Morgunblaðið - 21.01.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.01.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1979 5 Útvarp mánudag kl. 21.55: „Álíaríma” NÝTT KAMMERJAZZTÓNVERK cltir Gunnar R. Svcinsson. hiifund Samstæðna vcrður flutt í útvarpi annað kvöld kl. 21.55. Tónverkið heitir „Álfaríma," og er lagaflokkur við ljóð skáldkonunnar Astu Sigurðardóttur, sem látin er fvrir nokkrum árum. í febrúar 1977 gekkst Rauðsokkahreyfingin fvrir minningardagskrá um skáldkonuna í Norræna húsinu og sneri sér í því tilefni til Gunnars með beiðni um að semja tónlist fyrir dagskrána. Hann samdi þá þennan lagaflokk. Fjögur ljóð eru í verkinu, „Sængin,“ „Andvakan," „Dimm er nótt og daufleg jól,“ og „In Memoriam," og eru það allt ljóð, sem ekki hafa birst áður. Flutningsmenn verksins eru auk höfundar, söngkonan Ásta Thorstensen altrödd, Viðar Alfreðsson horn, Gunnar Ormslev tenorsa.xafón, Árni Scheving bassi og Alfreð Alfreðsson trommur. Höfundur stjórnar flutningi verksins og ieikur jafnframt með á vibrafón. Gunnar Iícynir Svcinsson Sjónvarp mánudag kl. 21.20: Leikslok Leikslok. nefnist brezka leikritið. sem hefst í sjónvarpi annað kvöld kl. 21.20. í leiknum segir frá piparsveini um þrítugt, Mark Hawkins, en hann er bankastarfsmaður og vinnur við tölvu. Sér hann um að allar færslur úr útibúum og stofnunum fari inn á viðkomandi reikninga í bankanum eftir lokun. Þegar lítið var að gera, hafði hann gert sér það til dundurs á kvöldin að búa sér til prívatkerfi, forskrift fyrir tölvuna, sem hann notaði í vafasömum tilgangi. Fyrirhugað er að taka upp nýtt tölvukerfi í bankanum og Mark óttast að nú komist upp um athæfi hans. Kona frá sölufyrirtæki tölvunnar kemur til að vinna með Mark að undirbúningi skiptanna. Fer hún yfir öll þau verkefni og skýrslur, sem Mark er með. Hún sér, að einhvers staðar ei“ pottur brotinn og fer að tortryggja Mark. Vekur það enn meiri grunsemdir hjá henni, þegar Mark lætur í það skína, að hann vilji hætta störfum. SÍÐDEGIÐ 13.40 Við vinnunai Tónleikar 14.30 Miðdegissagani „Húsið og hafið“ eftir Johan Bojer. Jóhannes Guðmundsson þýddi. Gísli Ágúst Gunn- laugsson les (4). 15.00 Miðdegistónleikan ís- lenzk tónlist a. Fjögur lög eftir Björn Franzson. Guðrún Tómas- dóttir syngurt Guðrún Krist- insdóttir leikur á píanó. b. Tríó í a-moll fyrir fiðlu, seiló og pfanó eftir Svein- björn Sveinbjörnsson. c. Adagio con variazione fyrir kammerhljómsveit eft- ir Herbert H. Ágústsson. Sinfóníuhljómsveit íslands leikurt Alfred Walter stj. d. „Lilja“, hljómsveitarverk eftir Jón Ásgejrsson. Sinfóníuhljómsveit íslands leikur; Pálí P. Pálsson stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. Þorgeir Ást- valdsson kynnir. 17.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga. „Kalli og kó“ eftir Anthony Buckeridge og Nils Reinhardt Christen- sen. Áður útv. 1966. Leik- stjóri. Jón Sigurbjörnsson. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Árni Böðv- arsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn. Ásgeir Guðmundsson skóla- stjóri talar. 20.00 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir kynnir. 21.10 Á tíunda timanum. Guð- mundur Árni Stefánsson og Hjálmar Árnason sjá um þátt fyrir unglinga. 21.55 „Álfaríma“ eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Ásta Thor- stcinsson syngur með djass- kvintett. 22.10 „Eggjapúns“, smásaga eftir Tove Ditlevsen. Kristín Bjarnadóttir leikkona les þýðingu sína. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Leiklistarþáttur Sigrún Valbergsdóttir talar við Svein Einarsson þjóðleikhús- stjóra og leikarana Róbert Arnfinnsson og Kristbjörgu Kjeld um fengna reynslu af erlendum leikstjórum hér- lendis. 23.05 Frá tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Há- skólabíói á fimmtudaginn var( síðari hluti. Hljómsveit- arstjóri. Gilbert Levine frá Bandan'kjunum. Konsert fyrir hljómsveit eftir Béla Bartók. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Luxqr 79 sjónvarpstækin eru nú komin aftur Rétt fyrir jólin fengum við afgreidd Luxor 22“ sjónvarpstæki á hreint ótrúlegu lágu veröi — viö höfum nú fengið aftur tæki ennþá á lága verðinu eöa aöeins a Sænsk vara hefur löngum þótt bera af í gæöum og ber þar ekki hvaö minnst á Luxor fyrirtækinu. Þetta 22 tommu tæki hefur vakið veröskuldaða athygli um heim allan og I ekki aö ástæðulausu. Einnig fáanleg 18“ tæki fyrir aöeins Kr. 379.000. KomiÖ og kynnið ykkur kosti Luxor sjónvarpstækjanna strax í dag. Takmarkaöar birgðir á framangreindum veröum. 3ja ára ábyrgö á myndlampa. Sænsk gæöi Luxorgæði. Viðgerðarþjónusta Sendum heim. HLJÓMDEILD (iLnt KARNABÆR * Laugavegi 66, 1 . hæð Simí frá skiptiborði 281 5F> \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.