Morgunblaðið - 09.11.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1978
3
„Eg varð gagntekinn gleói, Gligoric
virtist létta en Mendez vonsvikinn"
„VIÐ FÓRUM allir þrír upp í svítu Mendczar þegar
atkvæðagreiðslan byrjaði, ég, Mendez og Gligoric því að það
þótti ekki æskilegt að við værum þar viðstaddir. Bróðir
Mendezar kom upp til okkar með fréttirnar, ég varð auðvitað
gagntekinn gieði, Gligoric virtist létta en Mendez gat ekki dulið
vonbrigði sín. En allt Tór þetta íram í mesta bróðerni og þeir
óskuðu mér báðir hjartanlega til hamingju."
Þannig mælti Friðrik Olafsson
er Morgunblaðið ræddi við hann
eftir hina glæsilegu kosningu í
Buenos Aires í gærdag.
Erfiðasta skákin
„Þetta er erfiðasta skák sem ég
hef teflt um ævina," sagði Friðrik
aðspurður um hina hörðu
kosningabaráttu, sem hefur verið
háð á undanförnum vikum og
mánuðum. „Leikreglurnar eru
ólíkar því sem ég hef vanizt í
skákinni en ég hef ætíð reynt að
leika beztu leikina alveg eins og
við skákborðið og það hefur mér
tekist og vinningurinn í þessari
erfiðu skák er í höfn.“
Friðrik sagði að þeir Gligoric og
Mendez hefðu unnið nótt og nýtan
dag við það að vinna framboðum
sínum stuðning og hefði ekkert
verið til sparað í þeim efnum. M.a.
hefur Gligoric notið aðstoðar
utanríkisþjónustu Júgóslava í
heilt ár og kvöldið fyrir kosning-
una hélt júgóslavneska sendiráðið
boð fyrir alla Fide-fulltrúana.
„Mendez hefur einnig lagt feiki-
lega vinnu í það að afla sér
stuðnings og hann hefur hvorki
sparað fé né fyrirhöfn til þess að
ná kjöri. Hann var orðinn mjög
sigurviss og því urðu úrslitin
honum svona mikil vonbrigði.
Gligoric vini mínum hefur aftur á
móti fundizt umstangið í kringum
þetta orðið heldur mikið og því
virtist mér sem honum létti við að
heyra úrslitin þó þau hafi orðið
honum jafn óhagstæð og raun ber
vitni," sagði Friðrik.
Gripu í tómt
Friðrik sagði að frambjóð-
endurnir hefðu strax eftir kjörið
farið niður í fundarsalinn en þá
hafði dr. Euwe, fráfarandi forseti
Fide í einhverri fljótfærni gert hlé
á þingstörfum. Gripu frambjóð-
endurnir því í tómt, en Friðrik
hafði hugsað sér að flytja ræðu
strax að kjörinu loknu. Síðdegis
hófust þingstörf að nýju og þá sté
hinn nýkjörni forseti í ræðustól-
inn og flutti stutta þakkarræðu.
„Ég þakkaði þingheimi þann
stuðning, sem ég hafði hlotið í
þessu kjöri," sagði Friðrik. „Ég
sagðist myndu gera allt sem ég
gæti til þess að bregðast ekki
þessu mikla trausti og að lokum
hvatti ég fulltrúa skáksamband-
Friðrik ólafsson ávarpar Fide-þingið í Buenos Aires
í gær. Símamynd AP
anna til að standa saman um Fide
og skáklistina.
Þegar hægist um mun ég huga
að framtíðarmálum Fide,“ sagði
Friðrik. „Það er ýmislegt sem þarf
að ákveða nú þegar aðalstöðvar
sambandsins flytjast til íslands.
Ég reikna fastlega með því að
skrifstofa Fide verði áfram í
Amsterdam, fyrst um sinn a.m.k.,
og einnig reikna ég með því að
ungfrú Inike Bakker verði áfram
framkvæmdastjóri sambandsins,
en hún gjörþekkir öll mál þess. I
reglum Fide segir að æskilegt sé
að helstu forystumenn auk forset-
ans séu frá sama landi og hann, en
það er þó ekki skilyrði. Öll þessi
mál verða könnuð á næstunni."
Mikil gleði
Friðrik Ólafsson sagði að lokum
að mikil gleði ríkti að vonum í
íslenzka hópnum í Buenos Aires
yfir úrslitum forsetakjörsins.
Heillaóskir bærust hvaðanæva að
og m.a. kom Karpov heimsmeist-
ari til Friðriks eftir kjörið og
óskaði honum til hamingju. „Mín-
ir stuðningsmenn hafa unnið
ákaflega vel þótt ekki höfum við
haft þá fjármuni né mannafla sem
hinir frambjóðendurnir. Ég vil
nota tækifærið og þakka heilshug-
ar öllum þeim mönnum, íslenzkum
sem útlendum, sem stuðlað hafa
að kjöri mínu sem forseta Fide.“
TOYOTAEIGENDUR
Valkostur
Toyotaeigenda
Ibi
Vantar eitthvað í bílinn?
Hjá okkur er alltaf fullt hús
af „original“ Toyota-varahlutum.
Kynniö ykkur úrval og verö áöur en þiö
verzlið annars staðar.
Vorum aö taka inn stórar sendingar
varahluta í flestar gerðir og
árgeröir Toyota.
Þ jónustuna þekkið þið h já okkur
TOYOTA"
VARAH LUTAUMBOÐiÐ
ÁRMÚLA 23,SÍMI 31226