Real Madrid — Huelva 4—0
Barcelona — Burgos 2—0
Rayo Vallecano — Real Zagrossa 1—0
VESTUR-ÞÝZKALAND, 1. DEILD, Real Madrid hefur hiotið 13 stig og er
Werder Bremen — VFL Bochum 3-3 efst cftir 8 umferðir. Bilbaó hefur 11 stig
Schalke 04 — Kaiserslautern 1-1 og Espanól og Barcelona hafa bffiði hlotið
Duisburg — Nurnberg 1-0 10 stig.
Dortmound — Dusseldorf 3-0 SVÍÞJÓÐ, 1 DEILD,
Mönchengladbach — Stuttgart 0-0 Elfsborg — örebro 2-0
Bayern — Hertha Berlin 1-1 Gautaborg — Kalmar 0-0
Armenia Bielefeld — 1. FC Köln 1-0 Hammarby — Halmstad 0-0
Frankfurt — Darmstedt 2-0 Landskrona — AIK 1-1
Brunswick — Hamburger 1-0 Norrköping — Malmö FF 0-0
Þegar 11 umferðum er lokið, hefur Vasteras — Atvidaberg 0-4
Kaiserslautern enn forystu, tveggja öster — Djurgaarden 2-3
stiga, með 17 stig, en Frankfurt hefur
hlotið 15 stig. Bayern Hamburg og
Stuttgart hafa hlotið 14 stig.
Þetta var sfðasta umferðin í Svfþjóð,
öster varð meistari með 38 stig, Malmö
FF fékk 32 stig.