Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978 Gjöf sem gleöur myndiójan KÁSTÞÓRf Hafnarstræti 1 7 — Suðurlandsbraut 20. HANIMEX vasamyndavélin meö eilíföarflassi litfilmu og FRAMKÖLLUN á fyrstu filmunni fylgír meö „Stjörnustríð” — Sögubók í máli og myndum BÓKAÚTGÁFAN Örn ok Örlyg- ur hefur gefið út bókina STJÖRNUSTRÍÐ sÖRubók í máli ok myndum eftir Geraldine Richelson í þýðingu Hersteins Pálssonar. Hér er um að ræða bók sem ætluð er börnum og unglingum. Ságan er sögð í stuttu og greinar- góðu máli og á hverri síðu eru litmyndir úr kvikmyndinni. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI JVjANjGMNNMANN^ 7 BÓKINUM JONAAKRI SKUGGSJÁ Vinir Jóns Pálmasonar fyrrum alþingismanns og ráðherra, pólitísk ir andstæðingar jafnt og samherjar, lýsa eðliskostum hans vel í þessari bók. Þeir minnast glaðværðar hans á góðri stund. drengilegrar fram- göngu hans er þjóðarsómi krafðist, trygglyndis hans og vinsælda, sem voru með eindæmum. Veigamcsti þáttur bókarinnar er viðtal, sem Matthías Johannessen átti við Jón, drög að ævisögu hans, en aðrir, sem efni eiga í bókinni, erui Ágúst Þorvaldsson, Björn Bcrgmann Brynhildur H. Jóhannsdóttir, Hjörtur Kristmundsson, Emil Jóns- son. Guðmundur Jónsson, Guðrún P. Helgadóttir, Gunnar Thoroddsen, Halldór Jónsson, Jóhann Hafstein, Ingólfur Jónsson, Jónas B. Jónsson, Magnús Þorgeirsson, Pétur Þ. Ingjaldsson, Sigurður Bjarnason og Þorsteinn Bernharðsson. Jón á Akri var óefað í hópi svipmestu og merkustu manna sinnar samtíðar og þessi fagra og myndskreytta bók mun verða aufúsugestur þeirra, er muna þennan glaðbcitta þingskör- ung og héraðshöfðingja. Saga Einars Guðfinnssonar er tvímælaiaust ein merkasta ævi- saga síðari tíma. Saga hans er þróunarsaga sjómennsku, allt frá smáfleytum til stærstu vél- báta og skuttogara og saga uppbyggingar og atvinnulífs í elztii verstöð landsins. Einar Guðfinnsson er sjómaður í eðli sínu, öðlaðist þrek við árina og vandist glímunni við Ægi á smáfleytum. Af óbilandi kjarki og áræði sótti hann sjóinn og af sama kappi hefur hann stýrt fyrirtækjum sínum, sem til fyrir- myndar eru, hvernig sem á er litið. Saga Einars Guðfinnssonar á vart sinn líka. Hún er sjór af fróðleik um allt, er að fisk- veiðum, útgerð og fiskverkun lýtur, hún er saga afreksmanns, sem eríði ekki fé en erfði dyggðir í því ríkari mæli. Ilinn landskunni skipstjóri og sævíkingur, Jón Eiríksson, rekur hér minningar sínar í rabbformi við skip sitt Lagarfoss. Þeir rabba um siglingar hans og líf á sjónum í meira cn hálfa öld, öryggismál sjómanna, siglingar í ís og björgun manna úr sjávar- háska, um sprenginguna ógur- legu í Ilalifax og slysið mikla við Vestmannaeyjar. Skipalestir stríðsáranna og sprengjukast þýzkra flugvéla koma við sögu og að sjálfsögðu rabba þeir um menn og málefni líðandi stundar. sæfara, framámenn í íslcnzku þjóðlífi, háttsetta foringja í her Breta og Banda- rikjamanna, en þó öðru fremur félagana um borð, skipshöfnina, sem mcð honum vann og hann bar ábyrgð á. Það er seltubragð af frásögnum Jóns Eiríkssonar, enda ekki heiglum hent að sigla með ströndum fram fyrr á tíð eða ferðast í skipalcstum stríðsár- anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.