Morgunblaðið - 21.01.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.01.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 21. JANÚAR 1979 Eikin er tekin til starfa á ný Hljómsvcitin Eik var cin af lanKlífari hljómsvoitum okkar þegar hún hætti í byrjun síóasta árs. Eik hofur nú verið ondurreist á nýjum grundvelli til nýrra verkefna. Til að byrja með koma þeir til með að leika undir hjá Þokkabót þegar Þokkabót leggur út í að kynna vætnanlega plötu sína, en ekki mun líða á löngu þar til hún birtist. í öðru lagi mun hljómsveitin koma fram ein á tónlistarkvöldum í framhaldsskólum og flytja leikin verk án söngvara en Eikina skipa nú Harald Þorsteinsson, bassagítar, eins og fyrr, Lárus Grímsson, hljómborð og flautu, Þorsteinn Magnússon, gítar og Pétur Hjaltested, hljómborð, en þeir fjórir voru allir meðlimir í Eik þegar hljómsveitin hætti síðast. Auk þeirra leikur Sigurður Karlsson á trommur. í þriðja lagi stendur til að Eikin leiki eitthvað fyrir datói og þá helst óopinberlega, þ.e. í skólum og þess háttar. Auk fyrrnefndra syngur Sigurður Sigurðsson með hljómsveitinni á dansleikjiyn. Þess má geta um samband Eikarinnar og Þ.okkabót, að Lárus Grímsson er meðlimur í báðum hópunum. Hia. Lítil breyting í vinsældavali Db Á FIMMTUDAGINN var héldu Dagblaðið og Vikan sina aðra árlegu Stjiirnumessu. þ.e. kynn- ingu á úrslitum vinsældakosn- inga þeirra. Úrslitin komu ekki neitt á óvart. Egill Ólafsson og Þursarnir hlutu stærstan sigur, en Egill og Spilverkið voru sigurveg- arar síðasta árs. Hljómsveit ársins reyndist vera Þursarnir, söngvari ársins Egill Ólafsson og plata ársins plata Þursanna. Sigrún Hjálmtýsdóttir fékk flest stigin en hún var kosin söngkona ársins. Gunnar þórðarson sigraði sem hljóðfæraleikari ársins og laga- smiður. Megas hélt velli sem textasmiður og Brunaliðið átti vinsælasta lagið, „Ég er á leið- inni“. Vinsælasti útvarpsþátturinn var „A tíunda tímanum" og sjónvarpsþátturinn var „Silfur- tunglið“ en „Gæfa eða gjörvileiki" fylgdi fast á eftir. Erlendir listamenn sem sigruðu í vinsældakosningunum voru þess- ir: Hljómsveit: Queen, Söngvari: Meat Loaf, Söngkona: Linda Ron- stadt, Hljóðfæraleikari: Carlos Santana og Lagasmiður Billy Joel. Vinsælasta erlenda hljómplatan: Bat Out Of Hell (Meat Loaf), 'C’J/ Plötumar, sem urðu eftir Rétt íyrír jólin barst Slagbrandi fjöldi platna og þó við hefðum reynt af öllum mætti að birta umsagnir um þær reyndist slíkt ókleift. Hér á eftir birtast stuttar umsagnir um nokkrar hljómplötur sem ekki komust Hia. að 1978. ÆVINTÝRALANDIÐ Ýmsir listamenn (Fálkinn KALP 6061) tvöföld 1978. Allt frá því að Kardemommu- bærinn var gefinn út á hljómplötu hefur þótt þess vert að gefa út góð barnaleikrit á hljómplötu, þó sér í lagi ef mikið var um sönglög. „Ævintýra-landið" er þó ekki beint unnin sem leikritsplata, heldur er hresst upp á fjögur frægustu Grimmsævintýrin, Hans og Grétu, Mjallhvíti, Rauðhettu og Öskubusku, með því að sögu- þráðurinn er leikinn á köflum með hjálp sögumanns. Er þetta framtak mjög vel heppnað og er þráðurinn upp á gamla móðinn þ.e. ævintýrin eru rétt sögð, en undanfarið virðist hafa verið faraldur hjá bókaút- gefendum að breyta þessum sér- stæðu gömlu ævintýrum og jafn- vel búa til ævintýri um ævintýra- persónur sem hafa hrifið börn í gegnum öldina. Leikararnir sem flytja ævin- týrin eru bara fimm: Bessi Bjarnason, Elfa Gísladóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Gísli Alfreðsson, sem einnig er leik- stjóri. Flestum leikenda tekst að skila efninu trúverðuglega og þó sérstaklega Bessa Bjarnasyni í hlutverki úlfsins í Rauðhettu. Platan er fyrsta flokks barna- plata. Hía. Einsöngsperlur Ýmsir listamenn (Fálkinn KALP 58) 1978 Hljómplatan „Einsöngsperlur" á nú kannski ekki upp á pallborðið hjá öllum lesendum Slagbrands en engu að síður viljum við vekja athygli á þessari plötu sem inniheldur mikið af léttari „ein- söngsperlum". Eins og búast mátti við er hér um landsþekkta slagara á borð við „Nú andar suðrið" eftir Inga T., „Hraustir menn“ og „Agnus Dei“, en öll þessi lög syngur Guðmundur Jónsson með aðstoð Karlakórs Reykjavíkur. „Dalakofinn" er á plötunni sunginn af Hreini Páls- syni, Guðrún Á. Símonar á tvö létt lög, „Siboney“ og „Jealousy". Stefán íslandi syngur „í dag skein sól“, „Ég lít í anda liðna tíð“, „í fjarlægð" og „Ökuljóð" og Einar Kristjánsson syngur „Hamraborg- ina“ og „Mamma ætlar að sofna“. Þá eru bara ónefndir Gunnar Pálsson sem syngur „Sjá dagar koma“ og Erling Ólafsson sem syngur „Mamma“, bæði eftir Sigurð Þórðarson. Öll hafa þessi lög notið geysi- vinsælda á mest allri þessari öld, og því gaman að þau skulu vera saman kominn á einni vel valinni plötu. Annars býður Slagbrandi í grun að ekki hafi allar upptökurnar verið gerðar eftir upprunalegu spólunni þar sem suð og brak heyrist á stöku stað sem einkennir spilaðar plötur. Hía BESTU LÖG SJÖTTA ÁRATUGSINS Ýmsir listamcnn (Fálkinn KALP 59) 1978 Á meðan rokkið sló í gegn á sjötta áratugnum voru hérlendis ýmsir þýskir „schlagerar" og ítalskar ballöður hvað vinsælast þó ekki sé þar með sagt að þau hafi endilega verið samin þar, heldur voru lögin samin undir þessum áhrifum. Nokkur af betri og skemmtilegri lögunum frá þessum tíma er að finna hér. Á þessari 16 laga plötu eru líka vinsælustu skemmtikraft- ar þessa tíma, ems og Haukur Morthens sem syngur „Ég er kominn heim“, „Bjössi á mjólkur- bílnum" og „Frostrósir", Ragnar Bjarnason syngur „Anna í Hlíð“, Erla Þorsteinsdóttir syngur „Heimþrá", „Draumur fangans" og „Litli tónlistarmaðurinn" sem öll voru fádæmavinsæl á þessum árum og jafnvel fram á sjöunda áratuginn. Öskubuskur eiga hér lögin „Bimbó", sem Ríó endur- sömdu eftir lélegu minni á „Allt í gamni") og „Bjartar vonir vakna". Toralf Tollefsen nikkumeistari á tvö „númer“: „Hreðavatnsvals- inn“ „Tondeleió" og „Stýrimanna- valsinn". Ingibjörg Smith syngur svo „Nú liggur vel á mér“ og „Við gengum tvö“ létt og húmorísk lög. Gestur Þorgrímsson á svo lagið „Á Lækjartorgi" (en á bakhlið þeirrar plötu, sem að sjálfsögðu var 78 snúninga minnir mig að verið hafi eitt af „bönnuðu" lögunum í útvarpinu sem mig minnir (aftur) að heitið hafi „Sunnuhvoll“ eða eitthvað í þá áttina. Þessi tvö lög voru meðal uppáhaldslaga undirritaðs á sjötta áratugnum, en því miður er bara annað hér.) Að lokum eiga svo Leikbræður og Hallbjörg Bjarnadóttir sitt lagið hvort, „Fiskimannaljóð frá Caprí“ og „Vorvísa". Varla breytir þessi plata farveg hljómplötuút- gáfu hérlendis né óskalagaþáttun- um að sinni, en ætti að ylja þeim, sem þóttu lögin ljúf, um hjarta- rætur. Hía. FAGRA VERÖLD Sigfús Halldórsson/ Guómundur Guðjónsson (Steinar 031) 1978 Sigfús Halldórsson og Guðmundur Guðjónsson gáfu út sína aðra plötu saman í desember, „Fagra veröld". Á plötunni eru ýmis ný og óþekkt lög og svo gömul og þekkt. I seinni hópnum eru líklega þau lög sem selja plötuna, lög eins og „Litla flugan", „Játning", „Þín hvíta mynd“ og „Við Vatns- mýrina". Þeir félagar eru sérlega afslappaðir á þessari plötu og tónlistin rennur fram reiprenn- andi. Þess má einnig geta að flest öll ljóðin eru sérlega rómantísk og falleg, líkt og tónlistin, enda höfundar eins og Tómas Guðmundsson, Þorsteinn Erlings- son og Stefán frá Hvítadal. ÆVINTÝRI EMILS Ýmsir listamenn (Steinar SMÁ 202) 1978 1978 komu út nokkrar barna- plötur og er það vel. Nokkuð hefur þessi útgáfa þó verið misjöfn og ýmsar plötur sem gefnar eru út undir því yfirskini að þær séu barnaplötur eru það alls ekki. Ein af nokkrum undantekningum er platan „Ævintýri Emils" sem út kom rétt fyrir jól. Á hvorri hlið er samfelld saga sögð af sögumanni, leikin og sungin sem er tvímælalaust besta formúlan, enda hefur hún nokkuð verið nýtt áður sbr. fyrri „Emil- plötu“ og Róbert Bangsaplöturnar. Efni platnanna er endursögn á hinum vinsælu sjónvarpsþáttum sem sýndir voru hér fyrir nokkr- um árum. Frásögn Helgu E. Jónsdóttur er skemmtileg og sérlega skýr, leikurinn bærilegur en lögin einna slökust og söngurinn ekki sérlega eftirtektarverður. En samt sem áður ágætis skemmtun hánda „börnum“. Hía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.